Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 MORGUNBLAÐIÐ ÍÞRÓTTIR England 1QRA 1 Þegar spáð er í þróun mála í HM í knattspyrnu síðustu 30 árin ... Brasilía 1970 Þýskalaría * Argentína 1978 ... þá virðist röðin vera komin að Englendingum að verða heimsmeistarar, ekki satt? Verða Englendingar heimsmeistarar í Frakklandi árið 1998 m ■ RÍKHARÐUR Daðason og fé- lagar í Kalamata í grísku 1. deild- inni töpuðu illa um helgina er þeir heimsóttu AEK í Aþenu. Úrslitin urðu 6:1 og gerði Demis Nikolaidis fimm af mörkum heimamanna. ■ GRETAR Hjartarson skoraði annað mark Stirling, sem vann Clydebank 2:1 í skosku 1. deildar- keppninni á laugardaginn. ■ HREINN Hringsson lék með East Stirlingshire í skosku 3. deild- inni um helgina en liðið tapaði 4:1 á heimavelli fyrir Albion Rovers. Hreinn gerði eina mark Stirlings- hire með skalla af stuttu færi á 38. mínútu. ■ SUNNA Gestsdóttir fijáls- íþróttakona úr USAH, sem er við háskólanám í Athens í Bandaríkj- unum, tók um helgina þátt í fyrsta innanhússmeistaramóti háskólanna þar í landi. Sunna hljóp 200 m á 25,09 sekúndum og stökk 5,69 m í langstökki. Hún komst ekki í úrslit í þessum greinum. ■ GUNNHILDUR Hinriksdóttir úr HSÞ er einnig er við nám í Bandaríkjunum keppti í 55 m grindahlaupi á sama móti og varð í sjöunda og síðasta sæti í sínum riðli toúm FOLK á 8,74 sekúndum og rak lestina í sínum riðli í langstökki með 5 m. ■ EITT heimsmet var sett á inn- anhússmóti í fijálsíþróttum sem fram fór í Bandaríkjunum um helg- ina. Obadele Thompson frá Barba- dos hljóp 55 metrana á 5,99 sekúnd- um en gamla metið, 6,00, átti Lee McRae og hafði það staðið frá því 1986. ■ ENSKA badmintonkonan Jo Muggeridge, sem hefur verið meðal fremstu stúlkna þar í landi í íþrótt- inni, gerði sér lítið fyrir um helgina og hellti úr kókdós yfir höfuðið á framkvæmdastjóra badmihtonsam- bandsins. Ástæðan var að henni var tjáð að hún fengi ekki styrk nema taka þátt í æfingum landsliðsins þar sem ætlunin var að koma keppend- um í góða æfingu. Muggeridge hefur löngum verið í þéttari kantin- um og átt í erfiðleikum með auka- kílóin og líkaði þetta ekki, hellti úr dósinni og sagðist aldrei ætia að leika fyrir England á ný. ■ ATO Boldon bronsverðlaunahafi í 100 metra hlaupi á Ólympíuleikun- um, jafnaði besta tíma sem náðst hefur í 60 metra hlaupi í ár á móti í Birmingham um helgina er hann hljóp á 6,49 sekúndum. Á sama móti hljóp hann á besta tíma ársins innanhúss í 200 m hlaupi, 20,35 sek. ■ STEVE Smith hástökkvari frá Bretlandi kunni vel við sig á heima- velli á mótinu í Birmingham, stökk 2,34 m sem er besti árangur sem náðstjiefur innanhúss í vetur. ■ RÚSSNESKA hlaupakonan Svetlana Masterkova verður ekki meðal keppenda á heimsmeistara- mótinu innanhúss sem fram fer í París í næsta mánuði. Hún var ekki meðal keppenda á úrtökumóti í Rússlandi um helgina og segja forráðamenn rússneska frjáls- íþróttasambandsins að hún þurfi lengri hvíld eftir mjög annasamt ár. Masterkova sigraði í 800 og 1.500 metra hlaupi á Ólympíuleik- unum. Laugardagurinn 22. febrúar 1997 er stór dagur í sögu Hauka í Hafnarfirði. Það er dag- urinn sem félagsmenn fógnuðu bikarmeistaratitli í handknattleik — ekki einu sinni, heldur tvisvar. Kvennalið Hauka fagn- aði sigri í Laugardals- höllinni rétt fyrir klukk- an þijú og rúmum þremur tímum síðar fagnaði karialið Hauka á sama stað ásamt fjöl- mörgum litskrúðugum stuðningsmönnum Hauka, sem höfðu áður stigið sigurdansinn með Haukastúlkunum. Lang- þráður dagur fagnaðar var runn- inn upp, sautján ár voru iiðin síðan Haukar urðu bikarmeistar- ar. Haukastúlkurnar tóku for- skot á sæluna í fyrra. Þá urðu þær mjög óvænt íslandsmeistar- ar, eftir að búið var að afskrifa þær eftir tvo tapleiki gegn Stjömunni. Haukar gáfust ekki upp, þó að móti hafí blásið. Þannig er andrúmsloftið í herbúðum Hauka, þeir hafa sýnt mikla þol- inmæði á undanfömum áratug- um í Hafnarfirði, lengstum stað- ið í skugga FH — Haukar hafa verið kailaðir „litli bróðir“ í Hafn- arfirði. Haukar hafa sjálfir gert lítið úr öllu tali um „litla bróður“ — talið FH-inga hörðustu keppi- nauta sína. Haukar hafa réttilega bent á að þeir urðu íslandsmeist- arar í handknattleik 1943, þrett- án ámm áður en FH-ingar fengu að kynnast þeirri tilfinningu að eiga meistaralið, eða 1956. FH-ingar hafa fagnað fleiri meistaratitium síðan þá. Aftur á móti ekki hægt að ioka augunum fyrir því að Haukar hafa unnið mjög farsælt starf í allri upp- byggingu á undanfömum ámm. Handknattleiksdeild Hauka er afar vel rekin og það er ánægju- legt að sjá hvað margir fyrrum leikmenn liðsins halda vel hópinn og hafa unnið mikið starf fyrir félag sitt — fyrst sem leikmenn og síðan sem félagsmenn. Það em leikmenn sem hugsa fyrst og fremst; hvað get ég gert fyr- ir félagið mitt, en ekki; hvað getur félagið gert fyrir mig. Margir af þessum mönnum stigu dansspor f Laugardalshöllinni á laugardaginn með leikmönnum — sautján árum eftir að þeir sjálfir fögnuðu bikarsigri. Umgjörðin í kringum bikarúr- slitaleikina var Haukum og KA til sóma. Fjöimargir stuðnings- menn norðan heiða komu tíl að styðja við bakið á sínum mönn- um. Þeir þekkja vel þá sigurvímu sem Haukar fengu að upplifa, þar sem þeir hafa fagnað tvisvar eftir bikarúrslitaleik með leik- mönnum KA á tveimur árum. Haukar geta verið stoltir. Þeir eiga góð handknattleikslið og frábæra stuðningsmenn. Það er sannkölluð fjölskyldustemmning í herbúðum Hauka — gott and- rúmsloft til að ala upp hand- knattleiksmenn. „Nú er aðeins eitt eftir hjá okkur í dag, það er að fara með bikarana tvo heim og mála bæinn rauðan," sagði einn rauðklæddur stuðningsmað- ur Hauka, þegar þeir yfirgáfu Laugardalshöllina. Framtíðin er björt hjá Haukum, í rauðum Hafnarfjarðarbæ. Sigmundur Ó. Steinarsson Framtíðin er björt hjá Haukum, í rauðum Hafnarffarðarbæ Barfyrrum Þórsarinn RÚNAR SIGTRYGGSSON á sérleynivopn fleiknum við KA? Var klæddur Þórstreyju RÚNAR Sigtyggsson er að leika sitt fyrsta keppnistímabil með Haukum frá Hafnarfirði og óhætt er að segja að byrjunin hjá honum sé ekki góð því á laugardaginn varð hann bikarmeistari með félaginu. Hann átti drjúgan þátt f þvf að tryggja bikarinn f húsi með góðum leik jafnt f vörn sem sókn þar sem hann gerði sjö mörk. Aður en hann kom til liðs við Hauka lék hann með Val eina leiktfð og hálfa aðra með Vfkingi en hluta sfðasta vetr- ar bjó hann í Danmörku. Rúnar er fæddur og uppalinn á Akur- eyri og lék með Þór upp alla yngri flokka áður en hann hleypti heimdraganum og fluttist suður yfir heiðar. Runar er 24 ára gamall óákveð- inn háskólanemi. „Nú er ég í nokkrum fögum á viðskiptasviði, ■■■■■■ en vandinn er sá Effír að ég veit ekki hvað ivar ég á að leggja fyrir Benediktsson mig,“ segir hann. Sambýliskona Rúnars er Heiða Erlingsdóttir íþróttakennari, nemi við Kennara- háskóla íslands og handknattleiks- kona með Víkingi. Sonur þeirra er Sigtryggur 8 mánaða gamall en áður hafði Rúnar eignast soninn Aron sem er á þriðja ári. í Ijósi tengsla við Þór var þá ekki enn gieðilegra að vera sigurvegari á laugardaginn? „Auðvitað var það ekki til þess að spilla gleðinni og ég hafði það í huga er þeir nálguðust okkur í síðari hálfleik að þeir mættu ekki ná frumkvæðinu." Undir Haukapeysunni varstu í hvítri peysu á meðal leikurinn fór fram, var það Þórstreyjan? „Já, það er rétt. Þetta er treyja sem ég fékk í þriðja flokki. Eg notaði hana síðan í fyrsta sinn í langan tíma er við fórum norður og lékum við KA fyrir áramót. Mér gekk vel í þeim leik svo ég ákvað að klæðast henni á ný í bikarúr- slitaleiknum." Þú hefur ekkert ögrað KA- mönnum og sýnt þeim hana? „Eini maðurinn í KA-liðinu sem ég sýndi treyjuna var fyrrum félagi minn hjá Þór, Sævar Árnason, en hann fékk ekki að sjá leynivopnið fyrr en eftir leikinn." Ætlar þú að nota þetta vopn á KA í framtíðinni? „Ég reikna með því ef henni verður ekki stolið af snúrunum." Hefðir þú ekki viljað vera í byrj- unarliðinu á laugardaginn? „Jú, og það kom mér á óvart Morgunblaðið/Þorkell RÚNAR og sonurinn Sigtryggur tóku lífinu meö ró daginn eftir sigurinn í úrslitum bikarkeppninnar. að vera ekki í bytjunarliðinu en varð til að hleypa aukakrafti í mig. Þessi ákvörðun hans þurfti samt ekki að koma á óvart því yfirleitt hefur hann látið óreyndari mennina byija.“ Voru menn ekki hungraðir í bik- arinn fyrir leikinn? „Svo sannarlega, það kom aldrei annað til greina en að sigra. Okkur hefur gengið vel í vetur og við erum komnir inn á sigurbraut og viljum af skiljanlegum ástæðum ekki fara út af henni. Við erum farnir að þekkja eigin styrk- og veikleika sem er nauðsynlegt." / fyrra lékstu með Víkingi og tapaðir í úrslitaleik fyrir KA. Hlut- skiptið er ólíkt skemmtilegra að þessu sinni, ekki satt? „Hugarfarið hjá Haukunum er allt annað en hjá Víkingi í fyrra þar sem ætlunin var sú að Ijúka leiknum með reisn fremur en sigri. Þrátt fyrir að hafa óvænta tveggja marka forystu í hálfleik í þeim leik höfðum við enga trú á að við gæt- um sigrað. Að þessu sinni komst ekkert annað en sigur að hjá okkur Haukamönnum." Bjóstu þig sérstaklega undir þennan leik umfram aðra? „Ég horfði á leikinn í fyrra af myndbandi og komst þá að því að ég hafði leikið heilan leik og gert fátt af viti. Að þessu sinni tókst mér ekki vel í fyrri hálfleik en bætti úr skák í þeim síðari og var með góða nýtingu og sendingar sem gáfu mörk. Ég á það til að láta hug falla ef mér byijar að ganga illa en að þessu sinni var ég staðráðinn í að láta það ekki henda. Þá fór ég á séræfingar síð- ustu tvær vikurnar.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.