Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 4
4 B ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 HANDKNATTLEIKUR MORGUNBLAÐIÐ „HVAÐ er hægt að segja, við vanmátum þær ekki en svona eru bikarleikir,11 sagði Magnús Teitsson, þjálfari Haukastúlkna, eftir leikinn. „Markvörður þeirra reyndist okkur erfiður þó að mörg skota okkar hafi verið meira i ætt við sendingar. Við spiluðum ekki okkar besta leik - langt í frá - en þetta var einn af þessum dögum. Undir- búningurinn var hefðbundinn með æfingu daginn fyrir leik og mæting klukkustund fyrir leikinn. Það var hinsvegar gott að vinna þó leikurinn hafi ekki verið í hæsta gæðaflokki og stelpurnar sýndu góðan karakter á síðustu mínútunum," sagði Magnús. Ekki viljað fara með tap „Þetta var erfitt eins og ég átti von á, við ætluð- um að vinna en vorum hræddar. Þær höfðu engu að tapa en pressan var öll á okkur og ég hefði ekki viljað fara í Hafnarfjörðinn í kvöld með tap á bak- inu,“ sagði Harpa Melsteð, sem var með bestu leik- mönnum Hauka. „Það er alltaf erfiður leikur þegar annað liðið er mun ofar á töflunni en ég hafði alltaf trú á sigri og vissi að við myndum klára okkur. Samt gerðum við sjálfum okkur of erfitt fýrir og hefðum átt að gera út um leikinn mun fyrr. Annars var þetta slakasti leikur okkar í vetur en engu að síður eru Valsstelpumar efnilegar og koma til með að verða mjög góðar.“ Morgunblaðið/Ásdis HAUKASTÚLKUR fögnuðu vel og innilega þegar liðið vann Bikarkeppni HSÍ í fyrsta sinn. Hér hampa Ragnheiður Guðmundsdóttir fyrirllði og Harpa Melsteð sigurlaununum. Skrekkurí okkur „Þetta var mjög erfitt því fyrri leikinn unnum við stórt,“ sagði Ragnheiður Guðmundsdóttir fyrir- liði Hauka. „Markvörður þeirra var þá ekki með en varði nú án afláts. Það var líka einhver skrekkur í okkur, sóknarleikurinn var slakur og þær léku ágæta vöm en vöm okkar og markvarsla var líka góð.“ FOLX ■ VALGERÐUR Guðmunds- dóttir formaður bæjarráðs Hafnar- fjarðar var annar heiðursgesta á bikarúrslitaleik kvenfólksins á laug- ardaginn. ■ GUÐRÚN Ágústsdóttir forseti borgarstjómar í Reykjavík var hinn. ■ VAIVA Drilingaite markvörð- ur Vals varði 27 skot gegn Hauk- um á laugardaginn, þar af eitt víta- kast, fjórtán skot, sjö úr homum, tvö af línu og þijú úr hraðaupp- hlaupum. __ ■ VIGDÍS Sigurðardóttir, sem stóð í marki Hauka, varði 20 skot, þar af tíu skot, fimm úr hornum, tvö gegnumbrot, tvö af línu og eitt hraðaupphlaup. ■ HAUKASTÚLKUR nýttu níu af 22 fæmm fyrir hlé en aðeins sjö af 24 eftir hlé. ■ VALSSTÚLKUR nýttu aðeins sex af 22 fæmm fyrri hálfleiks en jafnmörg og Haukarnir í þeim síð- ari, sjö af tuttugu og fjómm. Höfum verið í kreppu „Þetta var tæpt og við skulum ekki ræða nánar ef við hefðum tap- að,“ sagði Svavar Geirsson, vara- formaður handknattleiksdeildar Hauka, eftir leikinn og var þungu fargi af honum létt. „Liðið hefur verið í kreppu eftir tapið fyrir FH og síðustu leikir sitja enn í okkur. Fyrir vikið náðu stelpurnar sér ekki á strik fyrr en í lokin." Sigur með smáheppni „Okkur vantaði smáheppni í lok- in til að bikarinn félli okkur í skaut. Við ætluðum að vinna, það var góður hugur í stelpunum og þær fóru þetta langt á baráttunni," sagði Haukur Geirmundsson, þjálf- ari Valsstúlkna, eftir leikinn. „Við reyndum að undirbúa okkur vel, spáðum mikið í hvernig Hauka- stelpurnar leika, eins og sást á vöminni og náðum að stöðva í flest- um tilfellum hraðaupphlaup þeirra, sem er þeirra sterkasta vopn, enda skoraðu þær færri þannig mörk en í flestum leikjum vetrarins. Það gerðist með skynsömum sóknarleik okkar og þó að vantað hafi upp á kraftinn er ég ekki óánægður. Með smáheppni hefði þetta smollið sam- an hjá okkur og það er ekki slæmt að vera með næstbesta lið á ís- landi. Það eru margar ungar stelp- ur í liðinu og framtíðin er björt.“ Gáfum þetta ekki baráttulaust „Það var bara spuming um heppni hvorum megin sigurinn lenti,“ sagði Gerður Beta Jóhanns- dóttir, fyrirliði Vals, sem skoraði tvö mörk en var tekin úr umferð lengst af. „Við vorum ákveðnar í að gefa leikinn ekki baráttulaust frá okkur og mættum í morgunmat hjá Hauki þjálfara til að rífa upp stemmninguna. Vörnin var frábær og markvarslan stórkostleg svo að sigurinn hefði getað orðið okkar. Við áttum frábæran dag og öll pressan var á þeim en ég held að innst inni hafi Haukastelpurnar haldið að leikurinn yrði léttari fyrir þær þótt þær hafí alls ekki ætlað að vanmeta okkur.“ Taugastrekktur bikarieikur „Taugar leikmanna voru ekki upp á sitt besta, enda bikarleikur og úrslit hefðu getað farið á hinn veginn," sagði Theódór Guðfinns- son landsliðsþjálfari eftir leikinn og fannst lítið til sóknarleiks liðanna koma. „Hjá Haukastúlkum var hann ómarkviss, þær virtust ragar og engin þorði að taka af skarið fyrr en í lokin. Valsstúlkur vom hinsvegar duglegar við að bijótast í gegn en að öðm leyti var lítið að gerast hjá þeim og það var slæmt að Gerður skyldi ekki komast í gang. Markvörðurinn Vaiva Dril- ingaite hélt þeim á floti.“ Bjami ekki með gegn Egyptum Bjami Frostason markvörður Hauka er meiddur og hann vill fá sig góðan til þess að geta verið á fullu með sinu liði í úrslita- keppni íslandsmótsins, en vissu- lega er hann inni í myndinni fyrir heimsmeistarakeppnina í Japan, haldi hann áfram á sömu braut," sagði Þorbjöm Jensson, landsliðs- þjálfari í handknattleik en hann valdi í gær 16 manna hóp til þess að taka þátt í tveimur landsleikj- um við Egypta annað kvöld og á fimmtudagskvöldið. Þá er óvist hvort franska liðið Montpellier vill láta Geir Sveinsson af hendi í leikina. Sex breytingar em á hópnum frá leikjunum við Þjóðveija um siðustu mánaðamót. Bergsveinn Bergsveinsson markvörður UMFA var ekki valinn að þessu sinni og í hans stað kemur Reyn- ir Þór Reynisson, Fram, en hann er eini nýliðinn í hópnum. Þá er Valdimar Grímsson meiddur og Júlíus Jónasson sem leikur í Sviss, Róbert Sighvatsson, Sigurður Bjamason og Patrekur Jóhannes- son, sem allir leika með þýskum félagsliðum, eiga ekki kost á að koma til þessara leikja. í þeirra stað vom valdir Sigurður Sveins- son, UMFA, Njörður Ámason, Fram, Rúnar Sigtryggsson, Haukum, Björgvin Björgvinsson, KA og Ingi Rafn Jónsson, Val. Landsliðið sem mætir Egyptum er þannig skipað: Markverðir: Hlynur Jóhannesson..........HK Guðmundur Hrafnkelsson.....Val Reynir Þór Reynisson.....Fram Aðrir leikmenn: Geir Sveinsson.......Montpellier Bjarki Sigurðsson.........UMFA Dagur Sigurðsson.....Wuppertal Gústaf Bjamason.......Haukum Konráð Olavson.......Stjömunni Ólafur Stefánsson....Wuppertal Róbert Julian Duranona......KA Gunnar Berg Viktorsson.....ÍBV SigurðurSveinsson........UMFA Njörður Ámason............Fram Rúnar Sigtryggsson....Haukum Björgvin Björgvinsson......KA Ingi Rafn Jónsson..........Val MagúsTeitsson, þjálfari Hauka Van- mátum þær ekki

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.