Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997
MORGUNBLAÐIÐ
+
HANDKNATTLEIKUR
Bikarmeist-
ararfelldir
ÞEGAR Haukar felldu bikar-
meistara KA af stalli í Laug-
ardalshöliinni, var það í
þriðja skipti sem bikarmeist-
ara falla í úrslitaleik. 1978
lögðu Víkingar bikarmeist-
ara FH og 1983 lögðu Vík-
ingar bikarmeistara KR.
Fjórtán leikir
án taps
KA-liðið var búið að leika
fjórtán bikarleiki frá 1994
án taps þegar Haukar
skelltu þeim. Þegar Víking-
arfalldu FH af stalli 1978
voru FH-ingar búnir að
leika sextán leiki án taps. í
bæði skiptin sem leikmenn
KA hefur tapað í bikarúr-
slitum, hafa Hafnarfjarðar-
lið skellt þeim, FH1994 og
nú Haukar.
Ekki tapað í
úrslitum
ÞRETTÁN Uð hafa leikið til
úrslita í bikarkeppninni. Að-
eins tvö lið hafa ekki tapað
bikarúrslitaleik - Haukar,
1980 og 1997, ogÍBV, 1991.
Sigurður Gunnarsson, þjálf-
ari Hauka, var þjálfari IBV
þegar liðið lagði Víkinga
1991.
Línumenn
fyrirliðar
FYRIRLIÐAR bikarmeistara
Hauka 1980 og 1997 eigaþað
sameiginlegt að vera báðir
línumenn. Andres Kristjáns-
son var fyrirliði 1980 og
núverandi fyrirUði liðsins er
Gústaf BjÖrnsson.
Fimmtíu
mörk
FIMMTÍU mörk voru skor-
uðu í leik Hauka og KA.
Aðeins einu sinni áður hefur
verið skoruð fimmtiu mörk
í bikarúrslitaleik, sem ekki
var framlengdur. 53 mörk
voru skoruð í leik FH og KA
1994,30:23. Einnig voru
skoruð 53 mörk í tvífram-
lengdum leik KA og Vals
1995, 27:26.
Lengilifi
n
kóngurinn
íí
„BIKARKÓNGURINN" Sigurður Gunnarsson og krónprinsinn
Páll Ólafsson, sem þekkja ekki hvernig er að tapa bikarúrslita-
leik, stjórnuðu hirðsveinum sínum hjá Haukum til sigurs gegn
hersveit Alfreðs Gíslasonar hjá KA í bikarúrslitaleiknum,
26:24. Það tók Hauka góða stund að finna réttu leiðina. Bjarni
Frostason, sem átti stórleik í markinu hjá Hafnarfjarðarlið-
inu, sá til þess að Haukar villtust ekki af leið og þegar
„smuguskyttur" Hauka voru búnar að stylla byssurnar og
koma sér fyrir, var ekki aftur snúið - Akureyringurinn Rúnar
Sigtryggsson átti stóran þátt í að Alfreð og lærisveinar voru
lagðirað velli.
Þegar orrustan
c
KA-
rmenn
sáu „sviðna
jörð“
hófst, var
greinilegt að leikmenn KA
voru ákveðnir að byggja sterkan
múr í kringum mark sitt, sem
þeir og gerðu.
Rússinn Sergei
Steínarsson ' Zisa skoraði fyrstu
skrifar tvö mörk leiksins
fyrir KA-menn,
sem léku sterkan varnarleik og
fyrir aftan vörnina varði Guð-
mundur A. Jónsson þrjú skot frá
Haukum á stuttum tíma. Á bratt-
ann var að sækja hjá Haukum,
sem voru ekki á þeim buxunum
að gefast upp. Gústaf Bjarnason
hafði augu á Julian Róbert Duran-
ona. Eftir fjórtán mín. rataði
fyrsta langskot Hauka rétta leið
- Petr Baumruk sendi knöttinn í
netið og hann jafnaði, 7:7, með
langskoti. Duran-
ona skoraði sitt
fyrsta mark, sem
var einnig fyrsta
mark KA með
langskoti á 20
mín., 7:8 og þegar
Jóhann G. Jó-
hannsson bætti
marki við, 7:9, var
greinilegt að
Haukar voru búnir
að átta sig á hlut-
unum.
Rúnar fór þá að hrella sveit-
unga sína, átti línusendingu á
Gústaf, sem skoraði, síðan skor-
aði Rúnar með gegnumbroti,
10:11, og jafnaði með langskoti,
11:11. Haukar voru búnir að finna
réttu leiðina, skoruðu sjö mörk
úr átta sóknum á síðustu níu
mín. fyrri hálfleiksins, en leik-
menn KA skoruðu aðeins eitt
mark úr síðustu fimm
sóknum sínum; voru
komnir undir fyrir leik-
hlé, 14:12.
ugur í markinu - varði tvö lang-
skot í röð, fyrst frá Duranona og
síðan frá Zisa. Mikill darraðar-
dans var stiginn og leikurinn í
járnum þegar línumaður KA, Leó
Örn Þorleifsson, var rekinn af
leikvelli. Rúnar skoraði með lang-
skoti og fiskaði vítakast, sem
Halldór Ingólfsson skoraði úr,
21:18.
Mikil spenna
Sautján mín. voru til leiksloka,
Alfreð Gíslason bað um leikhlé.
Hann lagði sínum rnönnum lín-
urnar, Leó Örn skorar tvö mörk
af línu, 21:20, og þriðja mark sitt
af línu, 22:21. KA-menn fengu
þá hraðaupphlaup, Jóhann G.
brunar fram, Bjarni sá við honum
og varði. Rúnar svarar með marki
LEIKMENN Hauka fikruðu sig smátt
og smátt að Reykjavík fyrir bikarúr-
slitaleikinn gegn KA. Það er hægt að
segja að KA-menn hafi séð „sviðna
jörð“ í kringum Reykjavík, þegar þeir
komu inn til lendingar frá Akureyri.
Haukar ruddu Hafnarfjarðarliðinu FH,
Garðabæjarliðinu Stjömunni, Kópa-
vogsliðinu HK og Aftureldingu úr Mos-
fellsveit úr vegi áður en þeir mættu i
úrslitaleikinn gegn KA, sem þeir unnu.
Þess má geta til gamans að þegar
Haukar urðu bikarmeistarar 1980
lögðu þeir eingöngu hendur á Reykja-
víkurfélög - byijuðu á því að leggja
Fram að velli 31:28, síðan bikarmeist-
ara Víkings 22:20, þá íslandsmeistara
Vals 23:21 og KR-inga í tveimur úr-
slitaleikjum. Fyrst varð jafntefli 18:18
og seinni leikinn unnu Haukar 22:20.
Skyttur Hauka
á ferðina
Gústaf Bjarnason gaf
sínum mönnum tóninn,
er hann skoraði fyrsta
mark seinni hálfleiksins
með slangskoti og eftir
það fóru skyttur Hauka
heldur betur að láta að
sér kveða - Rúnar,
Baumruk, Aron og Hall-
dór skoruðu grimmt með
smuguskotum utan af
velli, sem voru óviðráðan-
leg fyrir markvörð KA.
Það sýnir best hvað
skytturnar voru ákafar,
að Haukar skoruðu fjög-
ur mörk með langskotum
í fyrri hálfleik, átta í þeim
seinni.
KA-menn náðu að
minnka muninn í eitt
mark, 17:16, þegar þeir
voru einum fleiri. Bjarni
Frostason, hinn sterki
markvörður Hauka, sýndi
þá hvers hann er megn-
SÓKNARNÝTING
í bikarúrslitaleik
karla 1997
Haukar
Mörk Sóknir %
Mörk Sóknir %
14
12
26
25
23
48
56
52
54
F.h
S.h
Alls
12
12
24
24
23
47
50
52
51
12
3
1
4
5
1
Langskot
Gegnumbrot
Hraðaupphlaup
Horn
Lína
Víti
eftir langskot, kemst síðan inn í
sendingu Duranona og skorar eft-
ir hraðaupphlaup, 24:21. Spennan
var mikil, Duranona skorar úr
vítakasti, síðan braust Jakob
Jónsson í gegnum vörn Hauka
Bjarni
varði. Rétt á eftir ver Guðmundur A. fyrsta
skot sitt í seinni hálfleik, KA-menn fá
knöttinn, sókn þeirra rennur klaufalega út
í sandinn. Aron Kristjánsson skorar með
langskoti, Zisa svarar fyrir KA, 25:23.
Þegar hér var komið til sögu voru tvær
mín. eftir og Alfreð fyrirskipar sínum leik-
mönnum að leika maður gegn manni. Sú
ráðstöfun dugði ekki, Rúnar skorar 26:23,
Duranona átti síðasta orðið, er hann skor-
aði úr vítakasti, 26:24.
Bjami og Rúnar
hetjur Hauka
Haukar voru vel að sigrinum komnir,
þeir leika vel skipulagðan sóknarleik undir
stjórn Sigurðar Gunnarssonar. Vörn þeirra
er góð og Bjarni Frostason fór á kostum í
markinu. Hann og Rúnar Sigtryggsson léku
aðalhlutverkin í jöfnu liði Hauka, sem er
með góðar skyttur eins og Petr Baumruk,
Halldór Ingólfsson og Aron Kristjánsson,
sem var heldur villtur í byijun leiks. Gústaf
Bjarnason er sterkur á linunni og þá eru
hornamennirnir Þorkell Magnússon og Jón
Freyr Egilsson mjög ógnandi.
KA-liðið stendur og fellur með Duranona
og Zisa, sem eru mjög góðir leikmenn -
léku aðalhlutverkin sem áður. Þá lék Leó
Örn Þorleifsson einnig vel.
Bjarni fór
á kostum
BJARNI Frostason fór á kostum
í marki Hauka, varði alls 19/1
skot, þar af fór knötturinn átta
sinnum aftur til mótheija - fimm
langskot, eitt skot eftir hrað-
aupphlaup, eitt eftir gegnumbrot
og eitt úr homi. Bjarni varði fjög-
ur skot frá Duranona, tvö lang-
skot, eitt skot eftir gegnumbrot
og eitt úr vítakasti. Hann varði
eitt langskot og eitt skot eftir
gegnumbrot frá Zisa, eitt skot
eftir gegnumbrot frá Erlingi
Kristjánssyni, eitt skot frá Jak-
obi Jónssyni eftir gegnumbrot
og eitt langskot, eitt skot eftir
hraðaupphlaup frá Jóhanni G.
Jóhannssyni og eitt eftir hrað-
aupphlaup frá Björgvini Björg-
vinssyni. Guðmundur A. Jóns-
son varði 10 skot fyrir KA, þar
af þijú skot sem knötturinn fór
aftur til mótheija — tvö langskot
og eitt skot af línu. Guðmundur
A. varði tvö langskot frá Aroni,
eitt langskot frá Sigurði Þórðar-
syni, eitt langskot frá Rúnari,
eitt skot úr homi frá Gústaf og
tvö skot úr homi frá Þorkatli.
Erlingur óánægður
með dómarana
„ÉG skil ekkert í því að Iáta þetta dómarapar dæma úrslitaleikinn,“
sagði Erlingur Kristjánsson, fyrirliði KA. „Þetta hefur verið eitt lak-
asta dómaraparið í vetur og nýlega dæmdu þeir leik hjá okkur þar
sem sást ein daprasta frammistaða dómara sem ég hef séð. Undir lokin
á leiknum í dag [laugardaginn] sleppa þeir augljósu vítakasti og gefa
þar með Haukum sigurinn,“ bættir Erlingur við. Hann sagði ennfrem-
ur að þegar litið væri yfir dómgæsluna í leiknum I heild þá hefði hún
e.t.v. ekki skipt skðpum fyrir úrslit leiksins. „En i Ijósi frammistöðu
þeirra I vetur Bkil ég ekki þá ákvörðun að láta þá félaga á leikinn.“
í leikskrá KA sem kom út fyrir leikinn var lýst yfir furðu með að
Sigurgeir Sveinsson og Gunnar Viðarsson skyldu dæma leikinn en
ekíci Stefán Arnaidsson og Rögnvald Erlingsson sem dæmdu m.a. úr-
slitaleikinn í fyrra. Er því [jóst að einhveijir KA-menn voru búnir að
mynda sér skoðun á því hvemig dómgæslan í leiknum yrði áður en
hann fór fram.
i