Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 25.02.1997, Blaðsíða 12
íttmR PltrjpttMaMt* ■ SKIÐI / HEIMSBIKARINN Nær Alphand að feta í fótspor Killys? FRAKKINN Luc Alphand sýndi og sannaði á laugardaginn að slök frammistaða hans á heims- meistaramótinu á Ítalíu var eitt- hvað tilfallandi. Alphand sigraði í risasviginu í Garmisch-Part- enkirchen í Þýskalandi á föstu- daginn og á laugardaginn krækti hann sér enn í sigur, nú í bruni og hefur forystu í heildar- keppninni. Á sunnudag var keppt aftur í risasvigi og þá hafnaði Frakkinn í sjötta sæti. Alphand hafði nokkra yfirburði í bruninu á laugardaginn, var rúmlega hálfri sekúndu á undan Ita- lanum Pietro Vitalini, sem varð að fara tvær umferðir vegna þess að hann var truflaður í fyrri ferðinni er maður gekk inn í brautina. Landi hans, Kristian Ghedina, varð þriðji. „Ég veit ekki hvemig ég fór að þessu því brautin var mjög erfið,“ sagði Alphand. „Það var svo harður snjórinn í brautinni að skíðin nötruðu undir mér og ég átti í erfiðleikum með að hafa stjórn á þeim. Ég reikn- aði því ekki með að ná besta tíman- um. Ég trúði því varla þegar ég kom í markið." Kandahar-braunbrautin þykir ein sú erfiðasta í heimi. Hún var reyndar erfiðari nú en oft áður vegna þess að svell var á kcflum í brautinni. Þetta er sama braut og austurríska -%túlkan Ulrike Maier lét lífið í fyrir þremur árum. Vitalini var heppinn að missa ekki stjórn á sér þegar fótgangandi mað- ur fór fyrir hann í brautinni í fyrri umferð. ítalinn tók því með jafnaðar- geði og fór upp aftur með þyrlu og náði síðan öðru sæti. Alphand hefur nú 111 stiga for- skot á Ghedina í keppninni um brun- titilinn þegar aðeins tvö brunmót eru eftir. „Það verður erfitt að vinna Alphand úr þessu,“ sagði Ghedina. Alphand er einnig líklegur til að taka heimsbikartitilinn í samanlögðu og ef það tekst yrði hann fyrsti Frakk- inn til að ná þeim áfanga síðan Jean- Claude Killy gerði það árið 1968. Draumaferð hjá Maier Á sunnudag var síðan keppt í risasvigi og þar sigraði Austurríkis- maðurinn Hermann Maier óvænt því hann var ekki í fyrsta ráshópi. Krist- ian Ghedina varð annar og Norð- mennirnir Alte Skárdal og Lasse Kjus deildu með sér þriðja sætinu. Maier var í öðru sæti í risasviginu á föstudag en hafði aldrei áður náð að vera á rneðal tíu efstu í heimsbik- arnum. „Ég varð að taka áhættu og gerði það,“ sagði Maier sem er 24 ára. „Það kom mér ekki á óvart að Maier næði að sigra því hann sýndi það í risasviginu á föstudaginn að hann var til alls líklegur," sagði Skárdal. Maier varð að hætta skíðaiðkunn þegar hann var 15 ára vegna meiðsla í hné, en snéri aftur í skíðabrekkum- ar nokkrum árum síðar og er nú kominn í fremstu röð. „Þegar ég sá fyrrum félaga mína í austurríska landsliðinu ná svona góðum árangri Reuter LUC Alphand slgraöl í brunlnu í Kandahar-brautinnl í Garmlsch-Partenklrchen á laugardaglnn. Hann hefur nú teklð forystu í heimsbikarkeppninni. var ég staðráðinn í að halda áfram. Þetta er eins og draumur því eftir öll þau vandamál sem ég hef átt við að glíma á ferlinum er þessi sigur ótrúlegur," sagði Maier. Sigur hans er enn athyglisverðari fyrir þær sakir að hann handleggsbrotnaði í bruninu í Chamonix um miðjan janúar. „Ef einhver hefði sagt við mig eftir brun- ið í Chamonix að ég myndi sigra hér í Garmisch hefði ég sagt að sá hinn sami væri ruglaður. En ég vissi að ég gæti þetta eftir að hafa náð öðru sæti í risasviginu á föstudaginn.“ Rússnesku stúlkurnar með gull RÚSSNESKU göngustúlkurnar voru samar við sig á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum um helgina. Á sunnudaginn sigraði ólympíumeistarinn Lyubov Yegoravoa í 5 kílómetra göngu með hefðbundinni aðferð, fékk tím- ann 13.29,90, og skaut löndu sinni, Jelenu Vialbe, ref fyrir rass, en hún hafði þegar fengið eitt gull fyrir 15 km gönguna á föstudaginn. Yegoravo varð þrefaldur meistari á ÓL í Lillehammer en tók sér frí frá keppni til að aia son og hefur ekki náð sér vel á strik síðan, fyrr en á sunnudaginn. Hún var 0,6 sekúndum á eftir Vialbe eftir tvo kílómetra, en með því að auka aðeins við hraðann og sérlega góðum endaspretti tókst henni að sigra og er þetta í 13. sinn sem hún hlýtur verðlaun á heimsmeistaramóti. Björn Dæhlie hélt uppi merki Noregs BJÖRN Dæhlie sá til þess í gær að Norðmenn hefðu eitthvað til að gleðjast yfir á heimsmeistara- mótinu í norrænum greinum sem fram fer í Þrándheimi. Dæhli sigr- aði í 10 kílómetra göngu með hefð- bundinni aðferð og má segja að hann haldi uppi merki Norð- manna, en þetta var fyrsti sigur þeirra á mótinu. Dæhlie var með forystu allan tímann og kom í mark á 23 mínútum 41,80 sekúnd- um sem var 27,9 sekúndum betri tími en Rússinn Alexei Prokurorov fékk, en hann sigraði í 30 km göngunni á föstudaginn, en þá varð Dæhlie annar. Áhorfendur voru um 20.000 og létu vel í sér heyra. „Það heimtuðu allir norskan sigur og það ýtti verulega á mig. Eg hafði áhyggjur um tíma í göngunni, hélt ég hefði kannski byijað of hratt, en það blessaðist allt,“ sagði Dæhlie eftir að hann náði andanum, en hann var gjörsamlega að niðurlotum kominn þegar hann kom í mark. „Annað sætið er fínt,“ sagði Rússinn ánægður með sitt. „Eg byijaði full rólega en er á leið fann ég að þetta var allt að koma hjá mér. Björn var einfaldlega allt of sterkur fyrir okkur hina í dag,“ sagði Prokurorov. „Ég fann fyrir miklum þrýstingi enda ætlast allir til þess heima að ég komi með verðlaunapening,“ sagði Mika Myllylae frá Finnlandi sem varð í þriðja sæti. „Mér leið hræðilega eftir 30 kílómetrana á föstudaginn og var því ákveðinn í að gera betur í dag. Mér leið samt ekki vel en þó ég hefði verið uppá mitt albesta hefði það ekki dugað gegn Dæhlie. Það er von- laust að eiga við hann,“ sagði Myllylae. Daníel í 72. sæti Daníel Jakobsson frá Ólafsfirði varði í 72. sæti, 3,13 mínútum á eftir Dæhlie. Síðari hluti göngutví- keppninnar, 15 km með fijálsri aðferð, verða í dag. KNATTSPYRNA / ITALIA Enn skellur hjá AC Milan skrifar frá ítaliu Inter og Parma unnu bæði góða sigra um helgina í 1. deildinni á Ítalíu og nálgast nú toppliðin Juvent- ■■■■■■ us og Sampdoria sem EinarLogi gerðu bæði jafntefli. Vignisson AC Milan tapaði fyrir Perugia og logar allt í illdeilum innan liðs- ins, tveir Ieikmenn þess voru reknir af leikvelli og auk þess meiddist Hol- lendingurinn Edgar Davids mjög illa. Mikil ólæti voru í Flórens þar sem Juventus heimsótti Fiorentina. Stuðningsmenn liðanna hafa eldað saman grátt silfur í gegnum tíðina og hafði lögreglan nóg að gera við að halda þeim í sundur. Eftir leikinn var svo ráðist á rútu Juventus-liðsins. Inni á veliinum fór þó allt þokka- lega friðsamlega fram. Alessandro Del Piero náði forystunni fyrir Juve eftir stundarfjórðung eftir góða sendingu Jugovic en varamaðurinn Robbiati jafnaði fyrir Fiorentina í byijun seinni hálfleiks. Skömmu seinna var Carnasciali leikmanni Fi- orentina vikið af velli en heimamenn voru þó sterkari ef eitthvað var, það sem eftir lifði leiks. „Þegar Juve kemur í heimsókn fyllist völlurinn alltaf af vitleysingum sem eru ekki sannir knattspyrnu- aðdáendur, við verðum að taka harð- ar á þessu vandamáli," sagði Vitt- orio Cecchi Gori, forseti Fiorentina, að leik loknum. „Konan mín var að stríða mér á því að ég væri alltaf að æfa skot frá miðju en léti ekki á það reyna í leikj- um. Ég tileinka henni og nýfæddri dóttur okkar markið," sagði Sinisa Mihajlovic leikmaður Sampdoria sem jafnaði fyrir lið sitt með þrumuskoti í samskeytin, beint úr aukaspyrnu af 30 metra færi, á næstsíðustu mín- útu leiksins gegn Napoli á útivelli en Boghossian hafði náð forystunni fyrir Napoli. Perugia sigraði Milan með marki Negri og niðurlæging Milan-manna heldur áfram. Christophe Dugarry og Paolo Maldini var vikið af leikvelli í fyrri hálfleik og Edgar Davids meidd- ist alvarlega eftir samstuð við Luca Bucci markvörð Perugia. Talið er að hann verði úr leik í 8 til 9 mánuði. „Reyndustu menn eru að bregðast, þetta er ekki venjulegt en ég vil ekki segja of mikið, ástandið er erfitt,“ sagði Arrigo Sacchi þjálfari Milan. Parma sigraði Lazio 2:0 með mörkum Mario Stahic og Enrico Chiesa og er nú í 3.-4. sæti ásamt Inter og eru liðin einungis tveimur stigum á eftir Sampdoria. Inter vann einnig sigur, 2:0 á Atalanta og skor- uðu Youri Djorkaeff og Ivan Zamor- ano mörkin. „Það er mikið lán fyrir þjálfara að hafa snilling eins og Djorkaeff í sínu liði en aðrir leikmenn eins og Bergomi og Fresi léku einnig mjög vel“ sagði Roy Hodgson þjálf- ari Inter glaður eftir leikinn en sigur- inn minnkaði þá pressu sem á honum hefur verið. Roma náði tveggja marka forystu í fyrri hálfleik gegn Reggiana með mörkum Moriero og Totti en botnliðið beit frá sér í síðari hálfleik og náði að jafna. Vicenza og Piacenza gerðu 1:1 jafntefli í fjör- ugum leik og Bologna og Udinese gerðu markalaust jafntefli. í botn- slagnum sigraði Cagliari Verona á heimavelli 3:2. ENGL.AND: X 2 X X X 2 212 2 XX2 ITALIA: X X 1 1 1: X X 1 X 1 X X 2

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.