Morgunblaðið - 25.02.1997, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 25. FEBRÚAR 1997 B 7
HANDKNATTLEIKUR
iuuiguiiuiuuivf iuigifiiiii
Lok, lok og læs
BJARNI Frostason, markvörður Hauka, er hér búlnn að verja skot frá Sergei Zlsa [llggur í
vítateignum], eftir að hann hafðl brotist í gegnum vörn Hauka í stöðunni 25:23 og rúm mín.
tll leiksloka. Aron Kristjánsson fylglst með tilþrlfum Bjarna, sem fór á kostum.
Sigurður Gunnarsson, þjálfari Hauka, fagnaði sigri í sjötta sinn
Kom ekki ann
að til greina
Morgunblaðið/Kristinn
SIGURÐUR Gunnarsson með blkarinn á lofti.
að kom mér mjög á óvart hversu
óstyrkir við vorum fyrstu
fimmtán til tuttugu mínútur leiksins
því það var í raun engin ástæða til
þess,“ sagði Sigurður Gunnarsson,
þjálfari Hauka. Hann fagnaði á laug-
ardaginn sjötta bikarmeistaratitli sín-
um en í tvígang hefur hann verið
þjálfari liðs sem farið hefur með sigur
af hólmi, ÍBV og Haukar nú og síðan
m fjórum sinnum sem leikmaður með
Víkingi. Sigurður var einnig leikmað-
ur ÍBV á sínum tíma er félagið vann
bikarinn eftir úrslitaleik við Víking.
„KA-menn byijuðu fullir sjálfs-
trausts gagnstætt okkur, en það
hefur viljað loða við okkur ef við
byijum illa látum við ekki hugfallast
heldur spýtum í lófana og bætum
við okkur, það gerðist einmitt að
þessu sinni. Ur því við náðum að
„lifa af“ fyrsta stundarfjórðunginn
var mesta hættan yfirstaðin og ég
gat farið að anda örlítið léttar."
En var farið að fara um þig er illa
gekk?
„Já, það var talsvert bráðræði í
sókninni hjá okkur og segja má að
við höfum ekki verið að leika eins
og við höfðum lagt upp með. Ástæð-
an var sú að við vorum of tauga-
spenntir."
Þegar liðið náði sér loks á strik
segir Sigurður að ekki hafi aftur
snúið og liðið hafi leikið af ákveðni
og saman sem heild. „Við vitum alt-
ént hvað við getum er liðsheildin nær
m saman, en einnig er okkur ljóst hvaða
afleiðingar það hefur ef það gerist
ekki. I dag náðum við saman er á
leið og þá gat ekkert stöðvað okkur.
Á heildina litið er ég ánægður með
okkar hlut, það kom ekkert annað
til greina en sigur.“
Um það hvort þessi sigur veitti
ekki byr í seglin á íslandsmótinu
sagði Sigurður það vissulega vera.
„En það eru gömul sannindi og ný
að eftir því sem sigurleikirnir verða
fleiri þeim mun styttra verður í tap-
ið, en við skulum vona að það verði
ekki á næstunni."
Erlingur Kristjánsson fyrirliði KA að loknum
fjórða úrslitaleiknum á fjórum árum
Markvarsl-
an skipti
sköpum
Leikurinn var í jámum lengst af
og við áttum að fá vítakast
þegar ein mínúta var eftir en feng-
um ekki. Hefðum við skorað úr því
hefði munurinn að-
eins verið eitt mark,
þar af leiðandi má
segja að við höfum
verið inn í myndinni
allan tímann,“ sagði Erlingur Krist-
jánsson, fyrirliði KA, að leik lokn-
um.
„Haukarnir léku heldur betur
lengst af leiknum auk þess sem
markvarslan var góð frá upphafi
til enda, ólíkt þvi sem var hjá okk-
ur. Það má segja að þegar öllu er
botninn hvolft hafi markvarslan
skipt sköpum.“
Erlingur sagði það vera synd
hversu illa KA hefðu farið með það
frumkvæði sem þeir höfðu framan
af fyrri hálfleik, fullir sjálfstrausts
á sama tíma og erfíðleikar voru hjá
andstæðingum. „Haukar geta
þakkað Bjarna [Frostasyni] mark-
verði sínum og okkar klaufaskap
að vera ekki fjórum til fímm mörk-
um undir í leikhléi. Síðari hálfleikur
var á þann veg að þeir voru einum
til tveimur mörkum yfír og við vor-
um stöðugt að klóra í bakkann,
árangurslítið."
Erlingur, sem fýrirliði KA, leiddi
sína menn til leiks í úrslitum bikar-
keppninnar fjórða árið röð og tvisv-
ar sinnum hefur hann verið glað-
beytti sigurvegarinn í leikslok og
tekið við bikarnum. Fannst Erlingi
sem hungrið vantaði í KA liðið?
„Það fannst mér ekki, ástæðan
er einfaldlega sú að þegar menn
hafa einu sinni unnið bikarinn og
fundið þá gleði sem því fylgir þá
vilja þeir alltaf eiga þess kost að
endurtaka leikinn. Nú snerist þetta
ekki um hungur, heldur örlitla
lukku.“
Síðasti bikarleikur Jakobs
„Það hefði verið gaman að fá
gullverðlaun í safnið en því miður
varð ekkert úr því,“ sagði Jakob
Jónsson, leikmaður KA, en hann
gekk til liðs við KA í fýrrahaust
eftir meira en áratuga fjarveru í
Noregi og tvö leiktímabil á ísafirði.
Jakob segist hafa tekið ákvörðun
um að leggja skóna á hilluna í vor
og í ljósi þess séu úrslit leiksins enn
sárari. í Noregi var Jakob bikar-
meistari einu sinni með IF frá Stav-
angri. Hann segir umgjörðina og
stemmninguna á leiknum vera svip-
aða og í Noregi. „Nema þá var ég
í sigurliði.“
„Við lékum vel fyrstu tuttugu
mínútumar í fyrri hálfleik en gáfum
þeim síðan það sem eftir var fram
að hléi. í síðari hálfleik héldu þeir
sínum hlut og okkur tókst aldrei
að reisa leik okkar við og ná frum-
kvæðinu."
Jakob sagðist eðlilega vera ósátt-
ur við úrslit leiksins og að liðið
skuli aldrei hafa náð dampi á ný.
„Við verðum bara að bæta úr og
ná þeim bikurum sem enn eru í
boði.“
Mætum til leiks aö ári
„Það er alltaf sárt að tapa, ekki
hvað síst að þessu sinni, þar sem
við vorum svo ákveðnir í að hafa
betur,“ sagði Leó Örn Þorleifsson,
línumaður KA, er hann hafði tekið
á móti silfurverðlaunapeningi sín-
um. „Við áttum góða möguleika á
að vinna, byijuðum betur, en síðan
gaf sig eitthvað í liðinu sem ég
veit ekki hvað er en altjént tókst
tókst aldrei að laga það. Haukar
sóttu stöðugt í sig veðrið og verð-
skulduðu sigurinn."
Leó segir Bjarna Frostason
markvörð Hauka hafa verið aðal-
hindrun KA í leiknum. „Einkanlega
í fyrri hálfleik þegar við áttum
nokkru sinnum möguleika á að ná
þriggja marka forsytu, þá kom hann
þeim til bjargar. Eftir að þeir hristu
af sér taugaspennuna áttum við
heldur á brattann að sækja.“
Leó segir hungrið í sigur hafa
verið tii staðar hjá KA. „Það er
alltaf fyrir hendi, en úr því svona
fór er ekkert annað að gera en taka
þá bikara sem eftir eru, fyrir deild-
ina og íslandsmeistaratitilinn sjálf-
an. Að ári mætum við síðan fimmta
árið í röð í úrslitaleik bikarkeppn-
innar og þá sigrum við, það er al-
deilis á hreinu.“
■ ÞORLÁKUR Kjartansson,
markvörður, er eini leikmaðurinn
sem tók þátt í bikarmeistaratitli
Hauka 1980 og 1997. Þorlákur
var varamarkvörður hjá Haukum,
þegar þeir lögðu HK að velli 16-liða
úrslitum.
■ EINAR Gunnarsson, einn af
ungu leikmönnunum hjá Haukum,
er sonur Gunnars Einarssonar,
fyrrverandi landsliðsmarkvarðar,
sem varð bikarmeistari með Hauk-
um 1980.
■ ÓSKAR Sigurðsson, leikmaður
Hauka, er sonur Signrðar Óskars-
son, fyrrverandi línumanns hjá KR.
■ ALFREÐ Gíslason, þjálfari
KA, óskaði Sigurði Gunnarssyni
og Páli Ólafssyni, þjálfurum
Hauka, til hamingju eftir leikinn
og hélt síðan rakleiðis til búnings-
klefa KA - sætti sig ekki við tapið.
■ GÁRUNGAR sögðu að aðeins
einn FH-ingur hafí verið í Laugar-
dalshöllinni - bæjarstjórinn í
Hafnarfirði, Ingvar Viktorsson,
sem afhenti karlaliði Hauka bikar-
inn.
■ SIGURÐUR Gunnarsson,
þjálfari Hauka, er sannkallaður
„Bikarkóngur“ eins og hefur komið
fram - hann hefur sex sinnum tek-
ið þátt í bikarúrslitaleik og alltaf
staðið uppi sem sigurvegari; fjórum
sinnum sem leikmaður Víkings og
sem þjálfari ÍBV og Hauka.
■ PALL Ólafsson, aðstoðarmaður
Sigurðar, hefur heldur ekki tapað
bikarúrslitaleik, hefur orðið bikar-
meistari með Þrótti og Haukum.
■ KA-menn skoruðu aðeins úr
fimm langskotum í leiknum gegn
Haukum, Duranona þijú mörk og
Zisa tvö.
■ ÞEIR skoruðu aftur á móti sex
mörk eftir gegnumbrot, Zisa fjögur
og Duranona tvö.
■ RÚNAR Sigtryggsson skoraði
flest mörk Hauka, eða sjö úr níu
skotum: fjögur með langskotum,
eitt eftir gegnumbrot, eitt eftir
hraðaupphlaup og eitt af línu.
Eftir
ívar
Benediktsson