Morgunblaðið - 02.03.1997, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 02.03.1997, Blaðsíða 4
4 B SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 MORGUNBLAÐIÐ _j wi Dnvffi® Bneffmiir gefffi® nnnéiF gleðinnar hafði dreifst óheppilega. A fyrstu árunum gat maður átt von á ýmsu bæði hvað varðar húsa- kost og þó enn frekar hljóðfæri, þar sem boðað var til tónleika. Nú er svo komið að úrvalshjóðfæri eru um allt land víða í fallegum hús- um, þó ekki séu þau tónleikahús samkvæmt skilgreiningu." Starfið í Kópavogi „Mitt starf í Kópavogi er komið til af nákvæmlega sömu tilviljun- inni og allt annað sem ég hef ver- ið leiddur til að gera. Þegar ég hafði búið í Kópavogi í nokkurn tíma áræddi ég að sækja um lista- mannalaun þar til sex mánaða. Ég fékk þau ekki en það var hringt í mig og mér var boðið umrætt starf. Það hefur verið mér óum- ræðilega dýrmætt. Mér býður í grun að kannski hafí flakk mitt um landið með tónlistarkynningar, heimsóknir af sama tagi í skóla og starf mitt í Gerðubergi fætt af sér þessa hugmynd ráðamanna í Kópavogi. í bænum er mikið líf og fjör, hér hefur lengi ríkt öflugt menningarlíf. Heimsóknir landsins bestu listamanna í skóla í Kópa- vogi með reglubundnum hætti hafa gefist vel. Það er yndislegt hljóð- færi í Gerðarsafni og þótt það sé ekki tónlistarhús er það menning- armiðstöð sem er vel sótt og öllum til gleði. Nú er búið að teikna tón- listarhús, heimili tónlistarskóla bæjarins með sérhönnuðum tón- leikasal fyrir þrjú hundruð manns. Vonandi fær fólk þar aðstöðu í fyllingu tímans til að flytja og njóta tónlistar við bestu skilyrði. Hér í Kópavogi hefur verið bryddað upp á ýmsu í tónleikahald- inu. Við erum með tónleika sem við köllum: Við slaghörpuna. Þar spila ég og spjalla, stundum einn NAMUSTYRKIR Landsbanki íslands auglýsir nú áttunda árið í röð eftir umsóknum um NÁMU-styrki. Veittir verða 8 styrkir. Einungis þeir sem gerst hafa félagar í NÁMUNNI, námsmannaþjónustu Landsbanka íslands, fyrir 15. mars 1997 eiga rétt á að sækja um styrk vegna þessa námsárs. Hver styrkur er að upphæð 175 þúsund krónur. Styrkirnir verða afhentir NÁMU-félögum í apríl 1997 og verða þeir veittir samkvæmt eftirfarandi flokkun: • 2 styrkir til háskólanáms á íslandi, • 2 styrkir til náms við framhaldsskóla á íslandi, • 2 styrkir til framhaldsnáms erlendis, • 1 styrkur til listnáms, • 1 styrkur til náms í einhverjum ofangreindra flokka skv. ákvörðun dómnefndar. Umsóknum er tilgreini nafn, heimilisfang, kennitölu, námsferil, námsárangur, heimilishagi og framtíðaráform skal skilað til Landsbanka íslands eigi siðar en 15. mars næstkomandi. Umsóknir sendist til: Landsbanki íslands, Markaðssvið „NÁMUSTYRKIR" Bankastræti 7, 155 Reykjavík N -Á-M-A- N TEIKNING Sigfúsar Halldórssonar af Jónasi Ingimundarsyni. Ófullgerðu lögin hans Sigfúsar „VIÐ Sigfús Halldórsson voru ágætir vinir og hann teiknaði raunar af mér mynd skömmu áður en hann dó. Nokkru eftir lát hans var ég staddur hjá góðri vinkonu minni og meðan við vorum að spjalla segir hún allt í einu, „Hann Sigfús Hall- dórsson er hérna hjá okkur, hann á erindi við þig, hann vill að þú hjálpir honum að ljúka við tvö lög sem hann átti ófrá- gengin þegar hann dó.“ Þessi kona talar sjaldan um yfirskil- vitlega hluti og mér hnykkti svolítið við, ekki síst vegna þess að daginn áður hafði Friðbjörn G. Jónsson, sem unnið hafði mikið með Sigfúsi, hringt til mín og beðið mig að skrifa nið- ur lag sem Sigfús hafði samið og þeir æft lítillega saman en hvergi var nú til varðveitt nema í huga Friðbjarnar. Ég vissi að konan gat með engu móti vitað neitt um það samtal né heldur hafa haft spurnir af þessu lagi með öðru móti. Þótt ég gæfi lít- ið út á það sem konan sagði hringdi ég í Friðbjörn og sagði honum að ég vildi gjarnan skrifa niður ófrágengna lagið hans Sigfúsar. „Raunar voru nú lögin tvö,“ svaraði Friðbjörn." og stundum með gest með mér og til stendur að vera með tónleika þar sem fram kemur ungt fólk sem er að byija sinn tónlistarferil og margt fleira mætti nefna. Annars er ekki rétt að tala of mikið um það sem við ætlum að gera heldur láta verkin tala. Eitt af því sem er eftirminnilegt eru afmælistón- leikarnir sem haldnir voru fyrir Sigfús Halldórsson tónskáld, heið- ursborgara Kópavogs. Þeir voru endurteknir tólf sinnum - en af- mæli eru yfirleitt ekki endurtekin frekar en jarðarfarir. í fýllingu tímans tókum við í Kópavogi allt prógrammið upp og það var gefið út á geisladiski. Það þurfti að end- urtaka þetta afmæli sjö sinnum áður en ljósvakamiðlamir sýndu því áhuga (nema í formi fréttatilkynn- inga); er það ekki umhugsunar- vert?! Hvemig standa Ijósvakamiðl- amir sig í ljósi þess mikilvægis sem þeirra tilvist gerir kröfur um?“ íslensk tónlistarsaga stutt „Það er ótrúlegt hvað mikið hefur gerst í íslensku tónlistarlífi á stuttum tíma. Tónlistarsagan á íslandi er stutt og fábrotnari en þekkist hjá þeim þjóðum sem af mestu geta státað. Arfur okkar er söngur í einhverju formi, stemmur, kvæðalög, tvísöngvar og sálmar - þó áttum við langspilið og íslensku tveggja strengja fiðluna. Arið 1840 kom fyrsta orgelið í Dómkirkjuna og það fór að heyrast fjölraddaður söngur á næstu áratugum. Árið 1930 var tímamótaár í íslensku tónlistarlífi, þá var Tónlistarskól- inn í Reykjavík stofnaður og Ríkis- útvarpið tók til starfa. Stofnun Sinfóníuhljómsveitar íslands var einnig stór áfangi, svo og vígsla Þjóðleikhússins. Um 1974 voru sett ný lög um tónlistarskóla og nú era þeir orðnir rúmlega 70 tals- ins og starfa víða um land. Nem- endur þeirra eru yfir tíu þúsund. Við búum nú við óhemju ríkt tón- listarlíf sem margir undrast og allir dást að. Við eigum tónlistar- fólk af öllum gerðum sem stenst samjöfnuð við það besta hjá öðrum þjóðum. Eitt af því sem ég dáist hvað mest að í íslensku tónlistar- lífi er frábært starf tónlistarskól- anna, sem þó ber ekki mikið á, og ekki dáist ég síður að starfi barna- kóranna. Þetta kemur til viðbótar hefðbundinni kennslu í tómennt í grunnskólunum, sem stundum tekst vel og stundum miður. Allt þetta miðar að því að veita börnum innsýn í heim tónlistarinnar. Með þessu leggjum við mannrækt þjóð- arinnar lið. Margt fleira kemur til. Ríkisút- varpið hefur markað djúp spor í tónlistarlíf íslendinga, það hefur gefið fólki tækifæri til þess að kynnast öllum tegundum tónlistar. Það hefur tekið upp og haldið til haga ýmsu af því sem Islendingar hafa verið að gera. Myndum við t.d. sætta okkur við að söngur Stefáns Islandi þurrkaðist út? Nei, þótt hann syngi ítalskt lag á dönsku þá var það íslenskur söng- ur og sem slíkur hjálpar hann okk- ur til að finna til þeirrar samkennd- ar sem gerir okkur að íslendingum. Ég veit að í Segulbandasafni Ríkis- útvarpsins eru til margar gersemar sem eru íslandi ómetanlegar. Á þennan hátt hefur safnast tónlist í eins konar fjölskyldualbúm íslensku þjóðarinnar. Þeir lista- menn sem ná langt í list sinni eiga sig að vissu leyti ekki sjálfir heldur er framlag þeirra með nokkrum hætti eign okkar allra. Þetta vekur upp þá spurningu hvers vegna við heyrum nánast aldrei í sumum af bestu sonum og dætrum þjóðarinn- ar sem bjuggu til það tónlistarlíf sem við búum að í dag. Við heyrum næstum aldrei í t.d. Birni Olafs- syni fiðluleikara sem var einn af frumkvöðlum Sinfóníuhljómsveit- arinnar, við heyrum heldur ekki oft í Einari Vigfússyni sem kenndi öllum helstu sellóleikurum okkar, né heldur í píanóleikurunum Árna Kristjánssyni, Ásgeiri Beinteins- syni og Jóni Nordal - og skyldi vera til upptaka með undrabarninu Þórunni Jóhannsdóttur sem síðar giftist Vladimír Ashkenazy, bara til að nefna örfá nöfn. Hver er ástæðan fyrir því að við heyrum svona lítið úr þessari gullkistu okk- ar? Við heyrum stundum Pál ísólfs- son leika á orgelið og píanóleik Rögnvaldar Siguijónssonar enda er leikur þeirra til útgefinn á geisladiskum. Guði sé lof. Söngv- ara heyrum við oftar og hafa sum- um þeirra verið gerð góð skil, t.d. Stefáni Islandi, María Markan o.fl. Kannski er skýringin sú að einn heillegasti þráðurinn í íslensku tón- listarlífi var söngur. Það var sér- stök hátíðarstund hér í stofu okkar hjóna þegar geisladiskur með söng Einars Kristjánssonar kom út fyrir nokkru. Þann disk hefði ekki verið hægt að gefa út nema af því að söngur hans hafði verið tekinn upp og varðveittur hjá Segulbandasafni Ríkisútvarpins. Þannig eigum við enn hlutdeild í list Einars, þó margt hafi auðvitað ekki verið tekið upp og verði aldrei bætt. En ég vil ekki rugla saman safni Rikisút- varpsins og útgáfumálum almennt. Geisladiskaútgáfa tónlistar á ís- landi og notkun þeirra er efni í annað viðtal. Ég spyr: Varðveitum við það sem vel er gert í tónlist í dag, með allri þeirri tækni sem við ráðum yfir, söfnum við í fjölskyldualbúm? Er söngur „Einars Kristjánssonar" nútímans tekinn upp? Guðjón Ósk- arsson er búinn að syngja eins margar sýningar á Scala og Krist- inn Sigmundsson en heyrir þjóðin söng hans í útvarpi eða sjónvarpi? Ndttúruleg íslettsk heilsulind

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.