Morgunblaðið - 02.03.1997, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 B 31
Félag austfirskra
kvenna
Aðalfundur verður haldinn
á Hallveigarstöðum mánudaginn
3. mars kl. 20.00.
ct
Nýja postulakirkjan,
j/. Ármúla 23,
108 Reykjavík.
Guðsþjónusta
sunnudag kl. 11.00.
Verið hjartanlega velkomin
í hús Drottins.
Orð lífsins,
Grensásvegi8
Samkoma og sunnudagsskóli
kl. 11. Ásmundur Magnússon
prédikar. Brauðsbrotning.
Kennsla í kvöld kl. 20.
Samkoma á miðvikud. kl. 20.
Allir hjartanlega velkomnir!
Kl. 11.00 Sunnudagaskóli.
Kl. 20.00 Hjálpræðissamkoma.
Ingibjörg og Óskar Jónsson
stjórna og tala. Allir velkomnir.
Mánudagur kl. 15.00 Heimilasam-
band. Sr. Hjalti Guðmundsson
talar. Allar konur velkomnar.
Svölur, munið félagsfundinn
í Síðumúla 35 þriðjudaginn
4. mars kl. 20.30. Gestur okkar
verður Sigþrúður Ingimundar-
dóttir, hjúkrunarfræðingur.
Mætum allar.
Stjórnin.
Andleg málefni
- ífyrsta sinn á íslandi:
Námskeið í „Merkaba" eftir
Drunvalo Melchizebek. Margvís
og hnitmiðuð leið til að fá að-
gang að þeim hæfileikum sem
mannkynið hlaut í vöggugjöf.
Námskeið þetta var kennt í
Egyptalandi til forna og hét þá
Hægra auga Horusar.
Upplýsingar í síma 451 2486,
Kerstin.
psj
Somhjólp
Almenn samkoma í Þribúðum,
Hverfisgötu 42, í dag kl. 16. Fjöl-
breyttur söngur. Samhjálparkór-
inn tekur lagið. Vitnisburðir.
Barnagæsla. Ræðumaður Óli
Ágústsson. Kaffi að lokinni sam-
komu. Allir velkomnir.
Rauðarárstfg 26, Reykjavík,
sfmar 561 6400,897 4608.
Guðsþjónusta sunnudag kl. 20
og fimmtudag kl. 20. Altaris-
ganga öll sunnudagskvöld.
Prestur: Sr. Guðmundur Örn
Ragnarsson.
V
Smiðjuvegi 5, Kópavogi
Morgunsamkoma kl. 11.00.
Brotning brauðsins.
Hlaðborð, allir koma með mat
að heiman og borða saman eftir
kvöldsamkomuna.
Kvöldsamkoma kl. 20.00.
Samúel Ingimarsson prédikar.
Gleði og friður í Heilögum anda.
Kletturinn, kristið samfélag,
Bæjarhrauni 2, Hafnarfirði.
Samkoma kl. 16.30.
Jón Þór Eyjólfsson predikar.
Barnastarf á meðan á samkomu
stendur.
Allir velkomnir.
Pýramídinn -
andleg
miðstöð
'Jlja Torp,
spámiðill, les í
/miskonarTarot-
spil.
Fímapantanir og
upplýsingar
í Pýramidanum,
sími 588 1415,
Dugguvogi 2.
Dagsferðir 2. mars
Kl. 10.30 Búrfellsgjá, Kaldársel.
Létt ganga úr Heiðmörk um
Valaból í Kaldársel.
Verð: 800/1000.
Kl. 10.30 Skíðaganga, Hellls-
heiði, Innstidalur, Kolviðarhóll.
Verð 1000/1200.
Helgarferð 8.-9. mars
Kl. 10.00 Skfðaferð á Nesja-
velli. Farið verður á gönguskíð-
um austan Hengils og á Nesja-
velli þar sem gist verður eina
nótt. Fararstjóri: Jósef Hólmjárn.
Helgarferð 15.-18. mars
Kl. 9.00 Skíðaferð í Botnsúlur.
Ferð fyrir vant skíðagöngufólk.
Fararstjóri: Kristján Helgason.
netslóð:
http://www.centrum.is/utivist
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Brauðsbrotning kl. 11.00.
Ræðumaður Erling Magnússon.
Almenn samkoma kl. 16.30.
Ræðumaður Mike Fitzgerald.
Lofgjörðarhópur Fíladelfíu leiðir
söng. Barnagæsla fyrir börn
undir grunnskólaaldri. Láttu sjá
þig, þú ert innilega velkominn!
Dagskrá vikunnar framundan:
Þriðjudagur: Samvera eldri
safnaðarmeðlima kl. 15.00.
Þriðjudag, miðvikudag og
fimmtudag verður Mike Brad-
ley með raðkennslu um bænina
kl. 20.00 hvert kvöld.
Föstudagur: Krakkaklúbbur fyrir
3ja til 12 ára krakka kl. 18.00 til
19.30.
Unglingasamkoma kl. 20.30.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Miðlarnir og huglæknarnir:
Bjarni Kristjánsson, Guðrún
Hjörleyfsdóttir, Hafsteinn Guð-
björnsson, Kristín Karlsdóttir,
Kristin Þorsteinsdóttir, Margrét
Hafsteinsdóttir, María Sigurðar-
dóttir og Þórun Maggý Guð-
mundsdóttir starfa hjá félaginu
og bjóða upp á einkatíma.
Auk þess býður Bjarni Kristjáns-
son upp á umbreytingarfundi fyrir
hópa. Bæna og þróunarhringir
sem Friðbjörg Óskarsdóttir leiðir
eru vikulega á mánudögum og
þriðjudögum.
I april kemur breskl umbreyting-
armiðilinn Diane Elliot til starfa, í
maí breski miöilinn og kennarinn
Colin Kingshot og um mánaðar-
mót maí/júní er breski huglæknir-
inn Joan Reid væntanleg.
Upplýsingar og bókanir eru í
síma 551-8130 milli kl. 10-12 og
14-16 og á skrifstofunni, Garða-
stræti 8 vika daga.
Einnig er tekið á móti fyrirbæn-
um í sama síma.
SRFl.
YWAM - ísland
Morgunsamkoma
í Aðalstræti 4B kl. 11.00.
Fræðsla fyrir börn og fullorðna.
Heilög kvöldmáltíð. Vitnisburð-
arsamkoma í Breiðholtskirkju
kl. 20.00. Mikil lofgjörð og fyrir-
bænir.
Allir velkomnir.
Aðalstöðvar
KFUMog KFUK,
Holtavegi 28.
Kristniboðsvika
Almenn samkoma og barna-
stundir í upphafi kristniboðsviku
kl. 17.00 í dag.
Jesús og börnin.
Upphafsorð og bæn: Haraldur
Jóhannsson. Ræðumaður: Karl
Jónas Gíslason. Efni: Valdís
Magnúsdóttir. Barnakór KFUK
og KFUM syngur.
Allir hjartanlega velkomnir.
Nýbýlavegi 30, Kópavogi,
gengið inn Dalbrekkumegin.
Slökun
★ Þjáist þú af síþreytu?
★ Hefur líkami þinn þróað með
sér sjúkdóma á borð við vefja-
gigt og streitubundið mígreni?
★ Ertu sífellt hugsandi um allt
sem þú átt eftir að gera (og
megir ekki gleyma) á morgun,
næstu viku, næsta
mánuð?
★ Ertu að reyna að vera allt í
einu: Fullkomin(n) maki, vinur,
dóttir/sonur, foreldri, starfs-
maður/yfirmaður o.s.frv.?
★ Vaknarðu jafn þreytt(ur) að
morgni og er þú fórst að sofa
að kvöldi?
★ Áttu af einhverjum sökum
erfitt með að slaka á?
Ef eitthvað af ofangreindu á við
þig, þá höfum við í Sjálfefli
kannski eitthvað fyrir þig. Okkur
langar til að bjóða upp á öðru-
vísi „líkamsrækt" - í staðinn fyrir
að mæta tvisvar í viku í e.k. leik-
fimi og
líkamsæfingar þá mætir þú
tvisvar í viku í slökun. Tímarnir
verða síðdegis, eftir vinnutíma,
einnig hádegistímar ef næg þátt-
taka næst. Hver tími stendur
yfir í 50-60 mínútur og byggist
á djúpri slökun líkama og sálar.
Markmiðið er að hver þátttak-
andi læri að þekkja slökunará-
stand og geri sér þess vegna
grein fyrir hvenær hann spennist
upp og við hvaða aðstæður.
Leiðbeindandi:
Kristín Þorsteinsdóttir.
Lengd námskeiðs:
Óákveðin (mánaðargjald).
Upplýsingar og skráning í síma
554 1107 milli kl. 9.0012.00 f.h.
alla virka daga.
Námskeiðið hefst í annarri viku
mars-mánaðar.
Hugleiðslukvöld
í mars - dagskrá:
í kvöld: Kristín Þorsteinsdóttir.
9.mars: Jórunn Oddsdóttir.
16., 23. og 30. mars:
Kristín Þorsteinsdóttir.
Hugleiðslukvöld eru í Sjálfefli öll
sunnudagskvöld kl. 20.30.
Aðgangur kr. 350.
Vinsamlega athugið að dagskrá
hugleiöslukvöldanna verða
framvegis einungis auglýst
fyrsta sunnudag í hverjum mán-
uði (geymið auglýsinguna).
Bænahringur:
Sjálfefli er að fara af stað með
bænahring. Þeir, sem hafa
áhuga á að sitja í honum, hringi
í síma 554 1107 frá 9.00-12.00
f.h. virka daga.
Þróunarhringir:
Vegna forfalla getum við bætt
við fólki í þróunarhópa hjá félag-
inu. - Lysthafendur hafi sam-
band í ofangreint símanúmer.
HAFNARGÖNGUHÓPURINN stóð
fyrir kvöldgönguferðum síðastliðinn
vetur, auk miðvikudagskvöldsins,
aðra virka daga vikunnar. Ferðimar
voru farnar frá mismunadi hafnar-
svæðum og hófst kl. 20.
Sú hugmynd kom upp í gönguferð
Hafnagönguhópsins sl. miðviku-
dagskvöld að taka þessar gönguferð-
ir upp að nýju og kynna fyrirhugað-
an vef stofn- og tengistíga sem
Borgarskipulagið hefur gert drög
að og ætlar að fella inn í skipulag
1996-2016. Þetta verði gert í sam-
vinnu við Borgarskipulag. Ætlunin
Hafnargönguhópurinn
Nýr stofn- og
tengistígavef-
ur kynntur
er að gera tilraun með þetta næstu
mánuði, segir í fréttatilkynningu.
Á mánudagskvöld 3. mars verð-
ur farið frá Birgðastöð Skeljungs
við Skeljanes kl. 20. Val verður um
að ganga strandstíginn inn með
Fossvoginum og inn í Fossvogsdal
og upp á Hitaveitustokkinn og hann
farinn niður í Öskjuhlíð og skógar-
götur þaðan í Nauthólsvík og strand-
stíginn til baka að Skeljanesi. Þá
verður að velja styttri leið með því
að fara af strandstígnum við Naut-
hólsvík upp í skógargötur Öskjuhlíð-
ar og hitta hinn hópinn í Nauthól-
svik í bakaleið. Bílastæði er við
birgðastöðina og SVR leið 5 hefur
biðskýli þar einnig. Allir eru vel-
komnir í ferð með Hafnargöngu-
hópnum.
Heimilið í nútím-
anum rætt í Graf-
arvogskirkju
DR. ARNFRÍÐUR Guðmundsdóttir
flytur erindið „Heimilið í nútíman-
um“ á fundi Safnaðarfélags Grafar-
vogskirkju næstkomandi mánudag,
3. marz, klukkan 20.30. Safnaðarfé-
lagið starfar á sama grundvelli og
kvenfélög kirkjunnar, nema að því
leyti að félagið er opið bæði konum
og körlum, segir í fréttatilkynningu.
Myndakvöld
Ferðafélagsins
NÆSTA myndakvöld Ferðafélags
íslands veðrur haldið í Mörkinni 6
mánudaginn 3. mars.
Inga Rósa Þórðardóttir frá Ferða-
félagi Fljótsdalshéraðs kynnir í máli
og myndum gönguleiðina frá Snæ-
felli til Lónsöræfa. Einnig sýnir hún
myndir frá nyrstu víkum sunnan
Borgarfjarðar eystri og nokkrar vetr-
armyndir úr sínum landsfjórðungi.
Kaffi og meðlæti í hléi.
MASCARA 38°C
SILK PERFORMANCE
Fyrsti hitanæmi
maskarinn í heiminum.
KANEBO MASCARA 38°C, SILK
PERFORMANCE þolir svita, tár
og alla veðráttu, en flettist af án
þess ab renna til þegar þú bleytir
hann meö 38 gráðu heitu vatni.
Silkipróteiniö vemdar augnahárin,
gefur þeim gljáa og brettir vel
upp á þau.
Kanebo
Art through Technology
Fita er að flestra mati óþolandi. Flest okkar hata fitu. Við hreinlega hötum
fitu. Fita er eitthvað sem við getum seint sætt okkur við. Kannski er það
þess vegna sem við reynum allt sem við getum til að brenna fitu?
10. mars nk. fer af stað í Baðhúsinu 8 vikna fitubrennslunámskeið þar
sem við mnnum brenna, brenna og brenna fitn.
Fræðsla, sentimetramæling, matardagbók, uppskriftir að léttum réttum,
mappa full af fróðleik, 3 lokaðir tímar í viku, frjáls mæting í alla opna
tíma, dag- og kvöldhópar. Kth. Takmarkaðnr fjöldi.
Skráning er hafin í síma 588 1616.
BAÐHUSIÐ
heil&ulind fyrír konur