Morgunblaðið - 02.03.1997, Síða 23

Morgunblaðið - 02.03.1997, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MARZ 1997 B 23 Starfskraftur Óskum eftir að ráða heiðarlegan og þjón- ustulipran starfskraft til framtíðarstarfa hjá traustu fyrirtæki. Um er að ræða sérhæft og ábyrgðarmikið heilsdagsstarf, sem krefst mikillar verklagni, á verkstæði og í verslun. Umsækjendur þurfa að uppfylla eftirfarandi skilyrði: • Geta unnið sjálfstætt og hafa frumkvæði. • Vera með ökuréttindi og hreint sakavottorð. • Einungis reglusamir og stundísir einstakl- ingar, sem búsettireru á stór-Reykjavíkur- svæðinu, koma til greina. • Æskilegur aldur 25 ára og eldri. Umsóknir, með upplýsingum um menntun og fyrri störf, ásamt meðmælum, óskast sendar til afgreiðslu Mbl., merktar: „K - 1135“, fyrir 10/3 ’97. Þeir, sem óska eftir að fá umsóknir sínar endursendar, eru vin- samlegast beðnir um að láta umslag með nafni og heimilis- fangi fylgja umsókn. Forstöðumaður Kjarvalsstaða og Asmundarsafns Laus er tii umsóknar staða forstöðumanns Kjarvalsstaða og Ásmundarsafns. Starfið felst í stjórnun og rekstri listasafna á vegum menningarmálanefndar Reykjavíkurborgar, þ.e. starfsemi á Kjarvalsstöðum og í Ás- mundarsafni. Hlutverk forstöðumanns: Forstöðumaður ber ábyrgð á fjárhagslegum rekstri og starfsmannastjórn. Forstöðumaður hefur yfirumsjón með lista- verkaeign Reykjavíkurborgar, þar á meðal útilistaverkum í borginni. Hún felur í sér skráningu listaverka, forvörslu þeirra, fræði- störf er þau varða, útlán þeirra og útleigu, bókasafn og heimildaskráningu, safnkennslu útgáfustarfsemi, gerð tímbundinna listsýn- inga og innlend og erlend samskipti. Þá hef- ur forstöðumaður yfirumsjón með starfi byggingalistadeildar á Kjarvalsstöðum. Forstöðumaður er menningarmálanefnd til ráðuneytis um listaverkakaup og borgaryfirvöld almennt til ráðuneytis í listrænum efnum. Kröfur gerðar til umsækjenda: Stjórnunarhæfileikar og stjórnunarreynsla. Listfræðimenntun á háskólastigi, æskilegt er MA-próf eða sambærileg menntunargr- áða. Lipurð í mannlegum samskiptum. Hæfni til að setja fram hugmyndir í ræðu og riti á íslensku og erlendum málum. Þekking og reynsla af starfsemi listasafna er æskileg. Fræðileg störf og rannsóknir, helst á sviði íslenskrar listasögu, eru æskileg. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri menn- ingar-, uppeldis- og félagsmála. Undirmenn eru starfsmenn Kjarvalsstaða og Ásmundarsafns. Umsóknir um starfið þurfa að hafa borist fyrir 15. mars 1997. Æskilegt er að nýr forstöðumaður taki til starfa 1. júní 1997. Kjör verða samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurborgar. Vakin skal athygli á að hér er um að ræða tímabundna ráðningu til fjögurra ára, með möguleika á einni endurráðningu til fjögurra viðbótarára. Borgarráð skipar forstöðumann að fenginni tillögu menningarmálanefndar. í umsókn þarf að gera grein fyrir hversu um- sækjandi mætir öllum ofangreindum kröfum. Skrifleg umsókn sendist framkvæmdastjóra menningar-, uppeldis- og félagsmála á skrif- stofu borgarstjóra í Ráðhúsi Reykjavíkur, en hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. Borgarstjórirm í Reykjavík, 28. febrúar 1997. Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórn- unar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgar- innar, stofnana hennar og fyrirtækja. Vinna íHafnarfirði Óskum eftir að ráða starfsmenn við ræstingar í Hafnarfirði. Vinnutími er frá kl. 13.00-18.00 mánudaga til og með föstudaga. Æskilegur aldur er 25-45 ára, annar aldur kemur þó til greina. Umsækjendur þurfa að hafa bíl til umráða. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Guðrúnu Gísladóttur í Síðumúla 23 mánudag til fimmtudags kl. 14.00-16.00. rm SECURITAS Hreingerningar Við þurfum að fjölga í hreingerningarhópnum okkar. Við leitum að einstaklingum sem geta unnið sveigjanlegan vinnutíma og eru dug- legir og stundvísir. Þú þarft helst að vera á aldrinum 30-45 ára og hafa reynslu af ræstingum. í boði er tæpiega fullt starf. Einnig vantar okkur fólk sem getur unnið aukavinnu á föstudagskvöldum og um helg- ar. Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð fást hjá Guðrúnu Gísladóttur í Síðumúla 23 mánudag til fimmtudags kl. 14.00-16.00. rm SECURITAS Sjúkrahús Skagfirðinga Sjúkrahús Skagfirðinga, Sauðárkróki Staða yfirlæknis Laus er til umsóknar staða yfirlæknis við sjúkrahúsið. Um er að ræða 75% stöðu. Æskileg sérgrein er almennar skurðlækningar. Hér er um að ræða fjölbreytt og krefjandi starf og er vinnuaðstaða og tækjakostur á stofnuninni mjög góður. Á sjúkrahúsinu eru 76 rúm sem skiptast í 16 rúm á sjúkradeild, 4 rúm á fæðingardeild og 56 rúm á hjúkrunardeildum. Þar fyrir utan er 10 rúma þjónustudeild rekin í tengslum við sjúkrahúsið. Stofnunin hefur á að skipa góðu og samstilltu starfsfólki, sem leggur metnað sinn í að gera gott sjúkrahús betra, en á sjúkrahúsinu er rekin öflug og stöðugt vaxandi starfsemi. Heilsugæslustöð er rekin í starfstengslum við sjúkrahúsið, en alls starfa 6 læknar við stofnanirnar. Þetta er því kjörið tækifæri fyrir framtaks- sama og metnaðarfulla einstaklinga. Stöðunni fylgir embættisbústaður. Hvernig væri að takast á við ný og spenn- andi verkefni og um leið kynnast Skagafirði og Skagfirðingum af eigin raun? Umsóknarfrestur um stöðuna ertil 15. mars nk., en staðan veitist eftir nánara samkomu- lagi. Umsóknir skulu sendast til Birgis Gunnars- sonar, framkvæmdastjóra sjúkrahússins. Upplýsingar veitir framkvæmdastjóri í síma 455 4000. í Skagafirði búa u.þ.b. 5.000 manns, þar af búa 2.800 manns á Sauðárkróki. Sauðárkrók- ur hefur verið í stöðugum vexti undanfarin ár og byggir á öflugu og fjölbreyttu atvinnu- lífi og fjölbreytni í þjónustu við íbúa héraðs- ins. íþrótta- og félagslíf er hér í miklum blóma. í héraðinu eru tveir framhaldsskólar; á Sauðárkróki er Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra með tæplega 500 nemendur og á Hólum í Hjaltadal er rekinn bændaskóli. Sauðárkrókur liggur vel við samgöngum og eru þær góðar bæði í lofti og á landi. Skaga- fjörður er rómaður fyrir náttúrufegurð og má segja að þar séu merkir staðir og atburð- ir úr íslandssögunni við hvert fótmál. Heilsugæslan í Reykjavík Stjórnunarsviö Barónsstíg 47,101 Reykjavík Sími 552 2400 Fax 562 2415 Laus staða yfirmeinatæknis við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur Laus er til umsóknar full staða yfirmeina- tæknis við Heilsuverndarstöð Reykjavíkur. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist starfsmannastjóra á þar til gerðum eyðublöðum, sem fást hjá starfsmannahaldi Heilsugæslunnar í Reykja- vík, Barónstíg 47, 101 Reykjavík. Nánari upplýsingar um starfið veitir yfirmeinatæknir eða starfsmannastjóri í síma 552 2400 fyrir hádegi. Umsóknarfrestur er til 24. mars nk. Staðan veitist frá 1. júní nk. eða eftir nánara samkomulagi. Reykjavík, 2. mars 1997. Heilsugæslan í Reykjavík, stjórnsýsla. Reynsluhverfi í Grafarvogi Framkvæmdastjóri Innan ramma laga nr. 82/94 um reynslusveit- arfélög mun Reykjavíkurborg stofna þjón- ustumiðstöð er annist samþætta íbúaþjón- ustu á sviði félags-, dagvistar- og skólamála, menningar-, tómstunda- og íþróttamála við íbúa í Húsa-, Hamra-, Folda-, Rima-, Engja-, Víkur-, Borgar- og Staðarhverfi, hér nefnd einu nafni Grafarvogshverfi. Þjónustumiðstöðin í Grafarvogi verður undir stjórn hverfisnefndar sem íbúasamtök Graf- arvogs eiga aðild að. Reykjavíkurborg auglýsir nú eftirframkvæmda- stjóra til að stýra þjónustumiðstöðinni. Kröfur til umsækjanda: - Stjórnunarhæfileikarog stjórnunarreynsla. - Staðgóð þekking á og reynsla af sveitar- stjórnarmálum. - Þekking á og reynsla af þjónustugreinum miðstöðvarinnar. - Menntun á háskólastigi. - Lipurð í mannlegum samskiptum. - Hæfni til að setja fram hugmyndir í ræðu og riti. Næsti yfirmaður er framkvæmdastjóri menn- ingar-, uppeldis- og félagsmála hjá Reykjavík- urborg. Undirmenn eru fagfólk og starfslið þjónustumiðstöðvarinnar, sem í upphafi verða 6-7. Umsóknarfrestur er til 21. mars nk. Kjör verða samkvæmt kjarasamningi Starfs- mannafélags Reykjavíkurþorgar. í umsókn þarf að gera grein fyrir hversu um- sækjandi mætir öllum ofangreindum kröfum. Vakin skal athygli á því, að hér er um tíma- bundna stöðu að ræða, þar eð reynsluverk- efninu lýkur í árslok 1999, en fyrir þann tíma verður tekin ákvörðun um hvort og þá hvern- ig framhald verður á starfsemi þjónustumið- stöðvarinnar. Æskilegt er að framkvæmdastjóri hefji störf 1. apríl nk. Borgarráð Reykjavíkur mun ráða í stöðuna að fenginni umsögn hverfisnefndar. Skriflegar umsóknir skulu sendar fram- kvæmdastjóra menningar-, uppeldis- og félagsmála, skrifstofu borgarstjóra, Ráðhúsi Reykjavíkur, en hann veitir jafnframt nánari upplýsingar. Borgarstjórinn í Reykjavík, 23. febrúar 1997. Rétt er að vekja athygli á að það er stefna borgaryfirvalda að auka hlut kvenna í stjórn- unar- og ábyrgðarstöðum á vegum borgar- innar, stofnana hennar og fyrirtækja.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.