Morgunblaðið - 06.03.1997, Qupperneq 2
2 C FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997
KNATTSPYRNA
MORGUNBLAÐIÐ
England
mætir
S-Afríku
LANDSLIÐ Eng-
lands og Suður-Afr-
íku munu mætast í
fyrsta skipti á knatt-
spyrnuvellinum 24.
maí. Leikurinn, sem
fer fram á Old Traff-
ord, er upphitunar-
leikur fyrir HM-leik
Englands og Pól-
lands 31. maí.
Heimsálfu-
keppni í
Saudi-
Arabíu
BÚIÐ er að draga í
riðla í fyrstu heims-
álfukeppninni, sem
fer fram í Saudi-
Arabíu. Til leiks
mæta þær þjóðir,
sem eru sigurvegar-
ar í heimsálfum,
ásamt heimsmeistur-
um Brasiliu. í A-riðli
leika Saudi-Arabía,
Brasilía, Mexíkó og
Ástralia. f B-riðli
leika Sameinuðu
arabísku furstadæm-
in, Uruguay, Suður-
Afríka og Tékkland,
sem kemur í staðinn
fyrir Þýskaland, sem
gat ekki tekið þátt í
keppninni.
Mónakó
annað liðið
sem fagnar
áStJam-
es’Park
ÞEGAR Mónakóliðið
lagði Newcastle í
UEFA-keppninni á
þriðjudagskvöldið,
1:0, varð það annað
liðið til að fagna sigri
í Evrópuleik í New-
castle - í nítján leikj-
um á St James’Park
síðan 1968. Þá var
sigurinn sá þriðji sem
franskt lið vinnur á
ensku liði í 20 viður-
eignum I Evrópu-
keppni.
Orrustan
um England
ENGLAND hefur alltaf verið og
verður vagga knattspyrnunnar.
Enska knattspyrnan er sú vinsæl-
asta í heimi, sem sést best á því
að leikir úr ensku úrvalsdeildinni
eru sýndir beint reglulega til 130
landa íheiminum og dagblöð um
allan heim segja reglulega fréttir
frá knattspyrnunni í Englandi.
Ungir strákar eiga sér flestir uppá-
haldslið í Englandi. Ekki hefur það
minnkað vinsældir ensku knatt-
spyrnunnar að margir af bestu
knattspyrnumönnum heims sækj-
ast eftir að leika með enskum lið-
um og nú eru hundrað „útlending-
ar“ frá 31 landi samningsbundnir
úrvalsdeildarliðum og yfir hundr-
að leika með liðum í neðri deildun-
um og f Skotlandi. Valur Fannar
Gíslason er í hópi þeirra leik-
manna, sem eru samningsbundnir
úrvalsdeildarliði - hann er í
herbúðum Arsenal.
Sigmundur Ó.
Steinarsson
skrifar
Það þarf ekki annað en að sjá nafna-
listann hjá Manchester United á
Old Trafford, til að fmna nöfn leikmanna
frá Danmörku, Noregi,
Tékklandi, Hollandi,
Frakklandi, Wales, ír-
landi, Skotlandi og Norð-
ur-írlandi, fyrir utan nöfn
enskra leikmanna. Ekki eru allir ánægð-
ir með þá þróun sem hefur verið í Eng-
landi, þar sem peningamir í knattspyrn-
unni eru orðnir þeir mestu í heiminum.
Stór þáttur í hinni miklu peningaveltu
er tekjur vegna sjónvarpsútsendinga, þá
hafa félögin fengið auknar tekjur af
minjagripum og fatnaði, allt frá ýmsum
félagsbúningum, fatnaði fyrir böm og
unglinga, tískuklæðnaði, skartgripum
og öðru. Þá er umgjörðin í kringum leiki
liðanna orðin glæsilegri, félögin hafa
kappkostað að gera endurbætur á völium
sínum, aðeins em seldir miðar í sæti.
Nær uppselt er á hvem leik og stemmn-
ingin mjög mikil.
Einn þeirra sem er ekki ánægður með
þessa þróun, er Nils Arne Eggen, þjálf-
Reuter
NORÐMAÐURINN Ole Gunnar Solskjær, sóknarlelkmaður Man. Utd., sæklr að marki Leeds,
Nlgel Martyn, markvörður er tll varnar.
ari norska meistaraliðsins Rosen-
borg, en liðið hefur þurft að horfa
á eftir mörgum bestu leikmönnum
sínum til Englands. Eggen er ekki
á móti ensku knattspyrnunni,
heldur linnulausri ásókn stóru
ensku liðanna til minni landa, þar
sem bestu leikmennirnir eru
lokkaðir til England, þar sem laun-
in em geysilega há: „Allt of mik-
il,“ segir Eggen.
„Það sjá allir, að það er tómt
mgl að knattspymumenn sem em
ekki einu sinni orðnir 25 ára, hafi
2,8 milljónir (ísl. kr.) eða meira í
vikulaun, eingöngu fyrir að æfa
og leika knattspyrnu,“ segir Nils
Arne Eggen.
Norðmenn hafa misst flesta sína
bestu knattspyrnumenn til Eng-
lands, enda hafa þeir ekki kostað
mikið - alls leika nú 43 Norðmenn
með enskum liðum, flestir sóknar-
leikmenn. Stór þáttur í þessu er
að flest norsku liðin og norska
landsliðið leikur dæmigerða enska
knattspymu. Nær allir leikmenn
Hundrað sendiherrarfrá 31 landi leika með liðum í ensku
úrvalsdeildinni, sem hefurverið kölluð Evrópu-deildin.
8. mars
1 Dertoy - Middlesbro
2 Sunderland - Manch. Utd.
3 Arsenal - Nottingham For.
4 Leeds - Everton
5 Coventry - Leicester
6 Wolves - Tranmere
7 Norwich - Port Vale
8 Charlton - Crystal Palace
9 Stoke - Ipswich
10 Q.P.R. - Huddersfield
11 Oxford - W.B.A.
12 Manchester City - Oldham
13 Bradford - Grimsby
úrslit
Árangur á
heimavelli
frá 1984
5:3
5:3
13:13
11:2
10:2
7:5
2:1
5:4
5:6
1:1
5:8
7:12
4:3
Slagur spámannanna:
Ásgeir-Logi 18:14
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta í heild:
Meðalskor eftir 24 vikur:
Ásgeir Logi m Þín spá
1 X 2 1 1
X 2 2 1 X 2
1 X 1 X 1
1 1 1
1 X 2 1
1 1 1
1 1 X 2 1 X
2 1 2 1 X 2
1 X 1 X 1 X
1 X 1 1
2 1 X 2 i X
1 X 2 1 1
1 1 1 X
7 7 5
14 9 10
193 177 187
8,0 7>4 7,8
9. mars
1 Inter - Juventus
2 Napoli - AC Milan
3 Atalanta - Sampdoria
4 Fiorentina - Bologna
5 Perugia - Parma
6 Vicenza - Udinese
7 Cagliari - Lazio
8 Roma - Verona
9 Reggiana - Piacenza
10 Lecce-Genoa
11 Chievo - Bari
12 Venezia - Foggia
13 Empoli - Palermo
úrslit
Árangur á
heimavelli
frá 1988
1 1
0 0
0 1
2 3
1 1
0 0
12:10
12:9
9:11
1:1
0:0
2:2
6:6
6:2
1:1
2:4
0:0
1:1
0:0
Slagur spámannanna:
I Ásgeir-Logi 16:12
Hversu margir réttir síðast:
Hve oft sigurvegari (vikur):
Hvað marga rétta i heild:
Meðalskor eftir 24 vikur.
Ásgeir
10
13
203
*1±
Logi
191
8,0
8
196
A!
Þín
spá