Morgunblaðið - 06.03.1997, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 C 3
f
KNATTSPYRNA
liðsins leika nú í Englandi. Ensk lið eru nú byijuð að leita
eftir norskum varnarmönnum og markvörðum, en það er
ekki langt síðan Birmingham fékk Birki Kristinsson, lands-
liðsmarkvörð íslands, lánaðan frá Brann. Norðmenn ótt-
ast að flóðbylgja norsku knattspyrnumannanna yfir Norð-
ursjó, eigi eftir að koma niður á knattspymunni í Noregi
- áhorfendafjöldi á leikjum eigi eftir að minnka mikið
við það að bestu leikmenn þeirra eru famir.
Norðmenn þurfa ekki annað en horfa til Frakklands,
þar sem aðsókn að leikjum hefur stórminnkað. Ástæðan
fyrir því er að nú era ekki lengur snjallir einstaklingar í
liðum, sem áhorfendur fjölmenntu til að horfa á. Frakkar
hafa misst 22 leikmenn til Englands, Spánar og Ítalíu,
nær allir landsliðsmenn Frakka leika utan Frakklands.
ítalir í œvintýralelt
Lengi vel voru mestu peningamir í knattspymunni á
Ítalíu, þangað streymdu bestu knattspyrnumenn heims.
Englendingar hafa náð yfirhöndinni og meira að segja
ítalskir knattspyrnumenn, sem hafa alltaf verið svo heima-
kærir, streyma til Englands í ævintýraleit - þeir vilja
breyta til til að víkka sjóndeildarhringinn. „Eins og staðan
er nú, geta fáir keppt við Englendinga - þeir hafa pening-
ana og þeir lokka,“ sagði Franz Beckenbauer, forseti
þýska liðsins Bayem Miinchen.
Ruud Gullit, knattspymustjóri Chelsea, sem lék lengi
á Ítalíu - með AC Milan og Sampdoría, lagði mikla áherslu
á að kaupa leikmenn frá Ítalíu og hann er nú með þijá
kunna leikmenn í sínum herbúðum, Gianfranco Zola,
Gianluca Vialli og Robert di Matteo. Margir vildu halda
því fram að ítalskir leikmenn næðu ekki að aðlaga sig
enskri knattspymu og
lifnaðarháttum í Eng-
landi. Gullit sagði að
það væri rangt, segir
að leikmennirnir þrír
hjá Chelsea kunni vel
við sig og aðrir leik-
menn era ánægðir með
ÞW knatt-
spymumenn era metn-
aðarfullir leikmenn,
sem vita að til að vera
góðir verða þeir að lifa
reglusömu lífi. Þeir
leggja mikið á sig á
æfingum og í leikjum.
Þeir era duglegir og
tækni þeirra er afar
góð,“ sagði Gullit, sem
reyndi í sl. viku að fá
Paolo Maldini, fyrirliði
AC Milan og ítalska
landsliðsins til Stam-
ford Bridge, var tilbú-
inn að greiða 17 millj.
punda fyrir þennan 28
ára varnarleikmann,
sem hefði orðið dýrasti
knattspymumaður
heims. „Maldini er ekki
til sölu, hann er lykill-
inn að framtíðarliði
okkar,“ sögðu forráða-
menn AC Milan.
„Ég erfrjáls ..
Gianluca Vialli segir
að hann hafi ekki kom-
ið til London til að
græða peninga, heldur
til þess að reyna eitt-
hvað nýtt - takast á
við vissa áskorun,
kynnast nýju umhverfi og lifnað-
arháttum í öðru landi.
„Það er ákveðið frelsi að vera
hér. Ég get gengið um borgina
hvenær sem ég vil, farið í leikhús
eða á veitingastaði eins og hver
önnur manneskja, þó að ég sé
þekktur knattspyrnumaður. Það
gat ég ekki á Ítalíu, þar sem
menn eru miklu ágengari en í
Englandi," sagði Vialli.
Þess má geta að hann hefur
ekki verið yfir sig ánægður að
undanförnu, þar sem hann hefur
þurft að verma varamannabekk-
inn, horfa á þá Zola og Mark
Hughes leika í fremstu víglínu
Chelsea, þar sem þeir hafa náð
mjög vel saman.
tJtlendingamir
15 Norðmenn..............(Chelsea 3, Blackbum 2,
Man. Utd. 2, Southampton 2, Liverpool 2,
Middlesbrough, Nott. Forest, Tottenham)
15 Hollendingar.............(Arsenal 2, Man. Utd. 2,
Derby 2, Sheff. Wed. 2, Southampton 2,
Chelsea, Nott. For., Wimbledon, Leeds, Leicester)
7 Ástralir................(West Ham 3, Aston Villa,
Coventry, Sheff. Wed., Southampton)
8 Frakkar........(Arsenal 3, Chelsea, Leicester,
Man. Utd., Newcastle, Sunderland)
7 ítalir...........(Chelsea 3, Middlesbrough 2,
Nott. For., Sheff. Wed.)
6 Danir.............(Derby, Man. Utd., Middlesbrough,
Tottenham, West Ham, Everton)
5 Svíar..(Blackbum, Everton, Leeds, Leicester, Derby)
4 Króatar.............(Derby 2, Nott. For., West Ham)
4 Portúgalar......(West Ham 2, Aston Villa, Liverpool)
4 Tékkar....(Liverpool, Man. Utd., Newcastle, West Ham)
3 Brasiliumenn...........(Middlesbrough 2, Coventry)
3 Júgóslavar..............(Aston Villa 2, Sheff. Wed.)
3 Rúmenar.....................(West Ham 2, Chelsea)
2 ísraelsmenn..............(Southampton, Tottenham)
2 Rússar..........................(Chelsea, Everton)
2 Suður-Afrikumenn.......................(Leeds 2)
2 Svisslendingar...............(Everton, Tottenham)
1 Belgíumaður.......................(Newcastle)
1 Angóiamaður........................(Coventry)
1 Kólumbíumaður......................(Newcastle)
1 Finni...............................(West Ham)
1 Ghanamaður.............................(Leeds)
1 Grikki..............................(Blackbum)
1 íslendingur.........(Valur Fannar Gíslason, Arsenal)
1 Nígeríumaður.......................(Wimbledon)
1 Pólveiji..........................(Sunderland)
1 Slóvaki........................(Middlesbrough)
1 Trinidadmaður.......................(Aston Villa)
1 Þjóðveiji..........................(Leicester)
1 Bandarikjamaður....................(Leicester)
1 Zimbabwi............................(Coventry)
1 Úkraínumaður........................(Coventry)
HOLLENDINGURINN Dennis Bergkamp, lelkmaðurinn snjalll hjá Arsenal
(t.v.)i og Alan Klmble, Wlmbledon.
Reuter
aftur til 1980, þegar
West Ham vann Ars-
enal í bikarúrslitaleik á
Wembley, 1:0. Þá léku
tíu Englendingar og
einn Skoti ineð liðinu.
Þá var spáð í West
Ham-liðið sem lék gegn
Blackburn á dögunum,
lið sem var með aðeins
tvo Englendinga innan-
borðs, en það var þann-
ig skipað:
Ludek Miklosko
(Tékklandi) - Mark
Brown (Wales), Julian
Dicks (Englandi), Stan
Lazaridis (Ástralíu),
Marc Rieper (Dan-
mörku), Slaven Bilic
(Króatíu), Paulo Futre
(Portúgal), Hugo Por-
fírio (Portúgal), Iain
Dowie (N-írlandi), Ian
Bishop (Englandi) og
Michael Hughes (N-
írlandi).
VIII halda í hefðlr
Nú eröldln önnur
Bregðum okkur frá Stamford
Bridge á annan stað í London -
á Upton Park, þar sem West Ham
hefur bækistöðvar. „Hammers" -
eða „listaskólinn" eins og einn ís-
lenskur knattspyrnudómari hefur
oft nefnt uppáhaldslið sitt í Eng-
landi, var lengi vel þekkt fyrir að
ala upp unga leikmenn og tefla
þeim fram. Nú er öldin önnur þar
á bæ, því að uppeldishugsjónin er
ekki lengur til staðar, heldur er
teflt fram „útlendingaherdeild.“
Enska dagblaðið Daily Te-
legraph var með samanburð á
tveimur liðum, sem West Ham
hefur teflt fram. Fyrst var farið
Ef við höldum á
þriðja staðinn í London,
á Highbury, þar sem
„Barónarnir" hjá Ars-
enal hafa herbúðir sínar, er and-
rúmsloftið þar nær það sama og
hefur verið í áratugi. Þar era ensk-
ir leikmenn í miklum meirihluta í
leikmannahópi aðalliðsins, ásamt
Hollendingnum Dennis Bergkamp
og Frökkunum Vieira og Garde.
Franski knattspyrnustjórinn Ars-
ene Wenger hefur sagt að hann
vilji halda í gamlar hefðir á High-
bury; að meirihluti leikmanna sé
Englendingar. „Það kann aldrei
góðri lukku að stýra að kaupa ell-
efu leikmenn, sinn úr hverri átt-
inni, eða landinu, og ætlast til að
þeir fari að leika saman eins og
þeir hafí ekkert gert annað um
ævina. Ég vil hafa andrúmsloftið
eins og það er nú á Highbury, að
leikmenn leggi hart á sig úti á
vellinum, séu vinir utan hans -
tali sama tungumál. Ég kaupi ekki
leikmenn til að kaupa, heldur þá
leikmenn sem falla vel inn í um-
gjörðina og framtíðarmynd okk-
ar,“ sagði Wenger, sem tryggði
Arsenal einn efnilegasta knatt-
spymumann Frakklands á dögun-
um; hinn 17 ára sóknarleikmaður,
Nicolas Anelka, sem er hjá París
St. Germain, skrifaði undir þriggja
ára samning. Þetta era góð kaup,
því að mörg önnur af stóru liðun-
um í Evrópu höfðu augastað á
Anelka. Gárangarnir hafa sagt að
„Franska byltingin" sé hafin á
Highbury, að Wenger sé í hlut-
verki „Rauðu akurliljunnar“ - að
hann fari yfir til Frakklands, til
að „frelsa" leikmenn úr fangabúð-
um franskra liða og koma þeim
yfír Ermarsundið.
Það er ljóst að það eru ekki
eingöngu leikmenn frá Frakk-
landi sem eiga eftir að streyma
til Englands, knattspyrnumenn
víðs vegar um Evrópu sækjast
eftir að komast í vöggu knatt-
spyrnunnar.
Þorvaldur misnot-
aði vrtaspyrnu
Þorvaldur Örlygsson hefur leik-
ið tvo síðustu leiki með Old-
ham, en hann var búinn að vera
meiddur í lærvöðva frá áramótum.
„Það hefur nú gengið frekar illa
hjá liðinu. Við höfum reyndar ekki
verið að tapa stórt og erum ekk-
ert slakari en önnur lið í deild-
inni. Það má lítið út af bregða ef
liðið á að halda sér uppi úr þessu,“
sagði Þorvaldur sem á enn eitt ár
eftir af samningi sínum við Old-
ham.
Þorvaldur misnotaði vítaspyrnu
í leik liðsins á móti Tranmere
Rovers í fyrrakvöld. „Ég var búinn
að skora úr þremur vítaspymum
fyrir liðið í vetur og það kemur
alltaf að því að maður klikkar -
ég skaut framhjá. Við vorum eitt
núll undir þegar ég tók vítið. Við
náðum síðan að jafna en Tran-
mere komst í 2:1 í síðari hálfleik
og vann leikinn.“ Ged Brannan
gerði bæði mörk Tranmere en
Nicky Banger mark Oldham. Þetta
var áttunda tap Oldham á heima-
velli í deildinni í vetur.
- Heyrst hefur að þú sért
hugsanlega á leið til Bristol City
þar sem Joe Jordan fyrrum knatt-
spyrnustjóri Stoke er við stjórn-
völinn. Er eitthvað til í því?
„Ég hef nú ekki heyrt um það.
Annars er erfítt að spá í þessa
hluti. Það er kominn nýr fram-
kvæmdastjóri hjá Oldham, Neil
Warnock, og hann hefur keypt tvo
nýja leikmenn. Svo er hitt að lið
sem er í fallbaráttunni og á
kannski ekki möguleika á að
halda sætinu selja oft dýrari leik-
mennina sína,“ sagði Þorvaldur.
Oldham mætir Manchester City
á útivelli á laugardaginn. „Þetta
verður erfiður leikur, en við unn-
um City 2:0 í fyrri umferðinni svo
það er ekki hægt að afskrifa neitt
fyrirfram. Við þurfum svo sann-
arlega á stigum að halda,“ sagði
Þorvaldur.