Morgunblaðið - 06.03.1997, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ
\\
FIMMTUDAGUR 6. MARZ 1997 C 7
IÞROTTIR
KNATTSPYRNA
Formaður sænska knattspyrnusambandsins ánægður með samning við þýskt
sjónvarpsíyrirtæki sem KSÍ á íviðræðum við
Fáum tvöfalt meiri
peninga en áður
EGGERT Magnússon, formað-
ur Knattspyrnusambands ís-
lands, hefur að undanförnu
rætt við fulltrúa þýska sjón-
varpsfyrirtækisins ISPR með
það í huga að fyrirtækið kaupi
sýningarrétt f rá íslenskri knatt-
spyrnu en núgildandi samning-
ur KSÍ sama efnis við annað
þýskt fyrirtæki rennur út um
næstu áramót. ISPR er í eigu
tveggja mjög öflugra fjölmiðla-
fyrirtækja, Krisch og Springer,
sem hvort á helmingshlut.
Þetta sama fyrirtæki hefur ný-
verið samið við knattspymu-
sambönd Svíþjóðar og Finnlands
Við verðum auðvitað að gera allt
sem við getum til að berjast gegn
þessum þjóðum, sala sjónvarpsrétt-
ar er helsta tekjulind knattspymu-
hreyfmgarinnnar í dag og því verð-
um við að reyna að fá sem mest
þannig.“
Lagrell segir ISPR eiga einkarétt
á sjónvarpsefni frá deildarkeppninni
í knattspymu í Þýskalandi og Aust-
urríki og hafa undanfarið sýnt
markaðinum á Norðurlöndunum
mikinn áhuga. Fyrirtækið hefur
þegar samið við Svía og Finna, sem
fyrr segir, og miklar líkur em tald-
ar á að Islendingar og Norðmenn
fylgi í kjölfarið. „Það yrði mjög
sterkt fyrir okkur ef til yrði eitt
Leitar liðsinnis Eggerts
Innan fárra missera verður kosið um nýjan forseta alþjóða knatt-
spymusambandsins, FIFA. Svíinn Lennart Johansson, forseti
knattspymusambands Evrópu, UEFA, hefur lýst yfir þvl að hann
verði í kjöri og Svíar eru þegar byijaðir að safna liði til að tryggja
kjör hans. Lars-Áke Lagrell, formaður sænska knattspymusam-
bandsins, notaði ferðina til íslands m.a. til að ræða það mál við
Eggert. „Við viljum að Eggert aðstoði okkur við að tryggja kjör
Lennarts. Eggert er í góðu sambandi við fulltrúa rryög margra
þjóða og við viljum að hann tali máli okkar varðandi lcjör forseta
FIFA,“ sagði Lagrell við Morgunblaðið.
og
sagði
Lars-
Áke
Lagrell,
for-
maður
sænska
knatt-
spyrnu-
sam-
bands-
ins, í
samtali
við
Morgunblaðið nýverið að sá samn-
ingur breytti mjög miklu fyrir lönd-
in tvö.
„Við fáum mun meiri peninga
fyrir þennan samning en þann sem
var í gildi áður við annað fyrir-
tæki. Um það bil tvöfalt meira,“
sagði sænski formaðurinn, en vildi
ekki nefna neinar upphæðir í því
sambandi. í samningnum felst að
þýska fyrirtækið hefur einkarétt á
sölu sjónvarpsmynda frá allri
sænskri og finnskri knattspyrnu;
landsleikjum þjóðanna og deildar-
og bikarkeppni.
KSÍ hefur rætt við ISPR á sömu
nótum; ef semst eignast þýska fyr-
irtækið einkarétt á sjónvarpsmynd-
um af íslenskri knattspyrnu og sel-
ur til sjónvarpsstöðva, m.a. á ís-
landi.
„Fimm lönd í Evrópu eru miklu
stærri á knattspyrnusviðinu en öll
önnur. Þetta eru Spánn, Ítalía,
England, Þýskaland og Frakkland.
Ef til vill má segja að Holland sé
einhvers staðar í námunda við þessi
fimm stóru, en aðrar þjóðir komast
ekki með tærnar þar sem þær hafa
hælana. Eftir að járntjaldið féll
hefur bilið breikl.að enn og síðan
hafa lið annars slaðar frá en þess-
um tilteknu löndum ekki átt neina
möguleika á að sigra í Evrópu-
keppni, svo dæmi sé tekið,“ sagði
Svíinn.
Lagrell var spurður hvort ekki
væri hætta á að þýska fyrirtækið
myndi verðleggja efnið svo hátt til
sænskra sjónvarpsstöðva — til að
fá eitthvað fyrir sinn snúð — að
það þætti of dýrt og heimamenn
fengju þá e.t.v. ekkert að sjá. For-
maðurinn taldi svo ekki vera.
„Markaðurinn ræður ferðinni. Ef
knattspyrnan þykir aðlaðandi sjón-
varpsefni — sem hún er — lýkur
slíkum samningaviðræðum alltaf
með því að menn ná saman," sagði
hann.
„í Evrópukeppni vilja allir drag-
ast gegn liðum frá þjóðunum fimm,
vegna peninga sem í boði eru frá
sjónvarpsstöðvum, en enginn gegn
liðum frá gömlu Austur-Evrópu.
Morgunblaðið/Þorkell
EGGERT Magnússon, formaður KSÍ, og starfsbróðir hans frá
Svíþjóð, Lars-Ake Lagrell.
norrænt markaðssvæði og sam-
böndin væru öll með samning við
sama sjónvarpsfyrirtækið. Það gæfi
ýmsa möguleika, til dæmis að sami
styrktaraðili yrði á deildarkeppninni
í öllum löndunum," sagði formaður-
inn. „Samningur sem þessi gerir
það að verkum að knattspyrnan í
viðkomandi löndum sést mun víðar
en áður. ISPR á t.d. hlut í Sat 1
sjónvarpsstöðinni í Þýskalandi og
sú stöð er í samstarfi við margar
aðrar. Þó hinar ýmsu stöðvar séu
keppinautar skiptast þær á svona
efni og það gæti því verið sýnt
mjög víða.“
SKVASS / NORÐURLJOSAMOTIÐ
Kim Magnús
náði lengst
KIM Magnús Nielsen náði lengst íslendinga á Norðurljósamótinu
í skvassi, sem fram fór í í sölum Veggsports um helgina. Mótið
er hluti af Norðurlandamótunum í skvassi, þar af leiðandi mættu
margir af þeim bestu á Norðurlöndum þó að ekki hafi þeir allir
séð sér það fært, og áhorfendum var boðið upp á mikla skemmt-
un. íslensku keppendurnir áttu góðan dag þó ekki hefðu þeir
unnið til verðlauna enda íþróttin ung hér á landi og þolinmæði
og þrautseigju þörf. Þeir höfðu þó að einhverju að keppa þvífyr-
ir þann sem næði lengst var í boði farseðill á skvassmót í Banda-
ríkjunum og kom hann í hlut Kims Magnúsar, sem borið hefur
höfuð og herðaryfir landa sína í þessari íþróttagrein undanfarin ár.
KIM Magnús Nlelsen
Kim reynsl-
unni ríkari
KIM Magnús Nilsen náði
lengst íslendinga á Norður-
jósamótinu og hlýtur að iaun-
um ferð á skvassmót í Kalifor-
níu, frá Bandaríkjamanni,
sem spilar í Veggsporti þegar
hann er á ferð um Island. „Ég
fékk Þjóðveija í fyrsta leik
og það var auðvelt. Síðan fékk
ég þann besta í Noregi og
þrátt fyrir ágætan leik hjá
mér var hann betri og vann,
3:0,“ sagði Kim Magnús eftir
mótið. „Við erum reynshumi
ríkari og bætum okkur sem
betur fer. Það eru margir að
koma til hér á landi og áttu
góða helgi. Mót sem þetta
hleypir lífí í okkur og er gott
fyrir næstu mót.“
Ellefu frá
Þýskalandi
FABRICE Chinetti frá Lúx-
emborg keppti á Smáþjóða-
leikunum 1992 og hreifst af
landinu. Hann þjálfar skvass
í Þýskalandi og taidi ellefu
félaga sina á að koma með
sér tíl að keppa á Norður-
Ijósamótinu auk þess að berja
landið augum. Félögunum
likaði vel og taldi Fabrice að
þeir myndu koma aftur að
ári.
Þrjú spor
og svo í
úrslit
ELLEN Hamborg frá Dan-
mörku, sem sigraði í kvenna-
flokki á Norðurljósamótinu í
skvassi um helgina, er ein-
beittur iþróttamaður og lætur
ekki slá sig svo auðveldlega
út af laginu. I undanúrslit-
leiknum, þegar hún hafði unn-
ið tvær lotur og hafði 9:8 for-
skot, rakst spaði mótheija í
augabrún hennar svo að
sprakk fyrir. Ellen var! ham,
krafðist þess að leiknum yrði
fram haldið og vann siðasta
boltann. Hún vann þar með
lotuna og leikinn en fór að
því loknu á sjúkrahús þar sem
sauma þurftí þrjú spor til að
loka sárinu. Að saumaskapn-
um loknum var brunað upp í
Veggsport enda úrslitaleikui-
mótsins hálftíma síðar.
Meiðslin virtust ekki hafa
meiri áhrif á hana en svo að
hún vann.
Rúmlega 30 keppendur komu
erlendis frá, margir hveijir
bestir í sínu landi. Kim Magnús
Nielsen og Arnar
Arinbjamar unnu
báðir í fyrstu um-
ferð en duttu út í
næstu. í karlaflokki
léku til úrslita Fredrik Johnson og
Johan Jungling frá Svíþjóð en sá
fyrrnefndi hefur verið í fremstu röð
skvassspilara þar í landi um áratug-
arskeið. Johan er fjórtán árum
yngri og reynir að velta honum úr
sessi - hefur reyndar unnið leiki
við þá bestu en ekki tekist að halda
sér á meðal þeirra. „Pressan var
öll á mér en ég var ákveðinn í að
hafa það af. Hann varð þreyttur
og mér tókst að spila rétt á hann,“
sagði Fredrik, sem er næstbestur í
Svíþjóð, eftir sigurleikinn. Hann
náði öðru sæti á Norðurljósamótinu
í fyrra og líkaði vel að koma aftur.
„íslensku strákarnir eru að verða
betri en verða að gera sér grein
fyrir því að það tekur tíma að ná
langt. Þeir þurfa að spila mun meira
og við sér betri menn til að staðna
ekki.“ Þess má geta að Johan vann
Rob Nowak frá Möltu, 3:2, en sami
Rob vann Heimi Helgason, 3:2.
Ásta Ólafsdóttir var ein íslend-
inga í kvennaflokki. Hún átti við
ramman reip að draga og tókst
ekki að vinna lotu. Þar léku til úr-
slita danskar stúlkur, Julie Dorn
Jensen og Ellen Hamborg Petersen.
Julie vann fyrstu tvær loturnar en
þá sagði Ellen hingað og ekki lengra
og sigraði í þremur næstu.
„Eg var rög til að byija með í
úrslitaleiknum enda nýbúið að
sauma þijú spor í höfuðið á mér
og ég spilaði því varlega. En þegar
ég sá að slík spilamennska skilaði
engu skipti ég um gír, keyrði upp
hraðann og kláraði orkubrigðir
hennar,“ sagði Ellen eftir úrslita-
leikinn en hún er að fara í mánaðar
ferðalag og mun spila á allt að fjór-
um stórmótum á einum mánuði.
Hún er að koma hér í annað sinn
og sagði íslendinga hafa tekið
framförum. „Stelpumar eru enn of
fáar en strákarnir hafa tekið greini-
legum framförum enda hafa þeir
farið nokkuð á mót erlendis.“
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ
í PÍLUKASTI1997
verður haldið í Smiðsbúð 9, (félagsh. ÍPF) í Garðabæ,
föstudaginn 7., laugardaginn 8. og sunnudaginn
9. mars nk. sem hér segir:
• Föstudaginn 7. mars kl. 19.00 Einmenningur karla
• Laugardaginn 8. mars kl. 10.30 Einmenningur kvenna
• Laugardaginn 8. mars kl. 11.00 Einmenningur öldunga
(50 ára og eldri)
• Sunnudagur 9. mars kl. 12.30 Tvímenningur
(riðlakeppni, karla- og konur saman).
ARJE Ð U R N I R
DJORMSSONHF
Þátttaka tilkynnist
til Benedikts H.
Benediktssonar,
sími 896 4635.