Morgunblaðið - 06.03.1997, Qupperneq 8
KNATTSPYRNA
vonum
MANCHESTER United og Dortmund standa vel
aö vígi fyrir síðari leiki liðanna í átta liða úrslitum
Meistaradeildar Evrópu. United lagði Portó 4:0 á
Old Trafford og í Dormund höfðu heimamenn 3:1
sigur á franska liðinu Auxerre. Juventus varð að
sætta sig við 1:1 jaf ntefli gegn Rosenborg i Nor-
egi og í Amsterdam náðu leikmenn Atletico
Madrid 1:1 jafntefli gegn Ajax í geysilega
skemmtilegum og fjörugum leik.
Fyrir leikinn var ég að vonast eftir að við héldum hreinu
og gætum gert eitt mark, en 4:0 er framar öllum
vonum,“ sagði Alex Ferguson, stjóri Manchester United,
eftir að leikmenn hans höfðu sýnt allar sínar bestu hliðar
og gjörsigrað portúgölsku meistarana frá Portó. „Ég held
að þetta sé einn besti leikur sem United hefur leikið í þau
tíu ár sem ég hef verið hér,“ sagði Ferguson.
United er nokkuð öruggt um að komast í undanúrslitin
í fyrsta sinn frá því árið 1969 og þar mun liðið líklega
mæta þýsku meisturunum í Dortmund. United lék mjög vel
í gær og eldri áhorfendur á Oid Trafford táruðust af ánægju
því sigur United minnti þá óneitanlega á velgengni liðsins
á sjötta og sjöunda áratugnum þegar
United var eitt besta lið Evrópu. Port-
úgölsku meistaramir byijuðu ágæt-
lega én heimamenn náðu fljótlega
tökum á leiknum og hreinlega yfirspil-
uðu Porto.
„Við emm reynslunni ríkari, sér-
staklega frá viðureign okkar við Juv-
Reuter
QARY Palllster og Davld May höfðu ástæðu tll að fagna ð Old Trafford í
gærkvðldl. Hér fagna þeir fyrsta marklnu, markl May.
URSLIT
Meistaradeild Evrópu
Fyrri leikir, 8-liða úrslit:
Amsterdam, HoIIandi:
Ajax - Atletico Madrid............1:1
Patrick Kluivert (53.) - Juan Esnaider (8.).
51.000.
Dortmund, Þýskalandi:
Dortmund - Auxerre................3:1
Karlheinz Riedle (12.) Rene Schneider (54.)
Andreas Möller (82.) - Sabri Lamouchi
(75.). 47.500.
Old Trafford, Manchester:
Manchester United - Porto.........4:0
David May (22.), Eric Cantona (34.), Ryan
Giggs (61.) Andy Coie (80.). 53.415.
Þrándheimur, Noregi:
Rosenborg - Juventus..............1:1
Trond Egil Soltvedt (51.) - Christian Vieri
(52.). 20.246.
England
Úrvalsdeildin:
Chelsea - Blackburn...............1:1
Minto (63.) - Pedersen (62.). 25.784.
Leicester - Aston Viila......... 1:0
Claridge (66.). 20.626.
Middlesbrough - Derby.............6:1
Kinder (24.), Ravanelli 3 (54., 82., 85.),
Hignett (70.), Beck (81.) - Simpson (90.).
29.739.
Nott. Forest - Sheff. Wed.........0:3
- Carbone 2 (52., 87.), Blinker (58.). 21.485.
Southampton - Everton.............2:2
Slater (59.), Short (61. - sjálfsm.) - Fergu-
son (11.), Speed (27.). 15.134
1. deild:
Man. City - Portsmouth............1:1
Horlock (47.) - Simpson (86.). 26.051.
Stoke - Grimsby...................3:1
Southall (48. - sjálfsm.), Kavanagh (50.),
Griffin (78.) - Livingstone (25.). 8.621.
WBA - Southend....................4:0
Sneekes (31.), Mnrphy (34.), Hunt (74.),
Raven (90.). 11.792.
Skotland
Raith - Kilmarnock................2:1
Spánn
Rayo Vallecano- Sevilla...........2:0
entus í riðlakeppninni. Nú vom leik-
menn mínir með fulla einbeitingu all-
an leikinn og ég á varla orð til að
lýsa ánægju minni með leik liðsins,"
sagði Ferguson, en liðið hefur ekki
tapað í síðustu 16 leikjum í ensku
deildinni. Antonio Oliveira, þjálfari
Porto, neitaði að ræða um leikinn.
„Ég er svo vonsvikinn að ég vil helst
ekki ræða um mitt lið. Ég óska hins
vegar leikmönnum United til ham-
ingju með góðan leik. Það verður
ansi erfitt fyrir okkur að komast
áfram úr þessu, en ég vonast til að
sjá lið Porto, eins og ég þekki það,
eftir hálfan mánuð," sagði hann. Þess
má geta að Porto hafði aðeins tapað
einum leik áður en liðið mætti til
Manchester, í deildinni, og var þetta
því fyrsta tap liðsins í Evrópukeppn-
inni í vetur.
United lék án Roy Keane sem er
meiddur en það vom þeir Erick Cant-
ona og Ryan Giggs sem fóm fyrir
liði United og áttu báðir hreint frá-
bæran leik. I framlínunni vom þeir
Sólskjær og Andy Cole sprækir og
Gary Pallister átti einnig mjög góðan
leik. Fyrst markið gerði David May
eftir 22 mínútur, náði að krækja í
boltann eftir að Hilario, markvöður
Porto, varði skalla frá Pallister en
hélt ekki boltanum. „Kóngurinn"
Cantona bætti öðm marki við tíu
mínútum fyrir leikhlé, með föstu og
snaggaralegu skoti af stuttu færi.
Giggs gerði þriðja markið á 61. mín-
útu og Cola það síðasta tíu mínútum
fyrir leikslok.
Fyrir tuttugu ámm áttust United
og Porto við í Evrópukeppni bikar-
hafa og tapaði United 5:2 í Portúgal
en vann síðan 4:0 á Old Trafford.
Stuðningsmenn United vona að sagan
endurtaki sig ekki og líklegt er að
þeir verði bænheyrðir því Porto mun
leika síðari leikinn án Arthurs, Rui
Barros og Sergio Conceicao, sem allir
verða í leikbanni.
Frábær leikur í Amsterdam
Ajax, sem tapaði fyrir Juventus í
úrslitaleiknum í fyrra, virðist ekki
eiga mikla möguleika á að komast í
undanúrslitin að þessu sinni. Liðið tók
á móti Atletico Madrid í gærkvöldi
og varð að sætta sig við 1:1 jafntefli
í bráðskemmtilegum og vel leiknum
leik. Gestimir skomðu eftir átta mín-
útna leik og þar var á ferðinni argent-
ínski landsliðsmaðurinn Juan Esnaid-
er, sem hélt uppá 24 ára afmæli sitt
í gær.
Ajax sótti mun meira og fékk
mörg marktækifæri en tókst ekki að
jafna fyrr en átta mínútur vom liðnar
af síðari hálfleik. Hinn tvítugi Patrick
Kluivert, sem verður í banni í síðari
leiknum, skoraði með föstu skoti af
stuttu færi eftir glæsilega sókn. Allt
útlit er því fyrir að Ajax verði að
gera sér að góðu að detta úr keppn-
inni, en það væri auðvitað í samræmi
við slakt gengi liðsins í vetur.
Juventus náði jðf nu í Noregi
Meistarar Juventus frá Ítalíu urðu
að sætta sig við skiptan hlut í Noregi
í gærkvöldi er þeir heimsóttu Rosen-
borg. Heimamenn náðu forystunni
eftir sex mínútna leik í síðari hálfleik
þegar Trond Egil Soltvedt skoraði en
Christian Vieri jafnaði fyrir Juve mín-
útu síðar þegar rúmlega 20 þúsund
áhorfendur vom enn að fagna marki
heimamanna.
Juventus mætti til leiks með nokk-
uð breytt lið frá síðustu leikjum enda
margir leikmenn meiddir og ískuldinn
í Þrándheimi virtist einnig hafa slæm
áhrfí á ítölsku leikmennina. Flestir
bjuggust þó við að norska liðið yrði
ekki mikil hindmn fyrir meistarana
en hinir baráttuglöðu leikmenn Ros-
enborg vom á öðm máli og komu
knattspymuunnendum enn og aftur
á óvart. Það gerðu þeir í riðlakeppn-
inni með því að slá AC Milan út úr
keppninni og í gærkvöldi náðu þeir
jafntefli við annað ítalskt stórveldi.
Rosenborg var síst lakara liðið í
gærkvöldi og víst er að leikmenn
Juventus munu mæta fullir varkámi
til síðari leiks liðanna eftir tvær vikur
og vona auðvitað að sóknarmennimir
Alessandro Del Piero og Croat Alan
Boksic verði búnir að ná sér af meiðsl-
unum.
Leikmenn Dortmund ánægðir
Dortmund hafði talsverða yfirburði
þegar liðið tók á móti Auxerre frá
Frakklandi og sigraði 3:1. Karlheinz
Riedle kom heimamönnum yfir með
skallamarki eftir 12 mínútur en þar
áttu þeir Jörg Heinrich og svissneski
landsliðmaðurinn Stephane Chapuisat
stóran hlut að máli. Annað mark
heimamanna gerði Rene Schneider,
sem kom inná sem varamaður fyrir
Wolfgang Feiersinger sem meiddist.
Enn kom Chapuisat við sögu, gaf
beint á kollinn á Schneider úr auka-
spymu.
Gestimir áttu nókkrar hættulegar
sóknir og þegar stúndaríjórðungur
var til leiksloka minnkaði Sabri Lamo-
uchi muninn og fór nú um áhorfend-
ur þvi heimamenn höfðu aðeins eins
marks forystu og Frakkar hefðu get-
að vel við unað að tapa með einu
marki. Ottmar Hitzfeld, þjálfari Dor-
mund, brást við þessu með því að
setja Ganabúann Ibrahim Tanko inná
og tveimur mínútum eftir breytinguna
lagði Tanko upp þriðja mark Dort-
mund fyrir Andy Möller.
„Þessi úrslit ættu að duga okkur.
Við erum það sterkir á útivelli að við
eigum að geta gert tvö til þtjú mörk
í Frakklandi," sagði Hitzfeld. Guy
Rouw, þjálfari Auxerre, var tiltölu-
lega sáttur eftir leikinn. „Mark Lamo-
uchi veitir okkur smávon um að kom-
ast áfram. Ég er nokkuð sáttur við
leik minna manna, ef þeir hefðu leik-
ið eins og þeir hafa gert í síðustu
deildarleikjum hefðum við tapað með
átta marka mun í kvöld," sagði hann.
Dómari leiksins dæmdi tvö mörk
af, eitt frá hvoru liði; taldi Chapuisat
hafa handleikið knöttinn þegar hann
skoraði í upphafi leiks og hann dæmdi
einnig háskaleik á Lilian Laslandes
sem skoraði glæsilegt mark með bak-
fallsspyrnu. „Þetta var löglegt mark,
ég er búinn að skoða það margoft í
sjónvarpinu og vamarmaðurinn er
langt í burtu, 2 sagði Roux.
Framar
öllum
FOLX
■ BARCELONA mun að öllum
líkindum nota þriðja markvörð
sinn, Julen Lopetegui, í Evrópu-
leiknum á móti AIK í kvöld. Port-
úgalski markvörðurinn, Vitor
Baia, meiddist á æfingu á þriðju-
dag og Carlos Busquets, vara-
markvörður, er einnig meiddur.
Félagið verður einnig án miðvallar-
leikmannsins Oscar Garcia og
eins er spuming hvort portúgalski
vamarmaðurinn Femando Couto
geti leikið vegna meiðsla.
■ RONALDO verður hins vegar
með og leikur í fremstu víglínu,
en hann lék ekki með Barcelona
á móti Atletico Madrid í síðustu
viku því hann var á sama tíma
með brasilíska landsliðinu.
■ Stefan Soderberg, þjálfari
AIK, sagðist vera ánægður með
lið sitt og hvernig það kom út úr
æfingamóti á Kýpur í síðustu viku.
AIK komst í úrslit á mótinu með
því að sigra norska liðið Lil-
leström, en tapaði í úrslitum.
■ MARSEILLE hefur haft sam-
band við David Ginola, útheija
Newcastle, um hugsanleg félaga-
skipti til Frákklands. Ginola, sem
hefur ekki átt fast sæti í byrjunar-
liði Newcastle, hefur lýst yfír
áhuga á að leika með Marseille.
■ XAVIER Gravelaine, fram-
herji Marseille, hefur verið orðað-
ur við spænska félagið Valencia.
■ CELTIC bauð í gær AC Milan
750 þús. pund fyrir miðvallarleik-
manninn Stefano Eranio, 30 ára.
■ SKOSKA liðið Hibs hefur hug
á að fá Mark Bright, fyrrverandi
miðherja Sheff. Wed. til sín. Hann
hefur leikið með Sion í Sviss.
Bright er á leiðinni til Edinborg-
ar, til að ræða við forráðamenn
liðsins.
■ MATTHIAS Sammer gat ekki
leikið með Dortmund í gærkvöldi
í 8-liða úrslitum meistaradeildar
Evrópu, þegar liðið mætir Aux-
erre. Hann meiddist á kálfa í
landsleik ísraels og Þýskalands
í Tel Aviv í sl. viku. Sammer
verður að taka sér frí frá æfingum
og keppni í tíu daga.
■ JUVENTUS hefur mikinn hug
á að tryggja sér Brasilíumanninn
Giovanne Elber hjá Stuttgart,
sem hefur verið orðaður við Bay-
ern Miinchen - átt í viðræðum
við Bæjara, en ekki skrifað undir
neina pappíra..
■ SÆNSKI landsliðsmaðurinn
Jonas Thern, sem leikur með
Roma, hefur tilkynnt að hann fari
til Glasgow Rangers eftir þetta
keppnistímabil.
■ MARC Overmars, sóknarleik-
maður Ajax, mun fara frá félaginu
eftir þetta keppnistímabil, þó svo
að hann sé með samning við liðið
til ársins 2001.
■ SEAN Dundee, miðheiji
Karlsruhe, sem mörg félög hafa
haft augastað á, segist vera
ánægður hjá Karlsruhe og hafi
hug á að vera áfram hjá liðinu.
Dundee er markahæstur í Þýska-
landi, með fjórtán mörk.
■ MARK Wright, miðvörður
Liverpool, fór ekki með liðinu til
Bergen, þar sem hann er meidd-
ur. Liverpool mætir Brann í Evr-
ópukeppni bikarhafa í kvöld.
■ LEEDS sagði nei við knatt-
spyrnusamband Ghana, þegar
sambandið óskaði eftir að fá Anth-
ony Yeboah til að leika vináttu-
leik gegn Niirnberg í næstu viku.
■ STEFAN Reuter, miðvallar-
spilari Dortmund, var rekinn af
leikvelli þremur mín. fyrir leikslok
gegn Auxerre, þegar hann fékk
sína aðra bókun.
VIKINGALOTTO: 1 3 22 24 25 27 + 35 41 48