Morgunblaðið - 16.05.1997, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LIF
FÖSTUDAGUR 16. MAÍ 1997 B 5
mikið af fötum á leikkonurnar, sér-
staklega Mary Stuart Masterson."
Hvað Teri Hatcher varðar aðstoð-
aði Linda búningahönnuðinn við að
gæða grunnhugmyndir að búning-
um lífi og fékk stundum að nota sín-
ar eigin hugmyndir. „Til dæmis föt-
in sem hún er drepin í og fjólublá
undirföt,“ segh' Linda sem fékk
nafn sitt á lista fyrir aftan umrædda
kvikmynd, en það tíðkast ekki að
öllu jöfnu.
Linda segir að aðalleikarinn, Alec
Baldwin, hafi verið kurteis, indæll,
mikill fagmaður og boðið samstarfs-
fólki upp á pizzu og bjór á hverju
föstudagskvöldi. Aðal vandamálin
sem hún þurfti að glíma við var
sumarhitinn. „Sumir svitnuðu
hrikalega mikið og þurftu að skipta
oft um föt. Þá þurfti ég að passa
upp á að svitablettirnir væru á
sama stað á nýju flíkinni," segir
hún.
Kelly Lynch leikur konu Bald-
wins og á dyggan stuðningsmann í
Lindu. „Hún er meiriháttar, yndis-
legasta leikkona sem ég hef unnið
með, og kemur fram við mann eins
og hún hafi alist upp í næsta húsi.
Eric Roberts, er hins vegar meiri
prímadonna," segir hún og rifjar
upp fyrstu mátun hans í hjólhýsi
leikbúningahönnuðanna.
„Þama eru venjulegir mátunar-
klefar með tjöldum og Eric Roberts
fer inn og mátar. Hann kemur síð-
an fram aftur á skjóllitlum, eldrauð-
um nærbuxum, sem em að minns-
ta kosti tveimur númeram of litlar
og sprangar um eins rogginn hani.
Tveimur árum síðar vann ég við
sjónvarpsþáttinn Dark Angel, þar
sem hann lék aðalhlutverkið. Þá var
hann orðinn miklu verri og farinn
að henda skóm í fólk.“
Teri Hatcher, sem líka leikur -
Lois Lane í þáttunum um Ofur-
mennið, er dæmigerð fyrir margar
bandarískar kvikmyndaleikkonur
að Lindu mati. „Þær eru pínulitlar,
grindhoraðar, með innfallinn maga
og risastór brjóst, og allar með
minnimáttarkennd. Margar leik-
konur virðast óöruggar, efast um
hæfileika sína og falla í þá gryfju að
halda að ef þær era ekki 100% í út-
liti, fái þær ekki vinnu. Þær hafa
ekki trá á sér sem manneskjum."
Snákar, sveppur og
önnur sníkjudýr
Þótt starfið geti verið spennandi
segir Linda ekki bara tekið út með
sældinni að vinna við kvikmynda-
gerð. Að sumarhitunum ógleymd-
um urðu margir fyrir barðinu á
sveppi og öðram sníkjudýrum sem
lifa í heitu og röku loftslagi Louis-
iana meðan Heaven’s Prisoners var
tekin upp að flóm, mýflugum og
kóngulóm ólöstuðum. „Ágúst er
eins og helvíti, það er svo rosalega
heitt,“ segir hún.
Annað dæmi er vatnasnákar sem
létu á sér kræla við útitökur í
grennd við Mexíkóflóa vegna sjón-
varpsþáttanna The Big Easy. „Það
voru pollar út um allt og við fund-
um sjö baneitraða vatnasnáka und-
ir hjólhýsunum einn daginn. Þessir
snákar ferðast í hóp, ráðast allir á
Spánverjar, ekki púritanar." Linda
segir að New Orleans og nágrenni
sé vinsælt baksvið fyrir kvikmynd-
ir og sjónvarpsþætti vegna sér-
stæðrar stemmningar. „Ég hef orð-
ið það mikla reynslu að ef fleiri en
eitt kvikmyndafyrirtæki er við tök-
ur í New Orleans get ég yfirleitt
valið við hvaða mynd ég vil vinna.
Oft þarf ég að hafna fleiri verkefn-
um en ég get tekið.“
Pitt vingjarnlegur
Undanfarin ár hefur Linda unnið
við sjónvarpsþætti, auglýsingar og
tónlistarmyndbönd og auk þess átt
þátt í tilurð þekktra kvikmynda á
borð við Kingfísh, Dead Man
Walking, Heaven’s Prisoners,
Interview with the Vampire, og The
Client.
I fyrstu fannst henni spennandi
að fá stór verkefni og nefnir sér-
staklega Interview with the Vamp-
ire með Brad Pitt og Tom Cruise.
„Tökurnar tóku sjö vikur og við
höfðum þrjár vikur til þess að und-
irbúa okkur. Við voram til dæmis
með 150 kassa af búningum sem
þurfti að taka upp, sortera og máta.
Ég hjálpaði til við mátanir, saumaði
í tvo daga meðan á undirbúningi
stóð og eftir að tökur hófust vann
ég eingöngu á tökustað. Aukaleik-
ararnir vora allir undir minni um-
sjón, 250 talsins. Mér fannst ofsa-
lega gaman í byrjun og spennandi
að sjá leikarana fyrstu vikuna en
nýjabramið fór þó fljótlega af. Það
voru mikil umsvif kringum búning-
ana, bæði vegna fjölda leikara og
tímabilsins sem myndin gerist á.
Það var svo mikið að gera að ég sá
ekki sólina í sjö vikur, og breyttist
sjálf í hálfgerða blóðsugu.“
Linda segir návígið við leikarana
misjafnt, sumii’ blandi geði og aðr-
ir ekki, eins og gengur. „Áður en
tökur hófust leigði Tom Craise sal
þar sem hægt var að dansa, borða
og fara í keilu og bauð öllu starfs-
fólkinu. Hann er viðkunnalegur að
því leyti en er mikið út af fyrir sig.“
Hún segir Cruise samt ekki alveg
lausan við svokallaða stjörnustæla.
„Ég man til dæmis eftir atriði sem
tekið var upp á plantekra utan við
New Orleans. Þangað kom heil rúta
af fólki sem klifraði upp á varnar-
garða við Mississippi-fljótið skammt
frá og fylgdist með gegnum sjón-
auka. Hann neitaði að leika nema
tökusvæðið yrði skermað af. Þetta
er auðvitað skiljanlegt að vissu leyti.
Hann er í þeirri stöðu að geta ekk-
ert farið nema að vera hundeltur
svo viðmótið hlýtm- að breytast.“
Linda segir hins vegar að hinn
nýlofaði Brad Pitt hafi átt meira
saman við starfsfólkið að sælda og
fylgt því á bar til þess að drekka
bjór og spila billjarð þegar tökum
lauk í morgunsárið. „Hann reiddi
vinkonu mína til dæmis heim á hjól-
inu sínu einn morguninn," segir hún
jafnframt.
Passaði upp
á svitablettina
Talinu víkur að annarri kvik-
mynd þar sem Linda gegndi stóra
hlutverki, Heaven’s Prisoners með
Alec Baldwin og Kelly Lynch, sem
sýnd var á íslandi í vetur. Sögusvið
þeirrar myndar er líka í New Orl-
eans en rúmum 200 árum síðar og
að sumarlagi. „Ég sá um allar mát-
anir og saumaði og bjó jafnframt til
Lífið er
leikbúningar
fb LINDA saumaði mikið af
búningum á Mary Stuart
Masterson sem leikur gleðikonu í
Heaven’s Prisoners og sést hér
með hinum vingjarnlega Alec
Baldwin. Bannað er að taka
myndir af leikurunum til einka-
nota og því á Linda ekki mikið
af myndum af verkum sínum.
.ftí, LINDA ásamt samstarfsfólki
við gerð sjónvarpsþáttanna
The Big Easy, sem Stöð 3 ætlaði
reyndar að taka til sýningar á
sínum tíma.
OVINNUDAGURINN er stund-
um langur og mikill tími fer
í að bíða. Linda fær sér hænu-
blund á gólfinu í búningatrukkn-
um ásamt tíkinni Jasmín.
0 SELSKAPSMEYJAR á bún-
ingaballi. Þættirnir eru ekki
ætlaðir börnum.
0 AÐALSÖGUHETJURNAR í
w fyrstu þáttaröðinni af The
Big Easy. Djöfullinn í miðjunni
er í aukahlutverki og ljóskan er
hætt.
0 AÐALLEIKARINN er ávallt
w viðbúinn hinu óvænta.
0 FALLINN engill í aukahlut-
verki að hætti Lindu.
Dansandi bindi
Búningarnir í The Big Easy eru
litskráðugir að beiðni forráða-
manna sjónvarpsstöðvarinnar. Að-
spurð segir Linda ekki sama hvaða
mynstur er á fötum þegar tekið er
upp fyrir sjónvarp. „Ef það er of
smátt sýnast fötin iða á skjánum og
stundum sér maður menn með
dansandi bindi. Einnig þarf að gæta
þess að nota ekki mikið af plastefn-
um eða öðru sem skrjáfar."
Linda segir misjafnt hvað verð-
ur um fótin þegar tökum lýkur. Ef
um kvikmynd er að ræða er einu
eintaki af hverri flík pakkað niður,
hún merkt og send í myndverið til
geymslu þar til klippingu er lokið
því stundum þarf að bæta við
myndskeiðum á síðustu stigum
vinnslunnar. „Allt annað er selt eða
sent á búningaleigur. Stundum
kaupa leikararnir fötin eða bara
taka þau. Þegar búið var að taka
Heaven’s Prisoners var opnuð risa-
stór verslun í New Orleans og allt
selt. Rúmið sem Kelly Lynch var
drepin í var selt fyrir 1.800 dollara,
með sundurskotna gafla. Þeir
reyndu líka að selja blóðug föt og
hið ótrúlega er að fólk kaupir þet-
ta,“ segir Linda, sem reyndar á
sjálf fjólubláan náttkjól af Teri
Hatcher, öskubakka, lampa og bar
á fjórum hjólum úr umræddri kvik-
mynd.
Tökur eru nýhafnar á 22-þátta
syrpu af The Big Easy en Linda er
þegar farin að fínna fyiir gamal-
kunnum fiðringi. „Ég er orðin eirð-
arlaus og til í að breyta til. Áður en
ég flutti hingað var ég að velta því
fyrir mér að flytja til Kanada,
Astralíu eða Svíþjóðar, eða bara
hvert sem er. Ég er í sömu hugleið-
ingum núna. Ef allt gengur að ósk-
um og ég næ að safna nægum pen-
ingum, væri ég til í að kaupa hús á
Spáni.“
fórnarlambið og bíta og bíta. Þegar
mikið rignh’ koma þeir upp úr vatn-
inu og fara í pollana. Við voram því
í þykkum gallabuxum, gúmmístíg-
vélum upp að hnjám og með vasa-
ljós þegar við þurftum að fara eitt-
hvað. Svo stappaði maður niður fót-
unum og gargaði til þess að reyna
að hræða þá.“
Linda segir ennfremur að vinnu-
dagurinn sé langur, 12-18 tímar.
„Stundum vinn ég 70-80 tíma á
viku. Maður á ekkert líf í svona
starfi og vonlaust að reyna að eiga
kærasta eða fjölskyldu. Þetta er vel
borgað en maður vinnur svo sann-
arlega fyrir því. Ég kláraði síðustu
törn milli jóla og nýárs og varð ekki
eins og manneskja fyrr en tveimur
mánuðum seinna. Ég var eins og
vofa fyrstu vikurnar," segir hún.
Á síðasta ári vann Linda einvörð-
ungu við sjónvarp, fyrst í tengslum
við lögregluþáttinn Dark Angel sem
fyrr var getið. Að því búnu tók hún
sér eins dags frí áður en tökur hóf-
ust á fyrstu 22 þáttunum af The Big
Easy. „Sú vinna er alls annars eðl-
is en við kvikmyndir. Hver 50 mín-
útna þáttur er tekinn upp á sjö
dögum, maður hefur ekki
nema einn dag til að und-
irbúa hvert atriði og þarf
því að vera úti um allan bæ
að kaupa fót, máta, breyta og
þess háttar. Stundum kemur
maður hlaupandi með flíkurn-
ar rétt áður en tökur hefjast."