Morgunblaðið - 25.05.1997, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1997 E í
HAFRANNSÓKNASTOFNUMIN
auglýsir eftirfarandi störf laus til
umsóknar:
Starf gagnastjóra
til að sjá um gagnagrunn stofnunarinnar.
Stofnunin notar Oracle gagnagrunnakerfi og
aðallega Unix-vinnustöðvar. Starfið felst í yfir-
umsjón með gagnaflæði, innslætti gagna, við-
haldi, villuprófun og samræmingu gagna-
grunna ásamtfrumúrvinnslu gagna. Leitað
er að starfsmanni sem hefur lokið prófi í tölv-
unarfræði, kerfisfræði eða sambærilegu námi
og hefur reynslu af Oracle og SQL eða sam-
bærilegum kerfum.
Starf
rannsóknarmanns
til að hafa umsjón með mælingum á sjósýnum,
innslætti gagna og umsjón með gagnagrunni.
Tækni- og tölvukunnátta æskileg. í starfinu
felst einnig þátttaka í rannsóknaleiðöngrum
á sjó.
Starf raftæknifræð-
ings/rafeindavirkja
til þess að annast viðhald og viðgerðir rann-
sóknartækja og tækjabúnaðar rannsóknar-
skipa. í starfinu felst einnig tækjavarsla í rann-
sóknarleiðöngrum.
Umsóknarfrestur um öll störfin er til 10. júní.
Umsóknum fylgir upplýsingar um menntun
og fyrri störf.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötur4,101 Reykjavík,
sími 552 0240.
Vesturbyggð
Bæjarstjóri
Bæjarstjórn Vesturbyggðar auglýsir stöðu
bæjarstjóra lausa til umsóknar.
Starfssvið:
Um starfssvið bæjarstjóra gilda ákvæði 71.
gr. í VII kafla sveitarstjórnarlaga nr. 8/1986 og
ákvæði 63. gr. samþykkta um stjórn Vestur-
byggðar og fundarsköp bæjarstjórnar.
Þar segir m.a.:
Bæjarstjóri erframkvæmdastjóri bæjarins.
Hann undirbýrfundi bæjarráðs og bæjarstjórn-
ar í samráði við formann bæjarráðs og forseta
bæjarstjórnar. Bæjarstjóri hefur á hendi fram-
kvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmál-
efna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur
ekki ákveðið annað.
Bæjarstjóri er prókúrhafi bæjarsjóðs.
Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjar-
ins.
Leitað er eftir áhugasömum einstaklingi sem
er tilbúinn að fást við krefjandi og áhugavert
starf. Æskilegt er að viðkomandi hafi reynslu
af sveitarstjórnarmálum. Viðkomandi þarf að
geta hafið störf sem fyrst.
Umsókn skal senda skrifstofu bæjarsjóðs,
Aðalstræti 63,450 Patreksfjörður, merkta for-
seta bæjarstjórnar, Gísla Ólafssyni.
Umsóknum skal skilað fyrir 30. maí 1997.
Upplýsingar um starfið veita:
Gísli Ólafsson, forseti bæjarstjórnar, í símum
456 1481 eða 897 2796,
Jón Gauti Jónsson, bæjarstjóri, í síma
456 1221.
Góð sölukona óskast
Dugleg og hress sölukona með góða vöruþekk-
ingu óskast í snyrtivöruverslun í 60% starf eða
meira.
Umsóknirsendisttil afgreiðslu Mbl., merktar:
„888", fyrir 30. maí nk.
- EFNAFRÆÐINGUR
^ LYFJAFRÆÐINGUR
^ MEINATÆKNIR
Reynsla af rannsóknarstörfum æskileg.
Við leitum að starfsmönnum er hafa til að bera metnað
og frumkvæði til að taka þátt í uppbyggingu og þróun
hjá lyfjafyrirtæki í örum vexti. Viðkomandi þurfa að
hafa samskipta- og skipulagshæfileika og löngun til að
takast á við krefjandi verkefni.
Nánari upplýsingar aðeins veittar hjá Benjamín Axel
Árnasyni ráðningastjóra Ábendis.
Farið verður með allar fyrirspurnir og umsóknir sem
trúnaðarmál.
Vinsamlegast sækið um á eyðublóðum sem liggja
frammi á skrifstofu okkar sem fyrst, en t síðasta lagi
fyrir hádegi mínudaginn 9. júní 1997
A Br <$ I^J > I
Bókmenntafræði
Við heimspekideild Háskóla Islands er laust
til umsóknar 100% starf lektors í almennri bók-
menntafræði. Um er að ræða tímabundið starf
til eins árs með mögulegri framlengingu og
er stefnt að því að ráða í starfið frá 1. ágúst
1997. Laun eru skv. kjarasamningi Félags há-
skólakennara og fjármálaráðherra. Umsókn
þurfa að fylgja vottorð um nám og störf um-
sækjanda ásamt umsögnum um kennslu hans
og stjórnunarstörf eftir því sem við á. Ennfrem-
ur er nauðsynlegt að umsækjandi skili ná-
kvæmri ferilsskýrslu sem greini frá námi hans,
störfum, ritverkum og rannsóknum og hvaða
rannsóknir hann hafi í hyggju að stunda ef til
ráðningar kæmi. Umsækjandi skal einnig
leggja fram þrjú eintök af þeim ritverkum,
birtum og óbirtum, sem hann óskar eftir að
verði metin.
Umsóknarfresturertil 16. júní næstkomandi.
Umsóknum og umsóknargögpum skal skila
til starfsmannasviðs Háskóla íslands, Aðal-
byggingu við Suðurgötu, 101 Reykjavík. Starfs-
mannasvið mun svara öllum umsóknum og
greina umsækjendum frá því hvort og þá
hvernig starfinu hafi verið ráðstafað þegar sú
ákvörðun liggur fyrir.
Nánari upplýsingar um starfið sjálft veitir
Kristján Arnason, dósent í almennri bókmennta-
fræði, í síma 525 4446 og María Jóhannsdóttir,
skrifstofustjóri heimspekideildar, í síma 525
4401 en starfsmenn á starfsmannasviði veita
upplýsingar um nauðsynleg umsóknargögn
og þess háttar í síma 525 4390.
Ritari
Fasteignasala óskar eftir ritara til starfa.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi gott vald
á íslensku máli og hafi eigin bíl til umráða.
Þarf að geta hafið störf 16. júní.
Umsóknir skilisttil afgreiðslu Mbl.merktar:
„Ritari - 3579" fyrir kl. 16 miðvikudaginn
28. maí.
í Snæfellsbæ
vantar áhugasama kennara til starfa við grunn-
skólana á næsta skólaári við almenna kennslu,
handmennt, tónmennt og íþróttir. Sérkennarar
óskast einnig.
í Snæfellsbæ eru þrír grunnskólar þ.e. í Ólafs-
vík með um 200 nemendur, á Hellissandi um
130 nemendur og á Lýsuhóli um 40 nemendur.
Allir eru skólarnir einsetnir og með góða
vinnuaðstöðu fyrir kennara. Framhaldsdeild
Fjölbrautaskólans á Vesturlandi er einnig starf-
rækt í Snæfellsbæ. í undirbúningi er bygging
nýs íþróttahúss.
Snæfellsbær er ungt sveitarfélag í örri þróun til framfara í 21. öldina.
Snæfellsbær er í þægilegri fjarlægö frá höfuðborgarsvæðinu. Meðal
aksturstími til Reykjavíkur eru 3 klst. á bundnu slitlagi. Styttist sú
leið verulega með tilkomu Hvalfjarðarganga. Dulúð og orka Snæfells
jökuls, og fegurð Snæfellsness dregur að sér vaxandi ferðamanna-
straum þar sem saga landsins er sýnileg við hvert fótmál. Atvinnulíf
Snæfellsbæjar byggir á útgerð og fiskvinnslu, ferðamannaþjónustu
og landbúnaði, auk þess sem starfsemi á sviði jarðefnaiðnaðar, auk-
inna fræðslumála og mannræktar er í þróun.
Nánari upplýsingar veita:
Anna Þóra Böðvarsdóttir skólastjóri í síma
436 6618 og 436 6771 á Hellissandi.
Þorkell Cýrusson aðstoðarskólastjóri í síma
436 6618 og 436 6783 á Hellissandi.
Svanfríður Guðmundsdóttir skólastjóri í síma
435 6830 og 435 6746 á Lýsuhóli.
Gunnar Hjartarson skólastjóri í síma 436 1150
og 436 1293 í Ólafsvík.
Sveinn Þ. Elínbergsson aðstoðarskólastjóri
í síma 436 1150 og 436 1251 í Ólafsvík.
Bæjarstjórinn í Snæfellsbæ.
GALLUP
S m i d j u v e g i 7 2, 200 Kópavogur,
S ím i: 540 10 00, Fax: 564 4 1 66,
Gjaldkeri - Bókhald
Gallup á íslandi óskar að ráða starfsmann í hálft starf
til að sinna gjaldkera- og bókhaldsstörfum fyrirtækisins,
þar með talin umsjón með launabókhaldi.
Starfslýsing
Færsla bókhalds, merking fylgiskjala, innsláttur í tölvu o.fl.
Undirbúningur bókhalds til endurskoðanda
Launaútreikningar
Umsjón reikningsviðskipta
Samskipti við banka
Kröfur
Góð starfsreynsla eða menntun á bókhaldssviði
Reynsla af Fjölni, bókhaldskerfi, æskileg
Þarf að geta unnið sjálfstætt
Samviskusemi
Skipulagshæfileikar
Nánari upplýsingar um starfið veitir Jensína K. Böðvars-
dóttir hjá Gallup, en umsóknir þurfa að berast henni
fyrir 2. júní nk. til Gallup, Smiðjuvegi 72,200 Kópavogur.
GaIIup eríforystu á íslandi á sviðiskoðanakannana,
markaðsrannsókna og þjónustukannana og er auk þess
leiðandi á sviði starfsmannaráðgjafar.
Leiðarljós Gallup er fagleg vinna og traust þjónusta
sem byggð er á trúnaðarsambandi við viðskiptavini
fyrirtækisins. Að þessu vinnur samhentur hópur starfs-
manna með góða sérmenntun og víðtæka reynslu.
FJÁRMÁLARÁÐUNEYTIÐ
Starfskraft vantar:
í mötuneyti vegna sumarleyfa. Einhver kunn-
átta í matargerð æskileg.
Upplýsingar í síma 560 9008 eftir kl. 13:30 frá
mánudeginum 26. þ.m.