Morgunblaðið - 25.05.1997, Síða 20

Morgunblaðið - 25.05.1997, Síða 20
>20 E SUNNUDAGUR 25. MAÍ 1997 MORGUNBLAÐIÐ FRÁ fyrirlestri um konur á vinnumarkaði. Norræn ráðstefna um konur, atvinnu og efnahagsmál Launajafnrétti er enn sett á oddinn ÝMSAR bækur og rit um jafnrétti voru á boðstólum. JÖFN laun karla og kvenna fyrir sambærileg og jafn- verðmæt störf eru enn eitt af þeim málum sem sett eru á oddinn í jafnréttisbaráttu á Norðurlöndum. Kom það skýrt fram á tveggja daga norrænni ráðstefnu um konur, atvinnu og efnahagsmál, sem nýlega var haldin í Reykjavík. Var meðal annars vitnað til kannana sem sýnt hafa að launamunur sem eingöngu skýrist af kynferði er 10-16% og felst fyrst og fremst í ýmiss konar viðbótargreiðslum og yfirborgunum umfram laun sem kjarasamningar kveða á um. Norræna ráðherranefndin skipulagði ráðstefnuna og voru þátttakendur um 220, þar af um 60 íslenskir. Fjölmargir fyrirlestr- ar voru fluttir um jafna stöðu og áhrif kvenna og karla í efnahags- lífinu, auk þess sem í boði voru nokkur málþing tengd viðfangs- efninu. Verkalýðsfélög taka málin í sínar hendur Kirsten Precht, lögfræðingur hjá landssambandi danskra versl- unarmanna, var ein þeirra sem héldu fyrirlestur, en hún hefur um árabil unnið að launajafnrétti í heimalandi sínu. í fyrirlestri sín- um fjallaði hún meðal annars um mál af þessu tagi sem farið hafa fyrir dómstóla. Sagði hún að sam- þykkt alþjóðavinnumálastofnun- arinnar nr. 100 frá 1951 hafi haft einna mest áhrif á þróun danskrar löggjafar á þessu sviði. Nú litu nokkur stór verkalýðs- félög í Danmörku svo á að það varðaði þau ef félagsmenn yrðu fyrir launamisrétti. Því væri í verkahring verkalýðsfélaga að taka málstað félagsmanna sinna gagnvart vinnuveitendum eða fara með mál fyrir dómstóla, hvort sem um væri að ræða ein- staka starfsmenn eða hópa á sama vinnustað. Kirsten sagði að þótt ekki næðist árangur í öllum málum væri mikilvægt að láta reyna á úrskurð dómstóla til að unnt væri að meta raunverulega stöðu í jafnlaunamálum. Sagði hún að svokallað Danfoss-mál hefði vald- ið straumhvörfum í Evrópu. Upp úr 1980 kærði hópur starfsmanna hjá Danfoss-fyrirtækinu launa- misrétti og komust dómstólar að þeirri niðurstöðu að konur fengju lægri laun en karlar þótt störf þeirra væru sambærileg og jafn- verðmæt. Var fyrirtækið dæmt til að greiða 470 konum bætur og kostaði málið fyrirtækið um 200 milljónir íslenskra króna. Rétt að láta reyna á lög fyrir dómstólum Elsa Þorkelsdóttir hjá jafn- réttisráði fjallaði einnig um launajafnrétti, en hún er lögfræð- Um 220 manns frá öll- um Norðurlöndum tóku þátt í ráðstefnu um jafnréttismál sem var haldin í Reykjavík. Brynja Tomer stiklar hér á stóru um efni ráðstefnunnar, en þar kom m.a. fram að enn fá konur á Norðurlönd- um að jafnaði 10-16% lægri laun en karlar fyrir sömu störf. ingur kærunefndar jafnréttis- mála hér á landi. Sagði hún þá meginbreytingu hafa orðið í þess- um málaflokki hér á landi að dómstólar hefðu staðfest þá meg- inreglu að sönnunarbyrði lægi hjá atvinnurekendum en ekki laun- þegum. „Verði vinnuveitandi upp- vís að því að greiða konu lægri laun en karli fyrir sams konar starf og jafnverðmætt, ber honum að færa sönnur á að ástæða fyrir launamuni sé önnur en kynferði starfsfólksins." Elsa reifaði mál sem farið hafa fyrir dómstóla á Norðurlöndum og varpaði fram spurningu um það hvort gildandi lög nýttust til að koma í veg fýrir launamis- rétti. „Ég tel mikilvægt að láta reyna á þessi lög með því að fara með mál fyrir dómstóla. Reynslan á Norðurlöndum sýnir að laun- þegar vinna um helming mála sem fara fyrir dómstóla. Þótt þessi leið sé erfið, dýr og seinfar- in, held ég að hún sé nauðsynleg til að við getum svarað spurning- unni um það hvort lög um launa- jafnrétti tryggja það í raun.“ Stefanía Traustadóttir var for- maður undirbúningsnefndar sem skipulagði ráðstefnuna. Sagðist hún telja að ráðstefnan hefði skil- að tilætluðum árangri. „Ætlunin var annars vegar að fá yfirlit yfir stöðu kvenna á vinnumark- aði, breytingar á honum og afleið- ingar fyrir konur. Þetta tókst mjög vel, enda margir og fjöl- breyttir fyrirlestrar. Hins vegar voru afmarkaðri umfjöllunarefni tekin fyrir á málþingum með færri þátttakendum og var megintilgangur þeirra sá að horfa fram á við og fínna nýjar leiðir til að vinna að þessum málum samkvæmt nýjum og breyttum forsendum. Urvinnslu af mál- þingum er enn ekki lokið en ég geri ráð fyrir að í greinargerð sem við munum skila til embættis- mannanefndar komi fram margar hugmyndir um nýjar leiðir sem við getum farið í framtíðinni." Gamalt fátækt fólk á Islandi Stefanía sagðist telja að fyrir- lestur Björns Gustafsson, pró- fessors við Háskólann í Gauta- borg hafi vakið einna mesta at- hygli íslenskra þátttakenda á ráð- stefnunni, en hann fjallaði um þróun í tekjuöflun kvenna og mikilvægi launaðs starfs. Hann vísaði meðal annars í nýlega skýrslu norrænu ráðherra- nefndarinnar, _sem félagsvísinda- deild Háskóla íslands vann að hér á landi. í máli Björns kom meðal annars fram að hvergi nema á íslandi væri greinilegur munur á fátækt karla og kvenna. Sam- kvæmt könnun þeirri sem greint væri frá í skýrslunni reyndust 7% karla og 12% kvenna undir fá- tæktarmörkum. Kvaðst Björn telja stóran hluta hinna fátæku íslendinga vera gamalt fólk og skýringuna væri líklega að finna í lélegra velferðarkerfi en á hinum Norðurlöndunum. „Það er að mínu mati merki- legt,“ sagði Stefanía Traustadótt- ir að lokinni ráðstefnunni, „að þegar þessi skýrsla var kynnt hér á landi síðastliðið haust komu þessar niðurstöður ekki fram. Það segir mér að hér á landi er ekki sama hefð og á hinum Norður- löndunum fyrir því að túlka niður- stöður kannana af þessu tagi út frá körlum annars vegar og kon- um hins vegar.“ Háskóla Islands DAGBÓK Háskóla íslands 26. til 31. maí 1997. Allt áhugafólk er velkomjð á fyrirlestra í boði Há- skóla Islands. Dagbókin er upp- færð reglulega á heimasíðu Há- skólans: http://www.hi.is Mánudagurinn 26. maí: Rannsóknarráðstefna lækna- nema verður haldin í Háskólabíói, sal 3 kl. 9:00 til 16:00. Þar munu ' 4. árs læknanemar kynna niður- stöður rannsóknarverkefna sinna. Þriðjudagurinn 27. maí: Rannsóknarráðstefna lækna- nema verður haldin í Háskólabíói, sal 3 kl., 9:00 til 16:00. Fjórða árs læknanemar munu kynna niður- stöður rannsóknarverkefna sinna. * Miðvikudagurinn 28. maí: íslenska söguþingið verður hald- ið í fyrsta skipti dagana 28.-31. maí 1997. Sagnfræðistofnun Há- skóla íslands og Sagnfræðingafé- lag íslands standa að þinginu og verður það sett í Háskólabíói kl. 14:30. Áhersla er lögð á sögu og fortíð íslendinga síðustu 1100 árin. Þinggestir greiða ráðstefnugjald en auk þess eru opnir fyrirlestrar og sk. skiptar skoðanir sem ekkert kostar að sækja. Sá þáttur er kynntur í þessari dagbók. Björn Knútsson M.Sc.-nemi í sjávarútvegsfræðum heldur fyrir- lestur kl. 16:00 á Líffræðistofnun, Grensásvegi 12 í stofu G-6 um meistaraverkefni sitt: „Þorskeldi á íslandi. Samanburður á arðsemi í strandeldi, kvíaeldi og fjarðaeldi." Konráð Konráðsson flytur fyrir- lestur á bókasafni Tilraunastöðvar Háskóla Islands í meinafræði að Keldum kl. 12.30 og fjallar fyrir- lesturinn um „Bjúgveiki í svínum.“ Fimmtudagurinn 29. mai: íslenska söguþingið kl. 9:00-16: 30 í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskólans, stakir fyrirlestrar: Ingi Sigurðsson prófessor: „Hvernig breiddust áhrif fjölþjóðlegra hug- myndastefna út meðal íslendinga 1830-1918,,“. Guðjón Friðriksson sagnfræðingur: „Tími flokksfjöl- miðla á íslandi - ris og hnig.“ Skúli Sigurðsson vísindasagnfræð- ingur: „Rafvæðing íslenskrar til- veru.“ Jón Ólafur Isberg sagnfræð- ingur: „Kraftaverkamenn nýrra tíma - iækningar og iðnbylting." Þorsteinn Helgason sagnfræðing- ur: „íslendingar keyptir heim í kjöl- far Tyrkjaráns.“ Hannes Hólm- steinn Gissurarson prófessor: „Heimildagildi lifandi mynda.“ Föstudagurinn 30. maí: íslenska söguþingið kl. 9:00- 12:0 í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskólans, skiptar skoðanir um efnið „Innreið nútímans á Islandi." Guðmundur Hálfdanarson dósent: „Inngangur og kynning." Heimir Þorleifsson sagnfræðingur: „Sag- an og nútíminn.“ Guðrún Olafs- dóttir dósent: „Sveit og borg - byggðaþróun." Stefán Ólafsson prófessor: „Lífskjör og velferðar- ríkið.“ Sigríður Dúna Kristmunds- dóttir dósent:: „Móðir, kona, meyja - og nútíminn." Sigurður Líndal prófessor: „Innreið nútímans í ís- lenska lagagerð." Þorsteinn Vil- hjálmsson prófessor: „Rannsóknir og vísindi.“ Jón Torfí Jónasson prófessor: „Upphaf nútíma- menntakerfis á íslandi." Auður Ólafsdóttir listfræðingur: „Nútím- inn og íslensk listsköpun.“ Svanur Kristjánsson prófessor: „Upphaf islenskra nútímastjórnmála.“ Magnús S. Magnússon hagsögu- fræðingur: „Innreið nútímans í ís- lenskri efnahagssögu.“ Arthur Marwick prófessor í sagnfræði við The Open University í Englandi flytur fyrirlestur í mál- stofu Sagnfræðistofnunar kl. 13:30 í stofu 210 í Odda. Fyrirlest- ur sinn nefnir hann: „The Sixties: Social and Cultural change in Britain, France, Italy and the USA, c. 1958 to c. 1974.“ Sigurður Pétursson M.Sc.-nemi í sjávarútvegsfræðum flytur fyrir- lestur um 30 eininga rannsókna- verkefni sitt kl. 14:00 á líffræði- stofnun H.Í., Grensásvegi 12 í stofu G-6. Meistaraverkefnið ijall- ar um söfnun flatfiska úr veiðum, eldi þeirra og flutning lifandi á markað. Gunnar Ól. Haraldsson M.Sc.- nemi í sjávarútvegsfræðum flytur fyrirlestur um rannsóknarverkefni sitt kl. 16:30 á 3ju hæð í Odda. Meistaraverkefnið fjallar um mat á hybrid-translog kostnaðarföllum í fiskvinnslu. Laugardagurinn 31. maí: íslenska söguþingið kl. 9:00-16: 30 í hátíðarsal Aðalbyggingar Háskólans, stakir fyrirlestrar: Inga Huld Hákonardóttir sagnfræðing- ur: „Konur og kirkja. Menningar- heimur og trúarsýn bændakvenna á 19. öld.“ Guðmundur Hálfdanar- son dósent: „Þjóð og minningar." Stefán Karlsson forstöðumaður Stofnunar Árna Magnússonar: „ís- lensk bókagerð á miðöldum." Þór- hallur Vilmundarson prófessor emeritus: „Örnefni og saga.“ Ingi- björg Sólrún Gísladóttir sagnfræð- ingur og borgarstjóri: „Saga og stjórnmál." Jóhannes Nordal fv. seðlabankastjóri: „Um efnahags- legt sjálfstæði Islendinga."

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.