Morgunblaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.06.1997, Blaðsíða 8
HANDBOLTI Morgunblaðið/Ásdís Pabbi, af hverju ertu ekki brúnn? ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik kom í gærkvöldi heim úr frægðarför- inni til Japans, þar sem liðið náði besta árangri íslendinga í heimsmeistara- keppni frá upphafi - fímmta sæti. Það voru þreyttar en alsælar kempur sem lentu á Keflavíkurflugvelli um kl. 21 eftir flug frá Kaupmannahöfn. Eiginkon- ur og unnustur leikmanna og aðstandenda liðsins voru á staðnum og börn landsliðsmanna voru að sjálfsögðu einnig með í för. Það voru því fagnaðar- fundir, en einn litlu snáðanna virtist þó hissa þegar hann sá fóður sinn; fannst hann greinilega ekki hafa nýtt stundimar milli leikja vel í útlandinu. Sá stutti spurði: „Pabbi, af hveiju ertu ekki brúnn?“ Faðirinn var fljótur að upplýsa soninn að ekki hefði gefist tími til sólbaðs í Japan, þar sem handboltinn hefði tekinn allan tíma leikmanna. Á myndinni að ofan eru landsliðsmennirn- ir og ástvinir þeirra að hlusta á Ólaf Ragnar, þegar hann ávarpaði hópinn. Hér til vinstri er landsliðfýrirliðinn, Geir Sveinsson, með son sinn, Arnar Svein, í fanginu og til vinstri eiginkona fyrirliðans, Guðrún Helga Amarsdóttir. Á myndinni er svo Valdimar Grímsson með Andreu, dóttur sína, í fanginu, Konráð Olavson og Bergljót eiginkona hans. Geir þjálfar Breiðablik Geir Hallsteinsson, fyrmrn landsliðsmaður í handknatt- ieik, hefur verið ráðinn þjálfari Breiðabliks sem vann sér sæti í 1. deild síðasta vetur. „Þetta er spenn- andi verkefni. Liðið er ungt og eng- ar stjörnur í því og væntingarnar því ekki miklar. Ég geri mér grein fyrir því að þetta verður erfitt, en strákarnir hafa unnið fyrir því að leika í 1. deild. Þeir fá nú tækifæri að spreyta sig á móti þeim bestu. Markmiðið verður að halda liðinu í deildinni,“ sagði Geir við Morgun- blaðið. Hann sagðist hafa haft löngun til að þjálfa aftur í 1. deild og því hafi hann slegið til er honum var boðið að taka við Breiðabliki. „FH- ingar voru búnir að bjóða mér meistaraflokkinn áður en Kristján Arason kom til sögunnar, en ég hafði ekki áhuga. Ég þjálfaði síðast í 1. deild 1989 og var þá með Breiðablik. Síðan hef ég þjálfað yngri flokka hjá FH.“ Geir sagðist ætla að leggja áherslu á einstaklingsþjálfun hjá Breiðabliki. „Ég mun einbeita mér að því að kenna þessum strákum það sem ég kann og gefa hveijum og einum meiri tíma en tíðkast hefur hjá öðrum liðum.“ FRiALSAR Bailey biður Johnson af- sökunar Donovan Bailey hefur í yfirlýs- ingu beðið Michael Johnson afsökunar á ummælum sem hann viðhafði eftir sigurinn í 150 m hlaupinu í SkyDom höllinni í Tor- onto á sunnudaginn. Eftir hlaupið sagði Bailey að Johnson hefði vilj- andi hætt keppni í miðju hlaupi því hann hefði ekki viljað tapa - þess vegna væri hann heigull. „Ég bið Michael Johnson afsök- unar á orðum mínum,“ segir í yfir- lýsingunni. „Við hófum þetta ein- vígi sem vinir en í þeirri spennu sem magnaðist fyrir hlaupið gleymdist vinskapurinn og orð mín voru sögð í hita augnabliksins. Virðing min fyrir Johnson sem íþróttamanni er mikil og það er von mín að meiðsli hans séu ekki það alvarleg að hann verði frá keppni í langan tíma og spilli ekki undirbúningi hans fyrir mót sumarins. Það er einlæg ósk mín að hann megi fá skjótan bata og verði fljótlega mættur á hlaupa- brautina á nýjan leik.“ Haft var eftir umboðsmanni að hvorki Bailey né þjálfara hans hefði tekist að biðja Johnson persónulega afsökunar. KNATTSPYRNA Jafntefli í Frakklandi FRAKKAR og Brasilíumenn skildu jafnir 1:1 í fyrsta leiknum á fjög- urra landa móti í Frakklandi í gær- kvöldi. Roberto Carlos kom gestun- um yfir á 35. mínútu með glæsilegu marki beint úr aukaspyrnu af 30 m færi en á 60. mínútu jafnaði Marc Keller fyrir heimamenn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.