Morgunblaðið - 26.07.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997 37
Athugasemd frá
Visa Islandi
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Visa
Íslandi:
„í Morgunblaðinu þann 23. júlí sl.
er fjallað um hertar öryggiskröfur
kortafyrirtækja í sjálfsafgreiðsluvið-
skiptum á ómönnuðum afgreiðslu-
stöðum eins og eldsneytissjálfsölum
með villandi hætti. í viðtali við Jó-
hannes Jónsson í Bónus, einn af eig-
endum Bensínorkunnar ehf., koma
fram þungar ásakanir í garð Visa
íslands þar sem hann ber fyrirtækinu
óheilindi á brýn og eys úr skálum
vandlætingar sinnar yfír keppinauta
sína.
Að þessu gefna tilefni vill undirrit-
aður koma eftirfarandi upplýsingum
á framfæri um leið og umræddum
ásökunum og dylgjum um meint
samsæri kortafyrirtækjanna og stóru
oiíufélaganna gagnvart Orkunni er
vísað á bug og út í hafsauga. Það
kemur á óvart að Jóhannes, sem
hefur verið manna ötulastur og á
mikinn heiður skilinn fyrir að bijóta
niður gamlar úreltar reglur og inn-
flutningshöft, skuli bregðast við
þessum hætti þegar verið er að stíga
mikilvægt spor í framfaraátt til að
auka öryggi í viðskiptum og fyrir-
byggja misferli.
Alveg frá upphafi hafa verið gerð-
ar kröfur um notkun leyninúmera
með debetkortum og það lá fyrir að
slíkt yrði einnig látið gilda um kredit-
kort þegar tæknibúnaður væri fyrir
hendi. Onnur olíufélög voru seinni
til að uppfylla þessar kröfur en Ork-
an en til að tryggja jafnræði á mark-
aðnum var beðið með að innleiða
hinar nýju öryggisreglur þar til allir
aðilar væru tilbúnir og gætu byrjað
á sama tíma. Orkan naut góðs af
því en ekki öfugt.
Ákvörðun um skyldunotkun PIN-
númera við bensínviðskipti í sjálfsöl-
um er ekki tilkomin af illum hvötum
gagnvart Orkunni heldur er hér um
að ræða eins og nærri má geta sjálf-
sagða öryggisaðgerð og aðlögun að
samræmdum alþjóðlegum reglum.
Framkvæmdastjóra Orkunnar eins
! Evrópusamtökin álykta
Samlíking
forsetans
óviðeigandi
1 MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Evrópusam-
| tökunum:
„Vegna ummæla hr. Ólafs Ragn-
ars Grímssonar á fréttamannafundi
í Washington vilja Evrópusamtökin
á íslandi koma eftirfarandi á fram-
færi.
Sjávarútvegsstefna Evrópusam-
bandsins er ekki hluti af landbúnað-
arstefnu sambandsins, heldur sér-
stakur málaflokkur. Ákvarðanir sem
varða sjávarútveg í Evrópusamband-
inu eru teknar á þremur stöðum. í
. fýrsta lagi af lýðræðislega kjörnum
fulltrúum aðildarlandanna í ráðherr-
aráði ESB, að fengnum tillögum frá
framkvæmdastjórn bandalagsins, í
öðru lagi í framkvæmdastjórn banda-
lagsins, sem skipuð er af aðildarríkj-
unum, og í þriðja lagi af stjórnvöldum
í hverju landi fyrir sig. Það er því
með engu móti hægt að líkja stjórn-
un fiskveiða í Evrópusambandinu við
stjómun á borð við þá sem var í
Sovétríkjunum sálugu.
Ráðherraráð Evrópusambandsins
hefur kosið að styrkja þau svæði sem
eru sérstaklega háð fískveiðum.
Markmið styrkjanna er að tryggja
sjómönnum og fjölskyldum þeirra
mannsæmandi afkomu á meðan físk-
veiðar eru færðar til nútímalegra
horfs.
Evrópusambandið var stofnað til
að tryggja frið og ftjáls viðskipti í
Evrópu og það er þangað sem fyrr-
verandi kommúnistaríki í Mið- og
Austur-Evrópu leita nú eftir stuðn-
ingi í lýðræðis- og efnahagsþróun.
Það er því með öllu óviðeigandi að
og öðrum aðilum þessa máls var sent
afrit af samþykkt stjórnar Visa Int-
ernational hér um frá fyrra ári svo
ekkert færi á milli mála auk annarra
röksemda fyrir nauðsyn þess að auka
öryggi í þessum viðskiptum. Hinar
nýju öryggisreglur tóku gildi innan
Evrópusvæðis Visa, sem ísland er
hluti af, þann 1. apríi sl., og verið
er að taka þær upp um allan heim,
einnig í Bandaríkjunum.
Enda þótt yissulega megi segja
að stjórn Visa íslands geti ráðið ferð-
inni gagnvart viðskiptum eigin kort-
hafa innanlands ber að hafa í huga
að bensínsjálfsalar standa öllurn opn-
ir, einnig erlendum korthöfum. í ljósi
reynslunar er full ástæða til að gera
nauðsynlegar ráðstafanir til að draga
úr misferli með innlend kort, ekki
hvað síst með öra fjölgun sjálfsala í
huga. Hefta hefði orðið notkun er-
lendra korta í bensínsjálfsölum ef
hinar nýju alþjóðlegu reglur hefðu
ekki verið uppfylltar. Slíkt er auðvit-
að af og frá.
Á fyrstu fjórum mánuðum þessa
árs var hnuplað bensíni á um 200
bfla/tanka með misnotkun stolinna
eða glataðra korta. Enda þótt olíufé-
lögin hafí vissulega tekið það tap á
sig voru þetta eigi að síður mál sem
kortafyrirtækin þurftu að rannsaka
og síðan að leiðrétta. í flestum versl-
unum, einnig hjá Bónus, hefur verið
settur upp dýr öryggisbúnaður til að
fyrirbyggja búðarhnupl og til að
tryggja að greitt sé fyrir vörumar.
Ovarin notkun greiðslukorta í
sjálfsölum býður hættunni heim.
Krafa um notkun PIN-númera í
bensínsjálfsölum líkt og í hraðbönk-
um er mikilvægt spor í framfaraátt
til að treysta þessi viðskipti í sessi
og auka öryggi jafnt korthafa sem
bensínsala og er auk þess í raun
hreint uppeldisatriði fyrir æsku
landsins. Um það hljóta allir að vera
sammála.“
F.h. Visa íslands,
Einar S. Einarsson
framkvæmdastjóri.
setja nokkurt jafnaðarmerki á milli
kúgunarstjórnar Ráðstjórnarríkj-
anna og samstarfsvettvangs lýðræð-
islega kjörinna fulltrúa aðildarlanda
Evrópusambandsins."
Reykjavíkurhöfn
Sýning á árabát
ÝMISLEGT verður um að vera á
Reykjavíkurhöfn nú um helgina.
Fastur liður eru sælífskerin sem sýna
lífríki hafnarinnar í nærmynd,
grunnur bakki með sjó úr höfninni
þar sem hægt er að komast í snert-
ingu við plöntur og dýr úr höfninni.
Eimreiðin Minör er til sýnis. Hún og
eimreiðin Pioneer í Árbæjarsafni eru
fyrstu og einu eimreiðamar sem not-
aðar hafa verið á íslandi. Og nú
hefur bæst við föstu liðina mynda
og kortasýning tengd lífríki og sögu
hafnarinnar. Þessar kynningar eru
til staðar allan sólarhringinn. Þegar
þurrt er í veðri eru einnig alla daga
sett út leiktæki aðlöguð ýmsu sem
viðkemur sjónum. Tívolíið verður á
Miðbakka fram yfir verslunarmanna-
helgina og veitingar þar sem hægt
er að fá sér eitthvað í gogginn.
Um þessa helgi verður sérsýning
á árabát með seglútbúnað, tveggja
manna fari og sýnt verður í einu
sælífskeranna hvernig veitt er í krab-
bagildru. Víkingaskipið íslendingur
fer frá Suðurbugtarbryggjunni við
Ægisgarð í siglingu út á Sund kl.
10 laugardag og sunnudag og far-
þegabáturinn Skúlaskeið siglir með
bryggjum, hafnarbökkum og skipum
í skoðunarferðum um höfnina frá
Suðurbugtarbryggju frá kl. 14-17
báða dagana.
í höfninni verða þýsku skemmti-
ferðaskipin Arkona og Vistmar,
norskur kafbátur og varðskip og
danskt eftirlitsskip, auk íslenskra
skipa og báta af ýmsum gerðum.
Nánari upplýsingar um það á standi
á Hvalnum, útivistarsvæði Miðbakk-
ans,“ segir í fréttatilkynningu.
FRÉTTIR
GESTIR eru hvattir til að taka þátt í heyönnum í Árbæjarsafni.
Heyannir í Árbæjarsafni
GESTIR í Árbæjarsafni fá að
taka þátt í viðburðum sunnu-
dagsins 27. júlí. Þá verða heyann-
ir á safninu. Túnið við Árbæinn
verður slegið með orfi og ljá
milli kl. 14-17 ef veður leyfir.
Þá verður rakað, rifjað, tekið
saman og bundið i bagga og eru
gestir hvattir til að taka þátt í
heyskapnum. Sem fyrr verður
handverk kynnt. í Miðhúsi sýna
Ragnar og Guðlaug bókband. í
Suðurgötu verður Dóra gullsmið-
ur við störf og fræðir hún gesti
um þjóðbúningaskart. Auk þess
verður hefðbundin dagskrá. í
Árbænum verður lummubakstur,
prjónaskapur og roðskógerð.
Harmoníkuleikur við Árbæ og
Dillonshús.
HIRÐFÍFLIN, Hilmar Jensen, Pétur Grétarsson og Tena Palmer.
Hirðfífl á tónleikum
HLJÓMSVEITIN Hirðfíflin leik-
ur á tónleikum í dag, laugardag,
kl. 16 á torginu að baki Jómfrú-
arinnar við Lækjargötu.
„Hljómsveitin vakti fyrst at-
hygli í Vestmannaeyjum á Jass-
hátíð lita og tóna um síðustu
hvítasunnuhelgi. Var mál inn-
fæddra í Eyjum að tónlist hljóm-
sveitarinnar bæri hugvitssemi
meðlimanna fagurt vitni og væri
vel til þess fallin að létta brúnir
tónlistaráhugamanna, jafnvel á
meginlandinu.
Hljómsveitin er skipuð Tenu
Palmer, söngkonu frá Kanada,
Hilmari Jenssyni, gítarleikara,
og Pétri Grétarssyni, slagverks-
leikara, báðum úr smáíbúða-
hverfi Reykjavíkur.
Efnisskráin byggist á marg-
reyndum lögum úr söngbók jass-
ins, auk nokkurra fáheyrðra
perla,“ segir í fréttatilkynningu.
LÓósmynd/Grétar Eiríksson
40 ÁRA vígsluafmælis Hallgrímskirkju í Saurbæ á sunnudag.
40 ár frá vígslu
Hallgrímskirkju
HALLGRÍMSKIRKJA í Saurbæ
var vígð fyrir 40 árum og verður
þess minnst á morgun sunnudag-
inn 27. júlí. Eins og nafnið ber
með sér er Hallgrímskirkja í
Saurbæ minningarkirkja um sr.
Hallgrím Pétursson, en á prest-
skaparárum sínum þar 1651—
1669 orti hann Passiusálmana,
sem fyrst komu út í prentaðri
útgáfu árið 1666. „Það hefur ver-
ið sagt um sr. Hallgrím að síðan
Passíusálmarnir komu út hafi
hann í raun verið prestur allrar
þjóðarinnar, og að starf hans í
þágu íslenskrar kirkju sé það
stórt að það muni ekki týnast
nema með tungunni," segir í
fréttatilkynningu. Á sunnudaginn
kemur mun sr. Hallgríms og hans
giftusamlega starfs verða minnst
með hátíðarmessu í HallgTÍms-
kirkju í Saurbæ og þar mun bisk-
upinn yfir íslandi, herra Ólafur
Skúlason, prédika og sóknar-
presturinn, sr. Kristinn Jens Sig-
urþórsson, þjóna fyrir altari. Eft-
ir messuna, sem hefst kl. 14, verð-
ur boðið til kaffisamsætis í Fé-
lagsheimilinu Hlöðum.
Textavarpið
á alnetið
TEXTAVARP sjónvarpsins hefur
verið sett á alnetið og er slóðin
www.taxtavarp.is. í fréttatilkynn-
ingu kemur fram að um 50 þúsund
íslendingar lesi textavarpið á hverj-
um degi. Hins vegar hafí komið fram
æ fleiri óskir eftir netvæðingu texta-
varpsins, einkum frá íslendingum
erlendis, og hafi nú verið orðið við
þeim óskum.
Ennfremur segir: „Vefur Texta-
varpsins er uppfærður um leið og
breytingar eru gerðar á síðum þess.
Þetta þýðir að vefurinn er stöðugt
uppfærður allan sólarhringinn, allan
ársins hring. Þar birtast nýjustu
fréttir, frá fréttastofu Útvarps og
Sjónvarps, staða og úrslit í íþrótta-
leikjum um leið og þau liggja fyrir,
dagskrá sjónvarpsstöðvanna og dag-
skrá Rásar 1 og Rásar 2 sem og
upplýsingar sem berast Textavarp-
inu beint, s.s. veðurfréttir, upplýs-
ingar um færð á vegum og komu-
og brottfarartíma flugvéla. Þannig
verður vefur Textavarpsins eini stað-
urinn á alnetinu þar sem hægt verð-
ur að nálgast nýjustu innlendar og
erlendar fréttir allan daginn, allan
ársins hring.
Kostir Textavarpsins sem ábyggi-
legs fréttamiðils, íþróttablaðs „í
beinni útsendingu“ og handhægs
upplýsingamiðils nýtast einnig á
netinu. Kappkostað verður að halda
aðgangstímanum á netinu í lág-
marki, t.d. með því að birta aðeins
texta síðnanna en ekki grafík."
------» ♦ ♦-----
Seiðbandið á
Nelly’s Café
SEIÐBANDIÐ mun aftur koma
fram á Nelly’s Café sunnudaginn
27. júlí. Bandið spilar seiðandi tón-
lrst, eins og nafnið gefur til kynna,
með ívafi ýmissa tíma. Meðlimir
Seiðbandsins eru úr ýmsum áttum
og heita Tryggvi Hansen, Ósk Ósk-
arsdóttir, Sigga Vala, Keli og Mar-
teinn.
Tónlistin hefst um kl. 22 og er
aðgangur ókeypis.
------♦ ♦ ♦-----
Kompudagar í
Kolaportinu
FYRSTU kompudagar eru um helg-
ina í Kolaportinu. Það er verið að
selja kompudót allar helgar í Kola-
portinu, en á kompudögum er boðið
upp á lægra verð á sölubásum og
þá flykkist fólk á staðinn með dótið
úr kompunni í skottinu á gamla
heimilisbílnum, segir í fréttatil-
kynningu.
Kolaportið verður opið laugardag
og sunnudag frá kl. 11-17. Látið
sjá ykkur og upplifa hina einu sönnu
Kolaportsbæj arstemmningu.
------♦ ♦ ♦-----
LEIÐRÉTT
Tilefnislaus árás
í frétt á bls. 10 í fímmtudagsblað-
inu undir fyrirsögninni Frændur
gleymdu deilum, var rangt farið
með staðreyndir. Hið rétta er að
tveir norskir sjóliðar urðu fyrir til-
efnislausri árás íslendings fyrir ut-
an skemmtistað í miðborginni. Voru
Norðmennirnir fluttir á slysadeild
með áverka en árásarmaðurinn í
fangageymslu. Hann var ölvaður.
Hann kunni engar skýringar á árás-’
inni og var fullur iðrunar, en hann
hefur ekki áður komið við sögu lög-
reglu. Eru norsku sjóliðarnir beðnir
afsökunar á því að vera bendlaðir
við málið með þeim hætti sem gert
var.
Titlar
Tvær villur slæddust inn í bókar-
titla í grein Siglaugs Brynleifsson-
ar, Skólastefna fyrir 200 árum, sem
birtist sl. fimmtudag. Réttir eru titl-
arnir þannig: De TEsprit og Du
Contrat Sosial.