Morgunblaðið - 26.07.1997, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
MYNDBOND/KVIKMYNDIR/UTVARP-SJONVAop
Vitnisburðir í
fréttum og utan
SÍÐASTLIÐIN vika var tími nokk-
urrar upprifjunar frá öldinni sem
er að líða, sem að líkindum er sú
blóðugasta, sem yfír mannkynið
hefur gengið. Fyrst kom frétt um
að fundist hefði fjöldagröf nær
milljón manns frá 1937, sem
leyniþjónusta Stalíns hafði látið
drepa í pólitískri hreinsun, einni
af mörgum, ásamt kortum yfír
staðsetningar annarra fjöldagrafa
leyniþjónustu Stalíns, þar sem
búist er við að fínnist einar þrett-
án milljónir beinagrinda þeirra
sem taldir voru pólitískt óæskileg-
ir á Sovét. Þetta er haft eftir
Petersburg Times.
í byijun vikunnar hófst síðan
þáttaröð í Ríkissjónvarpinu um
Adolf Hitler, og til að gera hann
enn ægilegri en hann var hægðu
þáttagerðarmenn á rödd hans,
uns hún virtist koma úr undir-
djúpunum. Aldrei hef ég heyrt
nema í leiknum myndum slíka
„djöfullega" útfærslu á manns-
rödd og aidrei hefur rödd félaga
hans í manndrápum, Stalíns, ver-
ið breytt þannig í áróðursskyni.
Hitt er svo annað mál að Hitler
eyrnamerkti sér hluta úr öldinni
blóði drifinn og vitað að hann
hafði sex milljónir gyðinga á
samviskunni svona sér á parti
fyrir utan að bera ábyrgð á
heirnsstyrjöld.
í fyrsta þætti um Hitler er end-
urtekin enn einu sinni myndin af
hrifningaröldunni miklu, sem
hann vakti með þýskri alþýðu.
Kemur þar greinilega í ljós hvað
blindur og hamslaus almenningur
getur orðið, þótt nú á síðustu
árum hafí tekist að færa hann til
öndvegis hér á landi og annars
staðar. Jafnvel að verkalýðsfor-
ingi vestra heimtaði byltingu í
nafni hans á dögunum, eins og
það væri eitthvert evangelíum.
Annar slíkur foringi lýsti stór-
þjófnaði á hendur opinberri stofn-
un vegna lögmætrar ákvörðunar.
Þessir smáforingjar virðast hafa
ýmislegt lært af aldarhætti „al-
þýðunnar". Fréttastofa ríkisút-
varps birti orð verkalýðsforingj-
anna með alvörufréttum og var
bara trúverðug, eins og þegar hún
leitaði til andmælanda þeirra orða
forsetans í Ameríku, að ESB og
Sovétríkin rækju og hefðu rekið
ríkisstyrktan sjávarútveg. Var
einhver að sakna íjóðviljans?
Ríkissjónvarpið er mjög hrifið
af almennum hlutum og miðar
dagskrá sina töluvert við það.
Gott dæmi um slíka þáttagerð
er Dagsljós, þar sem jafnvel er
rifist um hver eigi og hver eigi
ekki að vera næsta vetur. Eftir
ofstæki í stjórnmálum bæði í
austri og vestri lengst af öldinni
hefur ungt fólk tilhneigingu til
að vísa öllu liðnu frá sér. Wood-
stock var á sínum tíma svolítið
geðveikt svar við pólitík einræðis-
herra og morðingja. Þetta við-
bragð hefur auðvitað komið niður
á því sem gott var gert á liðnum
tíma. Nú ætti ríkissjónvarpið að
undirbúa þáttaröð um hið gamla
ísland, eins og það ríkir í minn-
ingu þeirra sem minningar hafa,
allt frá fyrrihluta aldarinnar til
vorra daga, i stað þess að lesa
fortíðina með því að troða míkró-
fóni upp i tannlaus gamalmenni,
og er ekki einu sinni nauðsynlegt
að þau skiljist af því þetta á að
vera svo fyndið.
Fréttir hafa borist af forseta
landsins í Vesturheimi, þar sem
hann talar einkum við þau tvö-
hundruð þúsund sem eru þar af
íslensku bergi brotin. Forsetinn
talar líka máli landafunda Leifs
Eiríkssonr, Guðríðar Þorbjarnar-
dóttur og Snorra Þorfinnssonar.
Hvað sem út úr því tali kemur
við fyrirmenn vestra, hljóta ráða-
menn á sjónvörpunum tveimur
að skoða aldamótin í ljósi þess,
að við áttum ekki einungis mann-
inn, sem fann Ameríku og ritaðar
heimildir þar um. Við eigum líka
fyrsta hvíta manninn sem fædd-
ist vestan hafs. Kannski hirða
þeir sjónvarpsmenn ekkert um
þetta, frekar en þjóðin um Eiríks-
staði, þangað til nú að byijað er
að grafa. Landafundir Eiríks
rauða og Leifs heppna eru
kannski ekki nógu fyndnir at-
burðir til að hafa í Dagsljósi, en
þá má nota samt.
Indríði G. Þorsteinsson.
WESLEY Snipes og Nastasja Kinski Ieika aðalhlutverk í
„One Night Stand“.
Eszterhas
ekki með
HANDRITSHÖFUNDURINN
og framleiðandinn Joe Eszterhas
lendir stöðugt í deilum við sam-
starfsmenn sína. A dögunum lenti
honum saman við leikstjórann
Arthur Hill, en þeir unnu saman
að „An Alan Smithee Film“, og
tókst að hrekja gamla manninn
frá myndinni. Nú lítur út fyrir
að Eszterhas hafi sjálfur verið
gerður útlægur frá annarri kvik-
mynd, „One Night Stand“.
Eszterhas skrifaði handritið að
„One Night Stand" fyrir þremur
árum og seldi það New Line Cin-
ema fyrir dágóða suramu. Kvik-
myndaleikstjórinn Adrian Lyne
sýndi handritinu fyrst áhuga en
hætti síðan við. Samkvæmt yfir-
lýsingum hans vildi hann ekki
gera enn eina mynd þar sem kyn-
líf er þungamiðja atburðarásar-
innar.
Hvað um það, rúmu ári síðar
ákvað Mike Figgis, leikstjóri „Leav-
ing Las Vegas“, að kvikmynda
„One Night Stand" með Wesley
Snipes, Nastösju Kinski, Wen Ming-
Na, og Kyle MacLachlan. Figgis,
sem er þekktur fyrir að vera með
puttana í öllu sem viðkemur kvik-
myndum sem hann leikstýrir, end-
urskrifaði handritið að miklu leyti
og deildi í fyrstu handrits-heiðrin-
um með Eszterhas.
Hvað gerðist síðan er ekki ljóst
en um þessar mundir stendur til
að frumsýna „One Night Stand“
og þá vantar nafn Eszterhas bæði
sem handritshöfunds og framleið-
anda. I staðinn er nafn Figgis
komið á báða staði. Það eina sem
staðfestir að Eszterhas hafi ein-
hvern tímann komið nálægt
myndinni eru gamlar fréttatil-
kynningar.
Vatnaskógur um kn á,en9is
VerÉuaríiiaiiíialielpa
Kvöldvökur. leiktæki, fræðslustundir, Furðuleikhúsið, gospeltónleikar, vatnaijör, varðeldur, hoppukastalar,
bátar, Guðsþjónusta, íþróttir, kafflhús, Raddbandið, bænastundir og margt margt fleira.
S
s
2
STEINAR WAAGE
SKÓVERSIUN
MYIMDBÖIUD SÍÐUSTU VIKU
Óendanleiki
(Infinity)'k k ★ 'h
Gleym mér ei
(Unforgettable)-k k 'h
Skrautkarlinn
(The Glimmer Man)k k 'h
Brúðkaupsraunir
(Vol au vent)kk'h
Michael Collins
(Michael CoIlins)k k
Freistingin snýr aftur
(Poison Ivy: The New Seduction)k
Svefngengiar
(Sleepers)k 'h
Leyndarmál og lygar
(Secrets and Lies)k ★ ★ ★
Á föstu með óvininum
(Dating the Enemy)k 'h
Drápararnfr
(Dark Breed)k
Foreldrar fangelsaðir
(House Arrest)k
Nútíma samband
(A Modern Affair)k k
Stjörnufangarinn
(L’Uomo Delle Stelle)k k k
Matthildur
(Matilda)k k k
Sonur forsetans
(FirstKid)kkk'h
Leitin að lífshamingjunni
(Unhook the Stars)k k k 'h
í deiglunni
(The Crucible)k k k 'h
Tvö andlit spegils
(The MirrorHas Two Faces)k k k
Ógnarhraði
(Runaway Car)k k
Lífið eftir Jimmy
(After Jimmy)k k k
Bundnar
(Bound)k k k
Ókyrrð
(Turbulence)'h
i
s
|
I
Sá næfurþunni! Sá svarti! Sá bragögóði! Sá níðsterki! Sá sérsaumaði!
RFSU eru sænsk landssamtök án einkahagsmuna. Hagnaöi af smokkasölu er varlb III upplýsingastartsemi um kynllf, samllt, kynsjúkdóma og tll rábgjatarstarfseml.
Msssluatu
smol6l63.rnil’.,
- og allip fr>4. RtfSli'
VIÐ SELJUM RFSU SMOKKANA:
Skeljungurhf.
íb
LYFJA f£sso
Apótekin