Morgunblaðið - 26.07.1997, Qupperneq 44
44 LAUGARDAGUR 26. JÚLÍ 1997
MORGUNBLAÐIÐ
H4SKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
E NN G SYND
Tvöfalt fleiri eðlur, tvöfalt betri brellur,
tvöfalt meiri spenna!
Sýnd kl. 2, 4.15, 6.30, 9 og 11.30. B.i.i2ára.
■bíó
GrOtt
AÐ SJÁ
KOLYA?
ELSKUNNAR
LOGANDI BÁL
Stig er 15 ára gamall strákur s
er yfir sig ástfanginn af kenrjja
sínum hinni gullfallegu 37 ári
gömlu Violu. Viola lifir í
ömurlegu hjónabandi enda er
maður hennar vonlaus
drykkjusjúklingur. Hún laðast
að sakleysi Stig og þau hefja
leynilegt en ástríðufullt
ástarsamband í trássi við
viðteknar venjur
samfélagsins sem á
eftir að hafa
alvarlegar afleiðingarf f
fyrir lif þeirra
beggja. Leikstjor?®er ■ 'f ,
Bo Widerberg.
Framlag Svía til ,
Óskarsverðlauna
SKOTHELDIR
Sýnd kl. 7.
Síðustu sýningar
EINRÆÐISHERRA
UPPLYFTINCU
OVÆTTURINN UNÐlRWufl
ísland's ■ •
. ★ ★ ★ . Jjf'** v
. DV ;
Sýnd kl. 4.45, 9 og I Sýnd kl, 6.50, 9 og
11.10. I 11.10. B. i. 16 ára.
Sýnd kl. 5.30.
Enskt tal.
é
:
é
.
i
i
í
(
Flugáhugamenn í Lúxem
borg og Frakklandi
HÓPUR íslenskra flugáhugamanna
var á ferð í Lúxemborg og Frakk-
landi á dögunum. Ferðin hófst á
heimsókn til vöruflutningafélagsins
Cargolux og síðan var haldið til
Parísar þar sem tveimur dögum var
eytt á 42. alþjóðaflugsýningunni.
Loks var dvalið einn dag í Toulouse
í Suður-Frakklandi í boði Airbus-
og ATR-flugvélaverksmiðjanna
sem þar hafa höfuðstöðvar, en
borgin sú er gjarnan nefnd há-
tækniborg Evrópu. Hópnum var að
sögn alls staðar tekið með kostum
og kynjum; eins og þjóðhöfðingjum.
Meðfylgjandi myndir voru teknar í
heimsókninni til flugvélaverksmiðj-
anna í Toulouse.
Robbie
fyrir rétt
ROBBIE Williams, fyrrum söngvari
hljómsveitarinnar Take That, sést
hér mæta í dómhús Hæstaréttar í
London, þar sem réttað var í máli
sem umboðsmaður sveitarinnar
höfðaði á hendur honum. í kærunni
var Robbie gefið að sök að hafa
tekið upp óholla lífshætti, sem hefði
ekki samrýmst ímynd Take That
og þannig brotið samning sem kvað
á um heilsusamlega lifnaðarhætti
meðlima sveitarinnar.
Ljósmyndir/Þóroddur Sverrisson
VIÐ Iíkan af Airbus 340 sem tekur 232 til tæplega 400 far-
þega; Ragnar Pétursson, Konráð Jónas Óskarsson, Yngvi Eiríks-
son og Gunnar Þorsteinsson.
EGILL Örn Eiríksson, 8 ára flugáhugamaður frá Akureyri, er hér
í öruggum höndum Benedikts Benediktssonar svifdrekaflugmanns
frá Bíldudal og Dúa Eðvaldssonar svifflugmanns frá Akureyri.
RYAN O’Neal og Leslie Stefanson hafa ekki þekkst lengi en eiga
greinilega erfitt með að sætta sig við eftirleik skilnaðar Ryans.
Erfiðir tímar
hjá Ryan O’Neal
Á SAMA tíma og Farrah Fawcett
hefur fengið neikvæða umfjöllun í
fjölmiðium eftir skilnaðinn hefur
Ryan O’Neal, fyrrum eiginmaður
hennar, haldið sig frá sviðsljósinu.
Þrátt að O’Neal hafi notið lífsins í
rólegheitum með nýrri vinkonu,
hinni 25 ára Leslie Stefanson, virð-
ast fréttir af yfirvofandi taugaáfalli
Fawcett hafa sett mark sitt á hið
nýja samband leikarans.
Ryan O’Neal og Leslie, sem
kynntust við tökur á „An Alan Smit-
hee Film“, sáust fyrir skömmu á
veitingahúsi í tárum og augljósu
uppnámi.
Að sögn kunnugra var Ryan lík-
lega að segja Leslie frá því að Farrah
þyrfti meira á honum að halda um
þessar mundir en hún. Valið var þó
erfitt fyrir Ryan eins og myndirnar
sýna.
Hilmar Sverrisson
heldur uppi léttri og góðri stemningu
á Mímisbar.