Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B/C STOFNAÐ 1913 175. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS 224 fórust með Boeing 747-300 þotu frá Suður-Kóreu á eynni Guam Veður og a ðfli ugstæ' ki hugsanlegar orsakir Reuter SLYSSTAÐURINN á Guam. Flak þotunnar liggur í íjalllendi sem björgunarfólki reyndist erfitt að komast til. Agana á Guam, Seoul, London. Reuter, The Daily Telegraph. BJÖRGUNARMENN á slysstað á Guam, þar sem Boeing 747-300 þota suður-kóreska flugfélagsins Korean Air Lines (KAL) fórst á þriðjudag, sögðu síðdegis í gær að útilokað væri að fólk væri enn á lífi í braki vélarinnar. Þrjátíu manns komust lífs af úr slysinu, en 224 fórust. Rannsókn slyssins beinist nú eink- um að því hvort bilun í aðflugstæki, svonefndum svifhallageisla, hafi stuðlað að slysinu. Guam er bandarískt yfirráða- svæði og hefur bandaríski herinn þar bækistöð. Tuttugu og þrír voru í áhöfn vélarinnar, og farþegar voru 231, flestir suður-kóreskir, á leið í sumarfrí eða brúðkaupsferð. Þá voru um borð nokkrir suður- kóreskir stjórnmálamenn, þrjú ung- börn og um tylft Bandaríkjamanna. Að sögn bandaríska sjónvarpsins CNN sátu flestir þeirra sem lifðu af fremst í vélinni. Vélin var á leið frá Seoul í Suður- Kóreu til Guam og átti um þrjá kíló- metra ófarna að flugvellinum þegar hún hrapaði í fjallshlíð og rakst þar á olíuleiðslu. Slysið varð um klukk- an tvö aðfaranótt miðvikudags að staðartíma, eða um klukkan 16 síð- degis á þriðjudag að íslenskum tíma. Eldur kom upp í vélinni og brann skrokkur hennar að mestu. Stélhluti var heillegur, og hreyflar vélarinnar einnig. Martin Janezak, aðmíráll í bandaríska hernum, bar til baka fregnir um að flugmenn vél- arinnar hefðu sent út neyðarkall og tilkynnt um eld um borð í vélinni skömmu áður en hún kom niður. Flugvöllurinn sagður öruggur Veður var slæmt á lendingarstað, úrhellisrigning og þoka, en ekki hvasst. Brak vélarinnar er dreift um fjallshlíðina sem hún lenti í og er fremsti hluti búksins í um það bil 25 metra fjarlægð frá meginhluta vélarinnar. Búkurinn brotnaði í sex hluta, og brann að mestu. Nokkrir farþegar gátu gengið óstuddir út úr brakinu. Fulltrúi japanska flugfélagsins All Nippon Airways kvaðst telja að flugvöllurinn á Guam, sem heyrir undir eftirlit bandarísku flugmála- stofnunarinnar, FAA, væri öruggur. „Við höfum flogið hingað í tíu ár og aldrei lent í slysi og aldrei fengið kvartanir," sagði hann. Fram- kvæmdastjóri annars suður-kóresks flugfélags, Asiana Airlines, sagðist einnig sáttur við öryggismál á flug- vellinum. Aðstoðarforstjóri KAL, Lee Tae- won, sagði að það gæti hafa ráðið einhverju um hvernig fór að svif- hallageisli, sem er aðflugstæki er leiðbeinir vélum til lendingar í slæmu skyggni, hefði ekki verið virkur þegar slysið varð. Embætt- ismenn á Guam hafa staðfest að svifhallageislinn á vellinum hafi verið bilaður um skeið. Fulltrúi KAL á flugvellinum sagði að þótt geislinn hefði ekki verið virkur hefði fiugstjóri vélarinnar átt að hafa nægar upplýsingar til þess að lenda örugglega. Breska dagblaðið The Daily Telegraph sagði hins vegar að flugmenn margra vest- rænna flugfélaga hefðu ekki reynt að lenda þotu í myrkri við slíkar að- stæður án þess að svifhallageislinn væri virkur. Formaður bandaríska samgöngu- öryggisráðsins (NTSB) sagði í gær að rannsókn á orsökum slyssins væri hafin á vegum ráðsins. Sagði hann að meðal þess sem athugað yrði væri öryggisbúnaður fyrir lendingar á flugvellinum. Fulltrúar ráðsins eru væntanlegir til Guam í dag. Formaðurinn sagði að sprenging- ar, sem fólk sagðist hafa heyrt eftir að vélin lenti, hefðu sennilega komið frá hjólbörðum hennar sem hefðu sprungið vegna hita frá eldi. Flug- riti vélarinnar, sem skráir tæknileg- ar upplýsingar um flugið, og hljóð- riti úr flugstjómarklefa hafa fundist og verið sendir til Bandaríkjanna þar sem athugun á þeim mun fara fram. ■ Slysatíðni hjá KAL/23 Aðstæður á flugvellin- um góðar SIGURJÓN Stefánsson, flug- stjóri hjá Korean Air Lines, hef- ur flogið til Guam á vegum fé- lagsins og m.a. flogið vélinni sem fórst á þriðjudag. Hann segist aldrei hafa orð- ið var við annað en að aðstæður á flugvellinum á Guam væru eins og best verði á kosið. Fram hef- ur komið að aðflugstæki, svo- nefndur svifhallageisli, hafi ver- ið óvirkt á flugvellinum í Guam vegna bilunar. Sigurjón hefur starfað hjá KAL í tvö og hálft ár. Hann hef- ur flogið á mörgum leiðum fyrir félagið og segir að í öll þau skipti sem hann hafi flogið til Guam hafi hann ekki orðið var við ann- að en að allur öryggisbúnaður á vellinum hafi verið eins og best verði á kosið. „En ef um hefur verið að ræða bilun á tækjum og um leið slæmt veður er það ekki góð blanda,“ segir hann. Allt viðhald til fyrirmyndar Sigurjón segir að þessi tími árs sé slæmur í þessum heims- hluta hvað veðurlag varðar. Þarna gangi yfir hitabeltisstorm- ar sem geti verið öflugir. Ef slíkt veður hafi geisað þegar slysið varð og við bæst bilun í aðflugs- tækjum megi segja að aðstæður hafi verið með versta móti og kallað á meiri varkárni flug- manna en ella. Einnig segir Sigurjón að allt viðhald á flugvélum félagsins sé til sóma og sér þyki því ákaflega ólíklegt að bilun í flugvélinni hafi verið orsök slyssins. „Þegar flugslys eru annars vegar gildir það sama og um önnur slys að orsakanna er yfirleitt að leita í samspili ákveðinna þátta er leiða til slyss,“ segir Sigurjón. „Það er alltaf hægt að telja til nokkur at- riði í hverju tilviki.“ Arafat segir „mikla baráttu“ framundan Flóðasvæð- in hreinsuð FLÓÐIN í Mið-Evrópu voru x rénun í gær og skildu eftir sig vatnsósa hús og aur og eðju á götunum. Flóðin stóðu í nímar þijár vikur og urðu til þess að stór hluti fxjósams ræktarlands Ziltendorf-dældarinnar í Oder- buch-dalnum breyttist í víð- feðma mýri, sem moskítóflugur herja á. „Það er aur og dauður fiskur út um allt á götunum og torgun- um,“ sagði Ute Petzel, bæjar- stjóri Ratzdorf, við mót fljót- anna Oder og Neisse. „Það tek- ur okkur margar vikur að hreinsa bæinn.“ Á myndinni eru íbúar í þýska Reuter þorpinu Wiesenau að bera dýn- ur úr varnargarði við heimili sitt. Jerúsalem. Reuter, The Daily Telegraph. YASSER Arafat, leiðtogi sjálf- stjórnarsvæða Palestínumanna, sagði stuðningsmönnum sínum í gær að framundan væri „mikil bar- átta“ vegna ósveigjanlegrar stefnu Benjamins Netanyahus, forsætis- ráðherra Israels. Mikil spenna hefur verið í sam- skiptum Israela og Palestínumanna eftir sprengjutilræði í Jerúsalem sem varð 13 mönnum að bana í vik- unni sem leið. „Við verðum að búa okkur undir þá miklu baráttu sem Netanyahu hefur þröngvað upp á okkur - og það sem koma skal er verra en það sem við höfum séð til þessa," sagði Arafat í viðtali við palestínsku fréttastofuna Wafa. Netanyahu for- dæmdi þessi ummæli og sagði þau ekki til þess fallin að stuðla að sátt- um milli ísraela og Palestínumanna. Fregnir hermdu í gærkvöldi að Hizbollah-skæruliðar hefðu skotið rúmlega 30 flugskeytum á hernumið svæði ísraela í suðurhluta Líbanons. Ekki var vitað hvort mannfall hefði orðið. Rætt við Hassan prins Netanyahu ræddi í gær við Hass- an prins, bróður Jórdaníukonungs, og Abdul-Salam al-Majaliu, forsæt- isráðherra Jórdaníu. Eftir fundinn sagði Netanyahu að ísraelar myndu ekki slaka á aðgerðum sínum vegna tilræðanna, en þeir hafa handtekið 170 Palestínumenn og lokað her- numdu svæðunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.