Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 16
16 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Morgunblaðið/Helgi Bjamason JÓN H. Sveinsson við dúnþurrkarann sem hann lét smíða. ÚR versluninni í Moskvu. Dúnjakkinn kostar 115 þúsund krónur og stærri sængin 350 þúsund. Þarna eru einnig ljósmyndir og myndband með kynningarefni um æðarræktina. Selur æðardúnsjakka og -sængur í Moskvu Yerðmæti dúns- ins margfaldast Jón Sveinsson hefur veríð að þróa nýjar aðferðir við hreinsun æðardúns. Jafnframt er hann að látið hanna o g sauma æðardúns- jakka og -sængur í félagi við Rússa og hafa þeir stofnað eigin verslun í Moskvu. Helgi Bjamason kom við í Miðhúsum. „ÞETTA er deyjandi iðnaður og það sem verra er kreppan er heimatilbú- in,“ segir Jón H. Sveinsson æðar- dúnsútflytjandi í Miðhúsum í Reyk- hólasveit. Jón hefur reynt fyrir sér með ýmsar nýjungar í hreinsun og útflutningi og telur að tilraunastarf- semin sé að skila árangri. Styttist í niðursveiflu Miklar sveiflur hafa verið í verði og útflutningi æðardúns. Um 1990 voru flutt út 3,1 til 3,2 tonn af æðardúni. Markaðurinn hrundi og kreppan hefur staðið síðan. Verðið í erlendri mynt er fyrst nú að kom- ast í sömu hæðir og fyrir verðfallið, að sögn Jóns. „Því miður er þetta heimatilbúinn vandi. Útflutningur- inn er á höndum fárra stórra útflytj- enda sem yfirbjóða hver fyrir öðrum, upp fyrir sársaukamörk markaðar- ins, þar til dúnninn hættir að selj- ast.“ Skilaverð til bænda fór niður í 14 þúsund kr. í dýpsta öldudalnum. Jón telur að farið sé að styttast í næstu niðursveiflu. „í vetur greiddu útflytj- endur um 60 þúsund kr. fyrir kílóið en drógu frá kostnað við hreinsun. Nú er samkeppnin orðin svo hörð að menn greiða 60 þúsundin og gefa hreinsunina eða veita viðlíka kjör. Svo taka menn að meðaltali að minnsta kosti 9.000 kr. á kíló í umboðslaun. Þetta er of mikið fyrir markaðinn, eftirspurnin er farin að minnka. Allur dúnninn endar á Jap- ansmarkaði, sama hvert hann er fluttur í upphafi. Núna situr til dæm- is einn japanskur innflytjandi uppi með 200 kg og hann kaupir varla mikið í bráð,“ segir Jón. Ný tækni við hreinsun Jón nefnir þrennt þegar hann er spurður um breyttar áherslur: Hann er að þróa aðferðir til að hreinsa dúninn hratt og örugglega, hann leggur áherslu á að komast lengra inn á markaðinn með því að stunda vöruþróun og loks segist hann leggja sem minnst á dúninn til að ofbjóða ekki markaðnum. Dúnframleiðslan einkennist af því að æðarræktendur safna dúninum á vorin og síðan er verið að hreinsa hann langt fram eftir vetri. Jón hefur þróað og endurbætt vélar sem hafa aukið mjög afkástagetu við hreinsun- ina. Þá hefur hann ráðið erlent vinnu- afl að hreinsuninni á sumrin. Með þessum aðferðum hefur honum tekist að ljúka dúnhreinsuninni á sumrin. Jón og rússneskur viðskiptafélagi hans hafa unnið að þróun vamings úr íslenskum æðardúni fýrir rúss- neskan markað. Hafa þeir látið þvo dúninn hér á landi og sauma úr hon- um jakka og sængur. Hönnuður á þeirra vegum hefur hannað nokkrar flíkur sem þeir em að prófa á markaðnum. Fengu þeir horn í húsgagnaverslun til að hafa þessar vörur til sölu. Auk varningsins er þar ýmislegt kynningarefni um æðarrækt sem Jón segir að hafi vak- ið athygli. Salan hefur farið rólega af stað en Jón segir að ekki þurfi mikla sölu til að þessi starfsemi borgi sig. Fyrsti viðskiptavinurinn var patríarkinn í Moskvu, yfirbiskup rétttrúnaðar- kirkjunnar, Alexei II, sem sefur nú við æðardúnsæng frá Miðhúsum. Dúnsængurnar eru seldar á verði sem samsvarar 350 þúsund íslenskum krónum. Einhveijir eiga peninga í Moskvu því í vetur kom kona inn í búðina og keypti átta sængur og líf- vörður hennar greiddi andvirði þeirra í dollaraseðlum, að sögn Jóns. „Við höfum verið að hreinsa dún í kofum um allt land í 200 ár og flutt hann óþveginn úr landi. Með vöruþró- un og framleiðslu fyrir smásölumark- að verður gífurleg verðmætaaukning og hvert dúnkíló margfaldast í verði. Með því að þvo dúninn kæmumst við mun lengra inn á markaðinn," segir Jón en tekur jafnframt fram að Jap- ansmarkaður sé sérstakur og afar erfiður viðureignar. Rússneskur viðskiptafélagi Jóns hefur reynt að tína dún og kaupa í Rússlandi en gengið misjafnlega. Dúnninn hefur verið hreinsaður hér og sendur aftur út. Þeir eru að at- huga möguleikana á að stofna útibú í Rússlandi til að vinna dún. Jón hefur einnig fengið fyrirspurnir frá Finnlandi um hreinsun og er að skoða prufur þaðan. r Fylgist þú meö tímanum að næturlagi...? Ef svo er, þá þjáist þú örugglega af... Svefnleysi.. IDE BOX sænsku fjaðradýnurnar leysa málin hvort sem er fyrir einstaklinga eöa hjón. IDE BOX eru ejnstakar gæöadýnur á haastæöu veröi. Áralöng reynsla okkar og sérþekking starfsfólks mun auövelda þér valiö. Aöalmarkmið okkar er aö þú sofir vel og eigir góöa daga í líkamlegri yellíöan. Þúsundir íslendinga hafa treyst okkur fyrir daglegri vellíöan sinni. ÞEGAR ÞU VILT SOFA VEL KOMA TIL OKKAR HÚSGAGNAHÖLUN RÚSSAR við fjaðratínslu í Miðhúsum, f.v. Kristina Solodova, Ioulia Khlamova, Yelena Soloviova og Jelena Mikheeva. „Verkfræðingar“ og „blaða- maður“ við dúnhreinsun FJÓRAR rússneskar stúlkur vinna í suraar við að hreinsa æðar- dún á Miðhúsum í Reykhólasveit. Rússneskur viðskiptafélagi Jóns H. Sveinssonar æðardúnsútflytj- anda í Miðhúsum útvegaði honum tvær stúlkur í fyrrasumar og þær komu aftur í sumar og tvær til. Jón lætur afar vel af stúlkunum fjórum, segir að þær séu áreiðan- legur vinnukraftur. Þrjár stúlknanna hafa lokið tækninámi og eru gjarnan kallað- ar „verkfræðingar" í Reykhóla- sveitinni. Sú yngsta, „blaðamað- urinn“, er við nám í fjölmiðla- fræði. Dvöl þeirra í Miðhúsum hefur vakið athygli í sveitinni og fullyrt er að ungir menn úr nágrenninu geri sér ótrúlegustu erindi við Jón í Miðhúsum eða aðra úr fjölskyld- unni og lít.i við i dúnhreinsihúsinu í leiðinni. Rússnesku stúlkurnar láta vel af dvölinni, Kristina Solodova su sem er í fjölmiðlafræðinni segir að vinnan sé auðveld. Á kvöldin og um helgar fara þær í sund, skoða sig um og fara jafnvel á sveitaböll. Kristina segir að öðru- vísi tónlist sé leikin á böllunum en þær séu vanar frá sínum heimahögum en annað svipað: „íslendingar drekka mikið brennivín, eins og Rússar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.