Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Lúxusþota
til leigu
hjá Atl-
anta
FLUGFÉLAGIÐ Atlanta hefur
tekið við rekstri lúxusbreiðþotu
af gerðinni Boeing 747. Þotur
af þessari stærð rúma venjulega
um 480 farþega en eins og hún
er innréttuð rúmar hún tæplega
100 farþega. Leigan á þotunni
er 20 þúsund dollarar á klukku-
stund eða um 1,4 milljónir ís-
lenskra króna.
Að sögn Guðmundar Haf-
steinssonar skrifstofustjóra Atl-
anta á leigan sér langan aðdrag-
anda, en Atlanta rekur þotuna í
samvinnu við bandarískt fyrir-
tæki, Palm Beach Aerospace.
Það fyrirtæki sér um markaðs-
mál, en þotan er markaðssett á
aiþjóðavisu.
Meðal þeirra sem hafa nýtt sér
þjónustu vélarinnar er fjölskylda
soldánsins af Brunei, Bill Gates
eigandi Microsoft, ýmsar ríkis-
sljórnir og Michael Jackson.
FARÞEGAR í lúxusþotunni ættu að geta látið fara vel um sig.
LÚXUSÞOTA Atlanta er leigð út á 1,4 milljónir á klukkustund.
Notkun ýmissa afurða af sauðfé og nautgripum bönnuð í ESB
Ekki áhrif á ís-
lenzkan útflutning
EVRÓPUSAMBANDIÐ bannaði í
síðustu viku notkun afurða, sem
unnar eru úr hlutum tengdum heila
og miðtaugakerfí nautgripa, sauð-
Q'ár og geita sem eru eldri en eins
árs. Astæða bannsins er ótti við
útbreiðslu kúariðu og riðu í sauðfé,
en vísbendingar eru um að neyzla
sýktra afurða geti valdið Creutz-
feldt-Jacobs-sjúkdómi í mönnum.
Brynjólfur Sandholt yfírdýralæknir
segir að bannið, sem á að ganga í
gildi um næstu áramót, muni ekki
hafa áhrif á útflutning íslenzkra
landbúnaðarafurða til Evrópusam-
bandsins.
Framkvæmdastjórn ESB tók
ákvörðun um bannið að fenginni
ráðgjöf frá Alþjóðaheilbrigðisstofn-
uninni (WHO) og eigin sérfræðing-
um í heilbrigði dýra. Bannið tekur
til notkunar á hauskúpum, heilum,
eitlum og mænum úr nautgripum,
sauðfé og geitum sem eru eldri en
tólf mánaða og til milta úr öllu
sauðfé og geitum, burtséð frá aldri.
Bannið er talið valda sláturhúsum
í Noregi miklum aukakostnaði en
Norðmenn hafa lögleitt allar dýra-
heilbrigðisreglur Evrópusambands-
ins, sem er að fínna í I. viðauka við
samninginn um Evrópskt efnahags-
svæði. Island er hins vegar undan-
þegið öllum gerðum í viðaukanum
nema þeim sem varða heilbrigði
sjávarafurða og mun bannið því
ekki gilda um landbúnaðarafurðir,
sem ætlaðar eru til neyzlu hér á
landi. Aftur á móti verða íslenzk
sláturhús, sem hafa leyfi til útflutn-
ings landbúnaðarafurða á Evrópu-
markað, að gæta þess að virða bann-
ið. Brynjólfur Sandholt segir að ís-
lendingar flytji eingöngu út afurðir
af lömbum, sem bannið taki ekki
til. „Þetta ætti ekki að hafa nein
áhrif á okkar erlenda markað,“ seg-
ir hann.
Dregur úr notkun sviðahausa
af fuilorðnu fé
Aðspurður hvort íslenzk heil-
brigðisyfirvöld hafi velt fyrir sér
hvort ástæða sé til að setja hér
sambærilegar reglur og settar hafa
verið í ESB, segir Brynjólfur að svo
sé ekki. „Afurðir af lömbum hafa
aldrei haft áhrif á sjúkdóma í fólki.
Við höfum heldur ekki gert neinar
ráðstafanir vegna afurða af eldri
Timburhús í Hafnarfirði
Til sölu húsið Brekkugata 12
Hæð, ris og kjallari, alls um 160 fm. Á hæðinni eru tvær góðar stof-
ur, herbergi og eldhús. Á rishæð eru 5 herb. og bað. 46 fm bílskúr.
Geymslukjallari. Ekkert áhvílandi. Gamalt hús á mjög góðum stað.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
gripum af því að við höfum alltaf
lógað þeim strax og riða kemur
upp. Við teljum að riða sé ekki út-
breidd hér að sama marki og í ná-
grannalöndum okkar, þar sem sjúk-
dómurinn er landlægur. Hér er líka
önnur stjómun á sauðfjárræktinni
og við höfum verið mjög harðir að
skera niður strax. Hingað til höfum
við því ekki talið ástæðu til þessa,“
segir hann.
Brynjólfur segir að mjög hafi
dregið úr því að notaðir séu t.d.
hausar af fullorðnu sauðfé til að
svíða þá, enda hafi sviðaát minnkað
á undanförnum árum. Hér sé heilinn
úr sauðfénu heldur ekki snæddur
eins og t.d. tíðkist í Frakklandi.
„Slátur, sem hér er selt, er ævinlega
af lömbum en ekki af fullorðnu.
Stundum hafa verið seldir hausar
af eldra fé og þá á lægra verði,
þannig að sumir hafa keypt slíkt,“
segir hann. í Noregi hafa lyfjafyrir-
tæki haft áhyggjur af banni Evrópu-
sambandsins, þar sem áðumefndar
afurðir hafa verið notaðar í ýmis
lyf, sem framleidd eru þar í landi.
Brynjólfur segist ekki muna til að
íslenzkur lyfjaiðnaður noti afurðir
úr sláturfé. Merarblóð, sem notað
hafí verið til lyfjaframleiðslu, sé
undanþegið banni ESB.
Sindri Sindrason, framkvæmda-
stjóri Pharmaco, segir að óhætt sé
að fullyrða að ekkert af hinum bönn-
uðu afurðum sé notað í íslenzkum
lyfjaiðnaði.
MEG frá ABET
UTANÁHÚS
FYRIRLIGGJANDI
PP
&CO
Þ. ÞOHGRÍMSSON & CO
ÁRMULA 29 • PÓSTHÓLF 8360 • 128 REYKJAVÍK
SIMI 553 8640 568 6100
MIKILL hluti þess rýmis sem fer í sætapláss í venjulegum þotum
er nýttur í setustofur og fundaaðstöðu.
Yfirbygging yfir skautasvellið í Laugardal
IBR gengur
til samninga
viðístak
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að
veita íþróttabandalagi Reykjavíkur
heimild til að ganga til samninga
við ístak hf. um yfirbyggingu yfir
skautasvellið í Laugardalnum.
Dómnefnd hafði áður hafnað öllum
tilboðum í lokuðu alútboði. Tillög-
urnar voru á 40% til 52% yfir kostn-
aðaráætlun ÍBR. Kostnaðaráætlun-
in hljóðaði upp á 160 milljónir
króna. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að gert sé ráð
fyrir að kostnaður ístaks við yfir-
bygginguna og breytingar á þaki á
eldra húsnæði nemi um 183 milljón-
um króna.
Ingibjörg Sólrún sagði að í samn-
ingi Reykjavíkurborgar og ÍBR
væri gert ráð fyrir að kostnaður
við yfirbygginguna næmi um 160
milljónum króna. „Auðvitað renna
menn svolítið blint í sjóinn með slík-
ar viðmiðunartölur en ÍBR taldi að
hægt væri að fá mannvirkið fyrir
160 milljónir. Sú áætlun var gerð
eftir að skoðaðar höfðu verið um
10 skautahallir á hinum Norður-
löndunum. Kostnaður vegna bygg-
ingu skautahallanna hafði numið á
bilinu 90 til 500 milljónir," sagði
Ingibjörg og tók fram að þótt mið-
að hefði verið við 160 milljónir í
samningnum hefði verið gert ráð
fyrir 150 milljónum í útboðslýsingu
alútboðs.
Hún sagði að innsend tilboð
hefðu hljóðað upp á mun meiri
kostnað en gert hefði verið ráð fyr-
ir. „Menn ákváðu einfaldlega að
tilboðin væru of dýr til að menn
treystu sér til að taka þeim en töldu
samt að ekki væri fullreynt að
hægt væri að fá ódýrara mann-
virki. Þess vegna var farið í samn-
ingaviðræður,“ sagði Ingibjörg
Sólrún.
Ný tilboð send inn
Viðræður fóru fram við verktak-
ana þijá úr alútboðinu og ístak.
ístak hafði vegna mistaka ekki skil-
að inn tilboði áður en lokafrestur í
alútboðinu rann út 10. júlí sl. Ár-
mannsfell hf. og ístak hf. skiluðu
inn tilboðum um byggingu á ódýr-
ari húsi.
Byggingarnefnd skautasvellsins
og ráðgjafi hennar töldu byggingu
ístaks vandaðri og skipulag innan-
húss betra. ístak leysti betur teng-
ingu núverandi húss við svellið og
breytingar á þaki og tillagan félli
betur að hugmyndum um rekstur
hússins. Kostnaðarverð bygging-
anna var talið svipað.
Ingibjörg Sólrún sagði að gert
væri ráð fyrir að yfirbyggingin
kostaði um 179 milljónir. „Ef þaki
er svo breytt á gömlu byggingunni
fer upphæðin upp í 183 milljónir,"
sagði hún. „Út af fyrir sig má segja
að menn séu að fá dýrari byggingu
en lagt var af stað með í upphafi
en kostnaðurinn er samt talsvert
minni en kostnaðaráætlanir höfðu
hljóðað upp á um byggingu skauta-
hallar eða á þriðja hundrað milljón-
ir.“
Borgarráð hefur samþykkt ósk
ÍBR um að miðað verði við teikning-
ar Istaks að yfírbyggingu skauta-
svells í Laugardal. Fallist hefur
verið á ósk ÍBR um endurskoðun á
samningi við Reykjavíkurborg um
byggingu og rekstur skautasvells-
ins. ÍBR gerir ráð fyrir að heildar-
byggingarkostnaður verði á bilinu
185 til 190 milljónir.
Ósamræmi milli
verðhugmyndar og
útboðskrafna
Árni Sigfússon, borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks, segir að augljós-
lega hafi ekki verið samræmi á
milli verðhugmyndar og útboðs-
krafna í alútboðinu. „Ekki voru
gerðar aðrar athugasemdir við til-
lögur verktakanna en að verðhug-
myndir um 150 milljón króna mark-
ið stóðust ekki. Reyndar hafði
Reykjavíkurborg lofað 160 milljón-
um í framkvæmdina. Mér hefði í
framhaldi af því fundist eðlilegt að
talað væri við alla verktakana og
kannað með hvaða hætti væri hægt
að koma til móts við hugmyndir
beggja. í staðinn er öllum tillögun-
um hafnað og hafnar viðræður við
annan aðila. Niðurstaðan út úr þeim
viðræðum er hin sama. Að verðhug-
myndir eru ekki hinar sömu. Kostn-
aður við hugmyndir ístaks nemur
væntanlega um 185 milljónum
króna,“ sagði Árni.
Hann tók fram að aðrir verktak-
ar hefðu betur vitað áður en þeir
skiluðu inn sínum tillögum að
kostnaðurinn yrði hærri en gert var
ráð fyrir í útboðslýsingunni.
Vinnubrögð við útboð
gagnrýnisverð
Hann sagði umhugsunarvert
hversu miklu fé_ ætti að eyða í yfir-
bygginguna. „Ég hef upplýsingar
um að hægt sé að byggja yfir
skautasvell frá 80 milljónum upp í
hálfan milljarð. Nú virðist hafa
komið í ljós að ekki sé hægt að
yfirbyggja skautasvellið fyrir lægri
upphæð en 185 milljónir. í sjálfu
sér er umhugsunarvert hvort yfir-
byggingin þarf að vera svona dýr,“
sagði hann og lagði áherslu á að
gagnrýnin snerist fyrst og fremst
að aðdraganda og vinnubrögðum
við útboðið.