Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
FRÉTTIR
Morgunblaðið/Rúnar Þór Brynjólfsson
SERA Baldur Vilhelmsson, prófastur í Vatnsfírði, við op ganganna sem liggja frá gamla bæjarstæðinu að kirkjunni.
Jarðgöng í Vatnsfírði
Verða rannsökuð
en ekki endurgerð
Millifærslur
af bankareikningi
Grunsemd-
ir vöknuðu
við fram-
talsgerð
GRUNSEMDIR um að milli-
færslur af bankareikningi aldr-
aðrar konu inn á reikning
manns, sem hafði aðstoðað kon-
una, vöknuðu við framtalsgerð.
Sama fyrirtækið hefur gert
framtal konunnar í nokkur ár
og í byrjun þessa árs vai-ð vart
við minnkun eigna hennar.
Þótti þá ástæða til að rannsaka
hvort um misneytingu gæti
verið að ræða.
Akvæði um misneytingu er
að finna í samningalögum. Þar
segir: „Hafi nokkur maður not-
að sér bágindi annars manns,
einfeldni hans, fákunnáttu eða
léttúð eða það, að hann var
honum háður, til þess að afla
sér hagsmuna eða áskilja sér
þá þannig að bersýnilegur mis-
munur sé á hagsmunum þess-
um og endurgjaldi því er fyrir
þá kom eða skyldi koma, eða
hagsmunir þessir skyldu veittir
án endurgjalds, skal gemingur
sá, er þannig er til kominn,
ógildur gagnvart þeim aðila er
á var hallað með honum.“
Um er að ræða upphæðir sem
skipta tugum milljóna króna.
Konan er fjárráða en hefur ekki
fyllilega yfirsýn yfir fjármál sín.
Rannsókn á að ieiða í ljós hvort
millifærslurnar voru gerðar
með vitund hennar og vilja. Mál-
ið var sent ríkislögreglustjóra
um miðjan júlí. Amar Jensson
aðstoðai’yfirlögregluþjónn hefur
ekki viljað tjá sig um málið með-
an það er í rannsókn.
LENGI hefur verið vitað um til-
vist jarðgangnanna sem nýlega
komu í Ijós í Vatnsfírði við Isa-
íjarðardjúp, að sögn Þórs Magn-
ússonar, þjóðminjavarðar.
Þór sagði að jarðgöng sem
þessi hefðu fundist nokkuð víða
en þekktust eru göngin í Skál-
holti, á Hólum, í Reykholti og á
Keldum. Jarðgöngin í Vatnsfírði
liggja frá gamla bæjarstæðinu
að kirkjunni.
Verið er að gera upp gömlu
kirkjugarðsveggina og var kom-
ið niður á gömlu hleðslurnar.
„Göngin virðast frekar einföld
að allri gerð. Þarna var grafíð í
jörðu, gijóthleðsla sett beggja
vegna og svo reft yfír,“ sagði
Þór en að sögn hans hafa ekki
mörg jarðgöng verið rannsökuð
hér og erfítt um samanburð, en
hann telur göngin frá miðöld-
um. Hann segir að Guðrún
Sveinbjarnardóttir, fornleifa-
fræðingur, muni skoða þau nán-
ar fljótlega. Aðpurður sagðist
Þór ekki telja að Þjóðmiiyasafn-
ið myndi standa fyrir endurgerð
á göngunum.
Heimsókn lauk
með heiðurs-
borgaratitli
✓
Heimsókn Olafs Ragnars Grímssonar forseta
Islands til Kanada lauk í gær með því að hann
var gerður að heiðursborgara í Winnipeg.
Gunnur ísfeld fylgdist með dagskrá heimsóknar
forsetahjónanna og fundum forsetans með
Vestur-íslendingum. Fyrirhugað er að 1 dag
fylgist forsetinn með geimskoti í Flórída.
ÞÚ KAUPIR
EINA BLUSSU EÐA SKYRTU
Á ÚTSÖLUNNI
OG FÆRÐ AÐRA ÓKEYPIS
SUÐURKRINGLUNNI
VEÐRIÐ hefur sannarlega átt sinn
þátt í að gera heimsókn forseta ís-
íands, Ólafs Ragnars Grímssonar, og
konu hans, Guðrúnar Katrínai' Þor-
bergsdóttur, ánægjulega. Sólríkt
hefur verið undanfama daga og má
segja að Manitóba hafi staðið undh-
nafninu sólríka fylkið.
Forsetahjónunum var ekið frá
Gimli til Winnipeg á þriðjudag og
fóru þau fyrst í þinghús Manitóba-
fylkis, þar sem teírið var á móti þeim
af forsætisráðherra Manitóbastjórn-
ar, Gary Filmon, og Eric Stefansson
fjármálaráðherra á skrifstofu for-
sætisráðherrans. Eric Stefansson er
af íslenskum ættum, fæddur í Gimli,
þar sem faðir hans var þingmaður á
Manitóbaþingi.
Blómsveigur við styttu
Jóns Sigurðssonar
Eftir fund þeirra var gengið út að
styttu Jóns Sigurðssonar, sem stend-
ur á lóð þinghússins, þar sem tekið
var á móti þeim af Mae Westdal, fyr-
ir hönd Jóns Sigurðssonar-deildar
I0DE (Imperial Order Daugthers of
the Empire). Jóns Sigurðssonar-
deildin hefur starfáð frá síðari heims-
MORGUNBLAÐIÐ
Menntamálaráðherra á heimasíðu sinni
Hús í Reykholti
víki og hugað
verði að minjum
BJÖRN Bjarnason menntamálaráð-
herra segir í fi-éttapistli á heimasíðu
sinni að hann telji einsýnt að sum
húsanna sem standa við gamla skóla-
húsið í Reykholti svo sem íþrótta- og
smíðahúsið, þui-fi að víkja. „Þar með
gefst nýtt tækifæri til að kanna
minjar á staðnum og meðal annars
göngin að lauginni sem nokkuð hefur
verið hugað að í sumar,“ segir í pistli
ráðherrans.
Guðrún Sveinbjamardóttir, fom-
leifafræðingur, gróf niður á göngin
sem liggja frá Snorralaug að rústum
gamla Reykholtsbæjarins í júlímán-
uði en segir að framtíð fornleifarann-
sókna í Reykholti velti á fjárveiting-
um. Vonir standi til að hægt verði að
halda áfram þar sem frá var horfið
fyrir 10 áram við að rannsaka bæjar-
stæðið og göngin.
Stólpi ofan í göngin
Guðrún sagði sagnir ganga um að
við byggingu gamla íþróttahússins
1934, sem stendur á stólpum, hefði
stólpi verið rekinn niður í göngin og
vitað sé að göngin liggi undir húsinu
frá Snorralaug að gamla bænum og
með stefnu að gömlu kirkjunni.
Hún sagði að verið væri að vinna
að undirbúningi áætlunargerðar um
rannsóknir í Reykholti. Vitað er um
búsetu á staðnum frá 12. öld.
Sóknarprestur sammála
Geir Waage, sóknarprestur í
Reykholti, sagðist fagna þeirri
hreyfingu sem komið hefði á þessi
mál með rannsóknunum í sumar.
„Ég lít vonaraugum til þess að þetta
sé upphafið að vemlegu átaki í upp-
greftri hér,“ sagði Geir. Hann kvaðst
algjörlega sammála menntamálaráð-
herra um nauðsyn þess að fjarlægja
húsin.
Geii' Waage sagði að við rannsókn-
ina í sumar hefði komið í Ijós að
göngin stæðu furðu vel þótt þau séu
full af mold og jarðvegi en staðsetn-
ing íþróttahússins stæði í vegi íyrir
því að hægt yrði að halda uppgreftri
áfram.
Geir sagði að íþróttahúsið, sem
byggt var á stólpum á fjórða ára-
tugnum hefði verið byggt til bráða-
birgða áfast sjálfu skólahúsinu. Nú
væri 25 metra löng sundlaug og ný-
legt íþróttahús komið á Kleppjárns-
reyki í 7 km fjarlægð frá Reykholti.
Niðurrif þessa gamla íþróttahúss
skerti því ekki aðstöðu fólks í sveit-
inni og kvaðst Geir vonast til að
ráðuneytið tæki ákvörðun um að rífa
íþróttahúsið í haust.
Ysti endi ganganna milli bæjarins
í Reykholti og laugarinnai- sem
kennd er við Snorra Sturluson er op-
inn við laugina en afar hrörlegur. Að
sögn Geirs er það að mestu leyti
mannvirki frá um 1940 sem var hlað-
ið til þess að sýna tilvist ganganna
án þess að gengið hafi verið frá
mannvirkinu í upprunalegri gerð.
Hann kvaðst vona að í kjölfar þess
að íþróttahúsið yrði fjarlægt yrði
forna bæjarstæðið og göngin að-
gengileg til heildaruppgraftar og að
lokinni fornleifarannsókn yrðu göng-
in endurgerð í fullri lengd.
Morgunblaðið/Gunnur ísfeld.
ERIC Stefansson, fjármálaráðherra Manitóba, Gloria Meadows, ritari
Jóns Sigurðssonar-deildar IODE, Gary Filmon, forsætisráðherra
Manitóba, Dóra Sigurdson, Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Ólafur
Ragnar Grímsson og Mae Westdal við styttu Jóns Sigurðssonar.
styi'jöldinni og afla konurnar fjár til
ýmissa málefna, s.s. námsstyrkja o.fl.
Forsetinn flutti stutta ræðu við
styttuna og þakkaði konunum
hversu vel þær héldu í íslenska
menningu og siði. Hann sagði það
mikinn heiður fyrir íslensku þjóðina
að stytta Jóns forseta stæði á þess-
um stað. Forseti afhenti að því búnu
Mae Westdal bók um Jón Sigurðs-
son á ensku.
Næst var haldið í Manitóba Club,
þar sem stjórn Manitóba bauð til há-
degisverðar. Meðal viðstaddra var
Magnús Elíasson, sem talar lýtalausa
íslensku, þótt hann sé fæddur í
Kanada. Hann hefur tekið virkan
þátt í stjórnmálum og sat í borgar-
stjóm Winnipegborgar um margra
ára skeið.
Fundur og veisla með
Islendingum
Margir aðrir nafnkunnir Vestur-
íslendingar vom þarna mættir og
má nefna dr. Kenneth Thorlaksson,
en faðir hans, Paul Thorlaksson,
stofnaði Winnipeg Clinic, læknastofu
þar sem sérfræðingar í mörgum
greinum læknisfræðinnar unnu sam-
an. Varð það upphaf slíkrar sam-
vinnu lækna í Winnipegborg.
Síðar um daginn var haldinn fund-
ur með Ieiðtogum í íslenska samfélag-
inu og var fundarstjóri Davíð Gisla-
son. Um kvöldið var forsetahjónunum
haldin vegleg veisla í Lombai'd-hótel-
inu, sem Þjóðræknisfélag íslendinga í
Vestui'heimi stóð fyrir. Þeir sem sátu
með forsetahjónunum við háborðið
vom þau Larry Johnson, forseti Þjóð-
ræknisfélagsins, og kona hans, Edith
Johnson, Ray Johnson, varaforseti
Þjóðræknifélagsins, Helwer, þing-
maður Gimli, og kona hans.
Ræður voru fluttar við þetta tæki-
færi af Ray Johnson, Larry Johnson,
Helwer og Ólafi Ragnari. Forseti Is-
lands sagði m.a. frá nýloknu starfi
við að þýða íslendingasögurnar á
ensku. Einnig hvatti hann Vestur-Is-
lendinga til að heimsækja land for-
feðra sinna, land sem skaparinn væri
enn að skapa.
í gær héldu forsetahjónin frá
Kanada en komu fyi'st við á ski'if-
stofu borgarstjóra Winnipegbprgar,
Susan Thomp son, þar sem Olafur
Ragnar Grímsson var gerður að
heiðursborgara í Winnipeg.