Morgunblaðið - 07.08.1997, Qupperneq 12
12 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Bókasafn Háskólans á Akureyri
Framkvæmd-
ir á iokastigi
FRAMKVÆMDIR við uppbygg-
ingu bókasafns Háskólans á Akur-
eyri í framtíðarhúsnæði háskólans
á Sólborg eru nú á lokastigi. Safn-
ið verður opnað formlega í tengslum
við tíu ára afmælishátíð Háskólans
á Akureyri 6. september næstkom-
andi, að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar, rektors Háskólans.
Iðnaðarmenn voru á þönum í hin-
um nýju húsakynnum bókasafnsins
í gærdag, en samkvæmt áætlun á
hefja flutning safnsins úr núverandi
húsnæði við Þingvallastræti um eða
upp úr 20. ágúst næstkomandi.
Starfsemi Háskólans á Akureyri
hefst 25. ágúst og þá á safnið að
vera tilbúið til notkunar fyrir nem-
endur skólans.
Húsnæðið er rúmlega 1.000 fer-
metrar að stærð og hafa miklar
endurbætur verið gerðar á því síð-
ustu mánuði en framkvæmdir hóf-
ust í apríl síðastliðnum. Þorsteinn
sagði að nánast væri um endur-
byggingu á húsnæðinu að ræða en
meðal verkefna var að breyta og
endurnýja lagnakerfi, klæða loft,
mála, endurnýjun gólfefna, veggir
voru reistir og settar upp nýjar inn-
réttingar ásamt gluggum og úti-
hurðum. Kostnaður verktaka, sem
eru SJS-verktakar, er um 45 millj-
ónir króna. Arkitektastofurnar
Gláma og Kím sáu um hönnun
bókasafnsins.
Lesaðstaða fyrir 80 nemendur
Í bókasafninu verður lesaðstaða
fyrir 80 nemendur og er að sögn
rektors gert ráð fyrir þeim mögu-
leika að koma tölvu fyrir við hvert
lesborð. Ekki væri þó víst að það
markmið næðist nú strax í haust.
Á safninu verður fullkominn búnað-
ur fyrir nútímabókasafn en áætlað-
ur kostnaður vegna kaupa á búnaði
liggur ekki fyrir. Á safninu verða
einnig skrifstofur starfsfólks og
fundarherbergi, bækur, tímarit og
annað efni verður í miðrými safns-
ins og einr.ig verður bókahillum
komið fyrir í kjallara byggingarinn-
ar.
Mikil fjölgun nemenda
Gert er ráð fyrir að 450-60 nem-
endur hefji nám við Háskólann á
Akureyri nú í haust og hefur þeim
fjölgað umtalsvert frá því á síðasta
námsári, eða um 80-90 talsins. Iðju-
þjálfun verður kennd í fyrsta skipti
við háskólann í vetur og eru nem-
endur á fyrsta ári á bilinu 40 til
50 og þá hefst einnig kennsla í
uppeldis- og kennslufræði til
kennsluréttinda og hafa á milli 50
og 60 nemendur skráð sig til náms.
Morgunblaðið/Björn Gíslason
FRAMKVÆMDIR við uppbyggingu bókasafns Háskólans á Akur-
eyri eru nú á lokastigi og voru iðnaðarmenn á þönum í gær-
dag. Áætlað er að taka húsnæðið í notkun þegar starfsemi há-
skólans hefst eftir rúman hálfan mánuð.
Ferðafélag Akureyrar
Raðganga
og nátt-
úruskoðun
RAÐGANGA Ferðafélags Akur-
eyrar, sú þriðja í röðinni, verður
næstkomandi laugardag, en þá
verður gengið úr Víkurskarði um
Gæsadal að Ytra-Hóli í Fnjóska-
dal. Lagt verður af stað í gönguna
frá skrifstofu Ferðafélagsins kl. 9.
Jarðfræðiferð um Eyjafjörð
verður farin á sunnudag 10. ágúst
og verður lagt af stað frá skrif-
stofu félagins kl. 13 og ekið að
Krossanesborgum, upp í Hlíðar-
fjall og inn í Eyjafjörð. Þetta er
náttúruskoðunarferð þar sem
skoðaðir eru markverðir staðir frá
jarðfræðilegu sjónarmiði.
Upplýsingar eru veittar á skrif-
stofu Ferðafélags Akureyrar sem
er opin frá kl. 16 til 19 virka daga
og þar fer skráning einnig fram.
----------» ♦ ♦----
Sýningu lýkur
SÝNINGU Ríkharðs Valtingojer og
Sólrúnar Friðriksdóttur í Gallerí
Svartfugli á Akureyri lýkur nú um
helgina.
Ríkharður sýnir grafíkverk,
mezzotintur og verk sem unnin eru
með blandaðri tækni; monoþrykk
og þurrnál. Sólrún sýnir textílverk;
myndvefnað og textílcollage. Sýn-
ingin er opin daglega frá kl. 14 til
18.
Tuborg-
djass í
Deiglunni
HUÓMSVEITIN Cirrus frá Stokk-
hólmi, skipuð Ara Haraldssyni, saxó-
fón, Peter Nilsson, gítar, Hans Ny-
man, gítar,
Anders Grop,
kontrabassa
og Patrick
Robertsson,
slagverk,
leikur djass í
Deiglunni í kvöld, fimmtudagskvöld-
ið 7. ágúst kl. 22.
Tónleikarnir bera yfirskriftina
„Frá þjóðlögum í djass“ en innihalda
þó fyrst og fremst tónlist eftir Cirr-
us. Tónlistin hefur norrænan tón og
sérstakt yfirbragð því ekkert raf-
magn er notað. Hljómsveitin hefur
starfað saman í þijú ár og getið sér
gott orð í Svíþjóð.
Hljómsveitarmeðlimir hafa Qöl-
breytta tónlistarmenntun og hafa
reynt fyrir sér í ýmsum tegundum
tónlistar. Þessi bakgrunnur nýtist
þeim vel í lagasmíðum og kennir þar
ýmissa grasa. Þar koma einnig við
sögu hljóðfæri sem ekki eru algeng
í djassi, t.d. hið ástralska didgeridoo.
Djasskvöldin í Deiglunni á
fimmtudagskvöldum eru í umsjá
Jazzklúbbs Akureyrar með stuðningi
Tuborg og Café Karólínu.
Söngvaka
Söngvaka verður í Minjasafns-
kirkjunni í kvöld, fimmtudagskvöld
og hefst það kl. 21. Þar gefst kostur
á að fræðast um íslenska alþýðutón-
list frá dróttkvæðum til okkar daga.
Tónlistarmennirnir Rósa Kristín
Baldursdóttir og Þórarinn Hjartar-
son flytja klukkustundarlanga dag-
skrá í tali og tónum.
Sýningu lýkur
Sýningu Marianne Schoiswohl
lýkur í dag,_7. ágúst, en hún er í
Deiglunni. Á sýninguni eru verk
unnin með blandaðri tækni. Mar-
ianne býr í Austurríki og hefur tek-
ið þátt í mörgum samsýningum þar
í landi og víðar í Evrópu. Sýningin
er opin frá kl. 14 til 18.
LISTA97
SUMAR
AKUREYRI
Arna Valsdóttir sýnir í Deiglunni
ARNA setur salt í grautinn.
Er mandla í grautnum?
ARNA Valsdóttir opn-
ar sýningu í Deiglunni
næstkomandi sunnu-
dag, 10. ágúst, kl. 14.
Arna er fædd og
uppalin á Akureyri,
að loknu grunnskólanámi hélt
hún til Danmerkur, í Lýðhá-
skólann í Holbæk. Eftir það
fór hún í Myndlista- og hand-
íðaskólann í Reykjavík og út-
skrifaðist þaðan 1986. Arna
stundaði framhaldsnám við
Jan van Eyck háskólann í
Maastricht.
LISTA97
SUMAR
Hún hélt einkasýn-
ingar í Liége í Belgíu
1990 og Café Menn-
ingu á Dalvík 1996.
AKUREYRI Húnhefurtekiðþátt
í mörgum samsýning-
um, m.a. í Hoorn, Hollandi,
Nýlistasafninu í Reykjavík og
Deiglunni á Akureyri.
Sýningin í Deiglunni ber
nafnið „Er mandla í grautn-
um?“ og er yfirlitssýning á
þeirri grautargerð sem Arna
hefur stundað á undanförnum
árum.
Eyjafjarðarsveit
Seinni sláttur að hefjast
Eyjafjarðarsveit. Morgunblaðið.
BÆNDUR í Eyjafjarðarsveit hafa
nú flestir lokið fyrri slætti fyrir
allnokkru og er heyfengur mikill
og góður. Seinni sláttur er hafinn
á nokkrum bæjum og er gott útlit
með hann. Júlímánuður var hlýrri
en í meðalári og þurrkar allgóðir
þó ekki kæmu margir þurrir dagar
í röð. Ágætt útlit er með kartöflu-
rækt og margir farnir að taka upp
í matinn. Sömu sögu er að segja
með kornið, en æ fleiri rækta það
hér í Eyjafirði og jafnvel í útsveit-
um eru menn að þreifa fyrir sér
með byggræktina. Bændur og búa-
lið eru því mjög sátt við sumarið
það sem af er og nokkuð bjartsýn
á framhaldið.
Morgunblaðið/Bjöm Gíslason
Tilburðir á torginu
HJÓLABRETTIN eru allsráð- sínar fyrir gesti og gangandi,
andi í sumar. Strákarnir safnast sem iðulega fylgjast agndofa með
saman í miðbænum og leika listir þegar þeir stökkva í loft upp.