Morgunblaðið - 07.08.1997, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
FERÐALÖG
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/jt
HORFT af brúninni niður í Brúarárskörðin þar sem áin hrislast
_______________________í glæfralegum farvegi.
Ægifagiirt í
Brúarárskörðum
ÞEIR sem dvelja í einhveijum af
þeim íjolmörgu orlofshúsum stétt-
arfélaga og sumarbústöðum efst í
Biskupstungum horfa iðulega til
þeirra svipmiklu fjalla sem blasa
við í norðrinu. Þar er margt skoð-
unarvert eins og til dæmis Brúar-
árskörð milli Högnhöfða og Rauða-
fells.
Ganga í Brúarárskörð frá þessu
svæði er fyrirhafnarinnar virði.
Jafnvel við, sem erum í mesta lagi
vön því að ganga með hendur í
vösum í miðborg Reykjavíkur, lif-
um ágætlega af fímm til sex tíma
göngu. Ekki síst ef menn teygja
vel á skönkunum einu sinni eða
tvisvar á göngunni og slaka síðan
á í einhverri af þeim mörgu sund-
laugum sem er að finna í sveit-
inni. Þarna hlýtur að vera met í
sundlaugafjölda miðað við íbúa.
Hægt er til dæmis að hefja
gönguna ofan við Miðhúsaskóg og
er þá gengið eftir fjárgötum, sem
þar að auki eru stikaðar, upp með
Hrútá og síðan með Fremri Kálfá
og Innri Kálfá og heitir landið þar
Hrúthagi. Ofan við Kálfár eru
Kálfársporðar. Notalegt er að
heyra hvemig vatnið seytlar við
hlið göngumanna á ferð um vel
grasi gróið landið með kjarri og
lyngi. Hins vegar kom nokkuð á
óvart hversu lítið fuglar létu á sér
kræla á þessu sunnudagssíðdegi.
Straumönd var á einum stað í
Hrútá og stöku lóa lét í sér heyra
ofar á völlunum. Ekki var heldur
mikið um mannaferðir; hópur frá
Ferðafélaginu kom ofan brúnimar,
allt frá Hagavatni og annar hópur
var á dagsgöngu.
Litlihöfði er ekki lítill
Eftir nærri tveggja tíma rólega
göngu er komið að Litlahöfða, sem
er um 200 metra hár af kortum
að dæma, og var hann æði bratt-
ur. Það kostaði því nokkurt puð
að sigra hann en launin eru útsýn-
ið niður í Brúarárskörð - fyrir
utan það að fá nú loksins að
bragða á nestinu! Best er að ganga
eftir brúninni og virða fyrir sér
hvernig vatnið sprettur út úr
klettaveggjunum niðri í gilinu.
Sjálf upptök Brúarár eru ofan við
skörðin, syðst á Rótarsandi eða
Lambahrauni en hraunið endar í
Brúarárskörðum og er áin þar lít-
il spræna. en hefur aukist mjög
að vatnsmagni þegar hún er kom-
in út úr skörðunum.
Áin skvettist niður
um skörðin
Þarna má sjá hvers kyns hraun-
myndir, hella, skúta, brúnir og
skörð og skvettist áin niður um
skörðin. Efst eru þau í 440 m hæð
en áin er í um 240 m hæð þegar
hún kemur úr skörðunum og fall-
hæðin er því um 200 metrar á til-
töiulega stuttum kafla.
Þegar halda skal til baka er
hægt að fara sömii leið eða stefna
austar, niður að Úthlíð til að fara
ekki alveg sömu slóð. Þessa göngu
má fara þótt ekki sé skafheiðríkt
því útsýnis njóta menn mjög bæði
við sjálf Brúarárskörðin og þegar
horft er niður um alla sveit af Litla-
höfða. Svona ferð er því vel þess
virði að þola svita og jafnvel harð-
sperrur.
jt
Siglt um ísafjarðardjúp
Ferðir í
Vigur vinsælar
Morgnnblaðið/Sigrún Bima
VIÐ klettótta strönd Vigurs.
Sveitasetrið á
Blönduósi tekur
breytingum
Gönguskór
ÚTIVISTARBÚÐIM
viö Umferöarmiöstööina
H V ALVEIÐIMENNIRNIR Konráð
Eggertsson og synir hans, Guð-
mundur og Haraldur, á ísafirði,
bíða ekki aðgerðarlausir eftir því
að hvalveiðar hefjist að nýju. Á
vetuma stunda þeir rækjuveiðar á
Halldóri Sigurðssyni ÍS-14 og á
sumrin sigla þeir með ferðamenn
um ísafjarðardjúp.
Þetta er annað sumarið sem
þeir feðgar sigla með ferðamenn.
Konráð segir að aðsókn hafí
glæðst mikið frá því í fýrra og
muni þar mestu um ferðir í Vigur
sem séu sérlega vinsælar. í sumar
sjái þeir um áætlunarferðirnar í
eyna á vegum Vesturferða og fari
daglega frá miðjum júní og fram
í ágúst.
Farið er frá ísafirði kl. 2 og
komið til baka seinni hluta dags,
milli 5 og 6, eftir því hvaða bátur
er notaður. Fjölskrúðugt fuglalíf
er í eynni og eftir stutta göngu-
ferð með leiðsögn er ferðamönnum
boðið upp á heimabakaðar veiting-
ar í Viktoríubæ.
Einnig bjóða þeir Konráð og
synir hans ferðir í Jökulfirði og á
Hornstrandir auk þess sem þeir
fara með hópa í skemmtisiglingar,
svo sem sólarlagssiglingar og sigl-
ingar þar sem tekið er land í djúp-
inu.
*
Odýr gisting á
Akureyri
Leigjum út 2-4 manna íbúðir
á besta stað í bænum.
Studio - fbúðir
Strandgötu 13, sími 461 2035
Með Baldrí yfir
Breiðafjörð
Frá Stykkishólmi kl. 10:00 og 16:30
Frá Btjánslœk kl. 13:00 og 1930
Ávallt viðkoma
íFlatey
FERJAN BALDUR
Símar 4381120 í Stykkishólmi
4562020 á Brjánslœk
Pennavinir í 210 löndum.
International Pen Friends.
Sími 881 8181.
Blönduósi - Á Sveitasetrinu á
Blönduósi hafa verið gerðar tölu-
verðar endurbætur að und-
anförnu. Breytingarnar ná yfir
gestamóttöku, veitingasal og her-
bergi. Óskar Húnfjörð fram-
kvæmdastjóri Sveitasetursins
segir breytingarnar stefna í
„klassiska" átt. „Það má segja að
við séum að vekja upp tímabilið í
kring um 1930. Húsgögnin í her-
bergjunum eru íburðarmikil, við
leitumst við að ná upp hlýlegu
andrúmslofti og skapa aðstæður
sem gera það einstakt að koma
og gista á Sveitasetrinu,“ sagði
Óskar Húnfjörð. Jafnframt þess-
um breytingum hefur Sveitasetrið
komið sér upp heimasíðu á alnet-
inu þar sem fólk getur m.a. skoð-
að herbergin áður en pantað er.
Heimilisfangið á alnetinu er
www.hunfjord.is og netfangið er
Info(a)hunfjord.is
Sími: 551 9800 og 551 3072
Eyjaferðir
"Grandferðir," útileguferðir,
grillferðir o.fl.
Leitið upplýsinga eða tilboöa.
Sætaframboð fyrir allt
að 180 manns.
Eyjaferði
Upplýsingasími 438 1450,
Aðalgötu 2, Stykkishólm
Bókanir og upplýsingar í sima 438
- Styhhishólmi
Ógleymcuilegt
œvintýri!
• Skelfiskveiði og smökkun
• Fuglaparadis
• Ólýsanleg náttúrufegurð
• Hvalaskoðun
• Lifandi leiðsögn í hverri
ferð
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
ÓSKAR Húnfjörð framkvæmdastjóri Sveitasetursins í einu hinna
nýuppgerðu herbergja hótelsins.