Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 07.08.1997, Blaðsíða 22
22 FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Hungurs- neyðin versnar Richard Holbrooke beitir sér á ný á Balkanskaga Leiðtogar staðfesta réttindi flóttamanna Hong Kong, París, New York. Reuter. HUNGURSNEYÐIN í Norður-Kóreu hefur versnað til muna að undan- förnu. Starfsmenn alþjóðlegra hjálp- arstofnana í landinu þjáða, sem lýtur stalínskri stjórn, sögðu í gær að nú væri fólk þar í landi farið að tala opinberlega um að böm væru að deyja úr hungri. í sameiginlegu ákalli til þjóða heims um að koma sveltandi íbúum N-Kóreu til hjálpar sögðu fulltrúar hjálparstofnananna Caritas, Oxfam og Rauða krossins á sameiginlegum fréttamannafundi í Hong Kong í gær, að þörf væri á að minnsta kosti 700.000 tonnum af komi til að íbú- amir eigi sér von um að þrauka fram í október. Þurrkar hafa valdið alvar- legum uppskembresti í N-Kóreu. Norður-kóreskir ráðamenn tóku í gær í New York að nýju upp viðræð- ur við fuiltrúa Bandaríkjanna, Kína og Suður-Kóreu um undirbúning friðarsamningagerðar milli kóresku ríkjanna tveggja. Þessar undirbún- ingsviðræður gegna því takmarkaða hlutverki að ákveða dagsetningu, fundarstað og dagskrá formlegra samningaviðræðna, sem sennilegast þykir að verði í september nk. Split, Brussel. Reuter. FRANJO Tudjman, forseti Króatíu, og Alija Izetbegovic, forseti Bosníu, áttu í gær fund í Split með Richard Holbrooke, sérlegum sendimanni Bandaríkjastjómar, en hann er kominn þangað með það fyrir aug- um að hraða því að friðarumleitan- ir á Balkanskaga beri árangur. Áður en þeir hittust allir þrír lýstu bæði Tudjman og Izetbegovic því yfir að allir bosntskir flóttamenn ættu rétt á því að snúa til baka til heimkynna sinna án þess að þurfa að óttast um öryggi sitt. En Izet- begovic tók fram, að bæði hann og Króatíuforseti, sem hóf annað kjör- tímabil sitt í fyrradag, hefðu ofmet- ið hve hratt mögulegt væri að leyfa flóttamönnum að snúa heim. Yfirlýsing forsetanna kemur í kjölfar fregna af því að „drukkinn króatískur múgur“ hefði flæmt burt um 300 múslimska flóttamenn, sem reyndu að snúa aftur til fyrri heim- kynna sinna í bænum Jajce í mið- hluta Bosníu um helgina. Kveikt var í heimilum flóttamannanna og einn þeirra brenndist til bana. Áður en forsetamir gengu til fundarins með Holbrooke, sem eignaður er mestur hluti heiðursins af Dayton-friðarsamkomulaginu svokallaða, sem batt enda á stríðið í Bosníu í árslok 1995, undirrituðu þeir sameiginlega yfirlýsingu um sjálfstæði Bosníu-Herzegovínu. í yfírlýsingunni heita forsetamir jafnframt að unnið verði að form- legu samkomulagi sem kveði nánar á um „aukna samvinnu“ nágranna- landanna tveggja. Er ætlunin að þetta samkomulag verði tilbúið til undirritunar 1. september nk. Samskiptum við sendiherra hætt Stjóm Lúxemborgar, sem fer nú fyrir ráðherraráði Evrópusam- bandsins (ESB), hefur lagt til að aðildarríkin hætti öllum samskipt- um við sendiherra Bosníu. Níu ESB-ríkjanna fimmtán til- kynntu í fyrradag að þau hygðust ijúfa tengsl sín við sendiherrana til að knýja á um að Serbar, Króatar og múslimar stæðu við ákvæði frið- arsamningsins frá 1995. Utanríkisráðuneytið í Lúxem- borg sagði að ESB-ríkin myndu þó ekki slíta stjórnmálasambandi við Bosniu. Hins vegar yrði orðið við beiðni Carlos Westendorps, sendi- manns Sameinuðu þjóðanna í Bosn- íu, um að samskiptunum við sendi- herrana yrði hætt þar til þarlend stjórnvöld næðu samkomulagi um skiptingu sendiherraembættanna. Ráðamenn í Bosníu höfðu fengið frest til 1. ágúst til að leysa deil- una. Heimildarmenn segja að stjórn múslima hafi skipað alla núverandi sendiherra Bosníu og enginn þeirra hafi fengið samþykki forsætisráðs þjóðanna þriggja, eins og kveðið er á um í friðarsamningnum. Þær eiga að skipta með sér 33 sendi- herraembættum og deila einkum um sendiráðið í Washington. MEÐLIMIR samtakanna „í þágu móður jarðar", sem beijast gegn nýtingu kjarnorku, sjást hér liggja fyrir utan höfuðstöðvar Atlants- hafsbandalagsins i Brussel í gær, í mótmælaskyni við að hernaðar- áætlanir NATO grundvallast enn- þá á fælingarmætti kjarnorku- Mótmæli í Brussel vopna. Samtimis mótmælaaðgerð- um þessum sagði franskur vís- indamaður, sem hefur haft yf- irumsjón með opinberri úttekt á umdeildu endurvinnsluveri fyrir kjarnorkuúrgang i N-Frakklandi, af sér, eftir að hann hafði kallað grænfriðunga „alræðissinna" sem ynnu að því að búa jörðinni „grið- arstórt sameiginlegt sjálfsmorð". Tilfinning-- ar„buga“ geimfara Moskvu. Reuter. PAVEL Vinogradov, geimfarinn sem var skotið á loft í rússneskri geimflaug í fyrradag áleiðis til geimstöðvarinnar Mír, var „bugað- ur af tilfinningum“ í flugtakinu. Þetta sagði yfírlæknir stjómstöðvar Mír í gær. í fylgd með Vinogradov, sem er í sinni fyrstu geimferð, er Anatolí Solovjov, einn reyndasti geimfari Rússa. IVÍmenningunum er ætlað að leysa af þriggja manna áhöfn Mír og freista þess að bjarga geimstöðinni úr þeim ógöngum, sem hún er komin í eftir röð bilana. Tenging í dag í gær var ómannaða Progress- geimfarið, sem flutt hafði birgðir til geimfaranna þriggja, sem þrauka í Mír, leyst frá geimstöðinni til að Soyuz-far Vinogradovs og Solovjovs geti tengzt Mír vand- kvæðalaust. Áætlað er að það ger- ist kl. 17:03 í dag að íslenzkum tíma. Skoðanir Dana skiptar í garð Amsterdam-samnings Evrópusambandsins ANDSTÆÐINGAR og fylgjendur Amsterdam-samningsins um breyt- ingar á stofnsáttmála Evrópusam- bandsins eru álíka margir í hópi danskra kjósenda, samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Óákveðnum hefur fækkað, en þeir eru enn um þriðj- ungur kjósenda. Þjóðaratkvæða- greiðsla verður haldin um samning- inn í Danmörku, að öllum líkindum á fyrri hluta næsta árs. Samkvæmt niðurstöðum skoð- anakönnunar, sem Sonar-stofnunin gerði fyrir Jyllands-Posten, eru 35% kjósenda hlynntir samningn- um og 34% andvígir. Hlutfall þeirra, sem eru óákveðnir eða ætla ekki að kjósa, er 31%. í Amsterdam-samningnum er kveðið á um frekar takmarkaðar breytingar á starfsemi ESB. Á meðal þeirra breytinga, sem senni- lega falla dönskum kjósendum í geð, er að kafla um atvinnumál var bætt I stofnsáttmálann, einstökum ríkjum var tryggður réttur til að hafa strangari löggjöf um umhverf- ismál og lágmarksréttindi launþega Álíka margir með og á móti voru aukin. Ekki varð heldur af áformum um að sameina ESB og Vestur-Evrópu- sambandið, sem Danmörk á ekki aðild að. Hins vegar eru Danir sennilega ekki hrifnir af auknu lög- reglusamstarfí og afnámi landa- mæraeftirlits, en frá þeim ákvæð- um samningsins hafa þeir þó ákveðnar undanþágur. í sunnudagsblaði Jyllands-Post- en er rætt við ýmsa sérfræðinga um Evrópumál um hvað kunni að jLÍr^rju EVRÓPAt gerast, segi danska þjóðin nei við Amsterd- am-samningn- um. Fram kemur að stjórnmála- menn forðist að tjá sig um afleið- ingarnar af ótta við að verða sakaðir um að reka hræðsluáróður, líkt og gerðist fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna um Maastricht-samninginn fyrir fimm árum. Talsmenn atvinnulífsins telja hins vegar að efnahagsleg áhrif af því að hafna samningnum verði neikvæð. í umfjöllun Jyllands-Posten kem- ur fram að hafni Danir samningn- um séu þrír kostir fyrir hendi. í fyrsta lagi að hefja nýjar samn- ingaviðræður ESB-ríkjanna um breytingar á stofnsáttmálanum. Það telja flestir sérfræðingar ólík- legt. „Það er ekki hægt að útiloka nýjar samningaviðræður, en ég ef- ast um að rófan fái að dilla hundin- um,“ segir Peter Vestendorf, ESB- sérfræðingur hjá samtökum iðnað- armanna. Annar kostur er að Danir fái undanþágur frá sumum ákvæðum samningsins, líkt og gerðist eftir að Maastricht-samningnum var hafnað. Ýmsir sérfræðingar telja samningaviðræður varla þess virði, vegna hins rýra innihalds Amster- dam-samningsins. í þriðja lagi nefna sumir viðmæl- endur blaðsins þann kost að Dan- mörk gangi úr ESB og taki upp lauslegri tengingu við sambandið, svipaða þeirri sem Noregur og ís- land hafa samkvæmt EES-samn- ingnum. mm Kínverja dreymir ríkidæmi í GREIN í Dagblaði alþýðunn- ar, málgagni kínverska komm- únistaflokksins, á miðvikudag segir m.a. að óþarft sé að deila um frjálst markaðskerfi. Aug- ljóslega þurfi að opna mark- aðskerfið í þágu framleiðni, þjóðarstyrks og bættra lífs- kjara þannig að Kínveijar geti uppfyllt draum sinn um ríki- dæmi. í greininni er borið í bætifláka fyrir umbætur hins látna leiðtoga Deng Xiaoping og arftaka hans Jiang Zemin en báðir hafa þeir verið gagn- rýndir af harðlínumönnum fyr- ir að víkja af vegi sósíalism- ans. Kínverskir ráðamenn búa sig nú undir komandi flokks- þing þar sem línur verða lagð- ar fyrir næsta áratug. Vilja fieiri heilsdagsstörf TEAMSTER, verkalýðsfélag starfsmanna hraðflutninga- fyrirtækisins UPS í Bandaríkj- unum, hefur nú verið í verk- falli frá því á mánudag. Þó báðir aðilar segist reiðubúnir til viðræðna hafa engar nýjar málamiðlanir komið fram frá því viðræður sigldu í strand um síðustu helgi. Starfsmenn fyrirtækisins krefjast þess m.a. að ráðningum utan verka- lýðsfélaga verði hætt og að búnar verði til nýjar heilsdags- stöður úr hlutastöðum. UPS, sem er stærsta hraðflutninga- fyrirtæki heims, hefur ítrekað en árangurslaust reynt að fá stjómvöld til að hlutast til um málið. Nýr forsætis- ráðherra Kambódíu UNG Huot var í gær kosinn annar af tveimur forsætisráð- hermm Kambódíu á kambód- íska þinginu. Huot nýtur stuðnings Huns Sen, annars forsætisráðherra, sem hrakti Norodom Ranariddh prins úr embætti fyrsta forsætisráð- herra í síðasta mánuði. And- stæðingar Huns Sen hafa lýst kosninguna ógilda og Sihanouk konungur, faðir Ranariddhs, hefur lýst því yfir að hann muni ekki leggja blessun sína yfir að annar maður gegni embætti sem syni hans beri. Dýrar staf- setningar- reglur ÞÝSKIR skólabókaútgefendur óttast milljarða tap verði fyrir- huguð einföldun þýskra staf- setningarreglna afturkölluð. Óvissa ríkir um framgang málsins eftir að dómstóll í Hessen bannaði skólum í sam- bandslandinu að kenna nýju reglumar. Breytingarnar, sem m.a. einfalda reglur um kommusetningu, hafa þegar verið settar inn í kennsluskrár í mörgum skólum í Þýskalandi þótt þær verði ekki bindandi fyrr en árið 2005 og hefur mikill kostnaður verið lagður í að endurprenta kennslubæk- ur í samræmi við þær. STUTT
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.