Morgunblaðið - 07.08.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997 41
HESTAR
Heimsmeistaramótið í hestaíþróttum
Sigurbj örn Bárðarson kon-
ung’iir gæðingaskeiðsins
SIGURBJÖRN Bárðarson sigraði í gæðingaskeiði á Gordon frá
Stóru-Ásgeirsá og var þetta þriðji sigur hans á heimsmeistaramóti.
GULLIN eru farin að streyma til
Islendinga á heimsmeistaramótinu
í Seljord í Noregi því í gær tryggðu
Islendingar sér fjögur gull og ber
þar hæst sigur Sigurbjörns Bárðar-
sonar í gæðingaskeiði á Gordon frá
Stóru-Ásgeirsá. Með þessum ár-
angri er með réttu hægt að segja
að hann sé ókrýndur konungur
gæðingaskeiðsins því þetta er þriðja
heimsmeistaramótið sem hann sigr-
ar á. Þá tryggðu íslendingar sér
þrjú gull í kynbótasýningu stóð-
hesta og voru með alla hestana
þrjá sem kepptu fyrir íslands hönd
í efstu sætum. Er þetta besti árang-
ur sem náðst hefur til hingað til á
þessum vettvangi.
Sigurstemmningin vöknuð
hjá landanum
Keppnin í gæðingaskeiðinu var
æsispennandi og voru íslendingar
þar í fremstu víglínu. Eftir fyrri
umferð var Gylfi Garðarsson, sem
keppir fyrir hönd Noregs á Vali frá
Gerðum, efstur en seinni sprettur-
inn mistókst hjá honum og var þá
ljóst hvar sigurinn lenti. Sigurbjörn
var með báða sprettina vel útfærða
og þótti vel að sigrinum kominn
enda með yfirburðaeinkunn, 8,30.
Aðalsteinn Aðalsteinsson, sem
keppir fyrir Noreg, varð annar á
Dalvari frá Hrappstöðum með 7,59.
Karly Zingsheim Þýskalandi varð
þriðji á Feyki frá Rinkscheid með
7,46. Heiðar Hafdal, sem keppir
fyrir Holland á Steingrími frá
Glæsibæ, varð fjórði með 7,41 og
Lothar Schenzel Þýskalandi fimmti
á Gammi frá Krithóli með 7,16.
Atli Guðmundsson var í fjórða
sæti eftir fyrri umferð á Hróðri frá
Hofstöðum með 7,75 en niðurhæg-
ingin í seinni umferðinni mistókst
og fékk hann 0 fyrir það atriði og
hafnaði því í tíunda sæti með 5,83.
Af öðrum íslenskum keppendum
varð Höskuldur Aðalsteinsson, sem
keppir fyrir Austurríki á Silfurtoppi
frá Sigmundarstöðum, í áttunda
sæti með 6,92 og Smári Steingríms-
son, sem keppir fyrir hönd Breta,
varð í tuttugasta sæti á Fagrablakk
frá Ðalsmynni.
Þessi árangur Sigurbjöms hleyp-
ir krafti í íslenska liðið og áhang-
endur þeirra en töluverður fjöldi
íslendinga er kominn á staðinn og
fleiri eru væntanlegir. Sigur-
stemmning ríkti meðal þeirra í gær
enda alltaf léttir þegar gullið i
gæðingaskeiðinu hefur verið inn-
byrt. Gæðingaskeiðið er vissulega
íslensk grein enda nánast alltaf
náðst sigur í henni.
Fimm gull kynbótahrossa
Allir stóðhestarnir frá íslandi
hækkuðu sig í yfirlitssýningu í gær
og tryggðu sér gullverðlaun. Feng-
ur frá íbishóli, sem Jóhann R.
Skúlason sýndi, varð efstur 5 vetra
hesta með 8,23, Glaður frá Hóla-
baki, sem Sigurður Matthíasson
sýndi, varð efstur 6 vetra hesta
með 8,21 og Breki frá Eyrarbakka,
sem Angantýr Þórðarson sýndi,
varð efstur hesta 7 vetra og eldri
með 8,09. Aðeins einn hestur annar
náði einkunn yfir 8,0 en það var
Feykir frá Sötofte, sem Þórður
Jónsson sýndi, en hann hlaut 8,06.
Niðurstaðan úr kynbótasýningunni
er því glæstur sigur Islendinga,
hrossin héðan efst í fimm flokkum
af sex og í öðru sæti í þeim sjötta.
Ekki var frammistaðan í slak-
taumatöltinu eins góð enda ekki
lögð mikil áhersla á hana af hálfu
íslendinga. Eftir forkeppni stendur
efst Michela Uferbach frá Austur-
ríki á Goða frá Arnarstöðum með
7,67, Martin Heller Sviss kemur
næstur á Svipi frá Hvalsá með 7,37,
Els van der Tas Hollandi þriðja á
Hilmi frá Skjóðu með 7,30, Ladina
Sigurbjörnsson Sviss fjórða á Þorra
frá Meðalfelli með 7,00 og Björn
Roar Larsen Noregi á Stelpu frá
Brekkum fimmti með 6,83. Sigur-
björn varð í 15. sæti með 6,40, Sig-
urður Matthíasson 16. á Hugin frá
Kjartansstöðum með 6,30 og Atli
Guðmundsson 18. með 5,87.
í dag hefst dagskrá með fjór-
gangi þar sem þeir Höskuldur Jóns-
son, Vignir Siggeirsson og Páll
Bragi Hólmarsson verða í eldlín-
unni. Þrátt fyrir góðan árangur í
dag eru menn hóflega bjartsýnir
með íjórganginn en visssulega
hleypir það meiri spennu í leikinn
að hestur núverandi heimsmeistara
Jolly Screnk frá Þýskalandi hefur
verið haltur og óljóst hvort þau
mæti til leiks. Þá verður keppt í
fímmgangi og þar ganga menn með
meiri vonir í brjósti. Þar keppa þeir
Sigurður V. Matthíasson, nýbakað-
ur heimsmeistari, Sigurbjörn og svo
Atli Guðmundsson. Vonir standa til
að þeir nái allir þrír inn í A-úrslit
en vissulega verður keppnin hörð.
Engir íslendingar taka þátt í fimi-
keppninni sem einnig fer fram í dag.
Hitastigið fór heldur hækkandi í
gær og komst yfír þijátíu gráður í
hinum þrönga og fagra Seljorddal
og er með ólíkindum hvað hestarn-
ir geta í þessum hita. Á morgun
er spáð skýjuðu veðri og jafnvel
rigningu.
Valdimar Kristinsson
Ath Sendum í póstkröfu.
Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730.
Fax 562-973/
DRESSMANN
ALLAR
STUTTERMA-
SKYRTUR ÁÐUR1490
NÚ 1/2 VERÐ
ALLAR
SUMARBUXUR 1
BUSINESS CLASS
JAKKAFÖT f 1J.QOO
AÐUR 19900 NU
STAKIR
JAKKAR
ÓHÁÐ FYRRA VERÐI
4900
SKOR
AÐUR 3980
OG 2980
NU
1980
ALLAR
VOR OG SUMAR-
PEYSUR