Morgunblaðið - 07.08.1997, Side 56
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 7. ÁGÚST 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Stefnir í að útgjöld til sjúkratrygginga
fari 430 milljónir fram úr áætlun
Lyfjaútgjöld
verða óbreytt
milli
ÚTLIT er fyrir að útgjöld vegna
sjúkratrygginga fari 430 milljónir
fram úr fjárlögum á þessu ári.
Mestu munar um meiri útgjöld
vegna lækniskostnaðar, vistgjalda
til sjúkrastofnana og sjúkraþjálfun-
ar. Útlit er fyrir að útgjöld vegna
lyfjamála verði óbreytt milli ára, en
það þýðir að þau fara 50 milljónir
fram úr áætlun.
Á síðasta ári námu útgjöld ríkis-
ins vegna lyfjakaupa 3.651 milljón,
en þau hafa að jafnaði aukist ár frá
ári. Stefnt var að því í fjárlögum að
spara 50 milljónir á þessu ári, en að
sögn Kristján Guðjónssonar, deild-
arstjóra hjá Tryggingastofnun rík-
isins, er útlit fyrir að það takist ekki
og lyfjaútgjöldin verði þau sömu og
í fyrra. Um síðustu áramót var grip-
ið til ýmissa aðgerða til að hamla á
móti lyfjaútgjöldum. Álagning var
lækkuð og hlutdeild sjúklinga í
lyfjaverði var hækkuð.
Sjúkraþjálfun fer 80
milljónir fram úr
Útlit er fyrir mun meiri framúr-
keyrslu í útgjöldum eins og sjúkra-
þjálfun. Steftit var að því að til
ára
sjúkraþjálfunar færu 400 milljónir í
ár, en útlit er fyrir að útgjöldin verði
480 milljónir. Akveðið hefur verið að
breyta reglum um þátttöku TR í
kostnaði við sjúkraþjálfun og koma
nýju reglumar til framkvæmda 1.
september nk. Nú er hægt að sækja
um 100% þátttöku TR í kostnaði við
sjúkraþjálfun og hefur þessi liður
hækkað um 20-30% milli ára. Trygg-
ingaráð hefur samþykkt að taka upp
nýtt kerfi í sjúkraþjálfun sem miðar
að því að lækka kostnað hjá bömum
og elli- og örorkulífeyrisþegum, en
aðrir koma til með að greiða meira.
Liðurinn vistgjöld á stofnunum
stefnir í að fara 100 milljónir fram
úr áætlun. Kristján sagði að ástæð-
an væri sú að nýting á rúmum hjá
stofnunum í daggjaldakerfinu væri
mun betri en gert var ráð fyrir.
Þá stefnir í að útgjöld vegna
lækniskostnaðar fari 110 milljónum
fram úr áætlun. Ástæðan er sú að
áætlunin byggði á vonum um lækk-
un útgjalda í samningum við lækna,
en þær ætla ekki að ganga eftir.
Samtals er útlit fyrii- að útgjöld
vegna sjúkratrygginga fari 430
milljónir fram úr áætlun fjárlaga.
Reuter
Bjarni
á braut
um jörðu
HINDRI veður ekki fyrirætlan-
ir bandarísku geimferðastofn-
unarinnar (NASA) verður geim-
ferjunni Discovery skotið á loft
klukkan 14:41 að íslenskum
tíma í dag. I áhöfninni er ís-
Ienski geimfarinn Bjarni
Tryggvason.
I gærkvöldi voru helmings lík-
ur taldar á að skýjafar, vindur
og hugsanlega rigning gætu taf-
ið geimskot um einn sólarhring
eða tvo. Samkvæmt upplýsing-
um NASA voru áhöfnin og geim-
ferjan að öllu öðru leyti tilbúnar
til ferðarinnar og starfsemi feij-
unnar i fullkomnu lagi.
Bjarni Tryggvason er fyrsti
maðurinn sem fæddur er á
Norðurlöndunum til að fara út í
geiminn og á vegum NASA hef-
ur mönnum frá einungis 16
löndum verið skotið á loft.
Hann var á sínum tíma valinn
ásamt fimm öðrum úr hópi
4.300 umsækjenda sem geim-
faraefni kanadisku geimvís-
indastofnunariimar.
Á myndinni sýnir Bjarni
stoltur mynd sem níu ára dóttir
hans, Lauren Stefanía, afhenti
honum á Canaveralhöfða í gær.
■ Á braut í 300 km hæð/28
Þrastarungar
í blómapotti
SKÓGARÞRASTARMAMMAN færir
björg í bú, en ungamir fjórir una hag
sínum vel í blómapottinum sem hangir
á verönd fjölskyldunnar á Garðaflöt í
Garðabæ.
Að sögn Drafnar Snæland húsmóð-
ur á Garðaflöt voru skógarþrestirnir
búnir að gera sér hreiður í blómapott-
inum þegar heimilisfólkið kom úr
helgarfríi fyrir um fjórum til fimm
vikum. Skömmu sxðar voru komin
fjögur lítil þrastaregg í hreiðrið og
ekki leið á löngu þar til ungarmr fjór-
ir skríðu úr eggjunum. Dröfn segir að
heimilisfólkið hafi fylgst vel með lífi
þrastarfjölskyldunnar og að húsbónd-
inn á bænum hjálpi stundum til með
því að tína ánamaðka fyrir hana og
sefji i skál.
Morgunblaðið/Kristinn
Ræningjar hótuðu starfsmanni lífláti
Höfðu um 1,2 milljónir
króna á brott með sér
AFGREIÐSLUMANNI spilasal-
arins Háspennu við Hlemmtorg
var hótað lífláti af mönnum, sem
réðust á hann og misþyrmdu
honum áður en þeir höfðu á brott
með sér u.þ.b. 1.200 þúsund krón-
ur úr skiptivél spilasalarins.
Atburður þessi átti sér stað að-
faranótt síðastliðins sunnudags.
Samkvæmt upplýsingum lögreglu
ber starfsmaðurinn, sem er 27 ára
gamall karlmaður, að hann hafí
verið staddur bakatil í salnum
þegar hann fékk högg á höfuðið
og hafi vankast við það. Þvínæst
var hann dreginn niður í kjallara
þar sem haldið var áfram að berja
hann og honum hótað lífláti ef
hann lægi ekki kyrr.
Árásarmennimir, sem voru að
minnsta kosti tveir, tóku lykla af
starfsmanninum, opnuðu skipti-
vél, tóku úr henni um 1.200 þús-
und krónur í seðlum og skipti-
mynt og höfðu á brott með sér.
Starfsmaðurinn tilkynnti síðan
um atburðinn. Að sögn lögreglu
munu áverkar hans ekki hafa ver-
ið alvarlegir.
Málið er í rannsókn.
Kærur vegna meintra brota á
lögum um mengun sjávar
Mál Hollustu-
verndar felld nið-
ur hjá saksóknara
HOLLUSTUVERND hefur á síð-
ustu árum sent nokkur mál til emb-
ættis ríkissaksóknara til ákæru.
Þessi mál varða brot á lögum um
vamir gegn mengun sjávar s.s. eins
og losun grútar í sjó. Undantekn-
ingalítið hafa málin verið felld niður
hjá ríkissaksóknara.
Að sögn Davíðs Egilsonar, for-
stöðumanns mengunardeildar sjávar
hjá Hollustuvernd, hafa ekki fengist
skýr svör frá ríkissaksóknara um
ástæður þess að ekki er ákært í mál-
unum. Áf þeim sökum hefur Holl-
ustuvemd skrifað umhverfisráð-
herra bréf þar sem óskað er liðveislu
í málinu. Davíð sagði að með því að
ákæra ekki í þessum málum væri
ákæravaldið að gefa þau skilaboð að
þessi mál væra léttvæg.
I samtali við blaðið sagðist Guð-
mundur Bjamason umhverfisráð-
herra taka undir gagnrýni Hollustu-
verndar. „Við eram sammála Holl-
ustuvemd um nauðsyn þess að þess-
um málum sé fylgt eftir af meiri
hörku en gert hefur verið,“ sagði
Guðmundur.
Svör hafa ekki fengist frá embætti
ríkissaksóknara um hvers vegna mál
Hollustuverndar hafa verið felld nið-
ur hjá embættinu.
■ Erfitt að ákæra/29
ESB veitir 60 milljdn-
ir til rannsókna
EVRÓPUSAMBANDIÐ (ESB) hef-
ur samþykkt að veita 60 milljónir
króna úr rannsóknarsjóðum sínum
til hugbúnaðarverkefnis hér á landi.
Þetta er einn stærsti styrkur af
þessu tagi sem Evrópusambandið
hefur veitt til íslensks rannsóknar-
verkefnis.
Hugbúnaði þessum er ætlað að
bæta upplýsingar fyrir stjórnendur
fyrirtækja í sjávarútvegi. Alls
standa sex íslensk fyrirtæki að verk-
efninu auk þriggja fyrirtækja frá
Frakklandi, Danmörku og Noregi.
Þróunarfélag Vestmannaeyja mun
annast stjórnun verkefnisins en
Tæknival mun leiða vinnu við hönn-
un hugbúnaðarins.
■ Einn stærsti/B3