Morgunblaðið - 15.08.1997, Síða 5
4 C FÖSTUDAGUR 15. ÁGÚST 1997
Morguublaðið/Ásdís
ÞETTA er danskur vagn! Harald Snæhólm
flugstjóri selur pylsur í frfstundum.
VINUR Frosta kaupir sér pylsu því hinir kúnnarnir eru að synda.
Pylsur
eru líka tómstundagaman
„SÆKTU pylsubrauð,"
segir Þórunn Hafstein við
Harald Snæhólm flug-
stjóra. Hún lítur á við-
stadda og bætir við til út-
skýringar „það vantar
allt“. Sólin skín við Kópa-
vogslaugina en Harald er í
skugganum að afgreiða. Af
hveiju? „Ætli megi ekki
líta á þetta sem tóm-
stundagaman," segir hann.
„Kunningi kunningja mfns
f Englandi framleiðir
pylsuvagna og selur til
Rússlands. Mér datt í hug
að kaupa slíkan vagn til
þess að hafa hér í Kópa-
voginum. Ég er hugdettu-
maðurinn."
Ekki svo að skilja að
Harald ætli að vera í vagn-
inum að afgreiða þegar
hann er ekki að fljúga, því
hann á sjö ár eftir í starfi.
„Ég er einn af þessum upp-
runalegu Kópavogsbúum.
Kom hingað árið ‘49 og hef
fylgst með þróun bæjarins
frá upphafi. Hér voru bara
örfá hús. Það kom aldrei annað til
greina en að hafa vagninn hér,“
segir hann trúr uppruna si'num.
Einar Pétursson kaupmaður
var upphaflega í félagi við Har-
ald, sem nú sinnir rekstrinum
með Þórunni konu sinni og Jóni
Kristni, syni þeirra hjóna. Þá er
hann með vinnumann, Frosta
Runólfsson, enda aldrei heima.
Rauðar og feitar
Harald er eftirlitsflugstjóri hjá
Flugleiðum og býst við að verða á
Englandi að mestu leyti á næst-
unni. Ekki svo að skilja að hann
sleppi hendinni alfarið af rekstrin-
um, því fleiri hugdettur eru ekki
langt undan. Eins og til dæmis að
selja rauðar pylsur, feitar danskar
og brauðlausar. En alls ekki með
rauðkáli. Kannski súru.
„Vagninn setur danskan svip á
bæinn, sem vantaði alveg,“ segir
Harald og lætur sem greinarhöf-
undur sjái ekki gulu og bláu rend-
urnar við kantinn að neðanverðu.
- En þetta er sænskur vagn.
„Nei, nei,“ segir hann og vendir
sínu kvæði í kross. „Svo datt mér f
hug að hægt væri að hafa vagninn
í garðveislum og barnaafmælum."
Hvað skyldi Þórunni finnast um
það?
hke
4-
_______________________________________MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Linda Björg Arnadóttir fatahönnuður skilur ekki konur sem ganga
í óþægilegum tískufötum og skóm sem aflaga fæturna. Hún segir
Hrönn Marinósdóttur m.a. frá starfí sínu fyrir japanskan
___tískuhönnuð og frá fatnaði framtíðarinnar sem var_
útskriftarverkefni hennar frá fatahönnunarskóla í París.
Fatnaður
í anda framtíðar
Morgunblaðið/Bjöm Gislason
LINDA Björg Árnadóttir í Dior-jakka sem
hún keypti á flóamarkaði.
ÉG hafði upp á
Lindu Björgu á
■K rannsóknar-
</> stofu Skinnaiðn-
^ aðarins hf. á
Akureyri en þar
hefur hún verið önn-
um kafin undanfarið
við að prófa ýmsar
leðurtegundir til fata-
framleiðslu fyrir jap-
anska tískuhönnuðinn
Koji Tatsuno. „Sá
japanski er þekktur í
tískuheiminum fyrir
að gera mjög nýstár-
lega efni en í dag var
ég til dæmis að
bjástra við að líma
með lakki þurrkuð
fiðrildi á leðrið. Fiðr-
ildin eru stór og falleg
en hann varð sér úti
um fiðrildasafn frá ár-
inu 1940 og fannst til-
valið að nota þau í
eitthvað fallegt." I
París rekur Tatsuno
gallerí þar sem til
sýnis og sölu eru ein-
ungis örfáar flíkur í
einu. Linda Björg hef-
ur verið að vinna fyrir
hann af og til frá ára-
mótum en sl. vor lauk
hún tveggja ára námi
í fatahönnun frá
Studio Becot í París.
Búningahönnuður
og stílisti
klæðaburði en konur. Þær
virðast margar hverjar reyna
að klæða sig ens og kyntáknið
Pamela Anderson en það
finnst mér alls ekki spenn-
andi.“
Framúrstefnulegur skóli
Fatahönnunarskólanum í
París lýsir Linda Björg sem
mjög framúrstefnulegum.
„Ymsir straumar og stefnur
eru í gangi í skólanum, allt er
leyfilegt en ég ákvað að ein-
beita mér að formi og rými
flíka en hætta allri efnisdýrk-
un sem ég hafði lagt ofurá-
herslu á, enda er ég menntað-
ur textílhönnuður frá Mynd-
og handíðaskólanum. En það
gerist oft í fatahönnun þegar
verið er að vinna áhugavert
efni að þættir eins og form og
rými verða útundan. Að mínu
mati ber útskriftarverkefni
mitt vott um þessar pælingar."
Nemendur sem útskrifast
frá Studio Becot eru eftir-
sóttir í fatahönnun og
þeim hefur alla jafna
gengið vel í starfi, að
sögn Lindu Bjargar.
Skólastýran sem er um
sjötugt kom henni meðal
annars á framfæri við
japanska snyrtivörufyr-
irtækið Shiseido og fyrir
þá hefur hún unnið hug-
myndavinnu, átti meðal
annars að koma með hug-
mynd að dæmigerðri alda-
mótakonu í París.
I framtíðinni ætlar
Linda Björg að hanna
meira af fatnaði sem hent-
ar báðum kynjum. „ Mér
finnst að fötin eigi að vera
„uni-sex“, jafnvel kjólar
eiga einnig að vera fyrir
karlmenn. Annars eru pils
og kjólar í andstöðu við þær
„fúnksjónpælingar“ sem ég
aðhyllist þar sem yfirleitt er
fremur óþægilegt að hreyfa
sig í þeim.“
Nám i prjónahönnun
í haust heldur hún á ný til
Parísar en þar hyggst hún starfa í
vetur við fatahönnun. Næsta ár er
stefnan hins vegar tekin á Bretland,
nánar tiltekið í meistaranám í
prjónahönnun við Royal College há-
skólann í London. „Prjónafatnaður
er það sem ég hef áhuga fyrir," seg-
ir Linda Björg. „Hægt er að prjóna
allan fatnað og fyrir fatahönnuð er
gaman að vinna með efni sem hann
prjónar sjálfur. Árið 2000 verð ég
því kannski farin að hanna prjóna-
kjóla og pils fyrir konur jafnt sem
karlmenn.“
BOLIR, skyrtur og buxur voru mcðal flíka sem Linda Björg hannaði í skólanum Studio Becot í París. Fyrirsætan heitir Anna
Helga Jónsdóttir frá Eskimo Models en myndirnar voru teknar í Rauðhólum fyrr í sumar.
Marga rekur sjálf-
sagt minni til þess er
Linda Björg hlaut 1.
verðlaun í Smirnoff,
alþjóðlegri fatahönn-
unarkeppni, árið 1995
en þá hannaði hún
gagnsæjan kjól úr
kindavömbum sem
hlaut mikla athygli.
Einnig hefur hún get-
ið sér gott orð fyrir
hönnun kjóla í sam-
starfi við kvikmynda-
fyrirtækið Kjól og
Anderson og Gus Gus
fjöllistahópinn. Það samstarf stend-
ur enn yfir en í mars á næsta ári er
væntanleg á markað ný lína frá
þeim. Einnig hefur hún hannað
búninga og verið stflisti í íslenskum
kvikmyndum og vinnur nú meðal
annars að gerð búninga í leikritið
Ðraumsóleyjar eftir Gyrði Elías-
sonsem tekið verður til sýninga í
haust.
Ljóðrænn minimalismi í fatnaði
Útskriftarverkefni Lindu Bjargar
samanstendur af fjórum gerðum af
buxum, jökkum og toppum sem
bera með sér einfalt yfirbragð. Flík-
umar geta hentað báðum kynjum
þótt þær hafi verið hannaðar fyrst
og fremst fyrir kvenfólk. Ljóðrænn
minimalismi lýsa hönnuninni einna
best að mati Lindu Bjargar. „Þá á
ég við hrein og tær form, en mikla
litadýrð. Ég hafði að markmiði að
hanna fót sem veita innsýn í hvemig
klæðnaður fólks verður hugsanlega
á næstu öld. Reyndar eru svokölluð
framtíðarfót nú þegar orðin klisja
því fólk hugsar um geimbúninga og
stjörnustríðsmyndir þegar orðið er
nefnt. Það er hins vegar heilmikil
áskomn fyrir mig að gera klisju sem
þessa ferska að nýju.“
Allar eins og Pamela
Franskt tískutímarit, Color
Purple, mun í október birta myndir
af útskriftarverkefni Lindu Bjargar.
„Ég er mjög ánægð með þann áhuga
því tímaritið fylgist vel með tísku-
þróun og er mjög athyglisvert.
Greinarnar em til skiptis skrifaðar á
þremur tungumálum; ensku,
frönsku og japönsku."
„Konur láta oft á tíðum segja sér
hvernig skuli klæðast en það á sjálf-
sagt rót sína að rekja til lélegrar
sjálfsmyndar þeirra," heldur Linda
Björg fram. „Eg skil til dæmis ekki
hvernig hægt er fá þær til að nota
svona þröngan og óþægilegan fatn-
að sem mikið virðist vera í tísku.
Meira að segja er vinsælt að ganga
í svo fáranlegum skóm að fæturnir
verða meira og minna beyglaðir eft-
ir nokkurra mánaða notkun. Hér-
lendis eru karlmenn oft á tíðum
mun frumlegri og frjálslegri í
_________________________________FÖSTUDAGUR15. ÁGÚST 1997 C 5
DAGLEGT LÍF
NORÐURLÖND
Velferðarkerfi
eftir seinni heimsstyrjöld
*
Islendingar státa sig af
ýmsu, til dæmis því að
vera ein af hamingju-
sömustu þjóðum
heims. Nýlega kom út
bók sem fjallar um
velferðarkerfíð á
Norðurlöndum.
Helga Barðaddttir
kynnti sér hvort
samanburðurinn
✓
væri Islandi í hag.
HLUTFALLSLEGA fleiri aldraðir
búa á stofnunum hér á landi saman-
borið við hin Norðurlöndin en það er
eitt af því sem kemur fram í bókinni
Social Care Services, The key to the
Scandinavian Welfare Model. Bókin
er unnin innan fimm háskóla á Norð-
urlöndunum, Islandi, Danmörku,
Svíþjóð, Noregi og Finnlandi, og
fjallar um þróun félagslegrar þjón-
ustu þar. Megináhersla er lögð á að
lýsa hvemig opinber dagvist fyrir
börn og þjónusta við aldraða hefur
þróast frá seinni heimsstyrjöldinni í
Finnlandi, Svíþjóð, Noregi, Dan-
mörku og á íslandi. í bókinni er fjall-
að um hugtakið „félagsþjónusta",
verkaskiptingu ríkis og sveitarfélaga
auk þess sem rætt er um kynferði og
félagsþjónustu. Lögð er áhersla á að
greina og bera saman sérkenni þró-
unar félagsþjónustu á Norðurlönd-
um frá sögulegu sjónarhorni og þau
borin saman við félagsþjónustu í V-
Evrópu.
Þær Guðný Björk Eydal, Ingi-
björg Broddadóttir, Steinunn
Hrafnsdóttir og Sigurveig H. Sig-
urðardóttir, kennarar í félagsráðgjöf
við Hí, gera grein fyrir séreinkenn-
um íslenskrar félagsþjónustu. Blaða-
maður ræddi við Steinunni Hrafns-
dóttur um bókina og þann hluta sem
snýr að íslandi.
Að sögn Steinunnar ræða þær um
hvaða pólitísku öfl höfðu áhrif á þró-
unina og hvaða hugmyndafræði lá
þar að baki. I niðurstöðunum er
þeirri spumingu svarað hvort Island
tilheyri norræna velferðarkerfinu.
„Við könnuðum sögulegar heimildir,
lög, reglugerðir, frumvörp, opinberar
skýrslur, tölfræðigögn og eldri rann-
sóknir á þessu sviði,“ segir Steinunn.
Hún segir að lítið hafi verið rannsak-
að varðandi félagslega þjónustu á Is-
landi eins og dagvistunar- og öldrun-
armál, og höfðu þær því lítið annað
en frumgögn til að styðjast við.
Framfærslumál á þjóðveldisöld
Vísir að opinberu velferðarkerfi
varð til mjög snemma og má rekja
upphaf félagslegrar þjónustu aftur
til þjóðveldisaldar þegar landinu var
skipt í hreppa, en meginástæða
hreppamyndunar var framfærslu-
mál. „Langt fram eftir öldum var fé-
lagsleg þjónusta veitt inni á heimil-
um og enn þann dag í dag virðast
fjölskyldur gegna stóru hlutverki í
umönnun barna og aldraðra. Þær
kannanir sem gerðar hafa verið
benda til þess að fjölskyldutengsl
séu sterkari hér en annars staðai- á
Norðurlöndunum."
Steinunn sagði að uppbygging
stofnana hafi hafist seinna hér, og er
það sennilega vegna þess hversu
seint iðnvæðing og þéttbýlisþróun
komu til sögunnar. „Annað sem
skapar sérstöðu er að verkalýðsfélög
og ýmsar góðgerðarstofnanir léku
tiltölulega stórt hlutverk hérlendis í
þjónustu við böm og aldraða."
Ef vikið er að dagvistarmálum er
Morgunblaðið/Jim Smart
STEINUNN Hrafnsdúttir er einn
fjögurra höfunda íslenska kaflans.
Framlag til félagslegrar
þjónustu sem hlutfall af
vergri landsframleiðslu
árið 1992
Danmörk 31,5%
Finnland 35,4%
ísland 18,9%
Noregur 30,8%
Zæ. ZZ
Svíþjóð 38,7%
Tekið úr skýrslu N0S0SK0, Social
tryghed i de nordiske lande, 1995
stefnan hér svipuð og annars staðar.
„Það er athyglisvert hve þróunin
hérlendis er lík því sem gerist í Nor-
egi. Ef litið er til laga um leikskóla á
það bæði við um Noreg og Island að
lögð er áhersla á uppeldis- og mennt-
unargildi leikskóla. Á meðan Dan-
mörk og Svíþjóð virðast hafa tekið
meha tillit til vinnumarkaðssjónar-
miða og stefnu í bameignarmálum
við skipulagningu þessa málaflokks."
Að sögn Steinunnar hafa ísland og
Noregur haft færri dagheimilispláss-
um á að skipa en Danmörk og Sví-
þjóð, en þó er bilið að minnka.
Öðruvísi hugsunarháttur
Eitt er það sem gerir greinarmun
á dagvistunarmálum í Noregi og ís-
landi en það er dagmæðrakerfið. „Á
íslandi er stærra hlutfall barna hjá
dagmæðrum en í Noregi. Þetta
stafar líklega af því að hlutavistun er
algengari hér en á hinum Norð-
urlöndunum. Fæðingarorlof
er styttra, flest íslensk böm
fá ekki aðgang að leikskóla
fyrr en 2 ára og forgangshóp-
ar hafa hingað til einungis
haft aðgang að 8 stunda leik-
skóla,“ segh Steinunn.
Hvað öldrunarmál varðar
höfum við mikla sérstöðu. Meg-
ineinkennið er sterkur einka-
geiri og að hátt hlutfall aldraðra
býr á stofnunum. „Hugmyndin
um að aldi-aðh eigi rétt á að búa
eins lengi á heimili sínu og unnt
er, með aðstoð frá ríki eða sveitar-
félagi, vhðist hafa komið síðar tO
sögunnar hérlendis en í nágranna-
löndunum. Helstu skýringar á
þessu eru að fjöldi og stærð stofn-
ana fyrh aldraða hafi hindrað þróun
heimilishjálpar hér á landi. Það gæti
einnig haft sitt að segja að heimilis-
hjálp hefur verið greidd af sveitarfé-
lögum meðan ríkið hefúr kostað
stofnanavist. Sveitarfélög sem hafa
lítið fjárhagslegt bolmagn tO að
sinna þessari þjónustu hafa því ef tO
vill freistast tO að visa öldruðum á
stofnanh fremur en veita þeim heim-
Oishjálp. Þrátt fyrh þetta sýna tölur
frá 1993 að ísland hafði hæst hlutfall
aldraðra á Norðurlöndum sem fékk
heimilshjálp og heimahjúkrun, en
þær tölur segja okkur ekkert um
gæði eða magn þjónustunnar,“ segh
Steinunn.
Hún segh að þegar Norðurlöndin
eru borin saman kemur í ljós að Is-
land eyðh minnstu tO félagslegrar
þjónustu af vergri landsframleiðslu,
sjá töflu. Einnig segh hún það at-
hyglisvert að við eyðum minnstu
Norðurlandanna tO þjónustu við fjöl-
skyldur og böm, enda þótt við séum
yngst Norðurlandanna, eignumst
fleiri böm og konur taki mikinn þátt
á atvinnumarkaði.
ísland tilheyrir Norræna vel-
ferðarkerfinu
„Þrátt fyrh ofangreindan mun er
það samt sem áður svo að Islending-
ar hafa þróað þjónustu á þessum
sviðum sem svipar mjög til þess sem
gerist á Norðurlöndunum, sérstak-
lega ef litið er tíl lagasetningar og
þeirrar hugmyndafræði sem liggur
að baki.“
Niðurstaða verkefnisins varð sú
að Island tilheyrh hinu Nomæna
velferðarkerfi hvað þessar tegundh
félagslegrar þjónustu varðar. „Út-
gjöld til umræddrar félagslegrar
þjónustu eru vissulega lægri og um-
fang þjónustunnai- er minna en ger-
ist á hinum Norðurlöndunum. En
þrátt fyrh þessar staðreyndh er það
svo að samkvæmt tölfræðinni standa
íslendingar lítt að baki Norður-
landaþjóðunum ef litið er til fjölda
þeirra sem njóta þjónustunnar. En
það krefst frekari rannsókna ef
svai-a á spumingum sem varða gæði
eða magn þeirrar þjónustu sem veitt
er,“ sagði Steinunn.
Notaðu aðeins það besta,
notaðu TREND snyrtivörur
Með TREND nærðu árangri.
TREND naglanæringin styrkir
neglur. Þú getur gert þínar eigin
neglur sterkar og heilbrigðar.
TREND handáburður með Duo-
liposomes, ný taekni sem vinnur
inní húðinni. Einstök gæðavara.
Snyrtivörumarjrá TREND eru fáanlegar
í apótekum og snyrtivöruversíunum um
land allt. Einnig í Sjónvarpsmarkaðnum.
Tí^c/VЮ
COSMETICS
Einkaumboð og heildsala
S. Gunnbjörnsson £ CO,
Iðnbúð 8, 2ioCarðabæ.
Símar 565 6317 og 897 3317. Fax 565 8217.