Morgunblaðið - 26.08.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.08.1997, Qupperneq 6
6 B ÞRIÐJUDAGUR 26. ÁGÚST 1997 KNATTSPYRNA MORGUNBLAÐIÐ ÍA fylgir ÍBV eins og skugginn SKAGAMENN fylgja fast á hæla ÍBV á toppi efstu deildar karla íknattspyrnu og á sunnu- daginn lögðu íslandsmeistar- arnir Grindvíkinga að velli, 4:0, íGrindavík. Eftir 1:1 jafntefli KR og Leifturs í Ólafsfirði á laugardag verður að telja lík- legt að það verði einungis ÍBV og ÍA sem berjist um íslands- meistaratitilinn í ár, en þegar fjórum umferðum er nú ólokið hafa Eyjamenn hlotið 31 stig en Skagamenn 28. Grindvíkingar hafa verið það lið sem komið hefur einna mest á óvart í deildinni í sumar og á gggp upphafsmínútum Sigurgeir leiksins á sunnudag Guðlaugsson var allt útlit fyrir að skrífar þeir yrðu Skaga- mönnum stór biti að kyngja. íslandsmeistararnir voru þó ekki nema nokkrar mínútur að komast inn í leikinn og um miðjan fyrri hálfleik skall hurð nærri hælum við mark heimamanna þegar Kári Steinn Reynisson átti_ skalla í þverslá eftir sendingu frá Ólafi Þórðarsyni. Bæði lið fengu nokkur ágæt marktækifæri í fyrri hálfleik, en það var þó ekki fyrr en þijár mínútur voru til loka hálfleiksins að fyrsta markið leit dagsins ljós og voru það gestirnir frá Akranesi sem tóku for- ystuna með marki frá Alexander Högnasyni. Grindvíkingar komu grimmir til leiks í síðari hálfleik og reyndu allt hvað þeir gátu til þess að jafna metin. Allt kom þó fyrir ekki og á 58. mínútu voru þeir heppnir að fá ekki á sig mark þegar Jóhannes Harðarson átti skalla í stöng. Þótt Skagamönnum tækist ekki að auka foi-ystu sína í það skiptið þurftu þeir ekki að bíða lengi eftir öðru markinu og sex mínútum síðar skoraði Kári Steinn Reynisson af stuttu færi eftir sendingu frá Stein- ari Adolfssyni. Grindvíkingar virtust taka mót- lætið mjög nærri sér og gestirnir gengu á lagið, Kári Steinn bætti þriðja markinu við á 70. mínútu á einkar glæsilegan hátt og Haraldur Hinriksson því ijórða fimmtán mín- útum fyrir leikslok. „Þetta var mikilvægur sigur fyrir okkur og ég á von á einvígi milli okkar og Eyjamanna allt fram í síð- ustu umferðina,_“ sagði Ólafur Þórð- arson, fyrirliði ÍA, eftir leikinn. „Eyjamenn eru að beijast í deild- inni, bikarnum og Evrópukeppninni á meðan við þurfum eingöngu að einbeita okkur að deildinni og það getur haft eitthvað að segja. Við erum farnir að hafa virkilega gaman af hlutunum á ný og það sést greini- lega á leik liðsins. Við eigum hins vegar ekki eftir að mæta Eyjamönn- um aftur í sumar og þurfum því að treysta á að önnur lið leggi þá að velli. Það er vissulega nokkuð óþægi- legt en við getum sjálfum okkur um kennt. Við erum þó hvergi smeykir og munum beijast fram í rauðan dauðann til þess að halda bikarnum á Skaganum," sagði Ólafur. 0H Æ Á 42. rnínútu gaf ■ l.Kári Steinn Reynis- son góða sendingu út á hægri kantinn á Ólaf Þórðarson. Ólaf- ur sendi á Pálma Haraldsson, sem stóð einn og óvaldaður inni í vítateig Grindvíkinga, Pálmi renndi knettinum út á Alex- ander Högnason og Alexander skoraði með hægri fæti í vinstra hornið. Om^%Á 64. mínútu skall- máSmaði Steinar Adolfs- son knöttinn í háum boga inn á vítateig Grindvík- inga. Grindvíkingar náðu ekki að hreinsa frá markinu og knötturinn hafnaði hjá Kára Steini Reynissyni, sem skoraði örugglega af stuttu færi. 0B 70. mínútu sendi ■ ■Jjóhannes Harðarson knöttinn á Kára Stein Reynis- son á miðjum vallarhelmingi Grindvíkinga. Kári Steinn lék failega á vamarmenn Grindvík- inga og vippaði síðan yfir Al- bert Sævarsson í markinu. 0By Á 75. mínútu sendi B*WJóhannes Harðarson góða sendingu inn á vftateig Grindvíkinga á Harald Ing- ólfsson. Haraldur var einn á auðum sjó í teignum, gaf sér góðan tíma og skoraði svo af öryggi í homið hægra megin. Jafnt hjá Leiftri og KR-ingum Þessi úrslit gera vonir liðanna um að blanda sér í toppbaráttuna litlar LEIFTUR og KR skildu jöfn, 1:1, er liðin mættust í Ólafsfirði um helgina. Leikmenn beggja liða yfirgáfu völlinn, eflaust ósáttir að leikslokum, þar sem þessi úrslit gera vonir þeirra, um að blanda sér í toppbaráttuna, litl- ar. Með sigri hefði KR komist íþokkalega stöðu ítoppbarátt- unni en Leiftur átti ekki mikið meira en fræðilega möguleika á að blanda sér í baráttuna á toppnum fyrir leikinn. Fyrri hálfleikur var nokkuð skemmtilegur á að horfa og léku bæði liðin prýðilega úti á vellinum en þegar nálgaðist víta- teigana runnu sóknirnar yfirleitt Eriksson "t i sandinn og því skrifar fatt um verulega hættuleg færi. KR- ingar fengu þó eitt ágætt færi sem vert er að minnast á og var þar á ferðinni Andri Sigþórsson. Eftir mistök í vörn Leifturs náði Andri knettinum og komst innfyrir vörn- ina en Þorvaldur í marki Leifturs sá við honum með laglegu út- hlaupi. Mark heimamanna kom svo á 41. mínútu og var þar að verki Ragnar Gíslason sem skoraði með góðu skoti við hornfánann hægra megin. Þegar flautað var til leikhlés var staðan því 1:0, Leiftri í vil. KR-ingar voru miklu ákveðnari í seinni hálfleik og sókn þeirra oft og tíðum mjög þung. Mark þeirra kom á 56. mínútu og var þar að verki Andri Sigþórsson sem komst í gegnum vörn Leifturs og skoraði laglegt mark. Þrátt fyrir nokkuð þungar sóknir KR áttu heimamenn nokkar ágætar sóknir en tókst ekki að skapa sér umtalsverð færi. B^\Á 41. minútu fékk ■ ^#Leiftur homspymu sem Ragnar Gíslason tók. Hann sendi stutta sendingu á Lasorik sem sendi knöttinn strax aftur á Ragnar sem þmm- aði á markið af hægri kantinum út við hornfánann. Knötturinn smaug framhjá mörgum leik- manna KR áður en hann hafn- aði í hominu fjær. B «8 Einar Þór Daníels- ■ I son sendi laglega sendingu á Andra Sigþórsson sem skaust í gegnum vöm Leifturs með knöttinn á tánum og skoraði af Öryggi framhjá Þorvaldi sem kom út úr marki Leifturs. Þetta gerðist á 56. mínútu. Hvort lið um sig átti þó nokkur ágæt skot sem markverðirnir sáu við. Síðustu mínútur leiksins var sem aukinn kraftur færðist í liðin og þó einkum KR sem átti tvö mjög góð færi. I bæði skiptin komst Guðmundur Benediktsson innfyrir vörn Leifturs en Þorvaldur var KR-ingum erfiður sem fyrr og varði skot Guðmundar. Úrslitin urðu því 1:1 og KR-ingar naga sig eflaust í handabökin að ekki skyldi takast betur til upp við mark Leift- urs undir lok leiksins, herslumun- inn vantaði á að þeir næðu að krækja í stigin þrjú. Leiftur lék nokkuð vel í fyrri hálfleik og gekk boltinn vel manna á milli. í þeim seinni gekk þeim ekki eins vel og virtist leikmönnum ganga illa að finna samhetja sína. Vörn liðsins var sterk fyrir og miðjan kom þokkalega út. Það sama var ekki að segja um framl- ínuna sem var algjörlega bitlaus og er greinilegt að þar á bæ sakna menn Þorvaldar Makans Sig- björnssonar sem er meiddur. KR- liðið lék vel í heildina og gekk boltinn oft mjög skemmtilega manni á milli. Þeim gekk hins vegar ekki nógu vel að skapa sér hættuleg færi og þau sem sköpuð- ust tókst ekki að nýta. KÁRI Steinn Reynisson býr sig hér undir að skora þriðja mark Sl vörð Grindvíkinga, í 4:0 sigri íslandsmeistaranna á Grind Enn tapai Róður Stjörnumanna fyrir sæti sínu í efstu deild þyngist stöð- ugt. Á laugardaginn unnu Framarar sigur á Stjörnunni í Garðabæ, 2:3. Leikurinn var frekar jafn og hefði Stjarnan með smá heppni getað innbyrt sinn fyrsta sigur í sumar - en sem fyrr eru lukkudísirnar ekki á bandi Garðbæinga. Ingi Björn Albertssson, þjálfari Stjörnunnar, blés til sóknar gegn Frömurum frá fyrstu mínútu og lagði upp leikað- „ . . ferðina 3-5-2 með BorgarÞor ,, , , ,, Finarccnn aherslu á soknar- skrifar þunga. Þessi leikað- ferð virtist ætla að skila tilætluðum árangri, því Mi- hajlo Bibercic kom Stjörnumönn- um yfir eftir fimm mínútna_ leik. Skömmu síðar átti Sumarliði Árna- son skot rétt framhjá úr góðu færi og Stjörnumenn virtust hafa fund- ið taktinn. En Framarar settu Stjörnumenn út af sporinu á 11. mínútu þegar Ágúst Olafsson jafn- aði, 1:1. Framarar náðu svo foryst- unni á 24. mínútu og við það hægð- ist mikið á leiknum. Það segir sína sögu um fyrri hálfleikinn, að liðin áttu samtals ftmm markskot; Stjarnan tvö og Fram þijú, og verð- ur það að teljast góð nýting að skora þtjú mörk úr ftmm skotum. Stjömumenn hófu síðari hálfleik með látum og jöfnuðu í fyrstu sókn hálfleiksins. En Framarar gáfu ekkert eftir, náðu undirtökunum á miðjunni og komust yftr á ný stundarfjórðungi seinna. Eftir það var jafnræði með liðunum en Stjörnumenn þó heldur meira með knöttinn og líklegri til að skora. En þrátt fyrir ákafa sókn tókst Stjörnumönnum ekki að skora og Framarar voru nálægt því að bæta ÁSGEIR Ásgeirsson, leikmaður stööva Frey Karlsso við fjórða markinu á lokamínútum leiksins en Árni Gautur varði vel. Sigur Framara verður að teljast sanngjarn en hann var alls ekki ör- uggur. Liðið leikur dæmigerðan „Ás- geirsbolta"; leikmenn láta knöttinn ganga á milli sín og bíða eftir að glufur opnist í vörn andstæðinga sinna. Ágúst Olafsson var bestur í annars jöfnu liði Fram. Allt útlit er fyrir að fall verði hlut- skipti Stjörnumanna. Liðið virðist ekki ætla að bijóta ísinn þrátt fyrir ágæta kafla í einstökum leikjum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.