Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 C 19
engin skil lengur og það verða engar
kuldabrýr, þar sem einingarnar
koma saman,“ segir Sveinbjörn.
„Utlitsmunur á þeim og staðsteypt-
um húsum er því enginn.“
Ekkert múrverk
inni í húsinu
Að sögn Sveinbjarnar hefur þessi
tilraun gengið frábærlega vel. „Hús-
in eru farin að rísa,“ segir hann.
„Það sem meira er, þessi hús eru
ódýr og hentug og því hefur mark-
aðurinn tekið þeim mjög vel. Vegna
stutts byggingartíma verður fjár-
magnskostnaður og þar með bygg-
ingarkostnaður einnig lægri.
En aðal sparnaðurinn felst þó
sennilega í því, að ekki þarf að múra
inni í húsinu. Þannig sparast bæði
peningar og tími. Rafmagnsdósir og
rör eru komin í veggina og ekkert
eftir nema að draga lagnir í. Kaup-
andinn þarf í rauninni ekki annað en
að mála veggina.
Sú hagkvæmni, sem næst með
þessari byggingaraðferð, er látin
endurspeglast í verðinu og koma
kaupandanum til góða. Við erum að
selja fullbúin 166 ferm. raðhús á
tveimur hæðum og með innbyggðum
bflskúr á 11.060.000 kr., sem ég tel
vera eitt lægsta verð fyrir slík hús á
markaðnum nú.
Það er einnig hægt að byggja at-
vinnuhúsnæði á þennan hátt, en
þessar einingar geta hentað í marg-
víslegar byggingar og mannvirki af
öllu tagi. Þar eygjum við mikla
möguleika. Það er mikil eftirspurn
eftir einingum á markaðnum nú í
virkjanir, álver, spennustöðvar, und-
irstöður undir brýr o. fl. Hjá okkur
vinna 14 manns. Þetta er mjög dug-
legur og áhugasamur mannskapur,
sem hefur virkilega lagt sig fram við
öll verkefni."
„Til skamms tíma var eininga-
verksmiðja Haghúsa til húsa í leigu-
húsnæði í Kapelluhrauni í Hafnar-
firði,“ segir Sveinbjörn Sigurðsson
að lokum. „Nú erum við að reisa
700 ferm. verksmiðju á Kjalarnesi
og áformað, að hún taki til starfa
eftir mánuð. Þar verður gólfhiti fyr-
ir hvorki meira né minna en tvö 250
ferm. mót, þar sem steyptir verða
bæði útveggir, innveggir og milli-
plötur í loft.“
Seld á þremur
byggingarstignm
Húsin við Vættaborgir verða alls
21 og standa í þremur lengjum, sjö
og sjö i röð. Á neðri hæð húsanna
eru rúmgóðar stofur, eldhús og
þvottahús, gestasnyrting, inngangur
og bflskúr. Á efri hæð er gert ráð
fyrir þremur svefnherbergjum, bað-
herbergi og þvottahúsi.
„Byggingarlandið þarna er mjög
ákjósanlegt og vegna hallans verður
ekkert til þess að skyggja á útsýnið,
sem nær allt frá Ulfarsfelli út yfír
sundin og meðfram öllum fjalla-
hringnum til Snæfellsjökuls," segir
Magnús Axelsson, fasteignasali í
Laufási, þar sem húsin við Vætta-
borgir eru til sölu.
Húsin eru seld á þremur mis-
munandi byggingarstigum, það er
fokheld með viðbótum eins og kallað
er, tilbúin til innréttinga og svo full-
búin. „Markaðurinn hefur tekið
þessum húsum afar vel,“ segir
Magnús. „Af þeim húsum, sem eru í
byggingu við Vættaborgir, eru ellefu
þegar seld, án þess að hafa fengið
neina umtalsverða kynningu á
markaðnum. Nú eru því tíu hús eftir
óseld á þessum stað og ég er ekki í
vafa um, að þau eiga eftir að seljast
fljótlega miðað við þann áhuga, sem
þegar er fyrir hendi á þessum hús-
um.
Þessi áhugi þarf í raun ekki að
koma á óvart. Greinflegt er, að hinn
stutti byggingartími höfðar til
margra, en frá því að kaup eru stað-
fest, líða yfirleitt ekki nema tveir
mánuðir, unz húsin eru afhent. Eftir
að nýja verksmiðjan er tekin til
starfa, mun sá tími styttast til muna.
Fyrir utan afar hagstætt verð, þá
eru þetta líka falleg hús og skipulag
þeirra gott, en þau eru hönnuð af
Páli V. Bjarnasyni arkitekt og Er-
lendur Birgisson verkfræðingur hef-
ur hannað verkfræðiteikningar.
Þetta eru jafníramt vönduð hús.
Byggingareiningarnar eru fram-
leiddar í upphitaðri verksmiðju óháð
veðri og vindum, en af þeim sökum
verður eftirlit með framleiðslu og
efnisgæðum auðveldara og engin
hætta á frostskemmdum við upp-
HK. p |
■K|i: | j I 'M. ■ ■ .i
ÍIS! yiiíjí
EININGARNAR eru engin smásmíði, en heilu veggirnir eru fluttir í einu
lagi á byggingarstað. Mjög miklum hluta af byggingarvinnunni er þá
þegar lokið.
ÞESSI mynd var tekin sl. vetur og sýnir, hvar verið er að setja upp ein-
ingu fyrir hálfan húsvegg. Einingarnar koma fullfrágengnar með glugg-
um og gleri út úr verksmiðjunni.
GOTT útsýni er frá húsunum við Vættaborgir út yfir eyjarnar og sundin. Esjan blasir við.
steypu. Meðferð steypunnar getur
því vart orðið betri.
Kaupendur þurfa ekki að bera
neinn kvíðboga út af jarðskjálfta-
hættu. Ströngustu burðarþolsút-
reikningum er beitt við hönnun þess-
ara húsa og öryggi því sízt minna eí
ekki meira en í öðrum byggingum.
Þannig er steypan mun sterkari en
venjan er í steinsteyptum íbúðarhús-
um hér á landi.“
„Borgahverfið hefur það sér til
ágætis, að hverfið er svipmeira en
önnur hverfi í Grafarvogi, þar sem
hallinn er þar meiri. Þar eru líka
klettabelti og þess hefur verið gætt í
skipulagi, að fella byggðina vel að
þessu umhverfi," segir Magnús Ax-
elsson að lokum. „Þjónusta og fé-
lagsleg aðstaða fer einnig batnandi
með hverju árinu sem líður. Þetta er
því vaxandi hverfi, sem kemur fram í
aukinni eftirspurn eftir íbúðarhús-
næði þar.“
■■■■■■
—
J
Félag Fasteignasala
Opið 9-18
Haukur Geir Garðarsson
viðskiptafræðingur oa
§§|F ígf? löggiltur fasteignasoli
nBHBBnH
SUÐUM.ANDSBRAULJL.2..* SIAAI 588 5060 - FAX 5 88 5066
Þjónustuíbúðir
SKULAGATA 40 - BILSK. Falleg
2ja herb. þjónustuíbúð fyrir eldri bongara í
þessu vinsæla lyftuhúsi. Góð sameign
með m.a. sauna. Bílskýli. Verð 7,3 millj.
2ja herbergja
BILLINN UPP I! Falleg nýleg
2ja herbergja íbúð á jarðhæð í litlu
fjölbýli við Flétturima. Stæði í
bílskýli. Góð staðsetning.
Möguleiki að taka ca. 1 millj. kr. bil
upp í. Áhv. 3,8 millj. húsbréf. LAUS
STRAX. Verð 6,2 millj.
BREKKUBYGGÐ - GBÆ
Falleg 3ja herb. íbúð á jarðh. m.
sérinngangi í þessum vinsælu
keðjuhúsum. Rólegur og góður
staður. Áhv. 3,3 millj.
byggsj/húsbréf. Verð 6,2 millj.
HÖFUM AKVEÐNA KAUPENDUR AÐ:
1) 2JA og 3JA HERB. ÍBÚÐ í HRAUNBÆ.
2) 3JA HERB. ÍBÚÐ í GARÐABÆ.
3) 3JA HERB. ÍB. Á JARÐH. í BREIÐH. EÐA FOSSVOGI
4) 4RA HERB. í KJARRHÓLMA KÓP.
5) 4RA HERB. í FOSSVOGI EÐA SMÁÍBHV.
6) HÆÐ í HLÍÐUNUM EÐA HOLTUNUM.
7) EINBÝLI / RAÐHÚS í GARÐABÆ OG GRAFARVOGI
HATUN - NYTT Vorum að fá í
einkasölu rúmgóða 2ja herb. íb. á 1.
hæð í nýlegu lyftuhúsi á þessum eftir-
sótta stað. Parket. Vestursvalir. Verð 7,4
millj.
SELTJARNARNES Mjög góð og
björt 2ja herb. risíb. í fiórbýli við Mela-
braut. Suðursvalir. Ahv. 1,8 millj.
langt.lán. Verð 4,8 millj.
MÁNAGATA Góð 2ja herb. íbúð í
kj. í þríbýli á þessum góða stað mið-
svæðis. Sérinngangur. Laus 1.10. nk.
Áhv. 2,4 millj. byggsj. rik. Verð 4,9 millj.
3ja herbergja
JÖRFABAKKI - ÓDÝR Góð
3ja herb. (búð á 3. hæð í fjölbýli. Sam-
eign nýl. endurn. að innan. Verð aðeins
5,7 millj.
ENGIHJALLI - GÓÐ ÍBÚÐ
Mjög góð 3ja herb íb., 90 fm, á 3. hæð i
góðu fjölbýli. Suður- og austursvalir.
Þvottahús á hæðinni. Hús endurnýjað
að utan. Verð 6,3 millj.
VALLARÁS - LAUS Falleg 3ja
herb. íb. á 4. hæð í lyftuhúsi. Vestur-
svalir. íb. er nýmáluð. Laus. Verð 6,8
millj.
4ra herbergja
LYNGMÓAR - GBÆ Falleg 3-
4ra herb. íb. á 1. hæð í litlu fjölb. með
innb. bílskúr. Suðursvalir. Verð 7,8 millj.
HÁALEITI - 4 SVEFNH.
Mög falleg 6 herb. ibúð á 4. hæð í
fjölbýli með glæsilegu útsýni.
Stofa, borðstofa, 4 svefnherbergi.
Þvottaherb. í íb. Merbau-parket.
Tvennar svalir. Áhv. hagstæð
byggsj/lífsj. lán 3,3 millj m. lágum
vöxtum. LAUS STRAX, Verð 8,4
millj.
BOÐAGRANDI Falleg 3ja herb.
íbúð á 3. hæð (efstu) i litlu fjölbýli.
Glæsilegt útsýni. Parket. Verð 7,8 millj.
HRAUNBÆR - LÆKKAÐ
VERÐ Falleg 3ja herb. íbúð á 2. hæð
í fjölbýli. íb. er í góðu ástandi. LÆKKAÐ
VERÐ 5,9 MILLJ.
AUSTURSTRÖND - BÍLSK.I
Mjög falleg og vönduð 3ja herbergja
íbúð ofarlega í lyftuhúsi. Parket. Útsýni.
Bílskýli. Verð 8,0 millj.
FLETTURIMI Glæsileg 4ra herb.
(búð á jarðhæð í nýlegu litlu fjölbýli.
Parket. Vandaðar innréttingar. Áhv. 5,2
millj. húsbréf. Verð 8,6 millj.
MEÐ BÍLSKÚR - SKIPTI
Mjög góð 4-5 herb. endaíb. á 2. hæð í
fjölbýli, 114 fm, v. Dalbraut. Góður bíl-
skúr. LÆKKAÐ VERÐ, 7,9 MILLJ. BEIN
SALA EÐA SKIPTI Á 2-3JA HERB. ÍB.
GRAFARVOGUR
BÍLSKÝLI Ný 4ra herb. íbúð, 108
fm. á 3. hæð í fjölbýli. Þvottahús í ibúð.
Bílskýli. Áhv. 5,2 millj. húsbréf. Verð 8,7
millj.
HÓLAR - BÍLSKÚR Góð 4ra
herb. íb. á 2. hæð m. sérinngangi af
svölum. Suðursvalir úr stofu. BiLSKÚR.
Verð 7,5 millj.
FELLSMÚLI - LAUS Falleg 4ra
- 5 herb. íbúð, 117 fm á 3. hæð I mjög
góðu fjölbýli sem er klætt að utan að
hluta. Stórar stofur, vestursvalir. LAUS
STRAX. Verð 7,8 millj.
5 HERB. OG BILSKUR Góð 5
herb. endaib. á 4. hæð í góðu fjölbýli.
Stofa m. stórum suðursvölum og út-
sýni, 4 svefnherb. Þvottah. i íb. Áhvíl.
4,8 millj. LAUS STRAX. Lyklar á skrifst.
Verð aðeins 7,3 millj.
KLEPPSVEGUR - ÓDÝR Góð
4ra herb. íb. á 2. hæð í fjölbýli ásamt
aukaherbergi í risi með sam. snyrtingu.
Suðursvalir.
Áhvíl. 2,4 millj. byggsj. í lífsj. GÓÐ TIL
LEIGU. LAUS FLJOTL. Verð aðeins 5,9
millj.
VESTURBERG Góð 4ra herbergja
íbúð á 4. hæð í verðlaunahúsi. Nýl. eld-
húsinnr. og á baði. Vestursvalir. Glæsi-
legt útsýni m.a. Snæfellsjökull. Stutt (
skóla og þjón. Laus fljótlega. Verð 7,2
millj.
5-6 herb. og hæðir
TÓMASARHAGI Vorum að
fá í einkasölu 126 fm neðri hæð (
fjórbýli á þessum vinsæla stað.
Stofa, borðstofa 3 svefnherbergi
þar af 2 mjög stór. Vestursvalir.
Nýlegt gler. Bílskúrsréttur. Bein
sala, skipti ath. á ódýrari eign.
Verð 10,4 millj.
Einb.-parhús-raðhús
FANNAFOLD Fallegt nýl.
parhús á einni hæð m. innb.
bílskúr um 100 fm. Stofa, 2
svefnherb. Suðvesturverönd m.
potti og möguleika á sólstofu.
Útsýni. Verð 8,9 millj.
BREKKUSEL - AUKAIBUÐ
Fallegt endaraðhús á 3 hæðum með
séríbúð á jarðhæðinni með sérinngangi.
Húsið er klætt að utan. Bílskúr. BEIN
SALA EÐA SKIPTI Á ÓDÝRARI EIGN.
LÆKKAÐ VERÐ, 13,4 MILU.
FOSSVOGUR Vorum að fá í
sölu fallegt raðhús á þessum
vinsæla og veðursæla stað, 195
fm ásamt bílskúr. Parket á gólfum.
Sauna. Suðursvalir. Hús nýmálað
að utan. Ákveðin sala. Verð 14,4
millj.
FAGRIHJALLI - KÓP. Gott206
fm parhús á þessum vinsæla stað á
mót sumri og sól, ásamt innbyggðum
bílskúr. Sólstofa. Skipti ath. Verð 12,5
millj.
í smíðum
GRUNDARSMÁRI - KÓP.
Einbýli á 2 hæðum m. mögul. á sérib. á
neðri hæðinni. Afh. fljótl fokhelt að inn-
an eða tilb. til innréttinga. Skipri ath. á
ódýrari. Teikn. á skrifstofu.
DOFRABORGIR Glæsileg rað-
hús á 2 hæðum m. innb. bílskúr, tengj-
ast saman á skjólveggjum. Afh foheld
að innan eða tilbúin til innréttinga. Verð
frá kr. 7.500.000.-
LAUFRIMI Ný 3ja herb. íb., 94 fm á
2. hæð f litlu fjölbýli. Sérinngangur. Suð-
ursvalir. Til afh. strax tilb. til innr. og
fullb. utan. Verð 6,8 millj.
FLÉTTURIMI 3 og 3-4 herb. íb. á
jh., 1. og 2. hæð í nýju litlu fjölb. Afh.
strax tilbúnar til innr. og fullbúnar að ut-
an. Möguleiki á stæði i bílskýli. Teikn. á
skrifstofu.
NÝBYGGING Góðar 4 herb. íb. á
jh., 1. og 2. hæð ásamt penthouse í
nýju litlu fjölbýli á góðum stað í Grafar-
vogi. Afh. strax tilbúnar til innréttinga
að innan, fulbúnar að utan. Teikningar á
skrifstofu.
Atvinnuhúsnæði
SKRIFSTOFUHERBERGI
Til leigu 1 eða 2 mjög góð um 20
fm skrifstofuherbergi við
Suðurlandsbraut. Aögangur að
eldhúsi og snyrtingu. Nýmálað,
nýtt parket. Laust.
VANTAR 200-400 FM Höfum
ákveðinn og traustan kaupanda að 200
- 400 fm skrifstofuhæð. Nánari uppl.
gefur Haukur Geir.
MIÐBORGIN -TIL LEIGU ! tíi
leigu um 100 fm húsnæði á 1. hæð og
um 70 fm húsnæði á 2. hæð í góðu
steinhúsi miðsvæðis í Rvk. Sérbíla-
stæði. Laust fljótlega. Sanngjöm leiga.
Hentugt t.d. fyrir arkitekta, verkfræð-
inga, auglýsingafóik eða smáheildsölu.