Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 16.09.1997, Blaðsíða 28
28 C ÞRIÐJUDAGUR 16. SEPTEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ FASTEIGNASAIA REYKJAVÍKVR Þórður Ingvarsson Ig.fs. C 588 5700 íf (' 588 5700 FAX 568 2530 FAX 568 2530 Félag fasteignasala ’ FASIEIGNASALA REYKJAVÍKVR OPIÐ VIRKA DAGA FRA 9-18 Suðurlandsbraut 46, 2. hæð. 108 Rvík. EINBYLI-RAÐHUS-PARHUS VESTURBÆR - EINBÝLI Mjög gott um 240 fm einbýli á tveimur hæðum ásamt 30 fm bílskúr. Mjög fallegt og vel skipulagt hús, góð aðkoma. Góður staður. Verð 17,5 millj. SKÓGARGERÐI Mjög gott einbýli á einni hæð ásamt kjallara og 28 fm bílskúrs, 3 svefnherb, gólfefni parket og dúkur, baðherbergi með baðkari. Stofa og borðstofa með parketi og útgengt út í garð. Eldhús með eldri innr, góður borðkrókur. Þvottahús í kjallara. Nýlegt þak, rennur og nýir gluggar. Möguleiki á aukarými í kjal- lara.Ahv. 4,2 m. Verð 13,9 m. SEIÐAKVÍSL - EINB. Glæsilegt einbýli á einni hæð m/ innbyggðum bíl- skúr um 195 fm. Glæsilegur garður. 4 svefnherb. Rúmgóðar stofur. Garðskáli. Gólfefni glæsilegt eikarparket. Topp eign á góðum stað. Áhv. Byggsj. 2,6 millj. Verð 15,2 millj. HULDUBRAUT - SKIPTI Mjög glæsilegt parhús á besta útsýnisstað í Kópavogi. Húsið er á tveimur hæðum auk bílskúrs sem er innbyggður. Ýmiss skipti koma til greina. Pessa eign verður að skoða því sjón er sögu ríkari. KLAPPARHOLT - HFJ. Nýlegt og glæsiiegt einbýli á tveimur hæðum með hreint frabæru útsýni. Flísar á öllum gólfum, nuddpottur, sauna, lituð gler í öllum gluggum, verönd og svalir, 3 svefn- herb. Áhv. ca 5 millj. ( langt.lánum. Athuga skipti á stærri eign. ÞINGÁS - RAÐH. Mjög gott endaraðhús m/innbyggðum bílskúr alls 155 fm nánast fullbúið. 3 stór svefnher- bergi. Gott útsýni, góð verönd. Áhv. Byggsj. ca 5,2 m. Verð 12,5 millj. KLYFJASEL - EINB/TVÍB. Glæsilegt einbýli á 3 hæðum (möguleki á 2 séríbúðum) ásamt bílskúr samt. 262,9 fm. Glæsilegar innréttingar, 4 svefnherb, glæsilegar stofur, glæsilegt eldhús, glæsi- legur garður. Topp eign á rólegum stað. Verð aðeins 15,9 millj. VESTURBERG Mjög gott raðhús m/ bílskúr samtals 217 fm. 4 svefnherb, sól- stofa, rúmgott eldhús. Góð stofa með arinn. Fallegur garður, gott útsýni. Verð 13,5 millj. VIÐARÁS - PARH. Nánast fullbúið parhús m/innbyggðum bílskúr alls um 190 fm. 4 stór svefnherb. Glæsilegar inn- réttingar. Frábært útsýni. Áhv. Húsbr. 6,4 m. Verð 13,8 millj. ARATÚN Mjög gott einbýlishús á einni hæð 134 fm ásamt 38 fm bílskúr. Húsið er steinsteypt og hefur verið mikið endur- nýjað. Góður garður með sólpalli. Áhv. 7,2 millj. Verð 13,4 millj. STEKKJARSEL Fallegt 2ja íbúða einbýli á tveimur hæðum á hornlóð. Aðalíbúðin er ca 215 fm. m/tvöfdum bílskúr og íbúðin á jarðhæð er 3ja her- bergja 87 fm. (mögul. á stækkun). Húsið er í góðu standi. Fallegur garður ofl. Teikningar á skrifstofu. Mögul. skipti á ódýrari eign. Verð 18,6 millj. HÆÐARBYGGÐ Gott 2ja-3ja íbúða hús á tveimur hæðum ásamt tvöföldum bílskúr. Húsið er alls um 285 fm. Fallegur garður, hlýlegt og gott hverfi. Áhv. 5,5 húsbr. Verð 16,5 millj. REYKJAMELUR MOS. Mjög gott einbýli á einni hæð ca 140 fm ásamt 22 fm bílskúr. Glæsilegar innréttingar, 3-4 svefnherbergi. Góður garður. Áhv. ca 2,0 millj. Verð 12,5 millj. LAUFBREKKA ÚTSÝNI Glæsileg efri sérhæð (nánast einbýli) ca 190 fm í nýlegu góðu steinhúsi. Glæsilegar innréttingar, parket. 4-5 svefn- herb., sérþvottahús. Suðurgarður. Stórt hellulagt og upphitað bílaplan. Frábært útsýni. Áhv. langt.lán 9,5 millj. Verð 13,5 millj. FANNAFOLD Parhús á tveimur hæðum ásamt góðum innbyggðum bíl- skúr alls 200 fm. Á aðalhæð er forstofa, hol, baðherbergi, eldhús, stofa og svefn- herbergi. I kjallara sem er einnig með sérinngangi er möguleiki á 2-3 her- bergjum og sjónvarpsholi og fl.(nú tilbúið undir tréverk). Áhv. ca 5,7 millj. Verð 9,9 millj. HÆÐIR OG 5-7 HERB. HRAUNBÆR Mjög góð 5 herb. íbúð ca 114 fm á 1. hæð í nýviðgerðu fjölbýli. Parket og teppi á gólfum, tvennar svalir. Nýtt gler. Ný eidhúsinnrétting. Skipti á 3ja herbergja í sama hverfi. Verð 7,9 millj. DRAPUHLIÐ-SERHÆÐ Mjög góð 1. hæð ca 110 fm með sérinngangi í góðu steinsteyptu húsi. Tvö svefnher- bergi og tvær saml. stofur. Svalir. Yfirfarnar raflagnir og nýtt þak. Góð eign á eftirsóttum stað. Verð 8,9 millj. 4RA HERBERGJA SLETTUHRAUN - HFJ. Góð 4ra herb íbúð um 105 fm á 2. hæð í góðu fjöl- býli. Suðursvalir. Baðherbergi með mar- maraflísum. Eldhús m/nýrri borðpl. og nýjar flísar á gólfum. Nýtt þak, snyrtileg sameign, björt og skemmtileg íbúð. Athuga skipti á stærri eign. HRAUNBÆR Góð ca 100 fm endaíbúð á 4. hæð, sérþvottahús og búr innaf eldhúsi. Stutt í alla þjónustu. Frábært útsýni. Áhv. 2,8 millj. Verð 7,1 millj. AUSTURBERG + BÍLSKÚR Góð 4ra herb ibúð ca 100 fm á 3. hæð ásamt bílskúr. Yfirbyggðar suðursvalir, tengt f. þvottavél á baði. Áhv. 3,5 millj Byggsj.rfk. Verð 7,7 millj. NORÐURMÝRI Góð 4ra herb. íb. í kj. ca 96 fm. Nýlegt gler og gluggar, góðar innréttingar, saunaklefi. Sérhiti og rafmagn. Skipti á 2ja herb. á sömu slóðum. Verð aðeins 5,9 millj. ÁLFHEIMAR Góð 4ra herb endaíbúð ca 107 fm á 4. hæð ásamt miklu aukarými I risi (mögul. 2 herb). Tvennarsvalir, glæsi- legt útsýni. Sértengt f. þvottavél í íbúð. 3JA HERBERGJA FROSTAFOLD + BILSKUR Mjög góð 3ja herb íbúð á jarðhæð m/ sérinngang ca 80 fm ásamt 20 fm bilskúr í góðu fjölbýli. Góðar innréttingar og gólfefni. Sérgarður m/hellulagðri verönd.Áhv. ca 5 millj. Byggsj.- LJÓSHEIMAR Góð íbúð 85 fm á 2. hæð í litlu fjölbýli, 2 svefnherb. Rúmgott eldhús m/góðum borðkr. Stofa m/parketi, útgengt á suðursvalir. Fallegur garður. Góð eign á rólegum stað, sameign góð. Áhv. Húsbr. ca 4,7 millj. Verð 6,950 þús. MARÍUBAKKI Afar góð og vel um gengin 3ja herb. íbúð ca 80 fm á 2. hæð í góðu fjölbýli. Nýtt eldhús, nýtt parket á stofu, vestursvalir. Þvottahús innan íbúðar. Húsið í góðu standi að innan sem utan. Áhv. 1,8 Isj. Verð 6,2 millj. ÁLFHEIMAR Rúmgóð, björt og snyrtileg 3ja herb. 72 fm ibúð á jarðhæð í góðu fjölbýli. Nýlegt parket á gólfum. Húsið nýtekið í gegn að utan og innan. Góð staðsetning. Áhv. 3,5 millj. Verð 5,9 millj. Skipti á 4-5 herb. VESTURBÆR Nýieg og glæsileg 3ja herb. íbúð um 100 fm. á 1. hæð í litlu fjölbýli. Sérinngangur, sérþvotta- hús og sérgarður. Merbau-parket á gólfum. Frábær eign á eftirsóttum stað. Ahv. 5,2 millj. til 40 ára B.r. Verð 9,9 millj. DALSEL Rúmgóð og vel skipulögð ca 90 fm íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýli. Laus strax. Áhv. 3,3 millj. Byggsj. Verð 6,3 millj. HATEIGSVEGUR Góð 3ja her bergja íbúð í kjallara ca 60 fm m/sérinngangi. Góð íbúð á rólegum og eftirsóttum stað. Áhv. 3,0 húsbr. Verð 5,4 millj. ASVALLAG ATA-VESTU R- BÆ Hugguleg 2ja herb. ca 53 fm íbúð í kj. í góðu húsi. Eldhús með nýlegum innréttingum parket á stofu sérinn- gangur. Áhv. 3 millj. Verð 5,1 millj. SKIPASUND Mjög stór og rúmgóð 2ja herb. íbúð á jarðhæð i tvíbýli með sérinngangi. Svefnherb., stofa og eldhús allt mjög rúmgott, góður garður. Áhv. 2,7 millj. Verð 5,5 millj. SELVOGSGATA - HFJ. Góð ca 50 fm risíbúð í 3-býli á einum besta stað í Hf. Mikið og gott útsýni. Ný teppi á stofu og svefnherb. Nýr dúkur á eldhúsi. Nýleg eldhúsinnrétting. Áhv. Byggsj. + langtl. ca 2,9 m. Verð aðeins 4,8 millj. Útborgun aðeins 1,9 millj. / SMIÐUM HRAUNBÆR (ROFABÆR Falleg og rúmgóð 3ja herb. íb. á 2. hæð ca 96 fm. m/aukaherb. i kj., nýl. parket, suðursvalir. Húsið allt klætt að utan með Steni. Laus strax. Áhv. 4,0 millj. Verð 6,5 millj. ÆSUFELL Mjög góð 3ja herb. íb. á 1. hæð ca 87 fm. Rúmgóð herb., nýl. parket á öllu, góðir skápar. Húsið nýtekið í gegn að utan. Skipti á 3-4 herb. á svæði 101- 108 Áhv. 3,5 millj. Verð aðeins 6,2 millj. RAUÐARÁRSTÍGUR-MIÐB. Góð 3-4ra herb. íbúð á 4. hæð (þakíbúð) í góðu fjölbýli, 2-3 svefnherb. Sameign öll nýtekin í gegn, þ.e. gólfefni, málun, nýir póstkassar, nýir gluggar og gler og fl. Svalir, þakkantur og þak yfirfarið. Ahv. 1,1 millj. Verð 4,9 millj. 2JA HERB. OG MINNI. GARÐHÚS 4ra herbergja ca 100 fm og 5 herbergja ca 120 fm íbúðir ásamt bílskúrum i 5 ibúða fjölbýlishú- sum á góðum stað við Garðhús. Sérinngangur í allar íbúðir, þvottahús innan íbúðar. Ibúðirnar skilast tilbúnar til innréttinga að innan og húsið fullfrá- gengið að utan með frágenginni lóð og bílastæðum. Bílskúr skilast fullbúin að utan og fokheldur að innan. Verð frá 7,5 millj m/bílskúr. GRETTISGATA Mjög góð 2ja herb. þakíbúð á 3ju hæð í þríbýli. Nýtt parket á gólfi, stórar suðursvalir. 2 geymslur. Snyrtileg og góð sameign. Fallegur garður. Áhv. húsbr. 3,0 Verð 5,3 millj. SELASBRAUT Raðhús á 2 hæðum og bílskúr tæpl. 200 fm. Afhendast tilbúin undir innréttingar að innan og fullbúinn að utan ásamt lóð og malbikuðu bílastæði. 4 svefnherbergi og frábært útsýni yfir borgina. Hagstætt verð. VIÐARRIMII smíðum vönduð raðhús á einni hæð ásamt bílskúr samtals 153 og 163 fm. Húsin afhendast tilbúin undir innréttingar. Verð frá 10,9 millj. FJALLALIND I smíðum glæsileg 186 fm parhús með innbyggðum bílskúr og fjórum svefnherbergjum. Húsin afhen- dast fullbúin að utan og rúmlega fokheld að innan. Verð 9,1 millj. A TVINNUH USNÆÐI HVERFISGATA Nýtt 200 fm þjónustu eða verslunarhúsnæði á götuhæð. STANGARHYLUR Gott 75 fm atvinnuhúsnæði. KRÓKHÁLS Mjög gott skrif- stofuhúsnæði ca 350 fm. Snyrtileg og góð aðkoma, góð bílastæði. LYNGÁS - LÍTIL ÚTB. Gott iðnaðarhúsnæði um 100-180 fm með innkeyrsluhurð ca 3,5 metrar. Góð lofthæð. Mjög hagstæð langtimalán fylgja. Viðgerðir Smiðjan Fokhætta er ávallt fyrir hendi, einkum af þökum, ---------------------------------------------- segir Bjarni Olafsson. I hvassviðri getur báru- járn farið að losna og lyftast á jöðrum og hornum. ER það ekki nokkuð öruggt merki um að tekið sé að líða á seirrni hluta sumarsins, þegar L fólk fer að spyrja mikið um ráð í sambandi við viðgerð sem nauðsyn- lega þarf að gera á húsum þess? Það eru liðnar tvær vikur af sept- embermánuði, hvassviðri hefur gengið yfir landið og valdið skaða. Að vísu mismiklum, eftir því hvar hvassast var og hvernig aðstæður voru. Lægðirnar sem nálgast land okk- ar fara mismunandi leiðir og valda mismiklu ónæði á Vestur-, Norður-, Austur- eða Suðurlandi. Við vitum af reynslu liðinna ára að veður hausts og vetrar eru hörð. Þá blása • oft hvassir vindar sem feykja burt þakplötum og húshlutum ef ein- hvers staðar finnst lát á þaki eða vegg. Það er því full ástæða til þess að líta eftir húsinu áður en í óefni er komið. Dagana 6. og 7. september gerði allmikið hvassviðri á Akureyri svo að þakplötur fuku af húsum. Fréttir ' heyrðust af því í útvarpi enda þótt fréttamenn væru mjög uppteknir við fréttir af útför Díönu prinsessu og þeirri merku frétt að nýr íslensk- ur biskup var kjörinn löglega í fyrstu lotu. Verum viðbúin fyrir illviðrin Það er full ástæða til þess að nota kyrrlátan og góðan haustdag til þess að skoða þök, veggklæðningar og fleira sem fokið gæti. Það er sannarlega óskemmtileg reynsla að verða var við að plötur fari að fjúka af húsinu sem við erum stödd inni í og engin leið að fara út til viðgerða. Fokhætta er ávallt fyrir hendi, einkum af þökum. Vindhraði magn- ast sérstaklega við stór hús. Oft má t.d. sjá brotnar steinskífur af þök- um liggja í nokkurri fjarlægð frá húsum sem hafa þess háttar þök, eftir að hvassviðri hefur geisað. Bárujárn getur farið að losna og lyftast á jöðrum og homum. Sér- staklega má búast við því eftir heit sumur, þegar sólin hefur hitað þak- flötinn vel. Þá þornar timbrið undir báru- jáminu, það koma spmngur í borð- viðinn og naglar sem eiga að halda járninu geta losnað. Það er því ástæða til að líta eftir því hvort þaknaglar hafa losnað, sem eiga að halda bárujárninu. Venjulega sést greinilega undir naglahausana, ef þeir hafa losnað. Að skipta um þaksaum Þegar þök em máluð sést greini- lega hvort naglar hafa lyftst upp. Þar sem naglar hafa losnað í þakjámi getur verið þörf á að draga upp gömlu naglana og nota hald- betri saum. Til eru fleiri gerðir af þaksaum. Fyrst vil ég nefna þá gerð sem flestir munu þekkja, nr. 1, nagla með haus á stærð við buxnatölu. Leggur naglanna mjókkar allur nið- ur að oddi. Þessi gerð heldur mjög illa þegar timbrið innþomar, nema að endar naglanna séu hnykktir, beygðir þvert á tréð að innanverðu. Þ.e.a.s. endinn sem nær í gegnum þakklæðninguna. Ekki er hægt að komast að nagla- oddunum á innanverðum þökunum nema í fáum tilvikum. Þegar svo hagar til er þörf á að skipta um saum, draga upp lausu naglana og nota aðra sem halda betur. Til era nokkrar gerðir sem setja má í stað þeirra lausu. Ég nefni sem dæmi nr. 2, kambsaum'. Hann er mótaður með þverrifflum á leggnum og er því mun tregari til að dragast út. Snúinn þaksaumur nr. 3 er þannig mótaður að leggurinn er undinn í fá- eina hringi og gerir það naglana tregari til að dragast út. Fjórða gerðin sem ég ætla að nefna er skrúfa með kúptum haus og mjúk- um skífum undir hausnum. Þær þurfa auðvitað að vera annaðhvort galvanhúðaðar eða úr ryðfriu efni. Gleymum ekki sumarbústaðnum Þá má ekki heldur gleyma að huga að sumarbústaðnum. Margir eiga sér sumarbústað, draumastað og þar er vissulega að mörgu að hyggja varðandi frágang fyrir vet- urinn. Þar má ekki geyma neitt lauslegt úti við sem fokið getur og valdið tjóni. Jafnvel heitavatnspott- ar geta fokið og brotnað, ef þeir eru tómir og standa þannig að vind- strengur geti náð til þeirra. Mörg dæmi munu einnig vera um að lok af heitavatnspotti fjúki út í buskann og brotni. Svo þarf að koma fyrir músavörn- um, reyna eftir bestu getu að koma í veg fyrir að mýs komist inn í sum- arhúsið. Mýs hlaupa oftast meðfram sökklum og veggjum. Ég hefi séð menn leggja búta af 5-6 sm víðum plaströrum við veggi hússins, á nokkrum stöðum. Inn í rörín hafa þeir látið eitur, músakorn. Þetta hefur stundum skilað árangri. Svo er auðvitað þörf á að loka öll- um smugum og holum sem þær gætu smogið inn um. Þær eru ótrú- lega duglegar að komast inn og þurfa ekki stóra rifu til þess að smjúga í gegnum. Slíkum smugum þarf að loka með steypu, steinum eða blikki. Éinnig má kaupa músa- net og negla það fyrir hugsanlegar inngönguleiðir músa.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.