Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 23.09.1997, Blaðsíða 28
MORGUNBLAÐIÐ 28 C ÞRIÐJUDAGUR 23. SEPTEMBER 1997 'fÍTi i ............................ Opið virka daga 9.00-18.00. Símatími laugardaga frá 11.00 -14.00. Sæmundur H. Sæmundsson, sölustjóri/byggingam. Ólafur G. Vigfússon, sölufulltrúi. Rósa Halldórsdóttir, sölufuiltrúi/ritari. Sigurberg Guðjónsson, hdl. lögg. fasteignasali. Betri þjónusta - seljendur ath. Framvegis mun fasteignasalan H-Gæði ekki innheimta augiýsingakostnað. Hann er innifalinn í söluþóknun fyrirtækisins. Innifalið í söluþóknun er eftirfarandi: 1. Auglýsingar i blöðum á meðan söluumboð er í gildi, nema um séróskir sé að ræða. 2. Auglýsingar á heimasíðu H-Gæði (Internetið) 3. Myndataka af eigninni. 4. Skoðun og verðmat, (ef eignin er sett (sölu hjá H-Gæði). 5. Full ábyrgð gerð og frágangi á öllum skjölum varðandi söluna. Einnig önnumst við ýmsa þjónustu svo sem: 1. Sölu og verðmöt. 2. Ýmiss konar skjala og samningagerð. 3. Skuldaskil 4. Ráðgjöf varðandi fasteignaviðskipti og leiguviðskipti. 5. Lögmannsþjónustu. 2JA HERBERGJA Flyðrugrandi Góð 65 fm íbúð í glæsilegu fjölbýlishúsi. þvottahús á hæðinni. Góð eldhúsinnr. Gufubað í sameign. Verð 6,3 m. 455 Reykás Mjög rúmgóð 140 fm vel staðsett íbúð á tveimur hæðum ásamt 24 fm bílskúr. Stutt ( alla þjónustu. Verð 10,3 m. 435 Vesturberg Mjög snyrtileg 4ra. herb. íbúð samtals 106 fm. Frábært útsýni. Stutt í skóla og alla þjónustu. Áhv. 4,4 m. Verð 7,5 m. 458 Æsufell Góð 54 fm íbúð á 6. h. Áhvílandi um 3,0 miljónir. Verð aðeins 4,8 m. 452 Hringbraut Vel staðsett eign í góðu ástandi. Parket á stofu og eldhúsi. Suðursvalir. Verð 5,4 m. 459 Jörfabakki 65 fm mjög góð íbúð á 2. hæð. íbúðin er öll í mjög góðu ástandi. Gott útsýni. Verð 5,3 m. 445 Skúlagata Vel staðsett 50 fm íb. á 3. h. Eign í góöu ástandi. Stutt í alla þjónustu. Verð 4,3 m. 463 3JA HERBERGJA RAÐHÚS/EINBÝLISHÚS Skeiðarvogur Á einum besta stað í I borginni. Um 140 fm raðhús, sem gefur möguleika á tveimur íbúðum. Nýleg falleg eldhúsinnr. Stutt í alla þjónustu. Laust strax. Verð11,5m. 454 Fannafold Fallegt og mjög vel staðsett 111 fm parhús. auk 30 fm bílskúrs. Húsið allt í toppástandi. Verð 12,3 m. 441 Efstasund Fallegt 191 fm einbýlish. í mjög góðu ástandi auk 60 fm bílskúrs. Stór og vönduð verönd. Frábær staðsetning. Verð 15,5 m. 426 Krummaholar vei staðsett íbúð á 3ju hæð ( fjölbýli. þvottahús í íbúðinni. Stórar suðursvalir. Verð 5,8 m. 462 Kjarrhólmi 75 fm á 1. h. Vel staSsett eign í góðu ástandi. Áhv. Húsb. um 3,0 m. Verð 6,4 m. 464 Hólabraut 297 fm parhús, arkitekt Kjartan Sveinsson. Nýtt eldhús. Nýtt parket. Húsiö býöur upp á 7 svefnh. eöa séríb. í kj. Suðursv., frábært útsýnif Verð 14,5 m. 438 Flúðasel Tveggja hæða 186,8 fm raðhús. Falleg eign, vel við haldin. Verð11,9 341 Rofabær Góö íbúð. Gott leiksvæöi fyrir böm, stutt í skóla, rólegur staður. Verð 6,5 m. 141 Hraunbær Vorum að fá ( sölu góða 75 fm íbúö á jarðh. í snyrtil. fjölbýlish., sem nýlega er klætt að utan með Steni. Verð 6,2 m. 439 n 4RA HERB. OG STÆRRA Hvassaleiti Vel staðsett um 100 fm ibúð ásamt steyptri plötu undir bílskúr. Nýtt vandað eldhús. Húsið að utan nýmálað og sameign góð. Verð kr. 8,4 m. 449 í BYGGINGU Nú er lag. Erum með ( sölu vandaða 4ra. herb. penthouse (búð á einum vinsælasta stað í Kópavogi. Einnig tveggja herb. 93 fm íbúð. þetta eru íbúðir fyrir vandláta. Nánari uppl. hjá H-Gæði. 348 Ljósalind 2ja til 4ra herb. íbúðir í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Afhendast fullbúnar án gólfefna. Teikningar á skrifstofu H-Gæði. Verð frá 5,5 m. 412____________________________ Fjallalind Raðhús á tveimur hæðum I með innbyggöum bílskúr samtals 228 fm Afhendast fullbúin úti og fokheld inni. Allar nánari uppl. á skrifst. Verð frá 8,9 m. 382 VIÐ TÖKUM VEL Á MÓTI ÞÉR Haustlaukar eru góð byrjun Gróður og garðar Haustlaukarnir eru sá flokkur garðplantna sem skila hvað mestri gleði til garðeig- enda, segir Hafsteinn Hafliðason garð- yrkjufræðingur. Það er auðvelt að rækta þá og allir geta notið þeirra. w INYJUM hverfum tekur nokkurn tíma að gróður og blóm fari að gera sig gildandi. Garðplöntur er ekki hægt að kaupa tilbúnar í fullri stærð, líkt og húsgögn eða heimilis- tæki. Samt sem áður er garðagróð- urinn sá þáttur í „innréttingu" garðsins sem setur á hann mestan svip þegar fram í sækh-. Af þessum sökum er svo mikil- vægt að notfæra sér gróður sem skilar árangri strax og lætur engan bilbug á sér finna þótt lítið sé um skjól og oft gusti kalt á vorin. Haustlaukar eru góð lausn fyrir garðeigendur í nýjum hverfum, ekkert síður en fyrir þá garðeig- endur sem eiga eldri og grónari garða. Haustlaukarnir eru sá flokkur garðplantna sem skila hvað mestri gleði til garðeigenda. Það er auð- velt að rækta þá og allir geta notið þeirra. Það þarf bara að koma þeim niður í moldina á haustin til þess að þeir komi upp með lit- skrúðugu blómflóði að vori. Allir geta gróðursett haustlauka og það er varla hægt að mistakast. Kostur haustlaukanna er líka sá að hægt er að velja saman mismun- andi tegundir og afbrigði þannig að lengja má blómgunartímann með því að láta hvað taka við af öðru. Það er líka hægt að spila saman lit- um á afar margbreytilegan hátt. Túlipanar vinsælastir Margar tegundir haustlauka, svo sem perluliljur, páskaliljur, stjörnuliljur, krókusar og snæstjörnur eru íjölærar og blómgast og margfaldast ár frá ári. En túlipanar, sem eru vinsælasti og litskrúðugasti flokkur haust- laukanna, rýrna mikið við blómgun og ná sjaldan að endurnýja sig með nægilega stórum laukum til að skila stórum blómum árið eftir. Fyrst og fremst ber að líta á túlip- anana sem einær sumarblóm. Það fer eftir ummáli túlipana- laukanna hvernig blómgunin verð- ur. Stór og sterk blóm á sterkum stilkum fást aðeins með laukum sem náð hafa 11-12 sentimetrum að ummáli eða meira. Þessi stærð er góð í breiður með 50 til 100 laukum í hverri. Smærri laukar geta vissu- lega borið blóm, en blómin verða smærri og stilkarnir grennri, þannig að þeir henta ekki þar sem áhersla er lögð á glæsileika. En þeir koma fyllilega til greina sem uppfylling í gisin runnabeð og á milli fjölærra plantna. Túlipana- laukar sem eru að ummáli 14 sm eða meira bera langstærstu blómin og taka sig vel út í litlum hópum, 5- 10 saman. Túlipana þarf að gróðursetja þannig að 10-15 sm af mold verði yfir laukunum. Langbest er að taka gróp íyrir hvern hóp og raða laukunum þar í með hæfilegu milli- bili. Það er hægt að setja nokkrar tegundir með mismunandi blómg- unartíma saman í hverja gróp. Það er ekki hægt að segja alveg fyrir um hve bilið á milli laukanna á að vera mikið. Ef settar eru sam- an tegundir með mismunandi blómgunartíma, tekur hver við af annari. Þá er hægt að setja túlip- analaukana þannig saman að lauk- ar tveggja til þriggja tegunda eru settir í einn punkt eins og væru þeir einn laukur. Það kemur ekki að sök vegna þess að þegar ein tegundin hefur lokið sér af, tékur önnur við. Annars er meginleglan sú, hvað millibilið varðar, að nota formúluna: Ummál lauks + þver- mál = millibil. Mismunandi blómgunartími Túlipanar eru til, eins og fram hefur komið, í nokkrum flokkum með mismunandi blómgunartíma. Fyrstir eru ártúlipanar, fylltir og einkrýndh'. Þeir eru lágvaxnir og blómgast í byrjun maí. Um miðjan maí taka tromptúlipanar við. Þeir eru nokkru hærri og blómstærri og standa í blóma fram í fyrstu viku júnímánaðar. Þá taka við kjörtúlip- anar, sem einnig eru kallaðir dar- vinlendingar og sýna sitt fegursta út þann mánuð. Þessi flokkur túlip- ana er, ásamt fylltum ártúlipönum, vinsælustu og sterkustu túlipan- arnir. Meðal þeirra er tegundin APELDOORN með fagurrauðum blómum og á sér nokkra, en ekki síðri, bræður með gulum eða rauð- gulum blómum. í lokin: Þegar búið er að setja laukana niður er gott ráð að sáldra einni lúku af garðaáburði yfir hvern fermetra í laukabeðinu. Það styrkir plönturnar og stuðlar líka að því að litur blómanna verður sterkari og að þau standa lengur. Og allra síðast: Hreykið laufi og greinakurli yfir laukabeðin fyrir veturinn, slíkt skýlir laukunum og kemur í veg fyrir að blöðin trosni af frosti og vindi sem oft getur ver- ið óblíður við plönturnar á vorin. MHMSBIAB SEUEMR SÖLUUMBOÐ - Áður en fast- eignasala er heimilt að bjóða eign til sölu, ber honum að hafa sér- stakt söluumboð frá eiganda og skal það vera á stöðluðu formi sem dómsmálaráðuneytið stað- festir. Eigandi eignar og fast- eignasali staðfesta ákvæði sölu- umboðsins með undirritun sinni á það. Allar breytingar á söluum- boði skulu vera skriflegar. í sölu- umboði skal eftirfarandi koma fram: 1 TILHÖGUN SÖLU - Koma skal fram, hvort eignin er í einka- sölu eða almennri sölu, svo og hver söluþóknun er. Sé eign sett í einkasölu, skuldbindur eigandi eignarinnar sig til þess að bjóða eignina aðeins til sölu hjá einum fasteignasala og á hann rétt til umsaminnar söluþóknunar úr hendi seljanda, jafnvel þótt eignin sé seld annars staðar. Einkasala á einnig við, þegar eignin er boðin fram í makaskiptum. - Sé eign í almennri sölu má bjóða hana til sölu hjá fleiri fasteignasölum en einum. Söluþóknun greiðist þeim fasteignasala, sem selur eignina. ■ AUGLÝSINGAR - Aðilar skulu semja um hvort og hvernig eign sé auglýst, þ.e. á venjulegan hátt í eindálki eða með sérauglýs- ingu. Fyrsta venjulega auglýsing í eindálki er á kostnað fasteigna- salans en auglýsingakostnaður skal síðan greiddur mánaðarlega skv. gjaldskrá dagblaðs. Öll þjón- usta fasteignasala, þ.m.t. auglýs- ing, er virðisaukaskattsskyld. ■ ÖFLUN GAGNA/SÖLUYFIR- LIT - Áður en eignin er boðin til sölu, verður að útbúa söluyfirlit yfir hana. Seljandi skal leggja fram upplýsingar um eignina, en í mörgum tilvikum getur fasteigna- sali veitt aðstoð við útvegun þeirra skjala sem nauðsynleg eru. Fyrir þá þjónustu þarf að greiða, auk beins útlagðs kostnaðar fast- eignasalans við útvegun skjal- anna. í þessum tilgangi þarf eftir- farandi skjöl: ■ GREIÐSLUR - Hér er átt við kvittanir allra áhvílandi lána, jafnt þeirra sem eiga að fylgja eigninni og þeirra, sem á að af- lýsa. ■ GILDISTÍMI - Tilgreina skal hve lengi söluumboðið gildir. Um- boðið er uppsegjanlegt af beggja hálfu með 30 daga fyrirvara. Sé einkaumboði breytt í almennt umboð gildir 30 daga fresturinn einnig. ■ VEÐBÓKARVOTTORÐ- Þau kosta nú 800 kr. og fást hjá sýslumannsembættum. Afgreiðskutíminn er yfirleitt milli kl. 10.00 og 15.00. Á veðbókar- vottorði sést hvaða skuldir (veð- bönd) hvfla á eigninni og hvaða þinglýstar kvaðir eru á henni. ■ FASTEIGNAMAT - Hér er um að ræða matsseðil, sem Fast- eignamat ríkisins sendir öllum fasteignaeigendum í upphafi árs og menn nota m.a. við gerð skatt- framtals. Fasteignamat ríkisins er til húsa að Borgartúni 21, Reykjavík sími 614211. ■ FASTEIGNAGJÖLD - Sveit- arfélög eða gjaldheimtur senda seðil með álagningu fasteigna- gjalda í upphafi árs og er hann yfirleitt jafnframt greiðsluseðill fyrir fyrsta gjalddaga fasteigna- gjalda ár hvert. Kvittanir þarf vegna greiðslu fasteignagjald- anna. ■ BRUNABÓTAMATSVOTT- ORÐ - Vottorðin fást hjá því tryggingafélagi, sem eignin er brunatryggð hjá. Vottorðin eru ókeypis. Einnig þarf kvittanir um greiðslu brunaiðgjalda. Sé eign í Reykjavík brunatryggð hjá Húsa- tryggingum Reykjavíkur eru brunaiðgjöld innheimt með fast- eignagjöldum og þá duga kvittan- ir vegna þeirra. Ánnars þarf kvittanir viðkomandi tryggingar- félags. ■ HÚSSJÓÐUR - Hér er um að ræða yfirlit yfir stöðu hússjóðs og yfirlýsingu húsfélags um væntan- legar eða yfirstandandi fram- kvæmdir. Formaður eða gjald- keri húsfélagsins þarf að útfylla sérstakt eyðublað Félags fast- eignasala í þessu skyni. ■ AFSAL - Afsal fyrir eign þarf að liggja fyrir. Ef afsalið er glat- að, er hægt að fá ljósrit af því hjá viðkomandi sýslumannsembætti og kostar það nú kr. 100. Afsalið er nauðsynlegt, því að það er eignarheimildin fyrir fasteigninni og þar kemur fram lýsing á henni. ■ KAUPSAMNINGUR - Ef lagt er fram ljósrit afsals, er ekki nauðsynlegt að leggja fram ljósrit kaupsamnings. Það er því aðeins nauðsynlegt í þeim tilvikum, að ekki hafi fengist afsal frá fyrri eiganda eða því ekki enn verið þinglýst.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.