Morgunblaðið - 26.10.1997, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 26.10.1997, Qupperneq 6
6 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER1997 MORGUNBLAÐIÐ FAÐIR SMÍÐAR BARBÍ-HÚS FYRIR DÆTUR SÍNAR Tveggja hæða hús með kjallara Morgunblaðið/Jón Svavarsson ASGERÐUR raðar myndunum af húsgögnunum inn á teikninguna þangað til æskileg staðsetning húsgagnanna er fundin. LITLIR HÖNNUÐIR Barnaleikur að innrétta herbergi BÖRN og unglingar vilja gjaman hafa áhrif á það hvernig herbergin þeirra líta út. Þau eru sköpunar- glöð og breytingar á útliti her- bergjanna svala nýjungagimi þein’a. Auk þess er kannski ekki spennandi að vera 11 ára í her- bergi sem hefur verið eins síðan í 6 ára bekk. Að skipuleggja herbergi er einnig skemmtilegt og krefjandi verkefni. Það reynir m.a. á skipu- lagshæfileika, útsjónarsemi og hæfileika til að koma auga á sam- ræmi og notagildi. Aðferðin, sem hér er lýst, getur reynst vel bæði börnum og full- orðnum. Til þess þarf að verða sér út um teikningu af herberginu og klippa út grunnmyndir af hús- gögnunum sem eiga að vera þar. Hugarflugið er síðan notað til að raða myndunum af húsgögnunum inn á teikninguna þangað til æski- leg staðsetning húsgagnanna er fundin. Með þessu móti má „breyta“ margsinnis í herberginu án þess nokkm sinni að þurfa að lyfta rúmi eða stól. Aðferðin Verðið ykkur út um teikningu af herberginu. Ef hún finnst ekki má mæla flatarmál herbergisins og teikna það upp á rúðustrikað blað. Ef herbergið er til dæmis 5 sinn- um þrír metrar, má teikna það upp sem 25 sinnum 15 cm á blaðinu. Einn metri í herberginu væri þannig sama sem fimm cm á blaðinu. Gleymið ekki að teikna inn glugga og dyr. Mælið grunn- flöt allra húsgagn- anna og klippið þau út í þykkan og/eða lit- ríkan pappír. Raðið myndunum af húsgögnunum á teikn- inguna af herberginu þar til vænleg herbergisskip- an hefur fundist. ,, Einnig má gera teikn-£_ £ ingu af veggflötum herbergisins og lita þær til að kanna hvaða^ litasamsetningar koma til greina í herberginu. Þegar þið eruð orðin ánægð með uppröðunina á teikningunni þarf aðeins að raða húsgögnunum í her berginu eftir henni. FRÉTTIN um að Birna, 8 ára, og Karolína, 5 ára, væru búnar að fá Barbí-húsið heim fór eins og eldur í sinu um hverfið sl. sumar. Yngri kynslóðin hafði greinilega haft veð- ur af framkvæmdunum og beið ekki boðanna að skoða glæsivilluna. Björn Rafnsson hafði nefnilega ekki smíðað neitt venjulegt Barbí- hús handa dætrum sínum. Barbí- húsið er á tveimur hæðum með stiga á milli hæða. Ekki er allt upp talið því fyrir einkabifreið Barbí er kjallari undir húsinu. Systurnar standa uppréttar við húsið til að að- stoða Barbí, en húsið er um 1,6 m á hæð. Húsið er ekki aðeins skemmti- legt leikfang heldur góð hirsla því Barbí-dótið er allt inni í húsinu en ekki eins og ekki er óalgengt í hrúgu í barnaherberginu. 100 Barbí-dúkkur! Stelpurnar leika sér oft í húsinu og Karolína segir að Barbí-dúkk- umar séu áreiðanlega 100. Birna er ekki alveg jafn viss og eitt er víst að aðeins er einn Ken. Nokkur lítil Barbí-börn búa í húsinu með mæðr- um sínum. En Barbí er ekki alla daga að stússa í barnauppeldi því hún sinnir alls kyns spennandi störfum úti á vinnumarkaðinum. Morgunblaðið/Ásdís BIRNA og Karolína við Barbí-húsið góða. EITT ahugamala Barbí er hjólreiðar EFNT var til samsætis í tilefni af komu blaðamanns og ljósmyndara. Nýkomnar haustsendingar Verðdæmi: Veggflísar 15x20 kr. 1.450,- m Gólfflísar 30x30 kr. 1.500,- m’ C AiFABORG ? Knarrarvogi 4 • Sími 568 6755

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.