Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 10
10 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997
MORGUNB L AÐIÐ
GRÆNA sófasettið og hornskápur í hjarta heimilisins.
LITLAR skúffur og smáir hlutir prýða eldhúsið.
Litlir hlutir
á hlýlegu heimili
SMÁATRIÐIN skipta ekki síður
máli þegar fegra á heimilið eða gera
það hlýlegt. Til dæmis litlar fallegar
myndir, litríkar styttur eða þurrk-
aðar blómaskreytingar, hvort sem
þeim er haganlega komið fyrir í
smáum trékörfum eða bara hengd-
ar upp á vegg til að mynda inni á
klósetti. Heimili þeirra Östu Hen-
riksdóttur verslunarstjóra í Costa
Boda í Kringlunni og Finns Magn-
ússonar verslunarstjóra í Bónus í
Holtagörðum ber þessu einmitt
glöggt vitni.
Heimili þeirra hjóna er í fallegri
íbúð á Grettisgötunni sem var gerð
upp fyrir nokkrum árum með það í
huga að hún héldi sem mest upp-
runalegu útliti sínu. Til dæmis var
gamla eldhúsinnréttingin pússuð
upp og máluð að nýju og það sama
átti við um listana meðfram loftinu.
Inngangurinn að íbúðinni er svo-
lítið óvenjulegur þar sem hurðin er
tvöföld, en það setur óneitanlega
skemmtilegan svip á íbúðina. Asta
hefur líka rammað hurðina smekk-
lega inn ef svo má segja með því að
setja gardínustöng fyrir ofan hana
og hengja á stöngina vínrautt og
þykkt velúrefni sem hún fékk í
Fríðu frænku. Venjulega eru
velúrgardínurnar dregnar frá hurð-
inni, en Asta segir að stundum
dragi hún efnið fyrir til að einangra
frá bæði hljóð og kulda sem kemur
frá stigaganginum.
Eldhúsið er fremur stórt og það
FORTJALDIÐ fyrir hurðinni að
íbúðinni. Stundum er það dreg-
ið fyrir til að einangra kulda og
hljóð frá ganginum.
Morgunblaðið/Þorkell
SKÁPURINN sem keyptur var
á Malaga á Spáni.
hefur Asta prýtt með
þurrkuðum blómaskreyt-
ingum, litlum hillum og
myndum. Meira að segja
eldhúsvaskurinn og vegg-
urinn íyrir aftan hann er
augnayndi í eldhúsinu.
Fyrir ofan vaskinn hefur
Asta sett upp litla snaga og
hengt á þá litrík eldhús-
áhöld.
Litlar skúffur úr versl-
uninni Djásn hanga fyrir
ofan borðplötuna við hlið-
ina á vaskinum og ofan á
þeim sitja m.a. mjólkur- og
rjómakönnur í beljulíki og
kaffikvörn, sem Finnur
fékk hjá ömmu sinni.
Næst skulum við kíkja
inn í klósettherbergið en
það hefur Asta málað í líf-
legum en um leið hlýlegum
litum. Hún segist hafa not-
að þijá liti, ljósgrænan,
dökkgrænan og gulan og
hefur blandað þeim
smekklega saman eins og sést á
meðfylgjandi mynd. Þurrkuðu rós-
irnar og litlu myndirnar hjálpa til
við að lífga upp á þetta litla her-
bergi. Bað og sturta eru svo í öðru
herbergi hinum megin í íbúðinni.
Hjarta heimilisins
I íbúðinni eru tvær samliggjandi
stofur og er önnur þeirra greinilega
hjarta heimilisins; hlý og þægileg.
Þau Asta og Finnur segjast hafa
mjög svipaðan smekk fyrir húsbún-
aði og hafa þau í sameiningu valið
húsgögnin í stofuna. Einna
KLÓSETTIÐ er málað í líflegum
en hlýjum litum.
merkastur er kannski annar skáp-
urinn í einu horninu. Þann keyptu
þau á Malaga á Spáni, þegar þau
voru þar í brúðkaupsferð fyrir
rúmu ári. Skápurinn kostaði um tólf
þúsund krónur og segjast þau bara
hafa skellt honum á færibandið á
flugvellinum á leiðinni heim.
En þó freistandi sé að dvelja í
þessari hlýlegu stofu meira en góðu
hófi gegnir er kominn tími til að
kveðja þetta fallega heimili. Heimili
þar sem smáu hlutirnir skipa ekki
síður stóran sess.