Morgunblaðið - 26.10.1997, Síða 13

Morgunblaðið - 26.10.1997, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 E 13 bláókunnuga gamla konu, sem svo gjarnan vildi kíkja inn vegna þess að þarna hafði hún oft leikið sér á sínum æskuárum. Asa og Benóný segja reyndar enga furðu þó að þetta hverfi leiti á huga margra eldri borgara því á árum áður stóðu þarna fjölmörg timburhús, sem mörg hver hafa nú verið rifin eða flutt á söfn í tímans rás, til að þar mættu í staðin rísa önnur og nýtískulegri vistarverur. Eitt og eitt hús hefur þó fengið að standa, eins og hús þeirra Asu og Benónýs ber vitni um og vinna þau nú að því að gera það upp í sinni upprunalegu mynd. Eitt fyrsta timburhús alþýðunnar Húsið sem Asa, Benóný og dæt- ur þeirra búa í á sér greinilega sál sem býi- yfir langri sögu og hana má lesa í hverju horni, hverri fjöl. Ólafur Magnússon trésmiður reisti húsið árið 1904 sem smíðahús og var það notað sem slíkt fyrstu árin. Hann seldi síðan Jóhannesi Láras- syni húsið, en sá breytti því í íbúð- arhús árið 1910 og hefur verið búið í því síðan. Ása segir að þetta hús hafi þar með verið eitt fyrsta timb- ur hús bæjarins sem fjölskyldur iðnaðarmanna eða venjulegt al- þýðufólk hafi flutt inn í, en fram að því hafði það búið í torfbæjum. Lengi vel bjuggu tvær fjölskyld- ur í húsinu, að sögn Asu, önnur á neðri hæðinni og hin á þeirri efri. „Það er því ekki laust við að ég hugsi til þessara fjölskyldna þegar mér finnst eitthvað þröngt um okk- ur,“ segir Asa og hlær. Á neðri hæð hússins er ein stór stofa, eld- hús, forstofa og lítið klósetther- bergi sem hefur verið komið fyrir undir stiganum. Þegar húsið var byggt var ekki gert ráð fyrir kló- setti, því að á þeim tíma var notast við útikamra. Þegar svo 'klósettin komu til sögunnar var þeim venju- lega komið fyrir í hálfgerðum skáp- um, að sögn Ásu. Efri hæð hússins er undir súð og skiptist hún í þrjú herbergi, sem þau Ása og Benóný nota sem hjónaherbergi, barnaherbergi og skrifstofu. „Við ætlum þó að breyta skrifstofunni í barnaherbergi með tímanum og innrétta _ skrifstofu niðri í kjallara," segir Ása, en nú nota þau kjallarann aðallega sem geymslu og baðaðstöðu. Húsið gert upp í upprunalega mynd Húsið er byggt úr bindingu á tvo vegu, en suðurhlið og vesturgafl era steinsteyptir eldvarnarveggir. Það er klætt með bárujámi á tveimur hliðum og með járnþaki. Einhverjar breytingar hafa verið gerðar á húsinu í áranna rás, eins og gengur og gerist. Mestu breyt- ingarnar hafa þó sennilega verið gerðar á sjöunda eða áttunda ára- tugnum, þegar tveimur gluggum á framhlið hússins var breytt í einn stóran, eins og tískan bauð á þeim tíma og glugga á norðurhlið húss- ins að sama skapi breytt. Þá var annar gluggi á þeirri hlið falinn bak við járnklæðningu. Þegar Ása og Benóný keyptu húsið ákváðu þau að byrja á því að taka það í gegn að utan og þegar því væri lokið ætluðu þau að gera það upp að innan smátt og smátt. „Við viljum frekar eiga einhverja peninga afgangs til að geta leyft STIGINN upp á loft er svolítið skemmtilegur. Hann hefur ver- ið pússaður upp eins og sjá má. ÁSA í eldhúsinu, en hún ætlar að reyna að halda því eins og það var upprunalega. SKRIFSTOFA Benónýs á efri hæðinni. KLÓSETTHERBERGIÐ sem var komið fyrir undir stiganum. Myndirnar á veggjunum eru gerðar úr gömlum gluggum hússins. okkur eitthvað heldur en að eyða þeim öllum og meira til, til að gera húsið upp á einu bretti," segir hún. Þau hafa varið miklu fé í endur- gerð hússins en skömmu eftir að þau keyptu það fengu þau lán frá Húsverndarsjóði til að lagfæra húsið. Það lán var hins vegar mjög dýrt, segja þau, þar sem vextir og verðbætur vora háar. Nú í sumar fengu þau hins vegar styrk frá Húsverndarsjóði til að klæða húsið, laga glugga, hurðir og fleira. „Það má kannski segja að með þessum styi-k sé verið að borga okkur til baka þá háu vexti sem við borguð- um af gamla láninu," segja þau. Þau hafa nú að mestu lokið við að gera húsið upp að utan. Búið er að skipta um alla glugga í húsinu nema eldhúsgluggann, setja tvo glugga á framhlið þess, eins og áð- ur var, og rífa klæðninguna frá þeim glugga á norðurhliðinni sem hafði verið falinn. Auk þess er bú- ið að skipta um bárajárnsklæðn- ingu á öllu húsinu og gera við skemmdir á múrveggnum á vest- urhliðinni. Ennfremur segja þau að verið sé að smíða nýja útidyrahurð, alveg eins og þá sem upphaflega var í húsinu og verið að pússa upp allar hurðir. Þá hafa þau pússað öll gólf upp og segir Ása að þau eigi aðeins eftir að pússa stigann betur og bera á hann. Margt fleira hefur verið gert eða lagað innandyra og segja þau Ása og Benóný að það sé í raun óþrjótandi verkefni sem þurfi að sinna í svo gömlu húsi. „Fólk sem fer út í þetta hlýtur að vera geggjað," segir Ása og hlær. Benóný bætir því við að í hvert sinn sem þau fari af stað með eitt- hvað vindi það upp á sig. „Það þarf að gera meira en við bjuggumst við eða þá að við finnum eitthvað nýtt,“ segir hann. Þægilegra hljóð í timburhúsi Ása og Benóný era sammála um að það sé þess virði að gera svona hús upp og finnst gott að búa í gömlu húsi. Ása segir reyndar að ekki sé hægt að gera sömu kröfur til nútímaþæginda í þessu húsi og í nýrri húsum, því þetta hús hafi verið byggt á þeim tíma þegar ekki var gert ráð fyrir salerni, vatns- lögnum og öðram þægindum. En þrátt fyrir það finnst henni gott að búa þarna. Benóný segir líka að hljóð séu þægilegri í timburhúsum en í steinhúsum og að kosturinn sé einnig sá að það lofti betur inn í þeim. Þá segir hann að auðveldara sé að dytta að í gömlum timbur- húsum og það eina sem maður þurfi í raun að kunna sé að saga og negla. „Þá hlýtur það að vera mikil- vægt fyrir Reykjavíkurborg að hafa falleg hús í þessu hverfi,“ seg- ir Ása og minnist á í því sambandi að þarna komi mjög oft ferðamenn með myndavélarnar sínar og taki myndir af húsinu í bak og fyrir. „Þeir eru sennilega að leita eftir dæmigerðum íslenskum arki- tektúr," segir hún. Ása og Benóný segja að góður andi ríki í húsinu og þeim góða anda finnur blaðamaður líka fyrir. En nú er mál að linni. Ekkert eftir nema að kveðja þetta fallega heim- ili, húsið og sögu þess sem nær rúmlega níutíu ár aftur í tímann. 'Jence' /ó'ÓÓ Umboðsaðilar um allt land § # S f é # © & « w w & # </: tyot'tinfy ^L) L | L.L afuæniMpráfað nO luíliL- Þekking Reynsla Þjónusta FÁLKINN Suðurlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími: 581 4670 Akranes: Versl. Perla • Borgarnes: Rafstofan Ólafsvík: Litabúðin • Stykkishólmur: Heimahornið Patreksfjörður: Ástubúð • isafjörður: Þjótur sf. Drangsnes: Kf. Steingrímsfj. • Hólmavík: Kf. Steingrímsfj. Hvammstangi: Kf. V-Húnv. • Blönduós: Kf. Húnvetninga Sauðárkrókur: Hegri • Siglufjörður: Apótek Siglufjarðar Ólafsf jörður: Versl. Valberg Akureyri: Versl. Vaggan, Sportver Húsavík: Kf. Þingeyinga • Egilsstaðir: Kf. Héraðsbúa Neskaupsstaður: Lækurinn • Eskifjörður: Eskikjör Höln: Verslunin Lónið • Hvolsvöllur: Kf. Árnesinga Þorlákshöfn: Rás hf. • Vcstmannacyjar: Tölvubær Garður: Raflagnavinnust. Sigurðar Ingvarssonar Keflavík: Bústoð • Grindavik: Versl. Palóma Reykjavík: Barnaheimur, Fatabúðin, Húsgagnahöllin, Marco, Versl. Hjólið (Eiðistorgi) Gluggatjaldaefni, stórisar og kappar Eldri efni á stórlækkuðu verði í útsöluherberginu. Opið frá kl. 10-18, laugardaga frá kl. 10-14. GARDÍJSLBUÐIN Skipholti 35 ♦ Sími 553 5677 ♦ Fax 568 0092 lUýkomid mikið úrval af borðstofuhúsgögnum,skenkum, hillusamstæðum skápum og ít Fpabært vero

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.