Morgunblaðið - 26.10.1997, Page 14
14 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
lætur íbúðina sýnast stærri, en ef
það væri til dæmis annað gólfefni á
baðinu. Þá notaði hún marglitar en
ljósar terracotta-flísar og lét leggja
þær þannig að þær mynduðu 45
gráðu halla, en það er einnig liður í
því að láta íbúðina sýnast stærri.
Auk þess hafði Rut sömu viðar-
tegundina í eldhússkápunum og í
hillunum í svefnherberginu og lét
mála alla íbúðina í sama lit. Allt •
þetta miðar að því að blekkja aug-
að, en einnig að því að skapa heild-
stæðan svip á íbúðina. Rut segir
failegra að halda sama stílnum í
litlum rýmum, en
láta síðan persónu-
lega muni brjóta
hann upp.
Rut tekur fram
að það þurfi ekki að
kaupa dýrar inn-
réttingar til að hafa
huggulegt inni hjá
sér. I kjallaraíbúð-
inni lét hún tii dæm-
is setja upp ódýrar
eldhúsinnréttingar
frá Byko, en gerði
þær meira töff með
því að setja stál á
milli eldhúsvasksins
og skápanna og með
því að setja
halogen-ljós í loftið
fyrir ofan.
Hver hlutur á að
hafa sinn stað
HVERNIG MÁ NÝTA LÍTIL RÝMI VEL
LITLAR íbúðir þarf að
skipuleggja vel svo
rýmið nýtist sem best.
Rut Káradóttur innan-
hússarkitekt innréttaði
45 fermetra kjallara-
íbúð, þar sem varð að
nýta rýmið sem best
með sem minnstum til-
kostnaði. Hér sýnir hún
nokkrar einfaldar
lausnir fyrir lítil rými.
Til dæmis bendir hún
á mikilvægi þess að
skápar í litlum íbúð-
um séu ekki yfirþyrm-
andi heldur falli inn á
milli veggja. Auk þess
er gott að hver hlutur
hafí sinn stað.
ÓDÝR eldhúsinnrétting er gerð meira „töff“ með því að setja stál á milli vasksins og eldhússkápanna. Takið eftir terracotta-
flísunum sem eru lagðar þannig að þær mynda 45 gráðu halla. Ennfremur er vakin athygli á rennihurðinni á baðinu, lengst til
vinstri. Rut tekur þó fram að ekki sé venjan að setja klósett eða baðherbergi við hliðina á eldhúsi.
HNOTA
PAOLA
SVART/HNOTA
Frábærir stólar frá Rossetto
Áklæði eftir vali
Stgr.verð 37.810 kr.
rnpl húsgögn
[-1-1 r Ármúla 44
sími 553 2035
LÝSING, efnisval, litir og skápa-
rými; allt eru þetta atriði sem ber
að hafa sérstaklega í huga þegar
nýta á litlar íbúðir sem best og láta
þær líta út sem þær séu ekki alveg
eins litlar og þær í raun og veru
eru. Þegar Rut innréttaði kjallara-
íbúðina, sem þá var bara einn stór
geimur, hafði hún fyrmefnd atriði í
huga, en auk þess varð að nýta
rýmið sem best með sem minnst-
um tilkostnaði.
Ef við byxjum á lýsingunni, þá
segir Rut að forðast eigi að hafa
hangandi Ijósakrónur í íbúðum sem
hafa litla lofthæð. í slíkum tilfellum
á frekar að hafa standlampa sem
vísa upp og stækka þannig rýmið
eða borðlampa. Þá er mikilvægt að
hafa mismunandi lýsingu í litlum
íbúðum, en láta ekki sömu ljósa-
peruna lýsa upp allt svæðið.
Þannig er hægt að skapa margvís-
lega stemmningu. Til dæmis með
því að lýsa eitt svæði upp en hafa
skugga á öðru og svo öfugt.
I kjallaraíbúðinni sem sýnd er á
meðfylgjandi myndum er bara einn
gluggi og því þurfti að nýta dags-
birtuna sem þar kæmi inn sem
best. Til þess komu glersteinarnir
að góðu gagni, að sögn Rutar, en
með þeim var hægt að afmarka
svefnherbergið frá anddyrinu, en
nýta um leið birtuna sem kemur
frá glugganum. Þá er sandblásið
gler í rennihurðinni á baðinu, en
með því kemst Ijósið á baðinu í
gegn.
Þar sem minnst hefur verið á
rennihurðina ber að geta þess að
slíkar hurðir henta vel í litlum
íbúðum. Hurðimar renna meðfram
veggjunum, í stað þess að opnast
út og taka þar með minna pláss.
Persónulegir munir eiga að
bijóta heildarsvipinn upp
í litlum íbúðum er sniðugt að
hafa fáa liti og fáar gerðir af efn-
um, til dæmis viðartegundum, til
að láta íbúðina sýnast stærri en
hún í raun og veru er. Rut lagði til
að mynda áherslu á að nota sama
gólfefnið í allri kjallaraíbúðinni, en
þannig lætur augað blekkjast og
Afar mikilvægt er
að hafa mikið
skápapláss í litlum
íbúðum þannig að
hlutimir geti rúm-
ast vel. í því sam-
bandi bendir Rut á
að gott sé að láta
hvem hlut hafa sinn
stað, því þannig sé
enginn möguleiki á
því að dreifa hlutun-
um út um allt. Af
sömu ástæðu er
betra að geyma hlutina í lokuðum
skápum. Þá bendir hún á mikilvægi
þess að skápamir séu ekki yfir-
þyrmandi heldur falli inn á milli
veggja þ.e. að þeir séu innbyggðir.
I kjallaraíbúðinni reyndi hún að
nýta skápaplássið á baðinu eins og
hún gat og reyndi svo að koma hill-
um fyrir í íbúðinni þar sem hægt
var, en með það í huga að þær féllu
vel inn í umhverfið. Þá lét hún
smiða skúffur undir rúmið í svefn-
herberginu þannig að plássið nýtt-
ist þar líka.
Fyrir ofan fatahengið í íbúðinni
er hilla fyrir húfur, vettlinga og
fleira dót, en fyrir neðan er hilla
fyrir skótau. Hugsunin er sú að
hver hlutur hafi sinn stað. Þess má
geta að síðamefnda hillan er aðeins
fyrir ofan gólfið þannig að hægt sé
að þrífa undir henni.
Að lokum bendir Rut á mikilvægi
þess að góð aðkoma sé fyrir framan
litla íbúð, að þar sé til dæmis verönd
sem hægt væri að nýta til dæmis
fyrir gesti í góðu veðri og þar með
að stækka íbúðina.
Hafa ber í huga lýsingu,
efnisval og skáparými
Fjölvarnarkerfi
uy uuyaifu
Slokkvitæki
iðvörun
iövörun
► Hjálparkall
► fiuslukuviDvuruu
Eldvaruarteppi
Reykskynjarar
Þároddsstööum
viö Skúgsrtilíi
105 Reykjivík
Sími 552 0309
Fll 5B2 4105
http://www.vari.is
Hægt er eð fé fjölvernarkerfi
bæfii práðlaus og vírtengd
svo einnig mefi fjarstýringu.
Húsbúnaður á Netinu
Á SLÓÐINNI http://www.casaital-
ia.it/ er að finna ýmsan húsbúnað
ítalskrar ættar, þar á meðal svefn-
herbergishúsgögn, baðhúsgögn,
stóla og borð, til að mynda vörur
frá Tonon, Calligaris, Promosedia
og SedieFriuli. Vefúrinn er á ensku
og ítölsku.
Shaker húsgögn má finna á slóð-
inni http://wwwl.usal.com/-
Ikac/kac.htm, og þar eru myndir af
ýmsum húsgögnum og verðlisti.
Bandariskir húsgagnahönnuðir
hafa með sér félagsskap sem kallast
ASOFA. Á heimasíðu hans, sem er á
slóðinni http://www.asofa.org/, er
að finna ýmsar upplýsingar um fé-
lagsskapinn, aukinheldur sem þar
er sýning á verkum ýmissa félags-
manna o.fl.
í Ollerup á Fjóni er fyrirtæki sem
kallast Sea Chest. Eins og nafnið
gefúr til kynna sérhæfir það sig í
húsgögnum sem draga dám af sjó-
gögnum, en fyrirtækið var á sínum
tima í bátasmíði. Á slóðinni
http://www.seachest.-
dk/Sea_DK.htm má sjá útskurð af
stafnmyndum, sjókistum, kommóð-
um og flöskuskrfnum, svo fátt eitt
sé talið.
Á slóðinni http://www.bmi.net/-
knapp/infokfr.html, sem er hjá fyr-
irtæki sem sérhæfir sig í að gera
upp húsgögn, er að finna ýmsar
leiðbeiningar til þeirra sem hyggj-
ast kaupa sér antikhúsgögn.
í New York starfar New York
Design Center, sem hóf starfsemi
sem húsgagnaverslun á þriðja ára-
tug aldarinnar en fór sfðan út í inn-
anhússarkitektúr og iðnhönnun.
Þar er að finna á sjöunda tug kynn-
ingarsala og gott sýnishorn af starf-
seminni er á slóðinni
http://www.nydc.com/.
Danska fyrirtækið Trip-Trap er
með vefsfðu þar sem meðal annars
má finna gólfefni og stiga, en einnig
talsvert úrval af húsgögnum, inni og
úti. Slóðin er http://www.triptrap.-
dk/moebler/moebelframe.h tml.