Morgunblaðið - 26.10.1997, Blaðsíða 16
16 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐEIGANDI BIRTA ÞARF AÐ VERA I HVERJU RYMI
PHILIPS
[ kaffikönnum
CaféRoma
Vönduð kanna með HD7256
leka loka.
Slekkur á sér sjálfkrafa.
Éigifíli] kr. |
Café Wasier
Þægileg, einföld og ódýr.
3.330 kr.
Café Gourmet
HD 5400
Falleg kaffivél sem sýður vatnið
áður en hún hellir upp á. Auðvelt
er að færa hana til og hitahellan
heldur kaffinu heitu.
10. EH] kr. i
CaféDéUce
Ný kaffivél. Þú hefur tvenns 7600
[riTj konar bragðmöguleika.
Heimilistæki hf
8ÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
Umboðsmenn um land alK.
E ðlilegt að lýsing sé
fjölbreytt í hverri vistarveru
ÞRENNT þarf að hafa sérstaklega
í huga varðandi lýsingu á heimil-
um. Lýsingin þarf að vera nægi-
lega mikil til að íbúamir sjái vel til
og ekki svo mikil að ofbirta valdi
óþægindum. Ljósabúnaður verður
að vera fallegur og falla vel inn í
umhverfið. Lýsingin verður að
geta skapað eftirsóknarvert and-
rúmsloft í hverri vistarveru í íbúð-
inni eða húsinu.
Gísli Jónsson, formaður Ljós-
tæknifélags íslands og fyrrverandi
prófessor, segir algengt að einn lið-
ur stangist á við annan. „Ég get
nefnt lítið dæmi máli mínu til
stuðnings. Sumum þykir fallegast
að hafa einn lampa ofan við spegil.
Hins vegar er mun betra að hafa
lampa til beggja handa til að koma
í veg fyrir að ljósið myndi skugga á
andlitinu," segir hann.
Við uppsetningu ljósa verður
ekki aðeins að hafa í huga hvemig
skuggar falla af ljósinu. AJgengt
er að endurkast frá ljósum valdi
óþægindum. „Við uppsetningu
ljósabúnaðar undir eldhússkápum
verður t.d. að varast að ljósið
speglist í eldhúsbekknum sem
veldur hinum vinnand óþægind-
um. Ef komast á hjá því er best að
hafa ljósið ekki aftarlega heldur
fremst við brúnina. Almennt verð-
ur að varast að ljós speglist í
glansandi flötum, t.d. tölvuskjám
eða sjónvörpum. Ekki má heldur
gleyma því að sæmilega bjart
verður að vera í öllu umhverfinu,"
segir Gísli.
Dauf næturlýsing þægileg
Gísli segir eðlilegt að hafa fjöl-
breytta lýsingu í hverri vistarveru.
„Auk almennrar loftlýsingar er
eðlilegt að hafa t.d. góða leslýsingu
við hjónarúm í svefnherbergi. Ein
leiðin er að koma fyrir ofan við
miðjan höfðuðgaflinn tveimur
lömpum eða tvöföldum lampa sem
hægt er að beina í sitt hvora áttina
þannig að annar aðilinn geti haft
ljós án þess að trufla hinn. Dauf
næturlýsing er þægileg og er einni
tegund lítils ljóss einfaldlega
stungið í tengil í herberginu. Önn-
ur sjaldgæfari leið í heimahúsum
er að koma fyrir lýsingu undir
hjónarúminu. Gólflýsing eða
svokölluð næturlýsing er algeng á
sjúkrahúsum. Ljósið gerir starfs-
mönnum á sjúkrahúsum kleift að
í ÖLLUM rýmum er nauðsynlegt að hafa vinnulýsingu, t.d. til þrifa, og
eðlilegt er að hafa aðra lýsingu með. Stemmningslýsing með glóperu
veitir hlýlega birtu.
GOTT er að lýsa upp póstkörf-
una til að hægt sé að vita
hvenær blaðið er komið í hana.
Morgunblaðið/Bragi Þór Jósefsson
VIÐ snyrtiborð þarf að vera
góð lýsing og gæta þarf að því
að ekki falli skuggi á andlitið í
speglinum.
BJARTARI bflskúr verður yfirleitt líka hreinni bflskúr. Athugið að
sérstakt vinnuljós er yfir vinnuborðinu. Ljósar innréttingar auka
birtumagn.
SOLUSTAÐIR:
HELSTU BYGGINGA- OG MÁLNINGAVÖRUVERSLANIR LANDSINS
narsson
fara um sjúkrastofumar að nætur-
lagi án þess að kveikja á loftljósi,"
segir hann.
Gísli tekur fram að svokallaðir
„dimmerar" þ.e. stillanleg lýsing
geti verð hentug við ýmsar aðstæð-
ur. „Ég hef t.d. „dimmer“ fyrir
lampa yfir borðstofuborðinu hjá
mér. Ég get því minnkað birtuna
og skapað hlýlega stemmningu
samhliða notkun kertaljóss."
„Halogen-pest“
Gísli talar um svokaMað
„halogen-pest.“ „Halogen-ljós geta
hentað mjög vel til sérlýsingar, t.d
í ljóskastara og vinnulýsingar.
Hins vegar fannst mér halogen-
tískan keyra algjörlega um þver-
bak á tímabili. Ég get nefnt að
halogen perur voru stórlega mis-
notaðar í verslunum í Kringlunni á
sínum tíma. Halogen-perur gefa
25% meiri lýsingu, endast tvöfalt
lengur en eru verulega dýrari en
venjulegur glóperur," segir hann.
Flúr-ljós eru heppileg til al-
mennrar lýsingar þar sem ljós
loga langan tíma í senn. „Við kaup
á flúrlömpum þarf að huga sér-
staklega að litavali. Mismunandi
litur hentar í ólíkum vistarverur,“
segir Gísli. „Ég man t.d. eftir vin-
kona mín bað mig einu sinni um að
skipta um lampa fyrir sig í eldhús-
inu af því að henni líkaði ekki við
hringlaga flúrpípu í loftinu. Eftir
að ég hafði tekið pípuna niður kom
í ljós að Utur hennar var bláhvítur
og Utendurgjöf léleg enda flúrpíp-
an ætluð í verksmiðjulýsingu.
Lausnin á vanda konunnar var því
fólgin í því að velja flúrpípu með
hlýrri lit og betri litendurgjöf.
Nýjungar eru sífellt að koma fram
og hægt er að fá flúrlampa með
mismunandi lit og góðri litendur-
gjöf, t.d. með lit svipuðum þeim
sem venjulegir glólampar gefa frá
sér.“
Dagsljós inn á heimili
Gísli minnti á að ekki tengdist
allt ljós rafmagni. „Við megum
ekki gleyma að taka tillit til dags-
birtunnar, t.d. er varhugavert að
staðsetja vinnuborð þannig við
glugga að setið sé beint á móti
glugganum. Astæðan er sú að aug-
un aðhæfa sig þá birtunni fyrir ut-
an gluggann sem er miklu meiri en
birtan á borðinu. Eðlilegra er að
koma vinnuborðinu þannig fyrir að
sá sem við það situr hafi gluggann
á vinstri hönd ef miðað er við rétt-
henta manneskju. Sé glugginn á
hægri hönd skrifar maður ávallt í
skugga af hendinni."
Lýsingamar á myndunum við
greinina eru eftir Jón Otta Sig-
urðsson, tæknifræðing, og Sigurð
Jón Jónsson, son hans.
Höfiiðprýði
heimilisins
'Xan6(úM UÍáitMd&tói
GALLERÍ Fold
rauðarárstíg og
Kringlunni