Morgunblaðið - 26.10.1997, Qupperneq 18
18 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
í sambandi við neytendur
frá morgni til kvölds!
JltagiiiiHMttfr
- kjarni málsins!
Aukinn áhugi á íslenskri
húsgagnahönnun
Hér á landi eru um áttatíu húsgagna- og
innanhússhönnuðir með lögverndað starfs-
heiti ef miðað er við félagatal Félags hús-
gagna- og innanhússarkitekta. Sjálfsagt
eru þeir þó fleiri því ekki eru allir skráðir í
félagið. Flestir þessara aðila starfa við það
að innrétta vinnustaði og heimili en örfáir
fást eingöngu við húsgagnahönnun.
Til að forvitnast nánar um
íslenska húsgagnahönnun
ætlaða heimilum ræddi
blaðamaður Innan veggja
heimilisins við Hall Krist-
vinsson og Ólaf Þór Er-
lendsson húsgagna- og
innanhússhönnuði.
I samtali við þá Hall og
Ólaf kom fram að erfitt
hefur verið fyrir íslenska
húsgagnahönnuði að lifa
eingöngu af hönnun sinni
hér á landi. Einstaka hús-
gagnahönnuðir hafa
reyndar opnað verslanir
með sínum eigin húsgögn-
um undanfarin ár en flestir
líta á húsgagnahönnunina
sem eins konar áhugamál
eða aukabúgrein. Astæðan
er aðallega sú hve erfitt er að
framleiða þessi húsgögn hér á
landi vegna smæðar markaðarins.
Oft þarf sérstakan og dýran tækja-
kost til að framleiða húsgögnin
sem veldur því að fyrirtæki þurfa
að hugsa sig vel um áður en þau
fara út í slíkar fjárfestingar. Og þá
þarf yfirleitt að flytja inn allan
efnivið. Það er bæði kostnaðarsamt
og erfitt að eiga við, að sögn Ólafs.
Islensk húsgagnahönnun ætluð
heimilum er því sjaldan fjöldafram-
leidd hér á landi heldur framleidd í
minna magni eða eftir pöntunum.
SÓFI eftir Hall Kristvinsson. Aðilar í Singapore
hafa sýnt því áhuga að selja hann.
BORÐSTOFUBORÐ úr kirsjubeijaviði
og gleri eftir Ólaf Þór Erlendsson.
Hins vegar hafa nokkrir íslenskir
húsgagnahönnuðir gert samninga
við erlend fyrirtæki um framleiðslu
vörunnar. I þeim tilfellum er þá
varan oftast keypt fullbúin í versl-
anir hér á landi.
íslensk hönnun
í Bella Center
En þrátt fyrir að íslenskum hús-
gagnahönnuðum hafi ekki gengið
sem skyldi að fá húsgögn sín fram-
leidd hér á landi er langt í frá að
þeir sitji auðum höndum. Það
sannar til dæmis hinn svokallaði
BARNAHÚSGÖGN eftir Ólaf Þór Erlendsson. Þau verða framleidd í
næsta mánuði hjá Form-innréttingum á Hvolsvelli og verða boðin til
sölu í versluninni Stólnum í Kópavogi.
Bella-hópur sem hefur á síðustu
sex árum tekið þátt í fimm dönsk-
um hönnunarsýningum sem fram
hafa farið í Bella Center í Kaup-
mannahöfn.
Hönnun íslenska hópsins hefur
< 'i' 1
si&ám
4
ávallt vakið mikla athygli á sýning-
unum í Bella Center að sögn Ólafs
og hingað til hafa einn til tveir
þátttakendur í Bella-hópnum kom-
ið hönnun sinni í framleiðslu hér á
landi eða erlendis eftir hverja sýn-
ingu. Erla Sólveig Óskarsdóttir
húsgagnahönnuður gerði til dæmis
samning við danskt fyrirtæki eftir
sýninguna síðastliðið vor um að
það framleiddi stóla sem hún
sýndi. Þá fengu aðrir þátttakendur
fyrirspurnir frá framleiðendum og
söluaðilum víða um heim eftir sýn-
inguna, til dæmis hafa aðilar í
Singapore sýnt áhuga á að selja
sófa eftir Hall og borðstofu-
borð eftir Ólaf.
Notagildið haft í
huga
Hallur segir að-
spurður að ekki sé til
nein íslensk hefð í
hönnun húsgagna fyrir
heimilið. íslenskir hús-
gagnahönnuðir hafi
lært víða um heim og
stíll þeirra beri keim af
því. Þá er heldur ekki
nein hefð í notkun á efn-
um, til dæmis viðarteg-
undum, í íslenskri hönnun, því eng-
in íslensk viðartegund er heppileg í
húsgagnaframleiðslu.
Ólafur segir hins vegar að það
sem íslenskir hönnuðir hafi helst
sameiginlegt fram yfir aðra sé
hvað þeir leggi mikla áherslu á
notagildi húsgagnanna. „Eg heyrði
það til dæmis hjá einum sýningar-
gesta á Bella Center í vor að hægt
væri að framleiða alla íslensku
hlutina strax, því að hönnun þeirra
væri ekki óraunhæf, eins og svo
margra annarra hluta sem þarna
voru sýndir,“ segir Ólafur. „Það
má því kannski segja að íslensk
húsgagnahönnun sé jarðbundin í
þessum skilningi,“ segir hann enn-
fremur.
Orlar á auknum áhuga
Aðspurðir segjast Ólafur og
Hallur hafa tekið eftir þvi að und-
anförnu að almenningur hér á landi
sé farinn að sýna íslenskri hús-
gagnahönnun meiri áhuga en áður.
Þetta komi til dæmis fram í því að
viðskiptavinir ýmissa húsgagna-
verslana og framleiðenda séu fam-
ir að spyrja meira um íslenska
hönnun og leita að henni. Einnig
benda þeir á hönnunarsamkeppni
sem haldin var fyrir skemmstu um
húsgögn í Höfða, en það sé ein
fyrsta samkeppnin í húsgagna-
hönnun í um áratug eða svo. Og þá
minnast þeir á sófann sem notaður
er í Dagsljósþættinum í Sjónvarp-
inu, sem sé eftir Kristin Brynjólfs-
son í Desform, og að notkun sófans
sé enn ein vísbendingin um aukinn
áhuga á íslenskri húsgagnahönnun.
Þeir segja þennan aukna áhuga
að sjálfsögðu mjög jákvæðan fyrir
íslenska húsgagnahönnuði og Olaf-
ur segir að íslensk fyrirtæki ættu
ef til vill ekki að hugsa of stórt í
byrjun heldur gefa íslenskri hönn-
un meiri möguleika. Til dæmis með
því að handvinna fyrstu eintökin og
sjá síðan hvað markaðurinn segir.
Ef viðbrögðin eru jákvæð væri
hægt að framleiða fleiri húsgögn
og þannig gæti boltinn rúllað
áfram.
Þegar talið berst að gæðum ís-
lenskra húsgagna segja þeir Ólafur
og Hallur að þeir sem kaupi íslensk
húsgögn geti verið öryggir um það
að vöruna sé hægt að eiga og nota
lengi. Þetta séu án vafa vandaðir
hlutir sem séu oftast framleiddir í
fáum eintökum.
Batween
OÍ1.00LS for men
ers
en