Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 21

Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 E 2f HJÁ KRISTINE ELFRIDE Á BLÖNDUÓSI Gamlir hlutir öðlast nýtt líf Blönduósi - „Ég vil fara vel með gamla hluti og gefa þeim líf,“ segir Kristine Elfride Jóhannsdóttir á Blönduósi. Eftir að hafa séð upp- gerða eldgamla dúkkuvagna, klapp- stóla, dúkkurúm og dúkkur sem sváfu hjá sextíuogátta kynslóðinni efast enginn um orð hennar. Nýjasta áhugamál Kristine eru „amerískar klippimyndir í þrívídd" sem hún kynntist í Kanada árið 1990. Hún fór sjálf að vinna við gerð þessara mynda árið 1995 og hélt sína fyrstu sýningu ári seinna. Núna stefnir hún að sýningu í Reykjavík á næsta ári og er „kraftaverkið" sjálft á trönum Kristine um þessar mund- ir. Ef það er einhver sem veit ekki hvernig amerísk þrívíddarmynd verður til þá er það þolinmæði sem þarf, ásamt drjúgum skammti af hæfíleikum og sköpunargleðin spill- ir ekki. Kristine Elfride segir að mynd eins og „kraftaverkið“ taki um hálfan mánuð af starfsævi og er þá stíft unnið. Bastdúkkuvagninn, sem er þýskur og nálgast óðum fimmtíu árin, hefur Kristine gert upp svo og hinn dúkkuvagninn sem er tíl muna eldri. Kristine hefur gert upp 63 ára gamlan klappstól og þrjátíu ára gömul dúkka virðist vart tvævetra eftir að hafa farið í gegnum upplyftingu. Upplyfting hjá Kristine þýðir einfaldlega gagngeran þvott, endurmálun kringum augu, munnur og neglur kynnast málningu og líkami dúkkunar er umvafinn hekluðum fotum sem Kristine hefur gert. HÉR hefur Kristine blásið lífi í ísbjörn á glitrandi hjarninu. FJÆR er 50 ára gamall þýskur dúkkuvagn með fjöðrun á öll- um hjólum. Hinn dúkkuvagninn er mun eldri. Kristine lífgaði verulega upp á útlit dúkkunnar sem er um þrítugt. ÖRYGGI Á HEIMILUM Reykskynjarar og slökkvitæki FJÖLDI heimilistækja á hveiju heimili hefur aukist á undan- förnum áratugum og þar með eykst hættan á því að það kvikni í íbúðunum. En samkvæmt upp- lýsingum Löggildingarstofú má rekja um þriðjung bruna á heim- ilum til heimilistækja. Koma má veg í fyrir slíka bruna til dæmis með því að slökkva á eldavélinni strax að lokinni notkun og taka sem mest af raftækjum úr sam- bandi þegar íbúðin er skilin eftir mannlaus, til dæmis brauðrist, sjónvarp og myndbandstæki. Þá ber að hafa í huga að slökkva á sjónvarpstæki á kvöldin með því að ýta á rofann en láta ekki nægja að slökkva með fjarstýr- ingu. Gömul tæki er gott að taka úr sambandi. Það sem einnig er mikilvægt til að bæta öryggi á heimilum eru reykskynjarar og slökkvi- tæki. Samkvæmt upplýsingum frá VARA, sem veitir alhliða ör- yggisþjónustu, eru reykskynjar- ar nauðsynlegir í hveiju her- bergi. Einfaldasti reykskyiyar- inn samanstendur af nema, vælu, prufuhnappi og rafhlöðu. Slíkur skynjari endist í um 5 til 10 ár. Þess ber þó að gæta að prufuhnappurinn prófar aðeins rafhlöðuna og skynjarann, en ekki hæfni skynjarans til að skynja reyk. Því þarf að prófa hann reglulega með reyk. Ein- földustu skynjararnir eru ódýrir og því ætti fólk ekki að hika við að skipta þeim út eftir að þeir eru orðnir gamlir. Stærð og tegund slökkvitækja fer eftir aðstæðum, en fyrir heimili er best að kaupa 6 lítra léttvatnsslökkvitæki, eitt á hveija hæð. Til að slökkva eld í feiti er best að nota eldvarnar- teppi. Slökkvitæki á alltaf að velja stað uppi á vegg nálægt vænt- anlegum flóttaleiðum. Skilyrðis- laust á að fara með slökkvitæki í eftirlit til viðurkenndrar slökkvitækjaþjónustu strax eftir notkun, en ennfremur kveða reglur Brunam.álast ofnunar á um árlega skoðun allra hand- slökkvitækja. UPPBÚIÐ hjónarúm með sængurveri og rúmteppi eftir Hrönn. Ingólfur Örn og fva Rut hönnuðu rúmið. INNAN VEGGJA SVEFNHERBERGISINS Brosandi sól og bj artir litir BROSAlNDI sól og bjartir litir taka á móti viðskiptavinum Hrannar Vil- helmsdóttur textflhönnuðar í Textflkjallaranum við Barónstíg. Hvergi glittir í auðan blett og af allri hönnuninni er augljóst að ímyndunaraflið á sér engin tak- mörk. Hrönn segist hafa byrjað á því að staðsetja sig í barnaherbergi. „Fyrstu myndskreytingamar á sængurverum urðu til uppúr mynd- um eftir bömin í kringum mig. Ég fór svo að reyna að setja mig í spor barnsins og fikra mig áfram með eigin stíl í litríkum og einföldum myndum. Karlamir mínir em alltaf á ferð og flugi. Dýr em vinsæl og oft sést til sólar, mána eða regn- boga. Mynstrin megi ekld vera of barnaleg því sængurverið fylgir barninu eins lengi og sængin er not- uð,“ segir hún. Sængurverin og önnur hönnun innan veggja bamaherbergisins hafa notið vaxandi vinsælda. Hrönn hefur í framhaldi af því verið að feta sig áfram inn í svefnherbergi full- orðna fólksins. „Fyrsta hugmyndin var að reyna að höfða til brúðhjóna. Myndskreytingin varð til þegar ég var að rissa niður rómverskar súlur. Súlumar urðu smám saman að nöktum útlínum karls og konu. Morgunblaðid/Árni Sæberg HÖNNUN Hrannar setur skemmtilegan svip á bamaher- bergjð. Mynstrið hefur líkað vel og gengið bæði í sængurver og rúmteppi," segir Hrönn. Hún segist leggja mikið uppúr því að vörumar haldi sér vel. Bamasængurverin em úr bómullar- popplíni og fullorðinssængurverin em úr bómullardamaski. Rúmteppi fyrir fullorðna em úr satínviskos. Allt er þvott- og ljósþolið. epcil Skeifunni 6 s. 568 7733 Stokke tripp trapp Stóllinn sem vex með barninu 5 ára ábyrgð Sama verð og annars staðar á Norðurlöndum Kr. 10.970 NY OG ENN BET NILFISK Rl Kraftmeiri, nú með 1400W mótor. Fislétt, aðeins 6.5 kg. Biðstöðufesting fyrir rör og slöngu. Og hinn frábæri Nilfisk AirCare® síunarbúnaður með HEPA H13 síu. Komdu og skoðaðu nýju Nilfisk GM-400 ryksugurnar /FOnix HÁTÚNI 6A REYKJAVÍK SÍMI 552 4420 WALL STREET SKÁPASAMSTÆiA Húsgögn gæði 73.300) 3000 m2 sýningarsalur Opið virka daga 9-18 Laugardaga 10-16 Sunnudaga 14-16 Fjölmargir möguleikar í/ÍÍNN TM - HÚSGÖGN Síðumúla 30 -Sími 568 6822 W INNVW 00 INNON

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.