Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 22

Morgunblaðið - 26.10.1997, Side 22
22 E SUNNUDAGUR 26. OKTÓBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ VINDUFOTUR Arnarberg ehf. Fossháls 27, Draghálsmegin Sími 567 7557 • Fax 567 7559 Siglufirði - Brynja Baldursdóttir myndlistarmaður og hönnuður er fædd og uppalin sem borgarbarn. Hún flutti frá London til Siglu- fjarðar með smá viðdvöl í Grjóta- þorpinu fyrir þremur árum. A Siglufirði hefur hún ásamt sambýl- ismanni sínum, Arnþóri Þórssyni, fest kaup á gömlu húsi sem stend- ur við Eyrargötu og lagað það eftir sínum þörfum. Húsið sem er þriggja hæða timb- urhús var byggt upp úr aldamót- um. A neðstu hæð hússins hefur um margra ára skeið verið starf- andi úrsmiður, en tvær næstu hæð- ir höfðu lengi staðið auðar áður en þau Brynja og Arnþór festu kaup á þeim. Gestum boðið 1 vinnustofuna Húsnæðið, sem er í senn vinnu- staður og heimili þeirra skötuhjúa ber þess glöggt merki að vera ekki alveg „hefðbundið" heimili og sam- anstendur íbúðin af vinnustofum, verkstæði, litlu eldhúsi, baðher- bergi og svefnherbergi. Engin „venjuleg stássstofa“ er í húsinu, heldur er gestum gjarnan boðið í kaffi í eina stóra vinnustofu þar sem listaverk á hinum ýmsu vinnslustigum prýða veggi, borð og gólf. En með myndlistinni vinnur Brynja að hönnun á skartgripum sem seldir eru í millilandaflugi Flugleiða. Og Arnþór, sem er vél- stjóramenntaður annast nýkeyptan björgunarbát Slysavamafélags ís- lands, sem er á Siglufirði. Brynja segir að þetta fyrirkomu- lag, að hafa vinnustaðinn inni á heimilinu, henti siglfirskri vetrar- veðráttu afskaplega vel, hún tekur það samt fram að hún sé aUs ekki að kvarta undan siglfirskum vetri, þvert á móti þá er hún afskaplega hrifin af snjó og þeirri fallegu birtu sem honum fylgir og segir hún sjóinn hafa verið það sem hún saknaði mest er hún bjó í London. Góður andi Þau Brynja og Arnþór eru sammála um að mjög góður andi ríki í húsinu. „Hér líður okkur afskap- lega vel. Það er kostur að geta búið á vinnustaðnum og unnið á heimilinu, manni verður eitthvað svo mikið úr verki.“ Aðspurð segist Brynja ekki finna fyr- ir einangran á Siglufii-ði. „Þvert á móti finn ég fyrir frelsi og öryggi. A svona litl- um stað er mannlífið svo manneskjulegt, hér bjóða t.d. allir góðan daginn og gömlu góðu gildin, sem virðast því miður vera á undanhaldi í þétt- býlinu, era enn í hávegum höfð á landsbyggðinni." Að búa á vinnustað og vinna á heimilinu Morgunblaðið/Sigriður Ingvarsdóttir BRYNJA og Arnþór í stáss- og vinnustof- unni. A veggjunum eru skissur af lágmynd um eftir Brynju. BRYNJA vinnur að hönnun og framleiðslu á skartgripum sem seldir eru í millilandaflugi Flugleiða. ■ Húsgag nagerö Hjá GKS færðu eldhús- og kaffistofu- húsgögnin sem þú leitar að. Úrvalið af borðum og stólum er mikið'. Auk þess sérsmíðum við húsgögn eftir óskum viðskiptavina. Smiðjuvegi 2, Kópavogi Slmi 567 21 10 Fax 567 1 688 Netfang: gks@skima.is http. www.skima.is/gks Hönnuður Mocca stóla: Pétur B. Lúthersson, FHI Nyr lífsst’ll! HOLLUSTA Opnum LISTHUSINU LAUGARDAL glæsilegur saíatbar! f LISTHUS ____l LAUGARDAL »ISTACAFF □pnunartími 10 - 21 Engjateigi 17-19 • Sfmi: 569 4955 Opið: 19-15 & 18-91 alía daga nema sunnud. Eldhús með amerísku yfirbragði á Þórshöfn Þórshöfn - Á ÞÓRSHÖFN á Langanesi stendur glæsilegt ein- býlishús við sjávarbakka með út- sýni yfir fjörðinn og fjallahringur- inn í baksýn. Þar búa Rafn Jónsson og Kristín Alda Kjartansdóttir ásamt dætram sínum. Fyi’ir skömmu var sett upp ný eldhúsinn- rétting hjá þeim en hún er að nokkra frábragðin því sem helst er inni á markaðnum í dag. Innréttingin er smíðuð hjá HK innréttingum eftir grunnhugmynd- um Kristínar og Rafns. Þær vora síðan útfærðar í samvinnu við smiði og tilboðsgjafa. Innréttingin er úr sprautulökkuðum MDF plöt- um meðhvítri háglansáferð sem gerir hana auðvelda í þrifum. Gyllt- ar höldur gefa henni klassískan svip. Heimilistækin era Miele frá Eirvík og amerískur ísskápur frá Heklu hf. Háfurinn er franskur og einnig frá Eirvík. A eldhúsbekkj- unum er granít og eyjan með hellu- borðinu er einnig úr graníti. Við val á því var notagildið í fyrirrúmi því það þolir heit ílát og potta án þess að á því sjái. Þegar Kristín og Rafn leituðu tilboða og nánari útfærslu á hug- myndum sínum kom fram að það sem þau höfðu í huga - innréttingu í sígildum amerískum stíl - er ekki algengt á markaðnum í dag. Það var fyrst og fremst stærð rýmisins sem bauð upp á þennan ameríska stíl þar sem áhersla er lögð á góða vinnuaðstöðu við eyju í miðju eld- húsi. Slík aðstaða í nægu rými býð- ur upp á að fjölskyldan geti sam- einast þar við eldamennsku eða önnur störf. Heildarmynd eldhúss og borðstofu Til að ná saman heildarmynd af eldhúsi og borðstofu var smíðaður skenkur í sama stíl og eldhúsinn- réttingin til að tengja saman eld- hús og borðstofu en hún er aðal- íverastaður fjölskyldunnar. Ur borðstofunni þar sem gengið er inn í stofu era glerhurðir í sama stíl og innrétting í eldhúsi. I samvinnu við hönnuði náðu Rafn og Kristín að lokum því sem þau vora að leita eftir og era ánægð með útkomuna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.