Morgunblaðið - 09.12.1997, Page 2

Morgunblaðið - 09.12.1997, Page 2
2 B ÞRIÐJUDAGUR 9. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Imyndunin alltaf í spilinu BÆKUR Skáldsaga FÓTSPOR Á HIMNUM eftir Einar Má Guðmundsson. Oddi hf. prentaði. Mál og menning, 1997. 216 bls. Leiðb. verð: 3.680 kr. „AÐ MIÐLA liðinni tíð með ljóð- rænum hætti til þeirra sem yngri eru,“ segir Einar Már Guðmundsson vera hlutverk bók- menntanna í viðtali við Morgunblaðið um nýút- komna skáldsögu sína, Fótspor á hirrmum. Þetta viðhorf hefur ver- ið uppi í flestum skáld- sögum Einars Más og hefur sett mark sitt á stíl hans. Ljóðrænn prósi eru einkur.n&rorð sem oft heyrast um sög- ur hans og einnig hafa menn ekki þreyst á að nefna frásagnargleðina sem augljóslega liti all- an hans texta. Þessi orð eiga öll við um nýju skáldsöguna og kannski má segja að í henni hafí Einar Már slípað stíl sinn og frásagnarhátt enn frek- ar, þróað og þroskað persónulega aðferð sína sem mönnum þótti hafa náð ákveðinni fágun í síðustu skáld- sögu hans, verðlaunabókinni Engl- um alheimsins. Eins og svo oft áður sækir Einar Már efniviðinn í söguna í sitt nán- asta umhverfi. Eins og fram hefur komið í viðtölum er þessi saga að nokkru byggð á frásögnum sem hann hefur heyrt um frændur sína og forfeður en einnig hefur hann að eigin sögn lagst í töluverðar sagn- fræðirannsóknir. Skáldskapurinn er þó_í fyrirrúmi sem fyrr. í Fótsporum á himnum segir sögumaður, sem er samtímamaður, sögu afa síns og ömmu, barna þeirra og vina sem byggðu Reykjavík í bytjun aldarinnar. Sagan hefst raun- ar á mynd úr æsku ömmunnar þar sem hún verður vitni að sveitarflutn- ingi fátæks fólks á síðustu öld en lýkur einhvern tímann á fimmta ára- tug þessarar aldar þar sem hún rífst við forkólf hvítasunnusafnaðarins um það hvort guð sé í Sjálfstæðis- flokknum og heimtir til sín soninn Ragnar úr borgarastyijöldinni á Spáni, nokkurn veginn heilan á húfi. Ekki ætla ég að rekja nákvæm- lega atburðina sem verða þarna á milli en sagan berst víða og margir koma við hana. Er óhætt að segja að persónugalleríið sé fjölskrúðugt. Amman Guðný er í miðpunkti ásamt syni sínum Ragnari og Olla vini hans sem fór með honum til Spánar að sögðum þessum orðum við konu sína, Unni fögru: „Á Spáni er maður sem heitir Franco. Ég hef hugsað mér að skjóta hann. Síðan kem ég aftur og elska þig jafn heitt og áð- ur.“ Grímur, vinur þeirra Ragnars og Olla, er svo harður í horn að taka í knattspyrnunni að upplagt þykir að hann reyni fyrir sér í hnefaleik- um, þannig verður einn almesti hnefaleikamaður ís- lands til nánast fyrir tilviljun. Var hann aldr- ei kallaður annað en Grímur boxari. Afinn, Óli ragari, þykir ekki hafa komist vel frá eig- inmanns- og föðurhlut- verkinu en er orkumeiri sjósóknari en flestir. Hann var ekki orðinn fimmtugur þegar hann lést „en sé tíminn mældur í sjósókn og aflabrögðum lifði hann í margar aldir“. Aðrir synir þeirra hjóna koma minna við sögu, einna helst Kári sem boxaði eins og Grímur en varð þó frægastur fyrir sleggjukastið. Marga fleiri mætti nefna en of langt mál yrði að telja þá hér. Þetta er íslensk saga. Ekki bara vegna þess að hún hefur að geyma alla þessa kynlegu kvisti heldur líka vegna þess hvernig hún segir frá þeim og atburðum. Orðum er ekki eytt á það sem ekki skiptir máli, það sem ekki þykir nógu sérstakt og stórt; „Með aldrinum breytist fólk í sagnfræðinga og hreinsar burt atvik einsog orma úr fiski“, segir sögu- maður. Það eru viðburðirnir sem skipta máli, hnitnu tilsvörin á örlaga- stundunum, það er ekki dvalið við hvunndaginn, hið smáa. Þetta er stóratburðasaga, stundum eins og stiklað sé á stóru með ljóðrænum milliköflum. Öðru hveiju vill brenna við að hin epíska framvinda/sam- fella rofni. Frásögnin verður hálf- gert stakkató þegar verst lætur (í hugann koma kvikmyndir Friðriks Þórs sem Einar Már hefur skrifað handrit að og einkennast af þessum sama frásagnarhætti klippingarinn- ar, til dæmis Börn náttúrunnar og Bíódagar). Stundum má sjá ákveðna (kannski augljósa) skírskotun í mannlýsingar og frásagnarbrögð íslendinga sagna. „Hún fór einförum og sagði aldrei fleira en hún þurfti," segir um Signýju nokkra á Oddsstöðum. Sagt er frá á knappan hátt, sviðs- Einar Már Guðmundsson BÆKUR setningar eru einfaldar, í þeim er komist beint að efninu en ljóðrænir útúrdúrar fylla í þar á milli. Mikið er sagt í sem fæstum orðum, hlið- skipun er ríkjandi og setningar eru stuttar og einfaldar: „Ingibjörg móð- ir hans grét en bræður hans mæltu fátt.“ Eða: „Voru þá margir sárir í báðum liðum.“ Staða sögumanns er hins vegar allt önnur en í íslendinga sögum. Hér dylst hann ekki á bak við efnið heldur er sínálægur, lætur til dæmis vita hvernig sögu hann sé að segja og segir frá heimildum sínum eða heimildaleysi. Innskot hans eru fjöl- mörg. Oft leggur hann út af sögunni og er augljóst með hveijum hann hefur samúð, sjónarhorn hans er sós- íalískt:...en þetta voru aðeins hug- arórar vannærðra stráka sem reknir voru áfram með harðri hendi, voru aldrei kallaðir annað en skussar og trassar, stöðugt minntir á hvaðan þeir komu og hveijir þeir voru.“ Um leið og Fótspor á himnum er fjölskyldusaga er ætlun Einars Más að segja sögu þjóðar sem kom hálf- meðvitundarlaus inn í þessa nýju öld, inn í nýjan og framandi heim. Þetta er auðvitað sagan um flutning- inn úr sveit í borg en þetta er bara allt önnur útgáfa af henni en sú sem við þekkjum úr sögum eldri kyn- slóða, rithöfundanna frá sjötta og sjöunda áratugnum, eins og Ólafs Jóhanns Sigurðssonar og Indriða G. Hjá þeim var sveitarómantíkinni teflt gegn firringu og upplausn borg- arlífsins. Einar Már andæfir þessum ímyndum, þessum einfölduðu and- stæðum. Um sveitamynd hans má benda á fyrrnefndan upphafskafla bókarinnar þar sem Guðný amma fylgist með sveitarflutningi. Sagt er frá illri meðferð bræðranna í sveitar- dvöl þeirra, en einnig frá uppgötvun systur þeirra á unaðssemdum sveit- arinnar. Eins og í fyrri verkum sín- um finnur Einar Már hins vegar leik, fantasíu og sköpun inni í köldu umhverfi borgarinnar, þar er þrátt fyrir allt dýnamík í mannlífinu. En sveitaþjóðin á líka töluvert erfitt með að fóta sig á mölinni, í nýjum tíma og nýjum heimi. Einnig þar leysast fjölskyldur upp eins og raun varð á um fjölskyldu þeirra Guðnýjar og Óla ragara. Hér er þó ekki um neinn realisma að ræða. Markmiðið er ekki sann- leikurinn, veruleikinn, heldur ávallt skáldskapurinn sjálfur og sannleikur hans, einhvers konar skáldaður veruleiki eða ljóðrænn veruleiki sem lýtur sínum eigin lögmálum. Eins og áður sagði lætur sögumaður held- ur aldrei skína í annað en að horft sé úr fjarlægð. Og ímyndunaraflið er alltaf með í spilinu, eins og titill bókarinnar gefur kannski til kynna. En það er líka bara þannig sem minnið vinnur úr hlutunum. Þessi bók ætti ekki að valda aðdá- endum Einars Más vonbrigðum en hún ætti heldur ekki að koma þeim á óvart; það má nánast segja að hún sé röklegt framhald af fyrri bókum hans. Þröstur Helgason Hef alltaf verið hrifinn af lang- tímamarkmiðum RITHÖFUNDURINN Sigurður Pálsson hef- ur sent frá sér níundu ljóðabókina, Ljóðlínu- spil, sem er þriðja bókin í þriðja þríleik höfundar. Áðrar bæk- ur þessa þríleiks eru Ljóðlínudans og Ljóðlínuskip. Orðið spil felur í senn í sér fastan ramma og leik. Upp- bygging bókarinnar nær lóðrétt frá jörðu til himins. í byijun er dregin upp nærmynd, niðri við svörð, þaðan sem horft er til him- ins. I lokin hefur sjónarhornið færst frá jörðu til himins, veröld- in öll hefur fjarlægð handan- heimsins, sjónarhorn sem er skýj- um ofar. „Spilin 52 í spilastokkn- um gefa endalausa möguleika. Þannig er um lífið, maður fæðist og deyr og þess á milli hefur maður endalausa möguleika, og vonandi líka eftir að maður deyr,“ segir Sigurður. Líkt og sjóarar kasta út línuspili á höf- undurinn sitt ljóðlínuspil sem hann kastar út í von um að fiska ljóðfeng úr undirvitundinni. Bæði úr sinni eigin undirvitund, úr vit- und þjóðarinnar og veraldarinn- ar allrar. Frá því smæsta til hins alstærsta. Enn er stiginn ljóðlínu- dans og dansinn á það sam- eiginlegt með bóklestri að þar mætast tveir pólar. „Mér þykir dansinn mjög heillandi og get endalaust horft á fólk dansa, þ.e. danspör. Nútiminn kom með einræðuna inn í dans- inn en þessi dans tveggja póla eftir ákveðnu hljóm- falli er í raun nákvæm táknmynd fyrir lestur. Maður les texta sem er skrifaður af öðrum og hver og einn býr til sitt hljóm- fall, sína tillögu að merk- ingu,“ segir Sigurður. „Ég tek það aldrei nógu oft fram að lestur er fijáls. Menn þurfa engan leiðar- vísi með lestri, allra síst frá höfundinum. Lestur er hvorki einræða né móttaka á einni merkingu heldur samtal, - samspil þess sem skrifar og þess sem les. Dans tveggja sem heldur áfram öldum saman. Við dönsum enn við Shakespeare, Dante og Sófokles og það er unaðssemd text- ans. Með bókinni er dauðinn afnuminn." Varðandi skipu- lagða uppbyggingu eigin ljóðheims í þremur þrílógíum segist Sigurður alltaf hafa verið hrifinn af langtímamarkmið- um. „Mér finnst hrollvekjandi hvað við íslendingar erum lausir við langtíma- markmið. Við viljum skammtímalausnir strax og svo viljum við gleyma. Innst inni trú- um við ekki á hluti eins og skóg- rækt og þolum ekki biðina eftir því að gróðursetningin skili ár- angri eftir 30 eða 40 ár. Því má segja að þetta sé hvatning mín til þjóðarinnar um að setja sér langtímamarkmið," segir Sigurð- ur. „Ljóðagerð mín hefur smám saman víkkað út í stærra sam- hengi sem var ekki jafnljóst þeg- ar ég fór af stað. Þetta er eins og að ætla upp í Bláfjöll og svo ertu óvart lentur á hringveginum og þá er ekki annað að gera en halda áfram. Ég ætlaði fyrst upp í Bláfjöll en ég er kominn út á hringveg ljóðsins." Himnastigi Ökklar kvenna Stiklandi stjáklandi yfir mig Ökklar kálfar Ligg á bakinu á eldhúsgólfi Stiklandi Fjórar konur Uppgötva nýtt sjónarhorn Fimm ára Löngu síðar skildi ég Að manneskjan er dragspil Emjandi harmonikka Þanin af þrá Milli jarðar og himins Himnastigi AHa leið frá ökkla Sigurður Pálsson Að fara yfir um BÆKUR Skáldsaga HANAMI eftir Steinunni Sigurðardóttur. Mál og menning 1997 - 203 síður, 3.680 kr. „HVENÆR drepur maður mann, og hvenær drepur maður ekki mann?“ spurði Jón Hreggviðsson í íslandsklukkunni á sínum tíma. í Hanami, nýrri skáldsögu Steinunnar Sigurðardóttur, er varpað fram áþekkri spurningu, þó rétt sé að orða hana aðeins öðruvísi: Hvenær er maður lífs og hvenær er maður liðinn? . Fjölskyldufaðirinn og ■ sendibíl- stjórinn Hálfdan Fergusson, maður á miðjum fertugsaldri, fær skyndi- lega þá flugu í höfuðið að hann sé „dauður takk“ (8). Þessi óhuggulega fullvissa kemur „lífi“ hans að sjálf- sögðu í uppnám, setur mark sitt á samskipti hans við sína nánustu og annað samferðafólk. Eins og gefur að skilja gengur manninum erfiðlega að sannfæra vini og fjölskyldu um að hann sé ekki lengur á meðal vor, enda ekki sjáanleg á honum nein teljandi dauðamerki. í stað skilnings og samhygðar vegna þeirrar ógæfu sem dunið hefur yfir Hálfdan - að „mega ekki deyja í dauðanum" (56) eins og hann orðar það hrelldur - er honum ráðlagt að leita sér hjálp- ar. Augljóst er af viðbrögðunum að vinir og vandamenn telja að Hálfdan sé farinn yfir um - sem hann vissu- lega er, þó í tvíræðum skilningi sé. En þó meinlokan sé þrálát, er Hálf- dan alls ekki dauður úr öllum æðum, ef svo má að orði komast um mann í hans ástandi. Yfirkominn af þeirri tilhugsun að kannski sé verið að blekkja hann - láta sem hann lifí þó hann sé dauður, jafnvel komast hjá því að jarða hann sómasamlega, hvað þá að skrifa um hann minning- argrein - ákveður hann að koma sinni eigin jarðarför í kring, og kom- ast þá að því í leiðinni hver hann í rauninni var. Hvernig til tekst og hvað af öllu þessu hlýst skal ósagt látið að sinni, til að ræna ekki konf- ektinu frá lesendum. Hinsvegar er skemmst frá því að segja að hér fer af stað skrautleg atburðarás sem berst alla leið austur til Japans, þar sem skammlíf kirsubeijablóm koma við sögu. Steinunn Sigurðardóttir fer á kostum í þessari bók, þar sem hug- arflugi, húmor og frásagnargleði eru lítil takmörk sett í undarlegri blöndu raunsæis og absúrdisma. Með einni óþarfa undantekningu (81-82) ein- skorðast sjónarhornið við Hálfdan Fergusson og fer vel á því. Bygging sögunnar og flétta ganga vel upp sem heild. A köflum eru veruleika- tengslin þó teygð til hins ýtrasta og reynir þá oft á sam- starfsvilja lesandans til að fallast á veruleika sögunnar. Meginstyrk- ur bókarinnar liggur í einstökum sviðsetning- um sem bera vott um næmi, fegurðarskyn og kímni höfundar. Stein- unn Sigurðardóttir hef- ur einstakt lag á því að skemmta lesendum sín- um án þess þó að grín- gleðin yfirskyggi aðrar frásagnareigindir. Hú- morinn nýtur sín ekki síst í lýsingum á sam- skiptum Hálfdans við eiginkonu sína og sam- tölum þeirra hjónanna. Þar leikur höfundur sér að orðum og hugtökum sem tengjast lífi og dauða og veltir merkingu þeirra við af fullkomnu miskunnarleysi, oft með óborganleg- um árangri. Umhverfislýsingar eru margar næmar og fallegar. Sama er að segja um einu ástarlífssenu sögunnar þó að hún þjóni engum tilgangi fyrir framvinduna. Óneit- anlega grunar mann að þar sé verið að uppfylla „söluform- úluna“ sem nú á dögum krefst þess að bækur innihaldi minnst eina ofbeldissenu og eina kynlífssenu. Látum það vera, Steinunn skrifar vel; hún verður hvorki klúr né væmin - sem er harla gott - og fer aldrei offari með grín sitt eða alvöru. Á bak við þessa fyndnu og fallegu frá- sögn vaka margvísleg- ar hugleiðingar um verðmæti og/eða fánýti lífs og dauða. Að minnsta kosti tekst Steinunni að gera mörkin þama á milli æði óljós með persónusköpun manns sem vaknar til lífsins þegar hann er að eigin dómi dauður. í þeim skilningi fylgir sagan hinu klassíska arfsagnamynstri um líf, dauða og endurfæðingu, þar sem sífellt er ýtt við óræðum spurningum um það hvað það eiginlega sé sem gerir lífið að lífi. Ólína Þorvarðardóttir Steinunn Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.