Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 24
24 B SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ HÓPUR 800 verkfræðinga og tæknimanna hefur unnið að þróun B 757-300 vélarinnar en Flugleiðir fá siíka vél afhenta í mars 2001. Ný þota Flugleiða hingað til lands 21. janúar BOEING verksmiðjurnar banda- rísku stefna að því að afhenda Flugleiðum nýja B 757-200 þotu 20. janúar næstkomandi og er ráðgert að fljúga henni áleiðis hingað til Iands að kvöldi þess dags. Við komuna til Keflavíkur að morgni 21. janúar verður henni formlega gefið nafn en skráningarstafir hennar eru TF- FIN. Smíði þotunnar lauk í nóvem- ber og hefur hún síðan verið í láni hjá Boeing verksmiðjunum vegna tilraunaflugs með nýja tegund flugstjórnartölvu, Pegasus, og tæki fyrir fjarskipti og flugleiðsögu gegnum gervi- hnetti. Um borð er einnig búnað- ur til margháttaðrar skráningar upplýsinga frá þessum nýju tækj- um en slík skráning er forsenda þess að fá viðurkenningu banda- risku flugmáiastjórnarinnar, FAA, á notkun tækjanna í B 757 þotum. Fram til þessa hafa þau aðeins verið í breiðþotum. Búist er við að þessum tilraunum ljúki fyrir jól og verða þá tækin tekin úr og gengið endanlega frá þot- unni áður en hún verður afhent fulltrúum Flugleiða. Leifur Magnússon, fram- kvæmdastjóri flugflota og örygg- issviðs Flugleiða, og Kristinn Halldórsson, forstöðumaður tæknideildar félagsins, voru ný- lega í Seattle og kynntu sér m.a. þennan búnað og framvindu til- raunaflugsins. Leifur sagði í sam- tali við Morgunblaðið að þessi leiðsögutækni gegnum gervi- hnetti væri nauðsynleg í flugi yfir Kyrrahafið og hefði þegar verið tekin upp. Búast mætti við því að svo yrði einnig síðar í flugi yfir Atlantshafið en ICAO, Alþjóða fiugmálastofhunin, stefnir að því að taka upp þessa tækni fljótlega eftir aldamót. Fá helming búnaðarins fyrir leiguna Leifur segir að samið hafi verið við Boeing verksmiðjurnar um að helmingur búnaðarins sem tengist þessu flugleiðsögukerfi verði áfram í vélinni. Er þar um að ræða lagnir og loftnet en síðar gætu Flugleiðir fjárfest í nauð- synlegum viðbótartækjum fyrir fjarskiptin um gervihnetti. Verð- mæti alls búnaðarins er kringum hálf milljón dollara, kringum 35 milljónir íslenskra króna. Næsta þota sem Flugleiðir kaupa frá Boeing verður einnig af gerðinni B 757-200 og á að af- henda hana í apríl 1999. Siðan koma tvær af hinum nýju B 757- 300 með árs millibili, í mars 2001 og 2002. Leifur segir að þróun nýju þotunnar gangi samkvæmt áætlun en hún er 7 metrum lengri en 200 gerðin og tekur 226 far- þega B 757-200 tekur 189. „Síð- asta sumar störfuðu um 800 verk- fræðingar við þróun þessarar nýju flugvélar og hefur verið lok- ið við nærri fjögur þúsund teikn- ingar af þeim 4.415 sem þarf við smíðina," segir Leifur. „Fyrir nokkru var hafin smfði fyrstu vél- arinnar og á henni að ljúka í maí 1998 og er ráðgert að fyrsta flug- ið verði á miðju næsta ári. Verk- smiðjurnar gera ráð fyrir að fá lofthæfisviðurkenningar banda- rískra og evrópskra flugmálayfir- valda í janúar 1999 og að þá hefj- ist afhending til þýska leiguflug- félagsins Condor sem pantað hef- ur 12 slíkar vélar.“ Sem fyrr segir er TF-FIN vænt- anleg hingað til lands að morgni 21. janúar eftir um sjö tíma og 15 mfnútna flug frá Seattle í Banda- ríkjunum. Þann dag verður settur f hana ýmis búnaður og á hún sfð- an að hefja flug í áætlun félagsins föstudaginn 23. janúar. Flugfloti Flugleiða er nú 9 þot- ur, þ.e. fjórar B 757-200 og fjórar B 737-400, ein B737-300 fraktþota og þrjár Fokker 50 skrúfuþotur sem leigðar eru til Flugfélags ís- lands. Með nýju þotunni eru alls fjórar þotur í ákveðinni pöntun og jafnframt á fyrirtækið kauprétt á átta B 757 þotum til viðbótar árin 2000 til 2006. NÝ GERÐ sæta verður bæði í Saga-Class farrýminu og almennu far- rými og er breytingin m.a. sú að rofar fyrir hljómtæki og kvik- myndasýningar eru nú ofan á sætisörmum. NÆSTA nýja vél frá Boeing, fyrir utan B 757-300 er B 777-300 sem hér er nær á myndinni og er talsvert stærri en B 757-200 þota Flugleiða. Stutt er í að fyrstu vélamar af þeirri gerð verði afhentar flugfélögum sem pöntuðu hana fyrst. HER em Kristinn Halldórsson (t.v.) og Leifúr Magnússon um borð í nýju vélinni sem er hálffull af ýmsum tækjabúnaði vegna tilraunaflugsins fyrir Boeing verksmiðjurnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.