Morgunblaðið - 14.12.1997, Blaðsíða 29
n
QO
MORGUNBLAÐIÐ
Á SENOR-TANGÓ skemmtistaðnum í Buenos Aires. Frá vinstri: Ari Einarsson, Rakel Jóhannesdóttir, Örn
Forberg, Þórarinn Gíslason, Þorbjörg Jónsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Héðinn Jónsson, Guðbjörg Guðmunds-
dóttir, Kristján Sigfússon, Guðbjört Ólafsdóttir og Jón Þórarinsson.
SAMBA-sýning í einum frægasta skemmtistað heims,
Plataforma 1, í Rio de Janeiro.
borgarinnar notið af hjartans lyst, á
nóttu sem degi.
Næst lá leiðin til andfætlinga
okkar á Nýja-Sjálandi og var gist á
nýju Sheraton-hóteli í Auckland í
þrjár nætur. Þar var veðrið með því
daufasta á ferðalaginu og höfðu
menn að gamni að um margt líktist
Nýja-Sjáland íslandi. Leiðin þaðan
til Rotorua, sem er höfuðborg frum-
byggjanna, Maoria, þótti fólki und-
urfögur, enda skein þá sól í heiði.
Bar óðalsbændum ferðarinnar og
öðru búaliði saman um að jafn bú-
sældarlegt land hefðu þeir aldrei
augum litið. Að sama skapi var
dvölin í Rotorua hin skemmtileg-
asta og nutum við ljúfs viðmóts og
gestrisni hinna íturvöxnu Maoría,
sem léku tónlist sína, dönsuðu
fræga dansa sína á „Hangihátíð", og
kenndu sumum bardagalist."
Austur yfir daglínu
„Við gott atlæti Qantas-flugfélags-
ins flugum við austur yfir daglínuna
og færðum klukkuna aftur um heilan
sólarhring, áður en við lentum í Pa-
peete, höfuðborg Tahítí. Þar var
okkur tekið með kostum og kynjum
og strax í flugstöðinni voru allir
skreyttir fegurstu blómsveigum,
,,lei“, að hætti innfæddra. Og þegar
við komum á vandaðasta hótel eyj-
unnar, Beachcomber, biðu okkar
svalandi drykkir, kliðmjúk tónlist og
eggjandi dansar fagurra meyja, sem
blönduðu sér í hóp gesta.
Næstu daga var farið í kynnis-
ferðir um Tahítí og nærliggjandi
eyjar. í vitund margra verður Tahí-
tí, með draumkennda fegurð sína,
litadýrð og gyðjum líkar meyjar,
„vahines“ á máli innfæddra, há-
punktur ferðalagsins, enda heillað-
ist franski listmálarinn Paul Gaugu-
in svo af þessu umhverfi og mannlífi
að hann undi sér ekki annars staðar
eftir það og málaði frægustu verk
sín í þessari furðuparadís.
Að áliðinni nóttu hélt ferðin
áfram með Lan Chile-flugfélaginu
til Suður-Ameríku, með millilend-
ingu á Páskaey. Þetta flug hófst
fyrir aðeins ári, en þangað til höfðu
engar samgöngur í lofti verið á milli
Tahítí og Suður-Ameríku. Flestir
ferðamenn á Tahítí koma frá
Bandaríkjum Norður-Ameríku og
fara sömu leið til baka. Ég stökk á
þessa nýju flugleið Lan Chile-flug-
félagsins og tókst þannig að koma
saman ferð í kringum hnöttinn,
sem náði til allra heimsálfa á suð-
urhveli jarðar að viðbættum eyjum
Suður-Kyrrahafs. Staðfesting ligg-
ur fyrir frá ferðamálayfirvöldum,
báðum megin Kyrrahafs og á Tahí-
tí, að enginn ferðamannahópur hef-
ur áður „lagt undir sig heiminn"
með þessu móti. íslendingar hafa
þar með sett heimsmet á ferðalög-
um og þátttakendur í hnattreisunni
eru allir heimsmethafar í þessari
gi-ein, eins og það er orðað á máli
íþróttamanna, en við verðum víst
að fá þetta staðfest í Heimsmeta-
bók Guinnes áður en fjölmiðlar
taka mark á því,“ sagði Ingólfur
brosandi.
Bara brosa og borga
„Dvöl okkar í Santiago de Chile
var stutt, aðeins rúmur sólarhring-
ur og hefði orðið styttri hefði þar
ekki komið upp eina vandamál
ferðalagsins. Ég hef áður farið með
marga ferðahópa til Argentínu án
þess að krafist væri vegabréfsárit-
unar. Fyrir öryggissakir hafði skrif-
stofa Heimsklúbbsins í tvígang
samband við utanríkisráðuneytið
hér heima og var tjáð að áritunar
væri ekki þörf.
Ég átti mér því einskis ills von
þegar á flugvöllinn kom í Santiago
og ferðinni heitið til Buenos Aires.
Starfsfólk flugfélagsins fletti upp í
tölvum sínum og kvað upp þann úr-
skurð að áritunar væri krafist. Við
liggja himinháar sektir flugfélaga
að flytja farþega án vegabréfsárit-
unar til lands þar sem áritunar er
krafist. Nú voru góð ráð dýr.
Komið var kvöld á íslandi, en samt
náðist í embættismenn ráðuneytis-
ins, sem vísuðu málinu til Was-
hington D.C. Sveinn Björnsson
sendiherra brást vel við, en ekki
virtist á hreinu hvort áritunar væri
krafist eður ei, en vitnað í nýlega
reglugerð, sem gefin hafði verið út
eftir brottför hópsins frá íslandi.
Haft var samband við konsúl Ar-
gentínu í Santiago og varð að ráði
að safna öllum vegabréfunum sam-
an og fara með þau inn í borg til
áritunar.
Sem betur fór átti flugfélagið
laus sæti í flugi til Buenos Aires
þetta sama kvöld, og sýndu farþeg-
ar mikla stillingu og samhug vegna
þessa vandamáls. Konsúllinn setti
mér hins vegar afarkosti og krafð-
ist 60 bandaríkjadala fyrir áritun í
hvert vegabréf, sem er langt fyrir
ofan alla taxta og hrein fjárplógs-
starfsemi. En það þýðir ekki að
deila við dómarann. Bara brosa og
borga, svo að ferðin gæti haldið
áfram. Ut yfir tók að hann neitaði
að gefa mér kvittun fyrir greiðsl-
unni. Ég var orðinn allþrekaður
þegar ég kom með öll vegabréfin
árituð til baka um kvöldið, góðum
tíma fyrir framhaldsflugið til Bu-
enos Aires, en farþegarnir fógnuðu
innilega hve vel málið leystist og
olli aðeins nokkurra klukkustunda
töf. Við náðum því háttum á hinu
glæsilega Claridge-hóteli í Buenos
Aires og nutum næstu daga vel í
kynnisferðum og glæsilegri tangó-
sýningu á Senor-Tangó skemmti-
staðnum, sem öllum verður
ógleymanlegur."
f skemmtiborg sömbunnar
„Flestir þátttakendur lögðu
lykkju á leið sína til Iguassu-fossa,
sem er mesta fossasvæði heimsins á
landamærum Argentínu, Brasilíu
og Paraguay. Þeir nutu heimsókn-
arinnar vel með dvöl á nýju dýrind-
ishóteli og sáu hina mikilfenglegu
fossasýn í glampandi sólskini, þar
sem hver regnboginn tók við af öðr-
um, - ógleymanlegt náttúruundur.
Ferðinni lauk í hinni miklu
skemmtiborg sömbunnar, Rio de
Janeiro. Frá hótelinu var útsýn eft-
ir endilangri Copacabana-strönd-
inni upp að Sætabrauðstindi, en á
hina höndina er önnur frægasta
ströndin, Ipanema. Þátttakendur
skoðuðu „fegurstu borg heimsins",
sem oft er nefnd svo, í þægilegu
veðri og sáu hana breiðast út um
dalverpin milli fjallanna, bæði ofan
af Sætabrauðstindi og frá Krists-
styttunni á Corcovado.
Allt ferðalagið hafði gengið slysa-
og áfallalaust. Enginn hlutur hafði
týnst á ferðalaginu af hundrað-
stykkja farangri hópsins fyrr en í
London, að fyrir handvömm flugfé-
laganna varð allui- farangur þar eftir
til næsta dags. En svona smávægileg
skakkaföll eru vart til frásagnar í
ljósi þeirrar vegalengdar sem hópur-
inn hafði lagt að baki og í rauninni
undravert hversu áfallalaust ferðin
gekk frá upphafi til enda, og töldu
margir kraftaverld líkast."
Ingólfur var að lokum spurður
um hvort hann hygðist leggja aftur
upp í slíka ferð sem þessa?
„Mig óraði aldrei fyrir slíkri að-
sókn, sem varð að þessari ferð. Hún
gefur fólki alveg nýja lífssýn og á
erindi við miklu fleiri en gátu farið
að þessu sinni. Það fegursta og
merkilegasta í heiminum á erindi
við allt hugsandi fólk. Ég hef fengið
margar áskoranir og tilmæli um að
enduitaka ferðina og sá undirbún-
ingur er þegar hafinn fyrir lítinn 30
manna hóp að ári liðnu.“
SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1997 B 21K
geisladiskageymslur
LÖSkur fiagNLeg gjöf
a goeu veRÐi
CDT508 taska
fyrir 50 geisladiska
og 8 kassettur.
DP1 taska fyrir
geislaspilara og
geisladiska.
RDA50 standur
fyrir 50-100
diska.
RDC50 standur
fyrir 50-100
diska.
CP1 taska fyrir
vasadiskó og
fjórar spólur.
CC24 veski fyrir
24 diska.
CC60 veski fyrir
60 diska.
DPC2 taska fyrir
geislaspilara og
1 2 diska.
fijteiíinaa og fbEua>3i£;€;y]noisll.9i
Algjör nýjung í geisladiskageymslum.
Tekur fjórum sinnum minna pláss
og mjög auðvelt að finna diskana.
RflDÍÚBÆR
ÁRNIÚLA 38 SÍMI5531133
Verð kr. 2.795
Verð kr. 1.995
Verð kr. 1.795
Verð kr. 1.795
Verð kr. 2.995
Verð kr. 1.195
Verð kr. 1.895