Morgunblaðið - 04.01.1998, Page 6
6 B SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Aukinn áhugi á
heildrænni meðferð
Ef bakið er ekki í lagi, er ekkert í lagi.
Þetta er staðreynd sem stór hópur íslend-
inga hefur fengíð að reyna á sjálfum sér.
En hvað er til ráða og hvert er hægt að
leita til að fá bót á bakmeinum? Súsanna
Svavarsdóttir ræddi við Pétur E. Jónsson
sjúkraþjálfara sem hefur sérhæft sig í bak-
meinum, um orsakir, afleiðingar og meðferð.
HAFIÐ þið tekið eftir því að
næstum allir sem þið hittið
eiga sér lengri eða skemmri
sögur um bakmein - yfir-
leitt lengri? Fólk er með
alls konar tak og skessu-
skot, vöðvabólgu, hryggskekkju og
btjósklos. Það þreytist, verður út-
haldslítið, þarf að liggja, vera á stjái
og svo framvegis. Finnst vont að
sitja.
Það sem er dálítið merkilegt við
öll þessi bakmein er að oftar en
ekki lítur fólk á þetta sem fylgifisk
tilverunnar og veit ekkert hvað er
raunverulega að. Bara harkar þetta
af sér, bíður af sér verstu verkina
en er með stöðug eymsli án þess
að gera neitt í málinu. Eiginlega
áttar maður sig ekkert á þessu fyrr
en maður sjálfur „fer í bakinu" eins
og það heitir og fer að segja frá
því. Þá hafa nánast allir sem maður
talar við verið með bakmein árum,
ef ekki áratugum, saman. Hafajafn-
vel sjúkdómsgreint sig sjálfír og
ákveðið að ekkert sé hægt að gera.
Nema kannski fara í uppskurð...
Mörg okkar vilja heldur vera með
ævilöng eymsli en fara inn á sjúkra
hús, í svæfíngu, aðgerð - og svo
má auðvitað ákveða að lifa við verk-
ina af öðrum ástæðum. Þeir passa
kannski inn í hlutverkið sem maður
velur sér innan fjölskyldunnar eða í
samfélaginu og svo sem ekkert við
því að segja. En einn daginn getur
þó farið svo að bakið segj - stopp!
Og þá eru góð ráð dýr, einkum
fyrir okkur sem erum þjökuð af
sjúkrahúsfælni. Við hljótum að leita
annarra leiða - sem er ekki einfalt
mál vegna þess að þótt bakmein
þjaki meirihluta íslendinga, liggja
upplýsingar um bakið og meðferð
við eymslum ekkert á lausu.
Sjúkraþjálfun er tiltölulega ung
starfserein hér á landi oc lentri vel
vorum við fremur tortryggin gagn-
vart henni en það er sem betur fer
smám saman að breytast. Hins veg-
ar er það svo að sjúkraþjálfarar sér-
hæfa sig á ólíkum sviðum innan
greinarinnar og það getur tekið tíma
að fínna nákvæmlega þann sjúkra-
þjálfara sem er sérhæfður í þeim
eymslum sem maður á við að stríða.
Einn slíkur er Pétur E. Jónsson
sjúkraþjálfari sem hefur sérhæft sig
í bakinu og við erum orðin nokkuð
mörg tilfellin sem hann hefur
munstrað saman - sama hversu illa
dæmið hefur litið út í byijun.
Pétur segir langalgengasta bak-
vandamálið vera hið svokallaða
þursabit og síðan séu það hálsvanda-
málin. Hann hefur reynt að stýra
sér inn á þann hóp sjúklinga, einfald-
lega vegna þess að frá byrjun hefur
þetta svæði verið hans helsta áhuga-
svið. En hvað er þursabit?
„Þursabit er almennt notað um
verki í baki. Það er erfítt að skil-
greina það en algengasta ástæðan
er tognun. Þegar við fáum þursabit,
mvndum við hrevfískerðineu í lið-
férlinu, það er að segja þeim liðamót-
um sem vöðvar hlaupa yfír. Hinn .
eiginlegi verkur er samspil vöðva og
liðamóta."
Brjósklossjúklingar I
niður í tólf ára
En þótt þursabit og einfaldar
tognanir séu kannski algengasta
meinið, er Pétur með stóran hóp
af mun erfiðari tilfellum og er
bijósklosið þar algengast. „Bijósk-
los er orðið mjög algengt í dag.
Ég er að fá bijósklossjúklinga allt (|
niður í tólf ára. Sjúklingarnir eru
alltaf að yngjast."
Hvernig stendur á því?
„Ástæðurnar eru býsna margar.
Stoðkerfið er þannig uppbyggt að
við erum á tveimur fótum; það er
að segja við erum veiðimenn í allri
uppbyggingu. Við erum byggð til
að vera á hreyfingu. Líkaminn þrá-
ir að vera hreyfður og við þolum
illa staðbundið álag, svo sem setur
og kyrrstöður. Það eru kannski þær
breytingar sem hafa átt sér stað
frá því að við vorum bændaþjóð.
Við hreyfum okkur mjög lítið. Sjúkl- '
ingahópurinn sem ég er með er að
mestu leyti kyrrsetufólk."
Þú talar um að hópurinn sé bæði
að stækka og að hann sé að yngj-
ast. Hversu algeng eru bak- og
hálsvandamál hér á landi?
„Við getum alveg slegið því föstu
að 65-80% af fullorðnum einstakl-
ingum eigi eftir að fá slæmt þursa-
bit í bakið á Iífsleiðinni, af ýmsum
ástæðum. Helmingurinn getur «
reiknað með því að verða laus við '
verkina á einni viku. 70% á fyrstu
þremur vikunum og 90% innan
tveggja mánaða. En 2-3% hópsins
á eftir að vera með krónískan verk
sem stendur yfir í ár eða lengur.
Hryggurinn er mjög flókinn
mekkanismi sem er byggður á 25
beinhlutum (hryggjarliðum og L
spjaldhrygg) sem síðan er með 23
bijóskskífur sem virka eins og
demparar á miili hryggjarliða. |
Þessu er síðan öilu haldið saman
með fjöldanum öllum af liðböndum,
sinum og vöðvum. Og hryggurinn
er afar viðkvæmur vegna þess
hversu margir hreyfanlegir þættir
eru í þessu meistaraverki.
Hjá nágrönnum okkar í Svíþjóð
fara 12.000 einstaklingar á örorku-
bætur á ári hveiju vegna bakvanda-
mála og ég geri ráð fyrir að tölur
hér séu mjög svipaðar hlutfallslega
séð. Talan er mjög há í Evrópu al- |
mennt en ég held að hún sé jafnvel
hærri hér en á mörgum öðrum stöð-
um. Ástæðan er starfstengt álag.
Við erum líka of einhæf í vinnu,
búum við mikið stressálag og of
langa vinnudaga.
Algengasta verk í hálsi köllum
við íslendingar vöðvabólgu sem lík-
lega eru meginástæðan fyrir þeim ^
óþægindum. í flestum tilfellum er
hins vegar erfítt að leggja eitthvað
eitt til sem ástæðu en það er hægt I
að fullyrða að ein af meginástæðun-
um fyrir léttari streituverkjum í
hálsi sé fjölgun á störfum, þar sem
fólk situr löngum stundum við tölv-
ur. Verkir í hnakka og á hálssvæði
eru algengari hjá konum og stærsti
hópurinn er í aldurshópnum 45-55
ára.
Það getur oft verið erfítt að festa
fingur á lífeðlisfræðilegri ástæðu
fyrir verknum en aldursbreytingar *
í bijóskskífum, hálsliðum, liðbönd- *
um og vöðvum eru mjög algengar
- en eins og ég sagði er hryggurinn
flókinn „mekanismi" og því oft erf-
itt að koma með nákvæma verkja-
greiningu. Aðrar orsakir fýrir
hálsóþægindum geta síðan verið af
margvíslegum toga, til dæmis gigt-
arverkir, slys eða annars konar
vefjabreytingar. Verkurinn getur
legið í hálshryggnum þar sem
bijóstliðir og hálsliðir mætast, innra a
og ytra svæði axlarliða eða þá að '
verkurinn getur jafnvel leitt upp í
háls frá lungum, hjarta, þind eða
gallblöðru svo eitthvað sé nefnt.
Það sama má segja um bakið í
heild sinni. Orsakirnar geta verið
margar og það er svo ótal margt
sem þarf að skoða þegar sjúklingur
kemur til meðferðar." l
Hvort er betra fyrir sjúkling með
bijósklos að fara í sjúkraþjálfun eða
skurðaðgerð? I|
..Nú er bað bannie að bæklunar-