Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 04.01.1998, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 B 19 %<aiiapúl Þjóðernissinnaðir hindúar sigurvissir Nýju Delhí. Reuters, The Daily Telegjaph. NÆSTU þingkosningar Indlands hefjast 16. febrúar og forystu- menn Bharatiya Janata, flokks þjóðernissinnaðra hindúa, segjast fullvissir um að hann fari með sig- ur af hólmi. Kosið verður á fjórum dögum, 16., 22., 28. febrúar og 7. mars, og gert er ráð fyrir að ný stjóm verði mynduð um miðjan mars. „Við erum fullvissir um að fá mikinn meirihluta," sagði talsmað- ur Bharatiya Janata-flokksins. „Við vonum að kjörstjórnin tryggi frjálsar og heiðarlegar kosningar. Við megum ekki gleyma að ofbeldi hefur verið beitt í nokkrum ríkj- um í fyrri kosningum." Kongressflokkurinn vonast einnig til þess að komast til valda í kosningunum, en hann galt mesta kosningaafhroð sitt á liðnu ári eft- ir að hafa verið við völd í tæp 45 ár af 50 frá því Indland fékk sjálf- stæði. Forystumenn flokksins binda einkum vonir sínar við Son- iu Gandhi, ekkju Rajivs Gandhis, fyrrverandi forsætisráðherra landsins, sem hefur ákveðið að gefa kost á sér í kosningunum. Ef marka má nýjustu skoðana- kannanir er þó ólíklegt að Kon- gressflokkurinn auki fylgi sitt verulega í kosningunum. Bharati- ya Janata-flokknum er spáð 234- 249 þingsætum af 545 en Kon- gressflokknum aðeins 165. Vafasamur ávinningur Stjórnmálaskýrendur sögðu að framboð Gandhi gæti reynst vafa- samur ávinningur fyrir Kongress- flokkinn þar sem Bharatiya Janata gæti beint athygli kjósenda að spill- ingarmálum frá valdatíma Rajivs Gandhis. Þjóðernissinnaðir hindúar gætu ennfremur notfært sér þá staðreynd að ekkjan fæddist á ítal- íu en ekki Indlandi og er ekki hindúi. Sonia Gandhi hafnaði tilboðum um að gerast leiðtogi Kongress- flokksins eftir að Rajiv Gandhi var myrtur fyrir sex árum og gekk ekki formlega í flokkinn fyrr en í maí sl. Þótt hún hafí beitt áhrifum sínum á bak við tjöldin hefur hún hingað til forðast að vera í sviðs- ljósinu og enn er óvíst hvaða hlut- verki hún eigi að gegna í Kongress- flokknum. & mðvikudö gRtargtfitMftMfc -kjarnl málsins! finnast ár eftir ár hjá okkur á karlanámskeiðunum. Karlapúl samanstendur af samhentum hópi karla, góðum kennara, fjölbreyttu æfingaprógrammi og fræðslu. Stöðvaþjálfun og þolþjálfun 3-5x í viku Upplýsingar um fæðuval: Bæklingurinn „í formi til framtíðar" „Léttir réttir" uppskriftabók með 150 léttum og girnilegum uppskriftum Fræðsla Fitumæling og vigtun Vinningar í hverri viku Þrír heppnir og samviskusamir fá frítt framhaldsnámskeið Nýttu þér reynslu okkar í þína þágu. Byggðu upp vöðvamassa og losnaðu við fitu og lærðu að halda þér í góðu formi til framtíðar. Hringdu og skráðu þig strax í síma 533-3355. Námskeiðið hefst 12. jan. 108 REYKJAVÍK S. 533-33S5 SKEIFAN 7 Reuters STUÐNINGSMAÐUR Kongressflokksins á Indlandi hengir upp veggspjöld með mynd af Soniu Gandhi, sem hefur ákveðið að gefa kost á sér f þingkosningunum í febrúar. Þingkosningarnar á Indlandi Cartoon Network á von á 55 milljónum áskrifenda New York. Reuters. CARTOON Network, hið kunna kapalsjónvarp í Banda- ríkjunum, gerir ráð fyrir að ná til 55 milljóna bandarískra áskrifenda haustið 1998, að sögn Betty Cohens forstjóra. Stöðin, sem er deild í Time Wamer Inc., býst við að áskrifendur verði um 50 millj- ónir fyiir árslok 1997 aukist um 15 milljónir á ári. Cartoon Network tók til starfa í október 1992 og nær sem stendur til 320 milljóna áskrifenda í 145 löndum. Sýningar hefjast á tveimur nýjum þáttaröðum á næsta ári: PowerPuff Girls fyrir 5 ára og Ed, Edd’n’ Eddy fyrir unglinga. Teiknimyndaröð um Batman hefur einnig göngu sína. ENSKA ER OKKAR MAL NÁMSKEIÐIN HEFJAST 14. JANÚAR INNRITUN STENDURYFIR FYRIR FULLORÐNA Almenn enskunámskeið Samræðuhópar Málfræði og rituð enska Viðskiptaenska FYRIR BÖRN Leikskóli 5-6 ára Enskunámskeið 7-12 ára Unglinganámskeið 13-15 ára Stuðningsnámskeið fyrir 10. bekk SER NÁMSKEIÐ Sérnámskeið, hámark 4 í bekk TOEFL/GMAT (mat og námskeið) FYRIRTÆKI Bjóðum upp á sérhæfð námskeið fyrir starfsmenn fyrirtækja. ENSKUSKÓLINN FAXAFENI I 0 • FRAMTIÐIN HRINGDU I SIMA 588 0303/588 0305 OG KANNAÐU MÁLIÐ o fnskir menn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.