Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 04.01.1998, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 B 15 Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson STARFSMAÐUR Hljómalindar greiðir úr vandkvæðum viðskiptavina. UNGMENNI í dag hiusta á rapp og danstónlist. Frá Hip hop jam í Vörðuskóla. Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson árum seinna, er eftirspurnin eftir tón- list frá Þórhalli svo mikil að hann gef- ur út plötu á viku. Með hjálp plötufyr- irtækis síns, Thule Records, hefur Þórhallur komið íslenskri danstónlist á blað í Evrópu. Ásamt Þórhalli hafa hljómsveitir og tónlistarmenn líkt og Björk, Gus Gus og Cold slegið vel í gegn á heims- markaðnum í dag. Sorglegast er að neðanjarðarmarkaðurinn sem hér hef- ur byggst upp fær langoftast miklu betri móttökur í öðrum löndum en á íslandi. Oftast viðurkenna íslendingar ekki neðanjarðartónlistarmenn fyrr en þeir hafa slegið í gegn í öðrum löndum, þótt það sé reyndar að breytast. Nú spyrja eflaust margir, hvað með rokkið? Rokkið er auðvitað alltaf til staðar en eftirspumin minnkar stöðugt. Stórverslanir hafa meira að segja hent út þungarokksrekkum fyr- ir danstónlistarrekka. Gróskan er bara alltaf að minnka í rokkinu og verður sífellt meiri í danstónlistinni. Til að sýna hvað neðanjarðarmenn- ing hefur verið á undan í þessum mál- um má taka sem dæmi plötubúðirnar Þrumuna og Hljómalind. Þruman byrjaði sem þungarokksbúð en er nú fyrst og fremst neðanjarðar-danstón- listarbúð. Breytingamar á búðinni urðu mestar vegna eftirspurnar. Hljómalind er annað dæmi. Kiddi byrjaði að selja ófáanlegar pönkplötur í kolaportinu eftir að plötubúðin Grammið hætti störfum. Smátt og smátt byrjaði allt að hlaða utan á sig og endaði með því að hann varð að leigja húsnæði og stofna búð. Búðin byrjaði sem pönk og indie rokkbúð en breyttist smátt og smátt í góða dans- tónlistarbúð þótt enn leynist eitthvað af gamla pönkinu inni á milli. Það sem hefur verið samt skemmtileg stað- reynd er sú að Kidda er alveg skít- sama um hvað er vinsælt og hvað er ekki vinsælt. í búðina kaupir hann inn tónlist sem hann hefur gaman af og ekkert annað. Munurinn á Hljómalind og t.d. Skíf- unni er líklega sá að þegar þú ferð í Skífuna biður þú um einhvem ákveð- inn disk og kaupir hann en þegar þú ferð í Hljómalind veistu ekkert á hverju þú átt von. Vínylplatan og neðanjarðarmenning Vínylplatan er ömgglega það sem skilur neðanjarðarmenningu og stór- markaðinn mest að. Allmargir Islend- ingar halda að vínyllinn sé löngu út- dauður en svo er svo sannarlega ekki. Þetta er eins og að segja að málning- arpenslar séu úr sögunni og nú eigi listmálarar að nota tölvur í staðinn. Stafræn gæði em ekki eins mikil og vinyllinn skilar. Ekki nóg með að það sé betra hljóð á vínylplötum heldur eru þær mest notaða tól sem plötu- snúður á. Plötusnúðar geta ekki skratsað og skankað til geisladiskum, þeir geta ekki komið við geisladiskinn til að hægja á honum snögglega og geta heldur ekki verið eins snöggir að skipta um hann og vínylplötuna. Hljómgæðin verða minni á geisla- disknum vegna þess að hann er allur stafrænn. Það þýðir að öllum hljóðum sé breytt yfir f núll og einn áður en þau em sett á disk. I þessari yfir- færslu tapast mikið af tíðnum sem haldast ávallt á vínylnum. Þó að vín- yllinn sé þetta sterkur mun geisla- diskuriin ávallt bjóða upp á aðra möguleika sem vínyllinn getur ekki. Til dæmis um þetta má nefna þrívídd- arhljóð. Þrívíddarhljóð glatast algjör- lega þegar þau em sett á vínyl á með- an geisladiskurinn ræður auðveldlega við þau. Flestir neðaryarðartónlistar- menn gefa út allar breiðskífur sínar á bæði geisladisk og vínylplötu, en ef um er að ræða smáskífu gera nú all- flestir aðeins vínyleintök. Vínyllinn em. éinnig ódýrari'heldur en geisladiskur- inn og hefur reyndar sótt mikið inn á markaði nú undanfarið. Undirtónar Undirtónar em enn eitt dæmið um hve mikil eftirspum er eftir góðum miðli til að miðla neðanjarðarmenn- ingu til almennings. Markmið Undir- tóna frá upphafi hefur verið að grafa ofan í allar holur og fínna eitthvað markvert sem er að gerast. Blaðið byrjaði sem pínulítill snepill sem gef- inn var út af hinu húsinu undir stjóm Isars Loga og Snorra Jónssonar sem gerðu allt frá því að skrifa til þess að hanna aUt blaðið ásamt fáum vinum sem þjálpuðu. Nú er blaðið komið með eigið húsnæði, nokkrar öflugar tölvur^ og gott orðspor fyrir að segja vel frá ís- lensku tónlistarlífi þó að upp á síðkast- ið hafi það orðið markaðsháðara. Framtíðin Framtíðin er að mörgu leyti mjög björt fyrir íslendinga sem aðra hvað neðanjarðarmenninguna varðar. ís- land er alltaf að verða heitara fyrir út- lendingum og áhuginn á íslenskum tónlistarmönnum hefur vaxið töluvert. Mikið er um að íslendingar fái athygli fyrir það eitt að vera íslendingar. Það eina sem flestir þurfa að kljást við er hrokinn sem einkennir þennan mark- að hér á landi. Þá á ég við að það era svo margir sem fara í samkeppni í stað þess að vinna saman að hlutunum - -i og gera þá betri. Samkeppni er alltaf góð fyrir markaðinn en má alls ekki fara úr böndunum. Hvað er „underground"? „Underground" er einungis hugtak en ekki áþreifanleg sönnun um hvem- ig tónlistin er. „Underground" hug- takið verður aðeins til í huga þess sem gerir lagið og aðeins á þeim tíma sem hann er að gera það. Hvemig lagið er síðan markaðssett hefur auðvitað áhrif á hvemig viðbrögð lagið fær en ef það stendur fyrir sjálft sig ætti það I ekki að skaða það mikið. „Und^ , erground" á aldrei eftir að hverfa því þörfin til að tjá sig eins og maður vill verður ætíð til staðar. Frelsið tíl að gera það sem maður vill án skoðana [ annarra lifir ávallt í öllum. Neðanjarð- armenning, eða „underground“ verð- ur alltaf brautryðjandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.