Morgunblaðið - 04.01.1998, Side 20

Morgunblaðið - 04.01.1998, Side 20
20 B SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Kariforníu flatbökur Japanspistill >» A gjörgæslunámskeiðum í Japan læra nemendur að bjarga sér á japönsku. Þóroddur Bjarnason hefur lært að fara á pósthúsið, borga í strætó, spyrja á hvaða hæð regnhlífarnar eru, hvert strætóinn er að fara og á hvaða brautarpalli á að bíða eftir lestinni, auk þess að panta sér Kariforníu pisur, eins og Japanir bera það fram. G er rétt kominn af „gjörgæslunám- skeiðinu" mínu í japönsku. I tíman- um lærði ég að panta pizzu og kók, eða pisu og kora, frá Pisa Kalifomia, sem er eini flatbökustaðurinn hér í nágrenninu. Á námskeiðinu lærir maður margt sem kemur sér vel í óenskumælandi þjóðfélagi, þjóðfé- lagi þar sem böm læra ensku í sex ár í skóla án þess að skilja upp né niður í neinu eftir á. Eg hef lært að fara á póshúsið, borga í strætó, spyrja á hvaða hæð regnhlífamar era, hvert strætóinn er að fara og á hvaða brautarpalli ég á að bíða eftir lestinni. Allt þetta kemur að ákaflega góðum notum eins og þetta með bökurnar, en þeir ágætu menn hjá Kalifomiu pizzum tala ekki ensku. Það eru ansi mörg ensk orð notuð hér í Japan, orð sem hafa verið aðlöguð í staf- setningu og framburði. Til dæmis er kóla skrifað med erri eins og sést á fyrirsögninni en ástæða þess er að Japanir eiga erfítt með að segja err og bera r jafnframt fram sem 1 og stundum snýst það við, eins skrýtið og það kann að hljóma. Pizzutíminn markaði lok japönskunám- skeiðsins en mikill vill meira og nú er ég að hugsa um að skella mér á framhaldsnám- skeið sem boðið verður upp á bráðlega. Kannski munu einhverjir survivalbekkjarfé- lagar mínir fara líka. Kannski fer hjúkran- arkonan Ann, sem er kasólétt kona, létt í lund frá Sri Lanka. Hún talar pakistönsku (urdu), indversku (hindu), ensku og betri japönsku en aðrir í bekknum, og hún er gift japönskum manni. Kannsld fer hinn nýgifta Yvonne, sem er um það bil 200 kílóum of þung, líka á námskeiðið. Hún er einnig gift japönskum manni sem er lítið heima, að hennar sögn, því eftir langan vinnudag og um helgar er hann duglegur að bjóðast til að taka þátt í hverskonar sjálfboðavinnu. Yvonne er frá Atlanta, heimaslóðum kóksins og hún sagði mér stolt frá því um daginn, með kók í hendi, að kóksopinn væri kjörin byrjun á deginum. Mér verður skiljanlega stundum hugsað um hvemig jafn stórar manneskjur og Yvonne fari að hér í landi og um daginn sagði hún mér að hún vekti mikla athygli, svo ekki sé meira sagt. „Þeir stara nefnilega á eftir mér því ég er svo stór,“ sagði hún og tók son minn, ljóshærðan og bláeygðan, í fangið en hann vekur mikla athygli hér líka og fær sjaldan að vera í friði úti á götu. „Við eram aldeilis góð saman,“ sagði hún við hann, „það held ég að fólk myndi hreinlega missa andlitið ef það sæi okkur tvö saman á göngu,“ bætti hún við og hló. Ég vissi satt að segja ekki hvernig ég ætti að svara henni og þagði því bara og brosti á móti. Ég veit að Terry ætlar að fara. Terry er kanadískur fyrrverandi hermaður sem er að reyna að fá nemendur í litla enskuskólann sem hann er að byrja með. Hann er kvænt- ur japanskri stúlku, Mari, og þau búa hjá foreldram hennar. Terry langar ekki vitund að fara að vinna inni í japönskum skólum eins og margir aðrir útlendingar hér gera, fær hroll við tilhugsunina, segir hann. Terry er reyndar að fara inn á markað sem nær hver einasti útlendingur í borginni er viðrið- inn, sama hvaða bakgrann viðkomandi hef- ur, því hægt er að hafa þokkalegar tekjur af enskukennslu fyrir tiltölulega litla vinnu. Um daginn dreifði Terry um 3.000 dreifi- bréfum til að auglýsa námið sem hann ætlar að bjóða Japönum upp á en hann fékk ekki eina einustu fyrirspum. „Ég hélt að ég kynni á þetta, ég tók nú eitt ár í auglýsinga- fræðum í háskóla," sagði Teiry og hristi höfuðið en hann fékk útskýringu á þessu áhugaleysi von bráðar. Vinur konu hans, einhver sem vissi hvemig átti að semja aug- lýsingar fyrir hérlenda, benti honum á það sem hann gerði rangt. „Þetta gengur ekki og þetta vantar," sagði hann og benti á aug- lýsingablaðið, en Terry spilaði ekki eftir reglunum, notaði ekki klisjurnar. „Auðvit- að,“ sagði ég við Terry þegar hann sagði mér alla söguna. „Þú verður að setja eitt- hvað freistandi nafn á skólann þinn, eitthvað með Love í“ sagði ég og benti honum á aug- lýsingu frá One Love English School sem sjálfsagt dró nemendur til sín í stórum hóp- um. Terry fómaði höndum en ég veit að hann er núna heima hjá sér að semja nýja auglýsingu, eitthvað með Kaliforníu eða Love í - eða hvorutveggja. Tryggingagjald í staðgreiðslu 1998 Vegna breytinga á reglugerð um ábyrgðagjald atvinnurekenda breytist tryggingagjald frá því sem áður var auglýst sem hér segir: Staðgreiðsluskylt tryggingagjald er 5,83% í hærra gjaldstigi en 4,23% í því lægra. Nánar tiltekið sundurliðast gjaldið þannig: Almennt tryggingagjald........ 4,64% Atvinnutryggingagjald......... 1,15% Gjald í ábyrgðasjóð vegna gjaldþrota.............. 0,04% Samtals....................... 5,83% Hærra Lægra 4,64% 3,04% 1,15% 1,15% 0,04% 0,04% 5,83% 4,23% .. 0,65% .. 4,88% RIKISSKATTSTJORI Ekta teppi á lægra verði en gervimottur!! Síðasti dagur útsölunnar á Grand Hótel Reykjavík, Sigtúni. Mörg góð tilboð, t.d. Afghansk Balutch áður kr. 13.800 Nú kr. 7.300 Pakistan 60x90 áður kr. 8.800 Nú kr. 5.800 og margt fleira! Blað allra landsmanna! fMtogltllfelflMfe -kjarni málsins! Að qefnu tilefni! ALLIR sem nota fíkniefni byrja á tóbaki. Hátt verð á tóbaki dregur úr sölu til barna og ungs fólks. Við skorum á ríkisstjórnina að taka stórt skref í forvörnum með því að hækka verð á tóbaki umtalsvert.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.