Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 12

Morgunblaðið - 04.01.1998, Síða 12
12 E SUNNUDAGUR 4. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Nýir starfs- nieim hjá Össuri saman á dögnnum hjá Ríkiskaupum til að undirrita nýjan rammasamning við stofnunina. Ríkiskaup endumýja rammasamning um tölvur NYR samningur um einmennings- tölvur, prentara og íhluti í ramma- samningakerfi Ríkiskaupa tók gildi nú áramótin. Samið var við fímm aðila, þ.e. Digital á íslandi hf., Ein- ar J. Skúlason hf., Nýherji hf., Opin kerfi hf. og Tæknival hf. Að þessu sinni bættust Opin kerfí um- boðsaðili Hewlett-Packard á ís- landi, í hópinn. Fram kemur í frétt frá Ríkis- kaupum að rammasamningur um kaup á einmenningstölvum, prent- urum og íhlutum velti u.þ.b. 140 milljónum króna á fyrsta ári og stefnir veltan í 200 milljónir á þessu ári. Reiknað er með að þessi þróun haldi áfram enda er notkun ramma- samninga Ríkiskaupa ört vaxandi í innkaupum ríkisins. Rammasamningur um einmenn- ingstölvur, prentara og íhluti hefur sparað stofnunum gífurlega fjár- muni bæði með lægra verði en ekki síst í formi tímasparnaðar. Gróflega ályktað má reikna með að þessi samningur skili allt að 40-50 milljóna sparnaði á ári miðað við svipaða veltuþróun. Einnig hef- ur þessi samningur auðveldað kaup á tölvubúnaði þar sem búnaðurinn sem í boði er hefur verið staðlað- ur. Settar eru upp þrjár tegundir af tölvum: A, B og C. Hver tegund tekur breytingum á samningstím- anum eftir því hver tækniþróunin er á hveijum tíma. Þannig hefur rammasamningur Ríkiskaupa um tölvubúnað náð að fylgja eftir nýj- ungum og breytingum á þessu sviði. Fá aðgang að verðlista á heimasíðum seljenda I samningnum eru mörg ný ákvæði sem tryggja kaupendum meiri og betri þjónustu og standa ákvæði um verðlista þar upp úr. Seljendur munu gefa út verðlista á heimasíðum sínum sem þeir upp- færa vikulega. Áskrifendur geta fengið aðgang að verðlistunum með aðgangs- og leyniorði og þannig kynnt sér nýjustu verð á tölvubún- aði beint af heimasíðu Ríkiskaupa. Aðgangs- og leyniorð eru skráð hjá Ríkiskaupum. Heimilt er að rifta samningnum ef vanefndir verða á upplýsingagjöf seljanda. Þá eru í samningnum ákvæði um févíti ef afhendingartími dregst umfram af- hendingartíma skv. tilboði bjóð- anda. Þá er allt sem keypt er skv. samningnum með þriggja ára ábyrgð, bæði vinna og varahlutir. Loks eru ákvæði um mun nánari upplýsingagjöf varðandi vörukaup skv. samningnum, s.s. magntölur, veltu o.fl. • ERLENDUR Geir Arnarson hefur verið ráðinn vörustjóri í markaðsdeild Össurar hf. Er- lendur lauk vél- stjóraprófí frá Vélskóla íslands árið 1982 og starfaði frá 1982-1987 sem vélstjóri á físki- skipum. Erlend- ur nam iðn- rekstrarfræði við Tækniskóla ís- lands og markaðs- og útflutnings- fræði við Den Danske Exportskole í Danmörku. Að námi loknu hefur Erlendur staffað sem sölustjóri hjá Via Technique AS í Kaupmanna- höfn, söluverkefnisstjóri hjá Bur- meister & Wain Scandinavian Contractor og markaðsstjóri hjá Altech ehf. Erlendur er kvæntur Díu Björk Birgisdóttur og eiga þau tvö böm. • FRIÐRIK Anderseu hefur tek- ið við stöðu fjármálastjóra hjá Öss- ur USA, Inc. Friðrik lauk cand.oecon- prófí í viðskipta- fræði frá Há- skóla íslands árið 1985. Frið- rik starfaði sem deildarstjóri hagdeildar Sam- vinnubankans 1986-1987, skrifstofustjóri hjá Rannsóknastofnun atvinnuveg- anna 1987-1990, fjármálastjóri hjá Landakotsspítala 1990-1995, til- sjónarmaður hjá Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti 1995, vann að sérverkefnum hjá Sam- gönguráðuneyti 1996-1997 ogsem lánasérfræðingur hjá Islandsbanka 1997. Friðrik er kvæntur Siw Schalin og eiga þau tvö böm. • HEIÐRÚN Gígja Ragnars- dóttir hefur verið ráðin verkefnis- stjóri í þróunar- deild Össurar hf. Heiðrún Gígja lauk C.Sc.-prófí í byggingaverk- fræði frá Há- skóla íslands árið 1996 og M.Sc.-prófi í verkfræði frá Háskóla íslands árið 1997. • ÓLAFUR Gylfason er nýr verkefnisstjóri í söludeild Össurar hf. Ólafur lauk B. Sc.-prófí í rekstrarfræðum frá Samvinnu- háskólanum á Bifröst árið 1995 og er að ljúka meistara- námi í alþjóða- viðskiptum frá Álaborgarhá- skóla í Danmörku. Ólafur á tvær dætur og sambýliskona hans er Erna Margrét Arnarsdóttir. • ÖRN Ingvi Jónsson hefur ver- ið ráðinn verkefnisstjóri í þróunar- deild Össurar hf. Örn Ingvi lauk C. Sc.-prófi í vélaverkfræði _ frá Háskóla ís- lands árið 1993 og M.Sc.-prófi í vélaverkfræði frá Danmarks tekniske Uni- versitet árið 1997. Örn Ingvi er kvæntur Aldísi Ingimarsdóttur, byggingaverk- fræðingi, og eiga þau tvær dætur. Breytingar hjá Eimskip í TENGSLUM við breytingar á stjómskipulagi hjá Eimskip sem komu til framkvæmda í október sl. voru gerðar eftirfarandi manna- breytingar hjá félaginu: • BENEDIKT Olgeirsson, hefur tekið við starfí forstöðumanns inn- anlandsflutninga á innanlandssviði Eimskips. Bene- dikt hóf störf hjá Eimskip í desem- ber 1993 og hef- ur gegnt starfí forstöðumanns flutningamið- stöðvar frá þeim tíma. Benedikt útskrifaðist sem byggingarverk- fræðingur frá Háskóla Islands árið 1986. Hann stundaði framhaldsnám í framkvæmdarverkfræði og verk- efnisstjómun við University of Was- hington í Seattle og útskrifaðist þaðan með M.Sc. próf árið 1987. Benedikt starfaði áður hjá SH verk- tökum og Álftarósi. • GUÐMUND- UR Nikulásson, hefur tekið við sem forstöðu- maður gáma- hafnar á innan- landssviði Eim- skips. Guðmund- ur hóf störf hjá Eimskip í nóv- ember 1997 í tengslum við skipu- lagsbreytingamar. Hann útskrifað- ist með próf í byggingarverkfræði frá Háskóla íslands árið 1985 og lauk M.Sc. prófí í byggingarverk- fræði frá DTH í Kaupmannahöfn árið 1987. Guðmundur starfaði áður hjá gatnamálastjóranum í Reykjavík og Verkfræðistofunni Hnit. • GUÐMUNDUR Þorbjömsson, hefur tekið við starfí forstöðumanns sölu millilanda- flutninga á flutn- ingasviði Eim- skips. Guðmund- ur hóf störf hjá Eimskip í ágúst 1993 í starfsþró- unardeild þar sem hann veitti gæðamálum fé- lagsins forstöðu. Hann hefur gegnt starfí forstöðu- manns útflutningsdeildar síðan í ágúst 1995. Guðmundur útskrifað- ist sem byggingarverkfræðingur frá Háskóla Islands árið 1981. Hann lauk M.Sc. prófí í byggingarverk- fræði frá University of Washington árið 1983 og MBA prófí frá Univers- ity of Toronto árið 1993. Guðmund- ur starfaði áður hjá Línuhönnun hf. og hjá Minikus, Witta und Partner í Baden Sviss. • KRISTJÁN Jóhannsson, hefur tekið við starfí forstöðumanns markaðsdeildar millilandaflutninga á flutningasviði Eimskips. Krist- ján hóf störf hjá Eimskip í desem- ber 1992 sem kynningarstjóri. í tengslum við breytingar á verksviði, skipu- lagi og þjónustu innanlandsdeild- ar í september 1995 tók hann við starfi forstöðumanns innanlands- deildar og hefur gegnt því starfi síðan. Kristján lauk viðskiptafræð- inámi frá Viðskiptaháskólanum í Árósum í Danmörku árið 1987 og M.Sc. í rekstrarhagfræði frá sama skóla árið 1989. Hann starfaði áður hjá VSÍ, PLS-Consult í Danmörku og hjá kerfisdeild SÍS. • MAGNÚS Helgi Bergs, hefur tekið við sem forstöðumaður stór- flutningadeildar á flutningasviði Eimskips. Magn- ús hóf störf hjá Eimskip í nóv- ember 1997 í tengslum við skipulagsbreyt- ingamar. Hann lauk prófí í bygg- ingarverkfræði frá Háskóla íslands árið 1980. Magnús starfaði áður við verkefna- útflutning í Þýskalandi, hjá Kaup- þingi hf., VSÍ, SH verktökum og sjálfstætt við ráðgjöf. • STEINÞÓR Olafssson, hefur tekið við sem forstöðumaður flutn- ingastýringar á flutningasviði Eimskips. Stein- þór kom aftur til starfa hjá Eim- skip í október 1997 en hann starfaði áður sem deildarstjóri skipa- og gáma- vallarþjónustu á árunum 1994 til lok árs 1995. Stein- þór útskrifaðist sem rekstrartækni- fræðingur frá Odense Teknikum árið 1987. Hann fór í framhaldsnám til Kaliforníu og útskrifaðist með M.Sc. prófí í iðnaðarverkfræði frá University of Southern California árið 1993. Steinþór starfaði áður hjá Pesquera Siglo S.A. de C.V. í Mexiko, hjá Stuðli hf. og Iðnþróun- arfélagi Eyj'afjarðar. • SVEINN Kr. Péturssson, hefur tekið við sem forstöðumaður þjón- ustudeildar á innanlandssviði Eimskips. Sveinn hefur starfað hjá Eim- skip síðan í jan- úar 1986 þegar hann var ráðinn til starfa fyrir félagið í Ham- borg. í október það ár tók hann við sem forstöðu- maður nýstofnaðrar skrifstofu Eim- skips þar í borg. Sveinn hefur verið forstöðumaður innflutningsdeildar síðan 1989. Hann er lærður loft- skeytamaður og starfaði í mörg ár hjá Hafskip, m.a. sem loftskeyta- maður, deildarstjóri og fram- kvæmdastjóri Hafskip Deutschland GmbH. Andúðá samnma bankaí Sviss Ziirich. Reuters. TVEIR svissneskir bankar hafa mætt andúð með fyrir- ætlunum um að sameinast í næststærsta banka heims og segja 13,000 manns upp störf- um, þar af 7,000 í Sviss. Fyrirhugaður samruni Uni- on bankans (UBS) og Swiss Bank (SBC) sem tilkynntur var seint á siðasta ári.hefur vakið ugg um að fyrirtæki muni vinna gegn hagsmunum venjulegra borgara. Bera vott um græðgi Bankastjórar telja fyrir- ætlunina nauðsynlegt skref til að koma á fót hnattrænu fyrirtæki, sem muni halda velli og dafna í heimi r.iis- kunnarlausrar samkeppni. Gagnrýnendur telja fyrirætl- unina bera vott um græðgi og saka fyrirtæki um að bregðast skyldum sínum gagnvart starfsmönnum. Tveir þingmenn hafa hvatt til fundar helztu stjórnmála- manna um atvinnuástand og horfur til að fullvissa Sviss- Iendinga um að tilraunir fyrir- tækja til að auka hagræðingu og hagnað muni ekki koma þeim á kaldan klaka.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.