Morgunblaðið - 03.02.1998, Page 3
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. FEBRÚAR 1998 B 3
ÍÞRÓTTIR
FRJÁLSÍÞRÓTTIR
Jón Arnar
langt frá
sínu besta
Jón Arnar
JÓN Arnar Magnússon, tug-
þrautarmaður úr Tindastóli,
hafnaði i fímmta sæti í sjöþraut
á móti í Tallin í Eistlandi um
helgina. Jón hlaut 5.831 stig en
Islands- og Norðurlandamet
hans er 6.145 stig. Pólveijinn
Sebastian Smara vann, önglaði
saman 6.154 stigum. Annar varð
tæplega 24 ára gamall Rússi,
Alexander Averbuk, með 6.096
stig og landi hans Lev Lobodin
þriðji með 6.091 stig.
„Þetta var slakt,“ sagði Gísli
Sigurðsson, þjálfari Jóns, við
Morgunblaðið. „Ég hefði gjarn-
an viljað að Jón hefði náð tvö
hundruð stigum til viðbótar, þá
hefði verið sagt að allt væri í
lagi. En við erum ekkert ótta-
slegnir út af þessari niðurstöðu.
Við höfum þijár vikur fram að
Evrópumeistaramótinu til að
laga það sem betur má fara og
miðað við æfingar okkar í vetur
kemur ekkert á óvart þó Jón sé
nokkuð þungur. Áherslum í
mörgum æfingum hefur verið
breytt og við höldum okkar
striki þrátt fyrir þetta, en að
sjálfsögðu hefði árangurinn
mátt vera mun betri.“
Jón hljóp 60 m á 7,03 sek.,
stökk 7,40 m í langstökki, varp-
aði kúlu 15,00 og stökk 1,95 m i
hástökki. Á síðari keppnisdegi
hljóp hann 60 m grindahlaup á
8,13 sek., stökk yfir 4,45 m í
stangarstökki og hljóp 1.000 m á
2.46,18 mín. „Síðari dagurinn
var slakari en sá fyrri og eins
voru spretthlaupin mjög léleg;
Jón sat alveg eftir í viðbragð-
inu,“ sagði Gísli. „En ég vonast
til þess að hann bæti sig um 100
stig á viku fram að EM.“
Vala Flosadóttir bætti íslands- og Norðurlandametið
Lofar góðu fýrir
Evrópumótið
Vala Flosadóttir, frjálsíþrótta-
kona úr ÍR, bætti Islands- og
Norðurlandametið í stangarstökki á
alþjóðlegu frjálsíþróttamóti í Gauta-
borg um helgina. Hún stökk 4,26
metra og bætti eldra metið, sem
hún átti sjálf, um sex sentímetra.
Þetta er þriðji besti árangur í heim-
inum í ár. Það eni aðeins Anzhela
Balakhonova frá Ukraínu og Eszter
Szemerédi frá Ungverjalandi sem
hafa stokkið hærra, 4,33 metra, sem
er Evrópumet í gi’eininni. 12 stúlk-
ur tóku þátt í stangarstökkskeppn-
inni og hafði Vala mikla yfirburði.
Danski methafinn var í öðru sæti,
stökk 3,80 metra og það var einmitt
byrjunarhæð Völu.
Vala byrjaði á 3,80 og fór síðan
upp í 4,06 og loks 4,26 metra og fór
yfir þessar hæðir auðveldlega í
fyrstu tilraun. Síðan lét hún hækka
upp í 4,36 metra og freistaði þess að
setja Evrópumet. Hún átti mjög
góðar tilraunir við Evrópumetið en
feldi naumlega.
„Ég er auðvitað mjög ánægð með
að hafa bætt Norðurlandametið því
ég var búin að biða eftir því í eitt ár.
Það var hins vegar klaufaskapur hjá
mér að komast ekki yfir 4,36 metra
því ég var vel yfir en felldi á niður-
leið. Þetta lofar mjög góðu og ég er
greinilega á réttri leið. Ég er orðin
mjög örugg með að fara yfir fjóra
metra,“ sagði Vala sem sagðist hafa
stokkið 4,21 á æfingu í síðustu viku.
Hún sagði að sér hafi liðið mun
betur en þegar hún keppti á IR-
mótinu í Reykjavík fyrir skömmu.
„Ég var of spennt á IR-mótinu enda
bjuggust flestir við að ég næði að
slá met þar. Nú var ég mjög
afslöppuð og náði betur að einbeita
mér. Árangurinn kom mér ekki á
óvart því ég hef verið að stökkva vel
á æfingum og þetta lítur vel út fyrir
Evrópumótið sem fram fer um
næstu mánaðamót,“ sagði hún.
Vala tekur þátt í tveimur mótum í
Þýskalandi í vikunni, á morgun og
fóstudag. Þar verða sterkir kepp-
endur og m.a. Daniela Bartova frá
Tékklandi sem hún atti kappi við á
IR-mótinu. Síðan verður sænska
meistaramótið eftir tvær vikur og
þá fer að líða að Evrópumótinu inn-
anhúss á Spáni þar sem Vala hefur
titil að verja. „Ég veit ekki hvort ég
keppi á fleiri mótum en þessum
þremur fyrir Evrópumótið. Ég ætla
að sjá til hverning þetta þróast. Ég
hlakka til að fara á Evrópumótið og
þar verður örugglega hörkuspenn-
andi keppni í stangarstökkinu,"
sagði Vala.
SKÍÐI
Múrarínn
samur
við sig
Múrarinn Hermann Maier frá
Austurríki sigraði í fjórða
risasvigmóti heimsbikarsins í röð í
Garmisch-Partenkirchen í Þýska-
landi á sunnudag og er það met.
Norðmaðurinn Kjetil Andre Ámodt
vann þrjú mót í röð árið 1993. Maier
jók um leið gott forskot sitt í stiga-
keppninni.
Ljóst er að enginn getur komist
upp fyrir Maier nema hugsanlega
landar hans, Andreas Schifferer,
sem vann brunið á sama stað á laug-
ardag, og Stephan Eberharter. Því
er öruggt að heimsbikarinn fer til
Austurríkis, sem verður í fyrsta
sinn síðan 1970 en þá sigraði Karl
Schranz. Maier hefur unnið sigrað í
öllum greinum heimsbikarsins í vet-
ur nema svigi. Hann er nú með
1.565 stig, Schifferer kemur næstur
með 998 og Eberharter þriðji með
861 stig. Aðeins eru átta mót eftir
og ekki hægt að fá nema 800 stig út
úr þeim. Kjetil Andre Ámodt, sem
varð níundi á sunnudag, er með 715
stig þannig að hann getur ekki náð
Maier, sem hefur unnið tíu mót í
vetur.
Á laugardag var keppt í bruni á
sama stað og náði Andreas Schiffer-
er þá bestum tíma og var þetta
fjórði sigur hans í heimsbikarmóti í
vetur. Hann var þar með fyrsti
Austurríkismaðurinn til að sigra í
bruni í Garmisch síðan Helmut
Höflehner gerði það 1985. „Nú er
ég talinn sigurstranglegur í bruninu
á Ólympíuleikunum en það verður
allt önnur keppni og því rétt að
halda sig á jörðinni," sagði Schiffer-
er á laugardag..
Seizinger eykur forskotið
Katja Seizinger frá Þýskalandi
sigraði í heimsbikarmóti í bruni
kvenna í Áre í Svíþjóð á laugardag-
inn. Þetta var síðasta heimsbikar-
mótið fyrir Ólympíuleikana í Naga-
no sem verða settir næsta laugar-
dag. Seizinger var 0,17 sekúndum á
undan austurrísku stúlkunni
Renate Götschl og Florence Ma-
snada frá Frakklandi varð þriðja.
Heimsmeistarinn í bruni, Picabo
Street frá Bandaríkjunum, var með
Reuters
HERMAN Maier frá Austurríki á fleygiferð á heimsbikarmóti í risasvigi á sunnudag. Hann fékk besta
tímann og fagnaði þar með fjórða sigri sínum í greininni í vetur sem er met. Maier hefur náð frá-
bærum árangri á keppnistímabilinu og náð að sigra f öllum greinum nema svigi.
besta millitímann í brautinni en féll
skömmu síðar á 120 km hraða. Hún
var flutt með þyrlu á sjúkrahús í
Östersund en meiðsli hennar voru
óveruleg.
Seizinger, sem er langefst í stiga-
keppni heimsbikarsins, vann þar
með áttunda mótið í vetur og verður
að teljast til alls líkleg í Nagano.
„Ég ætti að vera ánægð með sigur-
inn en ég fer ekki með góðar minn-
ingar héðan. Brautin var allt of
stutt og hentaði mér því ekki vel.
Ég var aðeins heppnari en hinar
stúlkumar og það réð úrslitum,“
sagði Seizinger sem er 25 ára og
hefur nú unnið 36 heimsbikarmót
síðan 1992.
Götschl, sem er handhafi heims-
bikarsins í bruni, komst á verð-
launapall í þriðja skiptið í röð. „Ég
gerði mistök í efri hluta brautarinn-
ar. Þessi 1.800 metra brunbraut var
einfaldlega allt of stutt til að hægt
yrði að ná að bæta fyrir þau í neðri
hlutanum. En engu að síður er ég
tilbúin fyrir Ólympíuleikana í Naga-
no,“ sagði hún. „Ég átti möguleika á
sigri í dag en nýtti hann ekki. Ég
veit ekki hvort ég fæ annað svona
tækifæri áður en ég legg skíðin á
hilluna eftir þetta tímabil. En ég bíð
spennt eftir að keppa í Japan.“
Guðmundur með
guli frá Danmörku
GUÐMUNDUR
Stephensen, fslands-
meistari í borðtennis
úr Víkingi, sigraði á
stigamóti 18 ára og
yngri í Danmörku um
helgina. í úrslitum
lagði hann Danann
Jesper Dahl í tveimur
lotum, 21:16 og 21:13.
Þetta var fimmti og
síðasti hluti mótarað-
arinnar, en á fyrri
mótunum fjórum hefur
Guðmundur ævinlega
hafnað í öðru sæti. Til
þessara móta koma allir sterkustu
borðtennismenn Danmerkur 18 ára
og yngri og því ljóst að árangur
Guðmundar á þessum mótum er
mjög athyglisverður því hann er að-
eins 15 ára.
í framhaldi af
frammistöðu Guð-
mundar á stigamótun-
um hefur landsliðs-
þjálfari Danmerkur í
borðtennis lýst yfir
áhuga sínum að Guð-
mundur leiki með
sterkasta unglinga
landsins, Michael
Maze í tvíliðaleik á
Evrópumeistaramóti
unghnga sem fram er
fer á Ítalíu í sumar.
Guðmundur og Mase
voru saman í tvíliða-
leik á Evrópumeistaramóti unglinga
fyrir tveimur árum og unnu þá til
silfurverðlauna. Telur danski lands-
liðsþjálfarinn að möguleikar Guð-
mundar og Maze á því að vinna gull-
verðlaun á mótinu séu veruleg.
Guðmundur
BORÐTENNIS
Amar
og félagar
sigmðu
ARNAR Grétarsson og sam-
heijar í AEK í Aþenu sigruðu
Olympiakos, 1:0, ítoppslag
grísku 1. deildarinnar í knatt-
spyrnu í gærkvöldi. Arnar var
með og stóð sig mjög vel. Með
sigrinum skaust AEK í efsta
sætið; hefúr 50 stig en Olympi-
akos og Panathinaikos hafa
bæði 49. „Með sigri hefðu þeir
Peikmenn Olympiakos] komist
fimm stigum fram úr okkur
þannig að það skipti okkur öllu
máli að sigra,“ sagði Arnar í
gærkvöldi. „Nú erum við í
góðri stöðu og algjörlega und-
ir okkur sjálfum komið hvort
við náum settu inarki.“
Kristján
frábær
KRISTJÁN Finnbogason,
markvörður KR sem er nú lyá
Ayr United í skosku 1. deild-
inni, tók þátt í fyrsta leiknum
með liðiuu um helgina og lék
frábærlega. Ayr mætti Raith
Rovers í deildinni og náði
hvorugt liðið að skora. Það var
eingöngu Kristjáni að þakka
að gestirnir í Raith, sem eru í
toppbaráttu deildarinnar,
skoruðu ekki; hann varði
nokkrum sinnum mjög vel og
tvívegis frábæriega.
Ekki er enn ljóst hvort Kri-
sfján verður áfram lijá félag-
inu; forráðamenn þess vilja
ólmir semja við hann fram á
vor en Krisfján, sem heldur í
dag tii Kýpur með landsliðinu,
hyggst hugsa málið í nokkra
daga.
Baldur
meiddist
BALDUR Bragason, sem leik-
ur með Panahaiki í grísku 1.
deildinni í knattspyrnu, meidd-
ist á ökkla í leik um helgina.
Hann er í gifsi og heimiidir
Morgunblaðsins herma að
hann verði frá æfingum í um
það bil þrjár vikur.